Morgunblaðið - 06.05.1995, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 55
DAGBOK
VEÐUR
6. MAÍ Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólris Sól í hád. Sólset Tungl í suöri
REYKJAVÍK 4.16 1,1 10.25 3,0 16.28 1,2 22.51 3,2 3.15 13.25 23.36 18.59
ÍSAFJÖRÐUR 6.25 0,4 12.24 1,4 18.36 0,5 2.28 13.31 24.38 18.03
SIGLUFJÖRÐUR 2.24 1,1 8.44 JL3 15.22 1,0 20.53 0,4 2.09 13.13 24.22 18.47
DJÚPIVOGUR 1.27 0,6 7.18 1,5 13.35 0£ 19.53 -L6 2.39 13.55 23.13 18.29
Siávarhæö miðast við meðalstórstraumsfiöru (Morgunblaðið/Siómælinaar (slandsl
o ó o -r1
* * ' l i C ) V
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
t é 4 4 Ri9nin9
* # !4 * Slydda
Alskýjað * * * Snjókoma Él
Skúrir | Sunnan,2vindstig. 10° Hitastiq
’ • . | Vindörin sýnir vind-
U*Slydduel j stefnu og fjöðrin SSS Þoka
v—- - J vindstyrk,heilfjöður 4*
^ er 2 vindstig. 4 Suld
VEÐURHORFUR í DAG
Yfirlit: 1004 mb minnkandi lægð um 500 km
austnorðaustan af landinu hreyfist austur.
1000 km suðsuðvestan í hafi er 999 mb lægð
sem þokast norðaustur. Vaxandi 1.024 mb
hæð er yfir N-Grænlandi.
Spá: Austan- og norðaustanátt, kaldi norðvest-
anlands en austan gola. Skýjað og súld með
köflum norðan- og austanlands. Suðvestan-
og vestanlands verður léttskýjað. Hiti 1-5 stig
við norður- og austurströndina en annars 5-11
stig, hlýjað suðvestantil.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
Sunnudag: Norðaustanátt, víðast kaldi.
Smáskúrir eða slydduél norðanlands og suður
með austurströndinni en léttskýjað á Suður-
og Vesturlandi. Hiti á bilinu 1 til 4 stig norðan-
lands en 4 til 7 stig sunnanlands að deginum
en niður undir frostmark að næturlagi.
Yfirlit
H Hæð L Lægð Kuldaskil____________________Hitaskil_______Samskil
Helstu breytingar til dagsins i dag: Lægöin fyrir austan
land fjarlægist, en lægðin suðvestur i hafi hreyfist til
norðausturs fyrir sunnan landið.
Mánudag og þriðjudag: Norðaustan gola eða
kaldi og talsvert kólnandi veður eða hiti á bil-
inu -3 til +1 stig norðanlands og austan en -2
til +4 stig suðvestanlands, kaldast í innsveitum
að næturlagi. Dálítil él norðanlands og austan
en léttskýjað á Suður- og Vesturlandi.
Veðurfregnatfmar: 1.30, 4.30, 6.45, 7.30,
10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími
Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600.
Fyrir ferðamenn: 990600 og síðan er valið 8.
FÆRÐ Á VEGUM
(Kl. 17.30 í gær)
Upplýsingar um færð eru veittar hjá þjónustu-
deild Vegagerðarinnar í Reykjavík í símum:
996316 (grænt númer) og 91-631500.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri 5 alskýjað Glasgow 15 skýjað
Reykjavík 4 súld Hamborg 22 skýjað
Bergen 10 skýjað London 25 léttskýjað
Helsinki 14 skýjað Los Angeles 12 skýjað
Kaupmannahöfn 19 þokumóða Lúxemborg 24 léttskýjað
Narssarssuaq 1 skýjað Madríd 24 léttskýjað
Nuuk -1 skýjað Malaga 20 skýjað
Ósló 15 skýjað Mallorca 25 heiðskírt
Stokkhólmur 18 skýjað Montreal 12 skýjað
Þórshöfn 8 rignlng NewYork 13 alskýjað
Algarve 21 þokumóða Orlando 22 alskýjað
Amsterdam 24 mistur París 27 skýjað
Barcelona 21 heiðskírt Madeira 21 léttskýjað
Berlín 21 skýjað Róm 19 léttskýjað
Chicago 7 þokumóða Vín 19 léttskýjað
Feneyjar 23 þokumóða Washington 14 rigning á síð. klst
Frankfurt 24 skýjað Winnipeg -2 heiðskírt
Spá
HlotgttttftltoMb
Krossgátan
LÁRÉTT:
1 viðkvæmur, 8 lélega
rúmið, 9 heitir, 10
dráttardýrs, 11 lifir, 13
rekkjum, 15 grenja, 18
þoli, 21 sundfugl, 22
álítur, 23 slóra, 24 tarf-
ur.
