Morgunblaðið - 14.05.1995, Page 42
42 SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
Jordan tapaði í
treyju númer 23
Los Angeles Lakers náði að sigra San Antonio Spurs
ÍÞRÓmR
FOLK
■ HJÖRDÍS Guðmundsdóttir,
markvörður Víkinga er á leið til
Danmerkur, þar sem hún fer í
skóia og spilar handbolta.
■ HEIÐA Erlingsdóttir, hand-
knattleikskona sem leikið hefur með
Víkingi og Selfoss, er á einnig leið
til Danmerkur þar sem hún mun
stunda nám og spila handbolta með
2. deildar liði.
■ ÞÓRIR Hergeirsson, landsliðs-
þjálfari norska unglingalandsliðs-
ins, mun á mánudag halda fyrirlest-
ur í ÍSÍ klukkan 19.30 á mánudag-
inn. Þar verður meðal annars fjallað
um skottækni.
■ STEINDÓR Gunnarsson, þjálf-
ari sunddeildar UMFN, var út-
nefndur þjálfari ársins á ársþingi
Sundsambandsins um síðustu
helgi. Sundkrakkar úr Njarðvík
hafa vakið mikla athygli fyrir góða
frammistöðu á síðasta ári.
■ SINDRI Grétarsson, knatt-
spymumaður úr_ Vestmannaeyjum
sem lék með BÍ í 3. deild í fyrra,
hefur skipt yfir í 2. deildarlið HK.
Sindri var næst markahæsti leik-
maður 3. deildar í fyrra, gerði 14
mörk.
■ EMILIO Butragueno hættir að
leika með Real Madrid að loknu
þessu tímabili og líklegt er að hann
haldi til Japans og ljúki ferlinum
með þarlendu félagi. Butraguen,
sem hefur uppnefnið „gammurinn"
hefur verið í herbúðum Real
Madrid í meira en áratug, en hann
hefur lítið leikið með upp á síðkast-
ið. Hann hefur lýst því yfír að hann
hafí ekki áhuga á því að leika með
öðru félagi á Spáni.
■ NÚ er að vinna að því að koma
á kveðjuleik fyrir Butragueno á
milli Real Madrid og annað hvórt
Ajax eða Bayem Munchen.
■ DANSKI landsliðsamðurinn í
knattspymu, Flemming Polvsen
verður að hætta leika knattspyrnu
vegna þrálátra meiðsla í hné. Polvs-
en sem er 28 ár og leikur með
Borussia Dotmund reiknar með
flytjast heim til Danmerkur, þrátt
fyrir að Dortmund hafí boðið hon-
um starf.
SHAQUILLE O’Neal og félagar hans hjá Orlando tóku foryst-
una íeinvígi sínu við Chicago Bulls með 110:101 sigri íChicago
aðfaranótt laugardags. Þar með var endir bundinn á átta leikja
sigurgöngu Chicago á heimavelli. í úrslitum versturstrandar-
innar önglaði LA Lakers í sinn fyrsta sigur gegn San Antonio
Spurs, á heimavelli sínum, 92:85, en Spurs hafði sigraði ítveim-
ur fyrstu leikjunum.
| ichael Jordan lék aftur í
treyju númer 23 og átti
stórleik, skoraði 40 stig, en það
dugði Chicago mönnum skammt.
Þeir misstu dampinn á lokasprett-
inum í leiknum. Mjög góð vörn
Orlandodrengja hélt skyttum
Chicago alveg niðri síðustu fimm
mínútur leiksins að þeim tókst
ekki að skora eina einustu körfu.
„Við lékum ágætlega framan af
leik, en þegar á leið var eins og
leikmönnum mínum skorti þrek,“
sagði Phil Jackson, sagði þjálfari
Chicago að leikslokum.
Nick Anderson átti góðan leik
fyrir Orlando á lokakaflanum og
skoraði tvær þriggja stiga sem
voru mjög mikilvægar. Samtals
gerði hann 22 stig, en Shaquelle
O’Neal var stigahæstur hjá Or-
lando eins svo oft áður með 28
stig, Amfemee Hardaway gerði
19 og Horace Grant 18 og náði
15 fráköstum. Eins og fyrr greindi
skoraði Jordan 40 stig fyrir
Chicago og næstur honum kom
Scottie Pippen með 25 stig.
Los Anngeles Lakers bytjaði af
miklum krafti gegn San Antonio
á heimavelli og að loknum fyrsta
KNATTSPYRNA
leikhluta höfðu þeir náð sautján
stiga forskoti, 28:11. í öðram leik-
hluta bættu Lakers menn við for-
skotið lítillega og komust í 47:29,
en á lokaspretti leikhlutans náðu
leikmenn San Antonio að saxa á
forskotið niður i tíu stig, 53:43.
Leikmenn San Antonio, með David
Rodinsson fremstan í flokki, gáfu
ekkert eftir og minnkuðu forskot
Lakersmanna jafnt og þétt og var
það komið niður í sex stig í þriðja
leikhluta, 64:58, en Lakers menn
spýttu í lófana og höfðu tólf stiga
forskot þegar þriðja leikhluta lauk,
75:63. Nick Van Exel átti stórgóð-
an leik fyrir Lakers í upphafí
fjórða leikhluta og lagði granninn
að sigri með tíu stigum á skömm-
um tíma. Lakers náði 20 stiga
forskoti, 92:72, og þrátt fyrir að
leikmenn San Antonio skoraðu síð-
ustu 13 stigin þá breytti það engu.
Lakers sigraði 92:85 og þar með
tapaði Spurs sínum fyrsta leik í
úrslitakeppni NBA á þessu vori.
