Morgunblaðið - 31.05.1995, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 17
ERLENT
Reuter
Mótmæla komu Karls
Þingkosningar í
Hvíta-Rússlandi gagnrýndar
Fá ekki aðild
að Evrópuráði
Mínsk. Reuter.
Blóöugl
fiskistríð
í Kóreu
TVEIR skipvetjar á togbát frá
Suður-Kóreu féllu og einn
særðist er norður-kóreskur
varðbátur skaut á skipið í gær
og hertók það síðan, að sögn
s-kóresku fréttastofunnar
Yonhap. S-kóresk stjórnvöld
sögðu fiskibátinn hafa farið
inn í landhelgi norðanmanna.
í tilkynningu n-kóreskra
stjórnvalda sagði að báturinn
hefði verið tekinn og væri um
„sjálfsvörn“ að ræða.
Balladur í
framboð
EDOUARD Balladur, fyrrver-
andi forsætisráðherra Frakk-
lands, hyggst bjóða sig fram
til borgarstjórnar Parísar í
næsta mánuði, að sögn borg-
arstjórans, Jeans Tiberis, í
gær. Balladur verður efstur á
lista samfylkingar mið- og
hægrimanna í 15. hverfi en
fylkingin er með meirihluta í
öllum 20 hverfum borgarinn-
ar.
Börn fangels-
uð í Tíbet
í NÝRRI skýrslu mannrétt-
indasamtakanna Amnesty Int-
ernational segir að kínverska
lögreglan hafi fangelsað hund-
ruð munka og nunna í Tíbet,
einnig tugi barna sem hugðust
feta í fótspor hinna fullorðnu
og helga líf sitt búddisma. Oft
hafi verið beitt pyntingum til
að knýja fram játningar, börn
hafi verið látin í fangelsi með
fullorðnum og látin stunda
erfiðisvinnu.
Sótt að
Berlusconi
ÍTALSKA lögreglan rannsak-
aði aðalstöðvar Publitalia,
auglýsingafyrirtækis auðkýf-
ingsins og stjórnmálamanns-
ins Silvios Berlusconis, í gær.
Fyrir helgi var einn nánasti
ráðgjafi hans, Marcello Dell-
’Utri, handtekinn og yfir-
heyrður í sex klukkustundir.
Hann er grunaður um aðild
að mútugreiðslum. Saksóknari
í Mílanó telur að Publitalia,
eitt helsta fyrirtækið í Finin-
vest-samsteypu Berlusconis,
hafí verið notað óspart til að
koma mútugreiðslum til við-
takenda.
Luft grunuð
um Stasi-
tengsl
CHRISTA Luft, þingmaður
Flokks lýðræðislegs sósíal-
isma, þ. e. arftaka gamla aust-
ur-þýska kommúnistaflokks-
ins, er grunuð um að hafa
unnið með leynilögreglunni
Stasi, að sögn Gauck-stofnun-
arinnar sem hefur umsjón með
skjölum Stasi. Luft var um
hríð efnahagsmálaráðherra
A-Þýskalands. Hún hyggst
halda blaðamannafund í dag
ásamt Gregor Gysi þingflokks-
formanni er hefur viðurkennt
tengsl við Stasi en neitað að
hafa séð henni fyrir upplýsing-
um um andófsfólk.
KARL, prins af Wales, heimsækir
Ira í dag en þeir eru þó ekki all-
ir hrifnir af komu hans og hefur
verið boðað til mótmæla. Karl er
foringi í bresku fallhlífasveitun-
um og mótmælendur krefjast
þess, að hann biðjist afsökunar á
dauðaþeirra 45 manna, sem
menn úr sveitunum hafa fellt á
Norður-írlandi frá 1968. Hér er
verið að hvetja fólk til að taka
þátt í mótmælaaðgerðum.
