Morgunblaðið - 31.05.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 31.05.1995, Síða 1
64 SÍÐUR B/C/D/E STOFNAÐ 1913 121. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Kapp lagt á að fá friðargæsluliða lausa úr haldi með samningum Liðsauki að berast til Bosníu Sar^jevo, París, London, Washington. Reuter, The Daily Telegraph. FYRSTIJ bresku hermennirnir úr sex þúsund manna liðsauka, sem sendur verður til Bosníu á næstu vikum, komu til Gornji Vakuf í vest- urhluta landsins í gærkvöldi. Hafa Bretar ásamt Frökkum ákveðið að senda þungvopnaðar sveitir til að- stoðar friðargæsluliðum sínum í Bosníu. Ekki er enn ljóst hvort sveit- irnar verði skilgreindar sem friðar- gæsluliðar. Serbar tóku sjö úkra- ínska friðargæsluliða til viðbótar í gíslingu í gær og sögðust ekki sleppa þeim tæplega fjögur hundruð gísl- um, sem þeir hafa í haldi, fyrr en gefið yrði fyrirheit um að loftárásum á stöðvar þeirra yrði með öllu hætt. Gefa ekki eftir Utanríkisráðherrar ríkja Atlants- hafsbandalagsins (NATO) lýstu því hins vegar yfir á fundi sínum í gær að þeir væru reiðubúnir að sam- þykkja áframhaldandi loftárásir ef farið yrði fram á það af yfirmönnum Sameinuðu þjóðanna. Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði bandalagið íhuga að opna landflutningaleið að Sarajevo, sem varin yrði af hersveit- um. Franskur embættismaður sagði að á öðrum fundi hefðu helstu ríkin orðið ásátt um að verja „griða- svæði“ og gera flugvöll Sarajevo að herlausu svæði. Heimildir jafnt hjá NATO sem SÞ herma að fallið hafi verið frá því að kalla friðargæsluliða heim frá Bosníu. Jacques Chirac Frakklandsforseti hefur skipað frönskum friðargæslu- liðum að verjast af alefli sé á þá ráðist eða telji þeir sér vera ógnað. Þá gáfu franskir embættismenn í skyn að í neyðartilvikum kynnu Frakkar að gefa hermönnum sínum beinar fyrirskipanir í stað Samein- uðu þjóðanna. Bandaríkjastjórn staðfesti í gær að ekki væri útilokað að freista þess að iáta sérsveitir frelsa gíslana en embættismenn tóku fram að slíkar aðgerðir væru mjög ólíklegar. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að bandarískir hermenn stígi á land í Bosníu. Bandaríkjamenn hafa þó ásamt Frökkum sent flugmóðurskip til Adríahafs og eru tvö þúsund bandarískir landgönguliðar um borð í bandaríska skipinu. Mikil leynd hvílir yfir því hvaða sveitir séu um borð í franska flugmóðurskipinu Foch en talið er að m.a. sé um úr- valssveitir að ræða. Andrei Kozyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, lagði í gær áherslu á að reynt yrði að leysa deiluna með samningum en ekki átökum. Er talið að Bretar og Frakkar þrýsti nú mjög á Slobodan Milosevic Serbíuforseta að beita áhrifum sín- um á Bosníu-Serba þannig að gísl- arnir fái frelsi. ■ Stund brottfararinnar/23 Reuter FRANSKI fornleifafræðing- urinn Alain Zivie kannar loft grafhýsisins í borginni Saqqara suður af Kaíró, þar sem hin fágæta lágmynd af Ósíris fannst í veggskoti. í grafhýsi vesírs Saqqara. Reuter. FRANSKIR fornleifafræðingar hafa fundið sjaldgæft afbrigði fornegypskrar lágmyndagerðar í grafhýsi vesírsins Aper-El, sem fannst í borg hinna dauðu við Saqqara, sem er um 25 kílómetra suður af Kaíró. Lágmyndin er frábrugðin tug- þúsundum fornmynda að því leyti að andlitin snúa beint fram en eru ekki í prófíl. Aðeins er vitað um örfá dæmi um mynd- gerð af þessu tagi og myndirnar í Saqqara hafa því listasögulegt gildi. Myndirnar eru af Ósíris, upp- haflega fijósemisguð Egypta en síðar drottnari undirheima og dómari hinna dauðu, og honum til hvorrar handar eru gyðjurnar ísis og Nephtys. Myndirnar fundust í veggskoti sem talið er að hafi haft trúar- legu hlutverki að gegna í graf- hýsinu. „Það er sérstæð sjón og