Morgunblaðið - 31.05.1995, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Elskulegur bróðir minn,
GUNNAR ALEXANDER HUSEBY,
lést í Landspítalanum þann 28. maí.
Britha Huseby.
Ástkær móðir okkar, +
KRISTÍN S. SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Hólabraut 5, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi aðfaranótt 30. maí.
Jarðarför auglýst síðar. Sigrún Þorsteinsdóttir, Viggó Þorsteinsson, Hjördi's Þorsteinsdóttir, Sigurbjörn Þorsteinsson, Þorsteinn Þorsteinsson.
t
Ástkær eiginmaður minn,
GÍSLI G. BENJAMÍNSSON,
lést í Landspítalanum 29. maí.
Kristín A. Samsonardóttir.
t
Séra JÓN ÓLAFSSON
fyrrv. prófastur að Holti,
Ónundarfirði,
til heimilis á Suðurgötu 72,
Hafnarfirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði, mánudaginn
29. maí.
Ragnhildur Jónsdóttir, Skúli Sigurðsson,
Sigríður Jónsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir,
Friðrik Páll Jónsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Eiríhildur Jónsdóttir, Heiðar Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndislega dóttir okkar,
SELMA RÚN ROBERTSDÓTTIR,
Grundarhvarfi 4,
Vatnsenda,
lést í Barnaspftala Hringsins mánudag-
inn 29. maí.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 2. júní kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakk-
aðir, en þeim, sem vildu minnast henn-
ar er bent á Minningarsjóð barnadeildar Hringsins.
Ólöf de Bont Ólafsdóttir, Robert de Bont.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA EINARSON,
er látin.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Magnús B. Einarson, Dóra Þórhallsdóttir,
Unnur Einarson Kawadry, Eric Kawadry,
Ingibjörg Ásta Hafstein, Pétur Kr. Hafstein
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar,
MARIA COPPENS,
lést á hjúkrunarheimili í Antwerpen 11. maí sl.
Útförin var gerð 16. maí 1995.
Mariette Coppens
Lange Leemstraat 276,2018 Antwerpen, Belgíu.
Janine Coppens,
Ullenhofstraat 7, 2170 Merksem, Belgiu.
ARIN GUÐRTJN
SIGRÍÐUR
JÓHANNSDÓTTIR
+ Arín Guðrún
Sigríður Jó-
hannsdóttir fæddist
í Reykjavík, 27. apríl
1920. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Eir 24. maí sl. For-
eldrar hennar voru
Jóhann Arason, f.
23.6. 1880 á Ragn-
heiðarstöðum í Gaul-
verjabæjarhreppi í
Arnessýslu, d. 16.5.
1953, og Jakobína
Jónasdóttur, f. 5.6.
1884 á Njálsstöðum
í Vindhælishreppi,
Austur-Húnavatns-
sýslu, lést 9.8. 1976. Systkini
Arínar voru Margrét, f. 23.9.
1914, d. 27.4. 1964, og Indriði,
f. 9.2.1917, d. 8.6.1976. Uppeld-
issystkini hennar voru Sigur-
björg Laufey Einarsdóttir, f.
17.7. 1911, d. 15.9. 1992. Anna
G.H. Cronin, f. 7.4. 1924, og
Guðlaugur Benjamín Guðgeirs-
son, f. 5.4. 1932, d. 9.12. 1945.
Arín giftist 26. nóvember
1949 Ágústi G. Þorsteinssyni, f.
31. ágúst 1921 í Jafnaskarði í
Norðurárdal í Borgarfirði. For-
eldrar hans voru Margrét Finns-
dóttir og Þorsteinn Jóhannesson
sem bjuggu lengst á Haugum í
Stafholtstungum í Borgarfirði.
Börn Arínar og Ágústs eru: 1)
Margrét f. 30.3. 1951, meina-
tæknir í Reykjavík. 2) Jóhann,
f. 22.3. 1955, rafeindavirki, gift-
ur Hrafnhildi Sigurðardóttir, f.