David Robinsson var langbestur
í liði Spurs með 34 stig, en Nick
Van Exel gerði 25 stig fyrir La-
kers og Cedric Ceballos 22 og
náði 10 fráköstum.
SHAQUILLE O’Neal og félagar f Orlando létu hamskipti Jor-
dans ekkl slð slg út af laglnu f þrlöja lelk í fyrrinótt í Chlcago
og slgrudu 110:81 og tóku 2:1 forskot f einvígi liðanna.
Fagnar Dalglish meistara-
tttlinum á Anfield í dag?
VINNUR Blackburn Englandsmeistaratitilinn eftir 81 s árs biö eða
kemur það í hlut Manchester United að lyfta þessum eftirsótt-
asta bikar sem keppt er um á Englandi þriðja árið í röð? Það
ræðst í dag, Blackburn er á toppnum með 89 stig, tveimur stig-
um fleira en Manchester United. Liðið á leik gegn Liverpool á
Anfield Road, heimavelli Liverpool og sigur þýðir að Blackburn
hreppir titilinn. Tapi Blackburn stigum þá verður Manchester
United meistari, svo framarlega sem þeir sigra West Ham.
Þú þarft ekki að vera Hreedd
við hrwkkur lengur, þvf hafinn
er nýr kafli i umhirðu húðarinnar.
Með Profutura kremi, sem flytur
30 sinnum meira af A og E
vftamfnum inn i húðina en
Ifpösóm. Það þýðir meiri vörn
og aukinn raka. Hrukkur
myndast sfður og húðin
verður fallegri dag frú degi.
MARBERT
- og þú lítur vel út!
Við scljum MARBERT
Líbía, Mjódd; Snyrtihöllin, Garðabxj
Spes, Háaleitisbraut; Gallery Förðun, Keflavik;
Sandra, Laugavcgi; Krisina, ísafirði;
Brá, laugavegi; Vöruhúsið, Akureyri;
Bylgjan, Kópavogi; Apótekið, Vestmannaeyjum.
Þrátt fyrir nálægð og samkeppni
við Everton þá líta áhagendur
Liverpool á Manchester United sem
sína helstu keppinauta. Manchester
United hefur tekið við hlutverki
liðsins sem sigursælasta félag síð-
ustu fímm ára og líklega vildu
stuðningsmenn Liverpool síst að
Alex Ferguson og hans menn hjá
Manchester United muni verða
meistarar.
Framkvæmdastjóri Blackburn,
Kenny Dalglish, er hins vegar dýrð-
lingur á Anfíeld þar sem hann var
í þrettán ár, fyrst sem leikmaður
og síðan leiddi hann félagið til
þriggja meistaratitla, þann fyrsta
1986 þegar hann var spilandi stjóri
hjá liðinu og síðan 1988 og 1990
sem framkvæmdastjóri. Það væri
kaldhæðni ef að hans gamla félag,
Liverpool, mundi sigra í leiknum
og þar með færa helstu fjendum
sínum titilinn.
Enn eins og Roy Evans, núver-
andi stjóri Liverpool segir: „Ég mun
ekki hafa neina samúð með Kenny
á sunnudaginn [í dag] og við förum
í þennan leik til að vinna hann.
KENNY Dalglish mætir með
Blackburn é Anfleld í dag.
Fyrir okkur sem atvinnumenn og
fyrir stuðningsmenn okkar þá
skuldum við þeim það að enda tíma-
bilið með sigri.“
Blackburn hefur misst ófá tæki-
færin síðustu vikurnar til að ganga
frá málum sínum þannig að ekki
hefði þurft að koma til þessa upp-
gjörs í dag. Þrátt fyrir nýlega
ósigra gegn Manchester City og
West Ham er skoski landsliðsmað-
urinn Colin Hendry ekki svartsýnn.
„Ég vil samt helst ekki tala um
leikinn gegn Liverpool. Ég kem til
með að krossleggja fíngurnar
þangað til,“ sagði varnarmaðurinn.
„Þetta er prófraun á taugarnar.
Ef við náum tveggja marka for-
skoti snemma í leiknum þá munum
við örugglega reyna að hlusta eftir
einhverjum upplýsingum frá Anfi-
eld og bara vona að Blackburn vinni
ekki,“ segir Brian McClair, leik-
maður Manchesterliðsins. „Þetta
er í fyrsta skipti í langan tíma sem
við höfum náð að komast svo ná-
lægt þeim og ég er viss um að það
mun vera breyting fyrir þá.
Kveðjustundir
Dagurinn í dag sker líka úr um
það hvaða lið mun fylgja Ipswich,
Leicester og Norwich úr úrvals-
deildinni og niður í þá fyrstu. Cryst-
al Palace þarf á sigri að halda gegn
Newcastle og vonast til þess að
Aston Villa tapi gegn Norwich.
Sheffield Wednesday gæti fallið en
möguleikarnir á því eru ekki miklir.
Ahorfendur á White Hart Lane
koma eflaust til með að sakna Þjóð-
veijans Jurgen Klinsmann sem
leikur sinn síðasta leik fyrir Totten-
ham gegn Leeds, áður en hann
heldur heim til Þýskalands. Aðeins
sunnar í Lundúnum, á Stamford
Bridge, heimavelli Chelsea mun
Glenn Hoddle einn af litríkari leik-
mönnum enskrar knattspyrnu
binda endi á tuttuga ára feril sinn
sem leikmaður. Hoddle og félagar
mæta Arsenal, sem eflaust munu
leiða hugann fjóra daga aftur í tím-
ann, að ósigrinum gegn Real Zara-
gosa í Evrópukeppni bikarhafa.