Morgunblaðið - 14.05.1995, Page 34
34 SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Vagnhöfði 10
Mjög gott og vel útbúið 431 fm iðnaðarhúsnæði á tveim-
ur hæðum með góðu útiplássi. Efri hæðin er nýtt und-
ir skrifstofur, starfsmannaaðstöðu og lager, en á neðri
hæðinni er móttökuskrifstofa, opinn vinnusalur og
smávörulager. í húsnæðinu er öflugt hita- og loftræsti-
kerfi og þjófavarnarkerfi. Guðlaugur gefur allar nánari
upplýsingar.
® 10090
SKIPHOLTI 50B,
2. hæð til vinstri
KAUPENDUR
Opið hús í dag kl. 14-17
Kringlan 87
Gullfalleg um 100 fm íbúð á 2. hæð. Fallegar innr. Stórar yfir-
byggðar suðursv. Bílageymsla. Sævar og Helga sýna íb. milli
kl. 14 og 17.
Hrafnhólar 8 - laus
65 fm íbúð á 8. hæð/efstu í góðu lyftuhúsi. Rúmg. stofa. Mik-
ið útsýni. Verð aðeins 5,0 millj. Hörður sýnir íbúðina milli
kl. 14 og 17.
Fyrir laghenta - Hverfisgata 59
82 fm 3ja herb. íbúð á efstu hæð í góðu steinhúsi auk stækk-
unarmöguleika í risi. Verð aðeins 4,7 millj. Einar sýnir milii
kl. 14 og 17.
Bogahlíð 22 - laus
80 fm vönduð íbúð á 1. hæð í fjölbýli. 2 svefnh., borðstofa
og stofa. Nýlegt parket. íbúðin er nýmáluð og lítur vel út.
Svandís sýnir í dag milli kl. 14 og 17.
Sóleyjargata 19 v/Hljómskálagarðinn
92 fm efri hæð í góðu þríb. á þessum eftirsótta stað. 2
svefnh., 2 stofur. Suðursvalir. Bílskúr. íbúðin er laus strax og
er til sýnis milli kl. 14 og 17.
Birkihlíð 12
181 fm neðri sérh. í tvíbýli á þessum frábæra stað. 4 svefnh.,
2 stofur. Áhv. 5,6 millj. Verð aðeins 10,9 millj. Valdimar sýnir
í dag milli kl. 14 og 17.
Norðurás 6
Glæsileg 150 fm 5-6 herb. endaíb. á tveimur hæðum með
innb. bílskúr. Vandaðar innréttingar. Suðursvalir. Áhv. hagst.
lán 6,8 millj. Verð aðeins 10,9 millj. Erling og Ólafía sýna
milli kl. 14 og 17 í dag.
Húsið, fasteignasala,
Suðurlandsbraut 50, s. 5684070.
Opiðídag kl. 12-14.
I DAG
SKAK
Umsjón Margcir
Pétursson
SVARTUR leikur og
vinnur
Við sáum í gær hvernig
ungi Rússinn Mor-
osevitsj fléttaði
glæsilega gegn An-
and á atskákmótinu
í Moskvu. Indverj-
inn lét þetta þó ekki
slá sig út af laginu.
Hann jafnaði metin
og hafði svart og
átti leik í þessari
stöðu í úrslitahrað-
skák: 19. - Hxb3!
20. cxb3 (Skárra
var að sætta sig við
mannstap) 20. —
Rxe4 (Hvíta
drottningin er nú fönguð
og hann gæti gefist upp)
21. Kbl - Rxg3 22. Rd5
- Db8 23. hxg3 - Bb7
og Morosevitsj gaf nokkr-
um leikjum síðar.
Anand komst því í und-
anúrslitin og sigraði þar
sjálfan Gary Kasparov. í
úrslitunum tapaði hann
hins vegar fyrir Úkraínu-
e d • f g h
manninum sterka, Vasílí
ívantsjúk.
Pennavinir
TÓLF ára lettnesk stúlka
með áhuga á tónlist:
Alise Sirone,
226007 Riga,
Kuldigas iela 31/33-4,
Latvia.
