Morgunblaðið - 31.05.1995, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 37
i
I
I
I
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
Eins og múrsteini
sé kastað í
gegnum glugga
tónlistarvenjur. í dómnum rekur
Phillips Post lag fyrir lag og segir
að upphafslagið, Army of Me, sem
er einnig fyrsta smáskífan af plöt-
unni, sé prýðileg byrjun, eins og
múrsteini sé kastað í gegnum
glugga í ljósi þess hverju menn
hafí almennt búist við. Phillips
leggur nokkra áherslu á það hve
Björk skipti oft um tónlistarstefnu
á plötunni, og gefur henni að lok-
um átta í einkunn.
Munúð og gleði
Annað breskt tímarit, Mojo,
birtir einnig dóm um plötuna,
opnudóm, og skreytir með heilsíðu
málaðri mynd af Björk. Mojo hefur
helst skrifað um eldri rokktónlist
og leggur meðal annars uppúr
lengri og ítarlegri umfjöllun um
plötur en blöð almennt. Barney
Hoskyns ritar dóminn og hann er
afskaplega hrifinn, eins og sjá má
á fyrirsögn dómsins þar sem hann
segir Björk sannarlega frumlega,
fulla af gleði og munúð. Hann
segir að Debut hafi skapað eigin
tónmál, eigin heim. Síðan Debut
hafi komið út hafi Björk aftur á
móti því miður orðið að fjölmiðla-
furðu, en með Post snúi hún aftur
með plötu sem sé hæglega eins
djörf og fögur og fyrri platan.
Hoskyns hrífst ekki síður af
textum Bjarkar en af tónlistinni
og vitnar í nokkra þeirra máli sínu
til stuðnings. Hann er einnig á því
að Army of Me sé fyrirtaks upp-
haf á plötunni, afbragðs lag og
ekkert betra á plötunni nema svo-
nefnt Hyperballad.
Hoskyns segir að eini böggur
plötunnar sé að hún sé full fjöl-
breytt og kannski til of mikils
mælst að hlustendur hafi allir
gaman af að sveiflast frá stór-
sveitarsveiflu í triphopp og þaðan
í hugljúfan óð.
í lok dómsins klykkir Hoskyns
út með því að Björk sýni engin
merki þess að breytast í popp-
brúðu, ólíkt Neneh Cherry, Seal
og Terrence Trent D’Arby, sem
öllum hafi verið hampað sem stór-
merkilegum eftir frumraunina.
Post sanni að hún eigi mikið eftir
enn.
FÓLK í FRÉTTUM
Kósíá
VEITINGASTAÐURINN Astro
var opnaður síðastliðið föstudags-
kvöld með pompi og prakt, eftír
róttækar breytingar á húsnæðinu.
Boðsgestir á öllum aldri fylltu stað-
inn og þáðu veitingar í boði húss-
ins og á meðal þess """"
var í boði voru nokl
ur lög í léttum dúr
með hljómsveit-
inni Kósí.
Morgunblaðið/H&Hdór
EIGENDURNIR Helgi Björnsson og Hallur Helga-
son tóku á móti boðsgestum fyrir utan nýja staðinn.
Nýr diskur
með Stones
►HÉR MÁ sjá rokkarann Mick Jagger á tón-
leikum með Rolling Stones á skemmtistaðnum
The Paradiso í Amsterdam síðastliðið laugar-
dagskvöld. Rolling Stones tróð óvænt upp á
staðnum, þótt orðrómur hefði vissulega verið
uppi um tónleikana. Þeir voru órafmagnaðir
og munu upptökur af þeim verða gefnar út á
geisladiski, auk þess sem sýndur verður klukku-
tíma þáttur á MTV um tónleikana.
HELGI fagnar opnuninni með systrum sínum
Guðbjörgu og Katrínu.
EINAR Kárason, Jakob Grétarsson, Huldar
Breiðfjörð og Stefán Jónsson.
Viðgerðir
á öllum tegundum
af töskum.
Fljót og góð þjónusta.
TÖSKU-
VIÐGERÐIN
VINNUSTOFA SÍBS
Ármúla 34, bakhús
Sími 581 4303
Reykjavík: Ármúla 11 - Sfmi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Sími 96-11070
_____________________________________
- kjarni málsins!
Oðkaupsveislur
útisamkomur — skemmtanir — tónleikar — sýningar — kynningar og fl. og fl. og fi.
■N
og ýmsir fylgihlutir
^ Ekki treysta ó veðrið þegar
skipuleggja ó eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald ó
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og
tjaldhitarar.
..meo skátum á heimavelli
sími 562 1390 • fax 552 6377
(
(
(