LÓÐRÉTT:
2 veður, 3 örlagagyðja,
4 blettir, 5 kjánum, 6
viðauki, 7 botnfall, 12
reið, 14 rándýr, 15 pest,
16 hyggur, 17 ákveð,
18 ávöxtur, 19 hæðar,
20 sefar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: - 1 slægt, 4 fálma, 7 æptir, 8 múgur, 9 aum,
11 týna, 13 firð, 14 lamdi, 15 sumt, 17 snák, 20 ull,
22 örðug, 23 ormur, 24 garns, 25 kanna.
Lóðrétt: - 1 slæpt, 2 ættin, 3 tíra, 4 fimm, 5 lagni,
6 afræð, 10 urmul, 12 alt, 13 fis, 15 stöng, 16 móð-
ur, 18 náman, 19 kerla, 20 uggs, 21 lokk.
í dag er laugardagur 6. maí,
126. dagur ársins 1995. Orð
dagsins er: Drekkið yður ekki
drukkna af víni, það leiðir
aðeins til spillingar. Fyllist
heldur andanum.
(Efes. 5, 18.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Dettifoss fór í gær-
morgun, Otto N. Þor-
láksson kom þá til lönd-
unar og Stapafell fór
út í gærdag. í dag fer
rússneski togarinn
Volnyy Veter og togar-
inn Skagfirðingur
kemur inn til viðgerða.
Fréttir
Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið hefur veitt
Elínu Arnadóttur, lög-
fræðingi, leyfi til mál-
flutnings fýrir héraðs-
dómi. Þá hefur ráðuneyt-
ið veitt sr. Svavari A.
Jónssyni, lausn frá emb-
ætti sóknarprests í Ólafs-
fjarðarprestakalli í Eyja-
íjarðarprófastsdæmi, að
eigin ósk, frá 1. júní 1995
að telja og einnig hefur
sr. Tómasi Guðmunds-
syni, sóknarpresti í
Hveragerðisprestakalli
verið veitt lausn frá emb-
ætti prófasts í Ámes-
prófastsdæmi, að eigin
ósk frá 1. október 1995
að telja, segir í Lögbirt-
ingablaðinu.
Mannamót
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
heldur félagsfund FEB
mánudaginn 8. maí nk.
kl. 17 í Risinu. Kosning
14 fulltrúa á landsfund
Landssambands aldr-
aðra sem haldin verður
í Risinu dagana 7. og
8. júní nk. Á félagsfund-
inum flytur Rannveig
Pálsdóttir, húðsjúkdó-
malæknir, erindi.
Hvassaleiti 56-58. Sýn-
ing á handavinnu og list-
munum aldraðra, unn-
um í Hvassaleiti og þjón-
ustuselinu Sléttuvegi,
verður í félags- og þjón-
ustumiðstöðinni
Hvassaleiti 56-58 dag-
ana 6., 7. og 8. maí kl.
13.30-17 alla dagana.
Hátíðakaffi.
Kvenfélag Grensás-
sóknar heldur sína ár-
legu kaffisölu á morgun,
sunnudag, frá kl.
15-17.30 í safnaðar-
heimilinu. Tekið á móti
kökum frá kl. 10 sama
dag. Sfðasti félagsfund-
ur verður mánudaginn
8.maí.
Kvenfélagið Heimaey
verður með sitt árlega
lokakaffí sunnudaginn
7. maí kl. 14 í Súlnasal
Hótel Sögu og eru allir
velkomnir.
Húnvetningíifélagið í
Reykjavík býður eldri
Húnvetningum til kaffi-
drykkju á morgun
sunnudag kl. 14 í Akog-
es-salnum, Sigtúni 3.
Félag austfirskra
kvenna sameinar síð-
asta fund vetrar og sum-
arfagnað sinn á morgun
mánudaginn 8. maí.
Farið verður frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 14
og snæddur kvöldverður
við Geysi. Uppl. hjá
Hólmfríði f síma 71322.
Breiðfirðingafélagið
verður með dag aldraðra
á morgun sunnudag kl.