FYRSTU þingkosningarnar í Hvíta-
Rússlandi eftir hrun Sovétríkjanna
uppfylla ekki kröfur Evrópuráðsins,
meðal annars um jafnan rétt fram-
bjóðenda til að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri. í yfirlýsingu
ráðsins segir að vegna þessa fái
landið ekki aðild að Evrópuráðinu.
Eftirlitsmenn frá ráðinu fylgdust
með kosningunum. Nýkjörið þing
Hvíta-Rússlands er í reynd ekki
starfhæft; í meira en helmingi kjör-
dæma tókst ekki að fá niðurstöðu
vegna lélegrar kjörsóknar. Evrópu-
ráðið segir að sjálf kosningin hafí
farið fram með eðlilegum og lögleg-
um hætti en gagnrýnir aðdragand-
ann.
„Takmarkaður aðgangur að fjöl-
miðlum, auk takmarkana á notkun
fjánnagns í kosningabaráttunni, olli
JÓHANNES Páll páfi kaþólsku
kirkjunnar sagðist í gær reiðubúinn
til viðræðna við aðrar kirkjudeildir
um hlutverk páfastóls í hugsanlegri
sameiningu kristinna manna.
í 115 síðna umburðarbréfi sem
Páfí sendi frá sér í gær, Ut Unum
Sint, eða Að eitt verði, fjallar hann
mjög um hugmyndina um einingu
kristinna manna sem sundrast hafa
í ýmsar kirkjur á undanförnum eitt-
þúsund árum.
Segist hann gera sér ljóst, að
flókið mál yrði að ná samkomulagi
kaþólskra, mótmælenda, biskupa-
kirkjumanna og ortódoxa, um hlut-
því að upplýsingar um frambjóðend-
ur voru af skornum skammti og
mjög litlar stjómmálaumræður urðu
fyrir kosningarnar,“ segir í yfirlýs-
ingunni. Alexander Lúkasjenko for-
seti var andvígur því að kosningarn-
ar færu fram og sýndi m.a. hug sinn
með því að eyðileggja kjörseðil sinn
í fyrri umferðinni.
Þótt Evrópuráðið hafi lítil pólitísk
völd sækja fyrrverandi kommún-
istaríki í Mið- og Austur-Evrópu
fast að fá að ganga í ráðið, þau
telja að með aðild sé búið að viður-
kenna tilverurétt þeirra á alþjóða-
vettvangi. Úkraínumönnum hefur
verið heitið að þeir fái inngöngu
fyrir árslok en ráðið mótmælti
stríðsrekstri Rússa í Tsjetsjníju með
því að fresta umfjöllun um aðildar-
umsókn Rússlands.
verk páfastóls. Hvatti hann fulltrúa
þessara kirkjudeilda til þess að
hefja viðræður og sýna bæði þolin-
mæði og þrautseigju við samninga-
borðið.
Páfi sagði að sérstök skylda
hvíldi á hans herðum, sem leiðtoga
960 milljóna kirkjudeildar, að stuðla
að einingu kristinna manna. Hvatti
hann þá til þess að vera búnir að
fyrirgefa mistök fortíðarinnar fyrir
aldamótaárið 2.000.
Jóhannes Páll páfi gaf ekki til
kynna hvaða skoðun hann hefði á
því hvert nýtt hlutverk páfastóls
ætti að vera.
Tvö ár liðin frá því Slóvakía varð sjálfstætt ríki
Öllum brögðum beitt í
botnlausri valdabaráttu
ÞAU tvö ár sem liðin eru frá því að
Slóvakía varð sjálfstætt ríki með að-
skilnaði frá Tékkneska lýðveldinu
hafa einkennst af valdabaráttu og
flokkadráttum. Ólgan sem hlotist hef-
ur af þessu á stjórnmálasviðinu hefur
ekki orðið til þess að styrkja stöðu
Slóvaka, sem ákaft hafa sóst eftir að
vera teknir í hóp evrópskra lýðræðis-
ríkja. ---
Valdabarátta þeirra Michal Kovacs
forseta og Vladimirs Meciars forsætis-
ráðherra er nú komin á nýtt og áður
óþekkt stig í evrópskum stjórnmálum.