24.8. 1957. ^Börn þeirra eru
Berglind og Ágúst Elfar. Barna-
barn er drengur fæddur 25. mai
sl.
Arín verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin kl. 15.00.
uð. Hún lést á hjúkrun-
arheimilinu Eir 24. maí
síðastliðinn eins og
áður hefur komið
fram, eftir mjög erfiða
baráttu við sjúkdóm
sinn. í gegnum árin
reyndist Gunna
frænka okkur systkin-
unum ávallt sem
amma, eins og Gústi
sem afi. Hlýju og
væntumþykju umvafði
Gunna okkur enda
vildi hún ávallt okkur
það besta. Hún bar
ávallt hag okkar fyrir
brjósti. Gunna var dul
um eigin hagi en jafnframt mjög
tilfinninganæm. Hún var sannur vin-
ur vina sinna og var einnig frábær
í að sjá skoplegu hliðarnar á tilver-
unni. Heimili þeirra hjóna stóð okkur
systkinum alltaf opið og vorum við
tíðir gestir þar. Ber þó helst að nefna
sunnudagana og ekki síst jólin þegar
við systkinin fórum þangað með for-
eldrum okkar Jóhönnu og Reyni.
Var þá alltaf boðið upp á heitt súkk-
ulaði og gómsætar tertur enda hafði
Gunna mjög gaman af því að baka
og vildi ávallt vera að prófa eitthvað
nýitt.
Gunna var mjög inúsíkölsk og
hafði gaman af að spila á píanó og
gerði hún það oft er gesti bar að
garði. Rifjast þá helst upp lög eins
og O Danny boy og fleiri falleg lög.
Stórt skarð hefur nú verið höggv-
ið í fjölskylduna við fráfali elsku
Gunnu frænku og verður ekki fyllt
upp í það aftur. Sárastur er söknuð-
urinn hjá elsku Gústa sem hefur
reynst henni einstakur lífsförunaut-
ur og var hennar stoð og stytta
ásamt dóttur þeirra í hennar erfiðu
veikindum. Minning um góða mann-
eskju mun ávallt lifa í hjörtum okkar.
Góði guð, gefðu Gústa, Mabbý,
Jóhanni og fjölskyldu styrk til að
ganga í gegnum sorg sína.
Elsku Gunna, takk fyrir að hafa
verið til.
Nú legg ég aupn aftur,
6, Guð þinn náðar kraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofí rótt.
(S. Egilsson)
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Anna, Guðrún, Karl
og Reynir Reynisbörn.
í hjörtum okkar þú iifír, elsku Gunna,
sál þín mun að eilífu þig bera,
minning þín sem heiðskírt ljós af himnum
ofan frá
upp augun okkar bláu þau lýsa.
(G. Bergmann)
Okkur systkinin langar í örfáum
orðum að minnast elsku Gunnu
frænku eins og hún var oftast köll-
HREIÐAR
STEFÁNSSON
+ Hreiðar Stefánsson fæddist
á Akureyri 3. júní 1918.
Hann lést í Reykjavík 10. mars
síðastliðinn og fór útför hans
fram frá Langholtskirkju 16.
mars.
HANN Hreiðar minn er sofnaður.
Horfinn er góður maður. Ég hefði
svo gjarnan vilja kveðja hann, faðma
hann og ég geri það núna.
Ég man, ég man kemur upp í
hugann þegar ég hugsa til Hreiðars.
Ég held að við höfum byijað í Lang-
holtsskóla um svipað leyti, jafnvel
sama árið og það eru fleiri en 30
ár síðan. Hann var gamalreyndur
kennari, búinn að vera á Akureyri
með sinn eigin skóla til fjöda ára,
en ég nýskriðin úr Kennaraskólan-
um. Það var enginn aldur til hjá
Hreiðari. Ég kunni ekki neitt, fékk
sem byijandi fá bön og þá var raðað
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúö og hlýhug vift and-
lát og útför móftur okkar, tengdamóð-
ur, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR GUÐBJARGAR
MAGNÚSDÓTTUR,
Efrl-Engidal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórð-
ungssjúkrahúss ísafjarðar fyrir frábæra
umönnun á liðnum árum.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurgeir Jónsson,
Guðný Jónsdóttir,
Jón Jónsson,
Halldór Jónsson,
Magnúsina Jónsdóttir,
Magdalena Jónsdóttir,
Ásta Dóra Egilsdóttir,
Guðný Indriðadóttir,
Ögmundur Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, dóttur, móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
SÓLVEIGAR JÓHANNESDÓTTUR,
Vallholti 20,
Selfossi.