TUTTUGU og átta ára
Ghanastúlka með áhuga á
íþróttum og bréfaskriftum
Colda Ivy
Box 1290
Cape Coast,
ChanA
TUTTUGU og sex ára
Ghanastúlka með áhuga á
ferðalögum, bókalestri og
tónlist:
Yaa Serwaa Manu,
P.O. Box 802,
Cape Coast,
Ghana.
TUTTUGU og sex ára
Ghanastúlka með áhuga á
bréfaskriftum, tónlist, bók-
menntum og póstkorta-
söfnun:
Lucy Mbroh,
c/o J. Mbroh,
P.O. Box 230,
Sekondi,
Ghana.
TUTTUGU og sex ára
Ghanastúlka með áhuga á
kvikmyndum, matargerð
og ferðalögum:
Rejoice Dzormeku,
P.O. Box 897,
London Bridge,
Cape Coast,
Ghana.
TUTTUGU og sex ára
Ghanastúlka með áhuga á
ferðalögum, tónlist og kvik-
myndum:
Stella Koomson,
Post Box 390,
Cape Coast,
Ghapa.
SEXTÁN ára Ghanapiltur,
tækniskólanemi, með
áhuga á tónlist, íþróttum
o.fl.:
Kadiri Mumuni,
P.O. Box I"?.
Akwatia,
Ghaiza
SEXTÁN ára japönsk
stúlka með tónlistaráhuga:
Kayoko Kishino,
1-6-8 Kayashimahigas-
hi,
Neyagawa-shi,
Osaka 572,
Japan.
ÞRETTÁN ára þýsk stúlka
með áhuga á sundi, bóka-
lr -stri, hjólreiðum og flautu-
leik:
Saskia Grönig,-
Igelweg 3,
73061 Ebersbach,
Deutschland.
TUTTUGU og sex ára
Ghanastúlka með áhuga á
blaki, tónlist, dansi, sundi
o.fl.:
Gioria Jackson Sey,
P.O. Box 1088,
Oguaa District,
Ghana.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Skinnhanski
tapaðist
EKTA svartur skinn-
hanski fóðraður innan
með ptjónafóðri tapaðist
laugardaginn 5. maí sl.
á Laugayeginum. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 20346.
Gæludýr
Ugla er týnd
ÞESSI kisa sem heitir
Ugla er hvít, svört og
gulbrún og mjög mikið
loðin og virkar þess-
vegna fremur feitlagin.
Hún hvarf frá Lundar-
brekku 10, Kópavogi
þriðjudaginn 9. maí sl.
þar sem hún hafði verið
í gæslu í tæpa viku en
heimili hennar er á
Hjallavegi í Reykjavík.
Fólk í nágrenni Lundar-
brekku er vinsamlega
beðið um að athuga
geymslur sína og bíl-
skúra ef vera kynni að
hún hafi lokast einhvers-
staðar inni. Geti einhver
gefið uppiýsingar um
ferðir Uglu vinsamlega
hafið samband við Kol-
brúnu í síma 642166.
HÖGNIHREKKVÍSI
z, 'ATTU TIL ElTTHUÍAÐ SE44
honpa i' (d/Hirgu ?"
KU6LAR SPOR-
Víkveiji skrifar...
NÆRRI lætur að einn bíll sé á
hveija tvo landsmenn -
131.840 talsins: 116.243 fólksbif-
reiðir, 14.348 vöru- og sendibifreið-
ir og 1.249 hópferðabifreiðir.
Langt er síðan útgerðarstjórar
ríkisskattheimtunnar sáu veiðivon í
bifreiðaflotanum. Á þau mið hefur
verið stanzlaust róið. Og litlar sem
engar veiðitakmarkanir!
Fyrst nefnir Víkveiji innflutn-
ingsgjöld og virðisaukaskatt, sem
eru gott betur en helmingur af sölu-
verði bfia. En það er bara fyrsta
vers. Síðan kemur annað vers, benz-
íngjaldið, sem færði í fyrra um 4,3
milljarða króna úr vösum bifreiða-
eigenda til ríkisins. Þá kemur þriðja
vers, þungaskatturinn, sem fór með
nálægt 2,2 milljarða sömu leið.
