Morgunblaðið - 31.05.1995, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 31.05.1995, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 MINIUINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Dóra Signijóns- dóttir fæddist á Húsavík 26. október 1935. Hún andaðist á heimili sínu 21. maí 1995. Foreldrar hennar voru Sigur- jón Ármannsson frá Hraunkoti í Aðaldal, verslunarmaður, kennari og bæjar- gjaldkeri á Húsavík, f. 20.8. 1896, d. 30.3. 1958, og Þórhalla Bjarnadóttir, hús- móðir á Húsavík, f. 6.6. 1905, d. 30.9. 1969. Dóra átti sjö systkini, Ey- stein, sem Iést 4. apríl síðastlið- inn, Helgu, Arnljót, Bjarna, Hös- kuld, Þorgrím og Ármann. 16. október 1954 giftist hún eftirlif- andi eiginmanni sínum, Þórði Einarssyni frá Reykjavík, f. 21. október 1930. Fyrstu 10 búskap- arárin bjuggu þau á Hverfisgötu 42 í Reykjavík, en fluttust þá á Stekkjarflöt 17 í Garðabæ. Síð- ustu tvö árin hefur heimili þeirra verið á Löngumýri 18 í Garðabæ. ÞAÐ GÆTIR sjálfsagt óróa innra með hveijum manni sem í fyrsta sinni er kynntur fyrir væntanlegu tengdafólki sínu. Þannig var um mig. Þarna gekk ég heim í hlað til þess að hitta þig og Þórð. Þarna stóðst þú og nú lít ég til baka og sé að þessi fyrsta stund sýndi þig í þínu rétta ljósi. Húsið var fullt af fólki. Öll fjölskyldan samankom- Börn þeirra eru Ásgeir, iðnfræðing- ur, f. 12. desember 1954, kvæntur Stellu Maríu Matthí- asdóttur; Bjarni, viðskiptafræðingur, f. 13. desember 1956, sambýljskona hans er Ágústa Karlsdóttir; Jakob- ína, þroskaþjálfi, f. 12. september 1958, gift Jörundi Guð- mundssyni útgáfu- stjóra Háskólaút- gáfunnar; og Ás- mundur, almannatengill, f. 29. júni 1965, sambýliskona hans er Harpa Þórðardóttir, sálfræðing- ur. Barnabörnin eru níu talsins, Matthías, Jóna Dóra og Þórður Ásgeirsböm, Auður, Guðmund- ur og Þórður Jörundarbörn og Eva og Þórhalla Bjarnadætur. Stjúpbörn Bjarna em Sara Ellen, Björn og María. Dóra verður jarðsungin í dag frá Vídalínskirkju í Garðabæ og hefst athöfnin kl. 13.30. in. Hún dóttir þín sló margar flug- ur í einu höggi, eða hvað? Þrír ættliðir á einum og sama stað. Og þarna stóð ég í fyrsta sinn innan um ykkur öll og þú hlóst að mér í fyrsta sinn. En þarna sá ég þig gera það sem fór þér best úr hendi - að skemmta fólki, þjóna og bjóða velkomið. Eftir þessar móttökur varð ekki aftur snúið fyrir mig. Nú hugsa ég um þig og sé sama lífið og ijörið og í veislunni fyrstu. Og þú hélst okkur alltaf veislur. Það var þinn máti, mánudaga sem aðra daga. En lengi vel skildi ég samt ekki þetta tilstand alltaf þeg- ar eitthvað átti að gera fyrir fólk. Þvílík læti og mér fannst þá að það hálfa væri nóg, en á þinn hátt kenndir þú mér að gleðin er ekki nema hálf ef þennan helming vant- ar. Ég hugsa um þig og ég sé fjöll og snjó og skóg og landið okkar. Ég sé hreysti og dugnað og finn vanmátt minn frammi fyrir þessum þingeyska ungmennafélagsanda sem þú tókst í arf. Það er ekki allra að rata í þau sporin þín, en með því að fylgja í humátt á eftir lærðist sitthvað. Og í þér sá ég, borgarbarnið, loks hvernig útivera getur breyst í lífsmáta. Ég hugsa um þig og ég sé börn. Ég sé gleði og sorg, fögnuð og huggun í þínum örmum. Aldrei hafði mig grunað að hægt væri að sinna börnum af jafn mikilli tileink- un, umhyggju og ástúð og þú gerð- ir. Og ég sé að þau voru hornsteinn- inn sem líf þitt byggðist á. Þvílík gæfa að eignast börn sem fengu að njóta umhyggju og ástar slíkrar ömmu sem þú varst. Þvílík gæfa að vera barn sem á þig fyrir ömmu. Og alltaf voru eyru þín opin þegar lítil rödd lét í sér heyra og alltaf nutu þau athygli þinnar óskiptrar. Nánast sama hvað til stóð, nánast sama um hvað var rætt, lítil rödd lét í sér heyra og þú brást við líkt og tiginborinn gest hefði borið að garði. Og þau kunnu að gjalda þér í sömu mynt. Og amma sat og las og sögurnar stóðu ljóslifandi fyrir börnunum í þinni meðferð og innlif- un. Ég hugsa um þig og ég sé bók og sögur og málið og leik. Og ég skynja Joks hvað þetta var þér kært. Ég heyri hljóminn af