áhrifamikil að standa frammi fyrir myndunum,“ sagði Alain Zivie, foringi frönsku fornleifa- fræðinganna. í veggskotinu, sem er tveir metrar á hæð, var upp- haflega máluð mynd af Aper-El, syni hans, Huy, og öðrum skyld- mennum en 20-30 árum eftir dauða hans á 14. öld fyrir Krist var Ósiris-myndin hoggin þar ofan á. Finnland Atvinnu- leysi 18% Helsinki. Reuter. FJÖLDI atvinnulausra í Finn- landi jókst í síðasta mánuði og voru 18,1% Finna án vinnu í apríl samanborið við 17% í mars. Spánn er eina Evrópusam- bandsríkið þar sem atvinnu- leysi er meira en í Finnlandi en atvinnuleysi var að meðal- tali 10,8% í ESB í mars. Finnskir embættismenn tóku þó fram að þó að atvinnu- leysi hefði aukist milli mánaða hefði dregið úr atvinnuleysi ef tekið væri tillit til árstíðabund- inna þátta. Helsta ástæða þess að atvinnulausum hefði fjölgað milli mánaða væri sú að fjöldi skólafólks hefði komið út á vinnumarkaðinn. Störfum hefði í raun fjölgað um 70 þúsund samanborið við apríl- mánuð síðasta árs. Fágætar lágmyndir Hörmungarnar í Neftegorsk Fáir til að bera kennsl á látna Reuter BJÖRGUNARMENN í Neftegorsk reyndu í gær að ná til fólks, sem heyrst hafði til í rústunum, en starfið er erfitt eins og þessi mynd gefur til kynna. Neftegorsk. Reuter. „MAMMA var lasin og pabbi hafði farið fýrir hana eftir lyfjum á sjúkrahúsið. Þegar jörðin fór að skjálfa var hann úti á götu og komst ekki lengra. Mamma dó en pabbi lifði,“ sagði Sveta, níu ára gömul stúlka í Neftegorsk, næst- um því ofur hversdagslega en auk móður sinnar missti hún afa sinn og ömmu þegar fjölbýlishúsin, heimili flestra bæjarbúa, hrundu sl. sunnudag. í gær var verið að taka grafir í útjaðri bæjarins og á götunum meðfram rústunum lágu líkin í löngum röðum. Sum hafa þegar verið grafin rétt við óhijálegan kirkjugarðinn en flestir þeirra, sem af komust, eru enn illa á sig komnir andlega. Eru margir brenndir, einkum í andliti, eftir elda, sem komu upp þegar húsin hrundu. Hefur gengið illa að bera kennsl á hina látnu vegna þess að flestir lögreglumenn og kenn- arar, sem þekktu flesta bæjarbúa, fórust í jarðskjálftanum. Upplýsingamiðstöðin í Nefteg- orsk er í einnar hæðar gistiheim- ili, einu af fáum húsum, sem ekki hrundu, og þangað leitar fólk til að spyijast fyrir um björgunar- starfið eða til að fá leyfi til að leita að eigum sinum í rústunum. Fá það flestir en ströng gæsla er á svæðinu til að koma í veg fyrir þjófnað. Eini orkugjafinn í bænum er rafall eða dísilvél, sem annar litlu meira en leitarljósunum, þar er ekkert vatn og aðeins þrír símar. 1 upplýsingamiðstöðinni er stafli af skeytum frá fólki annars staðar í Rússlandi, sem er að spyijast fyrir um fjölskyldu og ástvini. „Fjölskylda hennar er öll Iátin,“ sagði kona nokkur þegar hún fann skeyti frá gamalli vin- konu sinni. „Hvernig get ég sagt henni frá því?“ ■ Spá stærri skjálfta/16 Óvissa inn- anFDP Bonn. Reuter. JÚRGEN Möllemann, fyrrum efna- hagsráðherra, hefur ákveðið að sækjast eftir formennskunni í flokki fijálsra demókrata í Þýskalandi (FDP) er Klaus Kinkel utanríkisráð- herra lætur af embætti í næstu viku. Mikil óvissa hefur ríkt um framtíð FDP eftir að flokkurinn beið mikinn ósigur í kosningum í tveimur sam- bandslöndum þann 14. maí. Ákvað Kinkel að segja af sér formennsku í kjölfarið. Hafa margir fréttaskýr- endur spáð því að fiokkurinn muni lognast út af og ríkisstjórn jafnaðar- manna og græningja taka við að loknum kosningum. Ásamt Möllemann hefur Wolf- gang Gerhardt lýst yfir framboði. Samtök FDP í Nordrhein Westfalen, heimahéraði Möllemanns, ákváðu í gær að styðja hvorugan frambjóð- andann á þeirri forsendu að Mölle- mann ætti einnig sök á óvinsældum flokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.