15.30 í Breiðfirðinga-
búð, Faxafeni 14.
Snæfellingar og
Hnappdælir halda fjöl-
skyldudag í Áskirkju á
morgun sunnudag kl.
14. Kaffi eftir messu.
SSH, stuðnings- og
sjálfshjálparhópur
hálshnykksjúklinga.
Fundur verður mánu-
daginn 8. maí kl. 20 í
ÍSI-húsi 1, 2. hæð. Fyr-
irlesari verður Magnús
Ólason, orku- og endur-
hæfingalæknir.
Skaftfellingafélagið í
Reykjavík verður með
kaffiboð fyrir eldri
Skaftfellinga á morgun
sunnudag kl. 14 í Skaft-
fellingabúð, Laugavegi
178.
Langahlíð 3. Handa-
vinnusýning og basar
verður dagana 13. og
14. maí nk. Móttaka
basarmuna hefst mánu-
daginn 8. maí nk.
ITC-deildin Kvistur
heldur fund á morgun
mánudag kl. 20 í Litlu-
Brekku, Bankastræti.
SÁÁ, félagsvist. Spiluð
verður félagsvist í Úlf-
aldanum og Mýflugunni,
Ármúla 17A, í kvöld kl.
20. Allir velkomnir.
Lífeyrisdeild Lands-
sambands lögreglu-
manna heldur hefð-
bundinn sunnudagsfund
deildarinnar á morgun
sunnudaginn 7. maí.
Fundurinn hefst kl. 10
og verður í Félagsheim-
ili LR, Brautarholti 30.
Bahá’íar eru með opið
hús í kvöld í Álfabakka
12, kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Hallgrimskirkja. Sam-
vera fermingarbama kl.
11.
Neskirkja. Félagsstarf
aldraðra:
Kefas, Dalvegi 24,
Kópavogi verður með
almenna samkomu í dag
kl. 14 í umsjá unglinga.
Lerki
GÖNGUBRÚ úr íslensku lerki var afhent
Skógrækt ríkisins nýlega í verksmiðju
Límtrés hf. á Flúðum segir í Morgunblað-
inu í gær. Margt hefur verið unnið úr lerki
t.d. hefur skiltagerðin Skiltið nýlega hafið
framleiðslu skilta úr lerki fyrir sumarbú-
staði. Veitingastofa ein á Egilsstöðum var
innréttuð' j skógarstíl úr völdu lerki úr
Hallormsstaðaskógi sem gróðursett var
um 1960. Lerki þykir mjög fallegur viður
bæði í þiljur og gólf og hefur verið notað-
ur sem umbúðapappír utan um gjafavöru
og framleiðandinn fengið erlend umbúða-
verðlaun fyrir. Lerki er spengilegt og fal-
legt tré sem ólíkt öðrum bari-trjám fellir
nálar að hausti. Barrfallið veldur því að
lerki fellur öðrum barrviðum betur að ís-
lensku náttúrufari. Það er undantekning-
arlítið ræktað sem einstofna tré og þarfn-
ast lítillar klippingar eftir að það hefur
komist á legg. í æsku hættir lerki til að
verða margstofna og margtoppa og því
þarf að stýra vextinum með klippingu
fyrstu æviárin. Greinarnar eru stökkar og
af þeim sökum er varhugavert að klifra í
lerkitrjám. Verði tréð fyrir áföllum hættir
greinunum til að vaxa inn að stofni. Ger-
ist það verður að fjarlægja innlægjurnar.
Neðstu greinamar eru oft fjarlægðar þegar tréð fullorðnast til að
stofninn njóti sín og undirgróður nái þroska. Lerki er hægt að nota
í klippt limgerði en það er óalgengt. Þá er plantað tveimur til
þremur plöntum á hvern lengdarmetra. Einnig er sumarklippt af
hliðum þess og það ekki toppað fyrr en fullri hæð er náð. Til að
gróðursetja lerki er grafin hola, ein skóflustunga á dýpt, fyllt af
búfjáráburði (aðallega hrossataði) og rennt 2 cm moldarlagi yfir
til að útiloka arfa. Þá fer lerkiplantan beint ofan í holuna. Þessi
aðferð gefur mikla grósku, heilbrigðar og þróttmiklar plöntur.
Lerki þrífst vel þar sem skjól er fyrir þyngstu hafátt og á að líkind-
um rétt á sér við slíkar aðstæður.
MORGUNBLADIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavik. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Askriftir: 569 1122. SÍMBRÉF; Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1116. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.