því hvernig þú kvaðst að, ég sé þig leika fólk og frásögn og ég sé þig njóta, njóta þess að ganga á vit ævintýranna sem í bókum geymast Legsteinar Krossar Skildir___________ Málrrrsteypan kaplahrauni 5 Tjm T A Uf 220 HAFNARFJÖRÐUR XlIjLiJLurib XII. SÍMI 565 1022 FAX 565 1587 og ég hugsa um það hvetjir það eru sem ungir deyja í slíkum sög- um. Jörundur Guðmundsson. Hún amma okkar er látin. Öll fæðumst við feig og það er hluti af því að fullorðnast að missa ástvini sína, en samt er maður aldr- ei undir það búinn. Við trúum því að hún hafi fengið hvíldina sem hún á skilda og við erum þakklát fyrir það að hún þurfti ekki að heyja langt dauðastríð. Elsku amma, við erum ung og eigum eftir að lifa svo margt og vildum óska þess að þú gætir verið með okkur. Én þú verður til staðar í minningunni. Við eigum eftir að minnast þín á gleði- og sorgar- stundum og við vitum að þú minn- ist okkar. Þegar við syrgjum, gerum við það ekki af vorkunn, vegna þess að við vitum að þér líður vel. Sorg okkar er söknuður samverustunda. Taktu himnunum fagnandi. Matthías, Jóna Dóra og Nú, þegar fyrstu angar vorsins eru byijaðir að fegra náttúruna, sólin skín og fyrstu blóm sumarsins eru farin að vaxa í görðunum, fáum við þá fregn að amma okkar sé fallin frá. Á þessari stundu eru margar minningar sem sækja á hugann, en við viljum minnast hennar með þessu fallega ljóði: Þín elskuð ömmubörnin af alhug minnast þín. Þú varst þeim ungum vömin og veittir gæðin þín. Þau böm þú barst á örmum um bemsku ljúfust ár og þerraðir þrátt af hvörmum hin þýðu bamatár. Svo far þú Guðs í firði í fópuð dýrðar ranns, af ljóssins engla liði ert leidd til frelsarans. Hann launar mætri móður fyr mildri ást og trú. Það huggar best er hljóðir , þér heiman fylgjum nú. (S.S.) Við biðjum algóðan Guð að styrkja afa okkar og fjölskyldu á þessum erfiðu tímum. Sara Ellen, Björn, Eva, María og Þórhalla. Mér barst sú sorgarfrétt, sunnu- dagsmorguninn 21. maí síðastlið- inn, að elskuleg föðursystir mín og nafna væri látin. Mikil sorg greip hjarta mitt en einnig reiði. Reiði? Af hveiju verður maður reiður við slíka sorgarfrétt? Jú, ég var reið og döpur vegna þess að enn einu sinni hefur skelfi- legur sjúkdómur hrifsað frá okkur góða og yndislega manneskju á besta aldri. Ég var reið og döpur vegna þess að ég veit að það eru svo margir sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls nöfnu minnar. En þegar líðanin verður svona reynum við að fínna eitthvað já- kvætt. Aðeins örfáar vikur eru síð- an hún greindist með krabbamein og aðeins nokkrum dögum áður en hún dó vissum við að hún átti ekki langt eftir. Engan óraði þó fyrir að það yrði svona stutt. Okkur varð að orði heima hjá pabba og mömmu að þetta hafi verið stfllinn hennar, þ.e. að drífa í því sem þurfti að gera og vera ekkert að dunda við það. Kannski var það jákvætt að jiún fékk að fara svona fljótt? Ég á margar góðar minningar um Dóru frænku. Eg man til dæm- is hvað var gaman að vera hjá henni og þeim öllum á Stekkjarflöt- inni þegar ég var krakki. Það var sumarið 1971, rétt áður en ég byij- aði í skóla, að ég fékk að vera nokkra daga hjá frændfólki mínu í Garðabænum. Fyrir mér, litlu „sveitastelpunni", voru þessir dag- ar eins og ævintýri. Nafna fór með mig víða og sýndi mér svo margt. Við fórum í sund, í Sædýrasafnið og svo auðvitað í bæinn. Þar keypti t Elsku litla telpan okkar, ÁSDÍS JÓNA GISSURARDÓTTIR, fædd 18. apríl 1995, lést á vökudeild Landspítalans 23. maí. Útför hefur farið fram. Þökkum innilega auðsýnda hlýju og samúð. Linda Björk Helgadóttir, Gissur Pálsson, Matthías Páll Gissurarson. t Elskuleg móðursystir mín, frk. HALLDÓRA ÞORLÁKSDÓTTIR hjúkrunarkona, Lyngbrekku 17, Kópavogi, lést að kvöldi 29. maí í Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra, Kópavogi. Gróa Sigfúsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN HJALTADÓTTIR, Hrafnistu í Reykjavik, áðurtil heimilis i Eskihli'ð 14a, lést að morgni 30. maí. Ragnheiður Eyjólfsdóttir, Bjarni Einarsson, Þun'ður Eyjólfsdóttir, Elfsabet Auður Eyjólfsdóttir, Ólafur Kristjánsson, Ásmundur Eyjólfsson, Þuríður ísólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, BJÖRN GUNNARSSON frá Skógum i' Öxarfirði, áður til heimilis i' Stigahli'ð 2, Reykjavfk, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli aðfaranótt mánudagsins 29. maí. Kristveig og Ásta Björnsdætur. DORA SIG URJÓNSDÓTTIR hún á mig mín fyrstu skólaföt og rauða skó sem voru ótrúlega flottir. Alltaf man ég eftir sumarfríinu í Munaðarnesi þegar ég var u.