Samdráttur hefur verið í bifreiða-
innflutningi undanfarin ár, m.a.
vegna ofsköttunar. Það virkar til
góðs fyrir viðskiptajöfnuðinn. En
skerðir skatttelqur ríkissjóðs þegar
grannt er gáð. Og hækkar meðalald-
ur og viðhaldskostnað bílaflotans.
xxx
JÁ FLESTUM ráðast útgjöld
af tekjum. Greiðslugetan
ræður ferð. Öðru máli gegnir um
ríkið. Útgjöld þess hafa vaxið mun
hraðar en þjóðartekjur.
Víkveiji verður þó að viðurkenna
að á síðasta kjörtímabili urðu nokk-
ur þáttaskii. Á árabilinu 1991-
1994 lækkuðu ríkisútgjöld að raun-
virði um sjö af hundraði - eða sem
nemur tæpum níu milljörðum
króna. Það munar um minna, þótt
enn sé eytt langt um efni fram.
í fyrra nam halli ríkissjóðs 7,4
milljörðum króna, samanborið við
9,6 milljarða í fjárlögum ársins.
Þetta var í fyrsta sinn síðan árið
1984 - eða í áratug - að útkoman
var betri en fjárlög gerðu ráð fyrir.
í skýrslu um ríkisfjármál 1994
er yfírlit um þróun ríkisútgjalda frá
1986. Þar sést m.a. að mestur
„spamaður“ hefur verið í framlög-
um ríkisins til landbúnaðar. Árlegt
framlag ríkissjóðs til búvörumála
hefur lækkað um 4.700 m.kr. frá
árinu 1991. Gerð þjónustusamninga
og „vöxtur" í útboðum hefur og
skilað góðum árangri.
Framlög til sjúkratrygginga og
sjúkrahúsa hafa á hinn bóginn
hækkað að raungildi um 44% frá
1986. Vöxturinn í utanríkisþjón-
ustunni er 60%. Því veldur aukin
þátttaka í alþjóðasamvinnu. Fram-
lög til skólamála hafa í heild hækk-
að um 16%: 35-45% til háskóla og
framhaldsskóla en tæp 9% til
grunnskólans. Breytt verkaskipting
ríkis og sveitarfélaga hefur áhrif á
fjárframlög til grannskólans.
xxx
ILOKIN dulítil sagnfræði. Nafn-
ið ísland kemur fyrst fyrir í
norrænum kvæðum á 10. öld, á
engilsaxnesku korti og rúnasteini á
11. öld, svo og í ritum Adams erki-
biskups í Brimum 1072, segir í ís-
landssögu Einars Laxness.
Heitið íslendingur kemur fyrst
fyrir í samningi, sem íslendingar
gera við Ólaf helga Noregskonung
um 1022, skrásettum 1083. Á 11.
öld notaði Sighvatur skáld Þórðar-
son orðið íslenzkur í ljóðatexta.
Einar skiptir íslandssögu í tíma-
bil: 1) Papar og norrænir menn
koma til landsins um 800-874. 2)
Landnámsöld 874-1030. 3) Stofn-
un ríkis, þjóðveldisöld, 930-1030.
4) Friðaröld, kristni, upphaf
mennta, 1030-1118. 5) Kirkju-
goðaveldi í skjóli tíundar 1118-
1220. 6) Sturlungaöld, valdabarátta
ætta, lok þjóðveldis með Gamla
sáttmála 1220-1262. 7) Skattland
Noregs- og Danakonunga 1262-
1550, 8) Siðaskipti, efling konungs-
valds, einokunarverzlun 1550-
1684, 9) Einveldi, verzlunaránauð,
1684-1750, 10) Upplýsingaöld,
viðreisnarbarátta, 1750-1830, 11)
Lok einveldis, frelsisbarátta 1830-
1874, 12) Landshöfðingjadæmi,
löggjafarvald og fjárforræði 1874-
1904, 13) Heimastjórn, íslenzkt
stjórnarráð (ráðherra) 1904- 1918,
14) Fullveldi, konungssamband við
Dani, 1918- 1944, 15) Lýðveldi,
tækniframfarir, þjóðfélagsbreyt-
ingar 1944 og síðan.