Meciar hefur reynst algjörlega óút-
reiknanlegur og fáir forsetar hafa
mátt líða viðlíka niðurlægingu og
Kovac.
Völdin skert
Þegar forsetinn tekur til máls á þingi
gengur helmingur samkundunnar út
úr salnum. Þegar hann snýr aftur heim eftir
að hafa verið í opinberri heimsókn erlendis
mætir enginn fulltrúi ríkisstjórnarinnar til að
bjóða hann velkominn á flugvellinum. Áður
hafði hann vald til að tilnefna ýmsa háttsetta
embættismenn. Því valdi hefur hann nú verið
sviptur.
Forsætisráðherrann hvetur forset-
ann með reglulegu millibili til að
leggja niður völd og sparar þá ekki
stóru orðin. Starfslið forsetans hefur
verið skorið niður og það sama á við
um fjárveitingar til embættisins.
Meirihluti þingheims hefur samþykkt
að forsetanum beri að víkja. Þá niður-
stöðu hefur Michal Kovac hundsað
með þeim rökum að samþykki þriggja
þingmanna af hverjum fimm þurfi
að liggja fyrir til að sá gjörningur
geti talist í samræmi við stjórnarskrá
landsins.
Forðum voru þeir Kovac og Vladim-
ir Meciar samherjar. Úfar tóku að
rísa með þeim er forsetinn deildi á
stjórnunaraðferðir forsætisráðherr-
ans. í mars í fyrra hafði forsetinn
fengið sig fullsaddan af Meciar og
setti hann af. Nú hyggst Meciar ná
fram hefndum.
Meciar og flokkur hans, flokkur slóvakískra
þjóðernissinna, hlaut verulegt fylgi í kosning-
unum síðasta haust. Honum tókst að ná völd-
um með því að kalla til samstarfs við sig
smáhópa yst á báðum vængjum slóvakískra
stjórnmála; æsta þjóðernissinna og réttnefnda
kommúnista. Ný undirbýr forsætisráðherrann
lokasóknina að fyrrum samherja sínum, forset-
anum og hyggst bola honum frá völdum.
Meirihlutinn á þingi hefur sameinast um
að takmarka völd forsetans á hverju sviðinu
á fætur öðru og almennt reynt að draga úr
skriðþunga hans r slóvakísku þjóðlífi. En
Kovac hefur sýnt að hann lætur ógjarnan í
minni pokann og hefur veitt mótspyrnu. Nú
er svo komið að forsetinn er orðin sameiningar-
tákn stjórnarandstöðunnar í landinu og þeirrar
baráttu sem fram fer gegn valdníðslu forsætis-
ráðherrans og öfgahópum þeim sem Meeiar
hefur safnað um sig til að ná fram blóðhefnd
sinni.
Auðveldar ekki aðlögun
Kirkjunnar menn í Slóvakíu hafa freistað
þess að bera klæði á vopnin en ekki haft árang-
ur sem erfiði. Þeir vísa til þess að nýfrjálst
ríki með frumstæðan efnahag megi ekki við
slíkum deilum er það leitast við að gera sig
gildandi í samfélagi þjóðanna. Aðild að Evr-
ópusambandinu (ESB) og Atlantshafsbanda-
laginu (NATO) er á stefnuskrá stjórnvalda en
margir óttast að valdabaráttan og áhrif öfga-
fylkinga í stjórnmálum landsins verði ekki til
að greiða fyrir inngöngu Slóvakíu í þessi tvö
meginbandalög evrópskra lýðræðisríkja.
Byggt á Aftenposten og fl.
Vladimir
Meciar
Michal
Kovac
Páfi hvetur kristna
söfnuði til sátta
Róm. Reuter.