þ.b. 11 ára. Þangað komu Dóra frænka, Þórður og Ásmundur og mikið var gaman. Við fórum í gönguferðir og í einni þeirra þurftum við að klifra yfir girðingu. Nafna festi sig í girðingunni. Þá á ég víst að hafa sagt eitthvað á-þessa leið: „Nafna hefur oft farið til útlanda en kemst ekki einu sinni yfir girðingu“! Fyrir mér var Dóra frænka alltaf svo góð og fín og glæsileg, kona sem gat allt. En svo áttaði ég mig á því að henni voru takmörk sett eins og okkur hinum og ekki minnkaði væntumþykjan við það. Elsku nafna er nú horfin yfir móðuna miklu en minningar um góða frænku geymi ég í hjarta mínu. Ég er viss um að elsku Eydi frændi, sem dó 4. apríl síðastliðinn, og fleiri ástvinir taka á móti henni og það er gott að vita til þess. Elsku Þórður, Ásgeir, Bjarni, Jakobína og Ásmundur, megi góður Guð styrkja ykkur og fjölskyldur ykkar í þessari miklu sorg. „Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá hug þinn og þú sérð að þú græt- ur vegna þess sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.) Dóra Ármannsdóttir. Það var fyrir rúmum fjörutíu árum, við hádegismatinn á Hverfis- götunni, sem ég heyrði fyrst að til Kjartans föðurbróður míns og Kristínar konu hans væri komin ný stúlka í vist ættuð frá Húsavík. Það fylgdi jafnframt sögunni að hún væri ein úr hópi átta systkina eins og við. Þar voru bræðurnir reyndar sex og systurnar tvær. Hjá okkur voru bræðurnir hins vegar sjö og systirin ein. Þetta þóttu mér merkilegar fréttir. Á þessum árum #oru fjölskylduheimsóknir tíðar enda sjónvarpið ekki komið til sög- unnar. í einni slíkri minnist ég þess er við vorum saman komin á Háteigsveginum öll fjölskyldan að Þórður bróðir var horfinn. Þetta vakti grunsemdir ungra manna og með Ragnar frænda í broddi fylk- ingar héldum við í könnunarleið- angur upp í ris en þar hafði Dóra herbergi. Viti menn var ekki Þórð- ur þar að sniglast. Að sjálfsögðu þótti okkur galgopunum þetta bráðfyndið og tilefni til stríðni, enda ekki komnir með hvolpavit. Þórður hélt áfram uppteknum hætti, heimsóknum hans á Háteigs- veginn linnti ekki og ákváðu þau Dóra að festa ráð sitt. Þau hófu búskap á Hverfisgötunni vorið 1955_ með Ásgeir son sinn hálfs árs. Á þessum árum bjuggu pabbi og mamma ásamt okkur yngri strákunum á efstu hæðinni en tveir eldri bræðurnir ásamt fjölskyldum sínum í íbúðum á neðri hæðum. Þarna varð mjög náið samfélag stórfjölskyldunnar og var innbyrð- ist samgangur mikill. Dóru var tek- ið opnum örum og myndaðist strax einlægt og gott samband bæði við móður mína og systur. Ég var tólf ára er þetta var og nítján ára stúlka harðfullorðin í mínum augum. Æskuminningar eru oft tærastar og undanfarna daga hef ég verið að rifja upp þessi ár. Ótal atvik koma upp í hugann og þakklæti fyrir að hafa eignast Dóru sem mágkonu. Börnum Dóru og Þórðar fjölgaði og ég var iðulega fenginn til að passa. Brún súkkulaðiterta og mjólkurglas var notað sem tál- beita, nokkuð sem útilokað var að neita því súkkulaðitertan hennar Dóru var svo góð að jafnvel tíuau- rastykki, súkkulaðivindlar eða Freyjukaramellur, sem var eina fáanlega sælgætið, bliknuðu í samanburði. Dóra talaði fallega ís- lensku er bar uppruna hennar ríku- lega vitni. Samband hennar við fjöl- skylduna á Húsavík var mikið en hún var sú éina af systkinahópnum sem flutti úr bænum. Þannig kynntumst við fjölskyldu hennar, skoðunum þeirra og oft á tíðum viðhorfum frá öðru sjónarhorni en ríktu hér á mölinni. Lista- og menn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.