Sérstakar þakkirtil lækna og starfsfólks
Sjúkrahúss Suðurlands, Selfossi.
Sævar Larsen,
Arnheiður Gísladóttir,
Steinunn Margrét Larsen, Páll Jóhannsson,
Jóhannes Arnar Larsen, Rannveig Skúla Guðjónsdóttir,
Friðrik Rafn Larsen, Margrét Ása Þorsteinsdóttir,
Linda Rut Larsen, Eiður Ingi Sigurðarson
og barnabarn.
í bekki eftir kunnáttu. Við vorum
saman uppi á lofti, þá voru svo mörg
böm í skólanum, að það þurfti að
kenna undir súð. Það voru dýrðar-
dagar, lítil hugguleg kennslustofa
og Hreiðar hinumegin við ganginn,
sem alltaf var hægt að leita til og
hann hafði svo hárfína kímni.
Hreiðar lagði mikla áherslu á gott
og vandað mál og vandi börnin við
upplestur, framsögn og frásagnir
löngu áður en það var til umræðu í
skólalífinu. Hann var snillingur við
lestrarkennslu. Ég er viss um að
hann hefði getað kennt apa að lesa.
Hreiðar kenndi mér svo margt. Mest
af öllu að söngur og falleg saga
gæti fengið fram það besta í hverri
manneskju, þó lítil væri. Við bárum
okkur saman um ljóð og lög, við
sungum saman. Ég gleymi aldrei
besta heilræðinu: „Þegar verst læt-
ur, þá farðu bara að syngja.“ Ég
geri þetta enn, þegar ég kem inn í
bekk sem ég veit ekki hvernig á að
umgangast.
Ogleymanlegar eru jólaskemmt-
anirnar í skólanum meðan Hreiðars
naut við. Jólagleðin skein úr hveiju
andliti og ekki síst Hreiðars, sem
stjórnaði af mikilltinnlifun. Það hlaut
hver maður að hrífast með.
Það er ekki hægt að minnast
Hreiðars án þess að tala um Jennu,
konuna hans, í sama orðinu. Ég veit
að þau bundust ung að árum og
voru hvort öðru nátengd alla tíð.
Hver man ekki eftir bókum Jennu
og Hreiðárs? Um árabil beið ég eftir
að fá að vita meira um Öddu og það
sem hún var að aðhafast lítil og svo
forvitnaðist ég inn í tilveru hennar
þegar hún trúlofaðist.
Til Jennu og Hreiðars var alltaf
gott að koma, á fallega heimilið
þeirra sem var svo menningarlegt,
bækur, bækur upp um aila veggi og
fallegir hlutir. Jafnvel þó þau vökn-
uðu ekki á sama tíma á morgnana
voru þau samtaka um að vinna sam-
an og vera saman. Eftir að strákam-
ir okkar komu til, var hægt að koma
í heimsókn til þeirra, hvort sem var
í Garðabæinn eða Goðheimana. Þau
vom goðum líkust að töfra, hvort sem
var ljóð, sögur eða það sem strákun-
um Iét best, pönnukökur, vöfflur eða
tertur.
Elsku Jenna, og fjölskyldan öll,
við Steinar vottum ykkur öllum inni-
lega samúð, mikill maður hefur lokið
göngu sinni. Ég veit að margir hafa
beðið hans á grænu grundunum og
hann er núna umvafin bömum, sem
langar til að læra að lesa. Vertu
Guði falinn, elsku Hreiðar minn,
þökk fyrir allt og allt.
María Árelíusdóttir.