Morgunblaðið - 31.05.1995, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 5
FRÉTTIR
STEGGURINN lætur til skarar skríða við Tjarnarbakkann.
Varnarlaus kollan veit ekki hvaðan á sig- stendur veðrið.
KOLLAN kemst hvergi undan ágangi steggsins sem hefur breitt út
vængi sína til að halda bráð sinni niðri.
Hörð lífsbarátta
á Tjörninni
VERÖLDIN er vægðarlaus og það eru
ævagömul sannindi að lífsbaráttan er
ekki síður hörð í dýraríkinu en meðal
manna. Þess mátti finna glöggt dæmi
í vikunni þegar lá við stríðsástandi á
Tjörninni í Reykjavík. Fílefldir stokk-
andarsteggir réðust þá á varnarlausa
kollu og veittu henni alvarleg sár. Nær
útilokað er að skilja hvað þeim gekk
til nema ef vera skyldi að rekja mætti
orsök atburðanna til afbrýðisemi, öf-
undar eða drottnunaráráttu. Mennskir
sjónarvottar skárust loks í leikinn og
náðu kollunni úr klóm steggjanna.
Hafi þeir haldið að ró færðist við þetta
yfir annars friðsælt Tjarnarlífið þá
skjátlaðist þeim hrapallega. Um leið
og kollunni var sleppt á öðrum stað i
Tjörninni voru steggirnir mættir. Þeir
réðust aftur á kolluna og máttu menn
og svanir sín lítils við að skakka leik-
inn.
Morgunblaðið/Júlíus
EINUM svaninum þykir greinilega orðið nóg um, potar í stegginn og
gefur glögg skilaboð um að hann eigi að sleppa kollunni.
Nú er rétti tíminn
í ár er sérlega hagstætt aö fjárfesta í atvinnu-
tækjum. Það er vegna sérstakra laga um
flýtifyrningar atvinnutækja sem keypt eru árin
1994 og 1995. Þau má fyrna allt að tvöfaldri
venjulegri fyrningu, næstu þrjú rekstrarár eftir að
þau eru keypt. Fjárfesting í ár er því heillaráð.
Viðgefum þérgóð ráð
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun
hvers kyns atvinnutækja. Við getum bent þér á
leiðir þar sem þú losnar við að binda rekstrarfé
í tækinu og þar sem fyrirgreiðsla þín í viðskipta-
bankanum helst óskert.
Þú kannt eflaust að meta að geta fengið 100%
fjármögnun en njóta samt staðgreiðsluafsláttar
hjá seljanda tækisins.
Skjót afgreiðsla
Fjármögnun með Kjörleiðum
Glitnis er fljótleg. Þegar
nauðsynleg gögn liggja fyrir
af þinni hálfu, er umsókn
þín afgreidd á skjótan hátt.
Ut er komið upplýsingarit um
Kjörleiðir Glitnis. Þarerá
einfaldan hátt fjallað um
ólíkar gerðir fjármögnunar.
Hringdu og fáðu eintak eða ,
líttu inn og spjallaðu við i
ráðgjafa okkar. Jj
Glitnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA Ármúla 7, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10.