Morgunblaðið - 09.06.1995, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Utanríkisráðherra um samninga við Norðmenn um norsk-íslenska síldarstofninn
Ekki eingöngu byggt á veiði-
reynslu heldur dreifingu
Skumin
brotnar
brátt
UNGAR eru að skríða úr
eggjum um allt land um þess-
ar mundir. Veröldin hefur
ekki tekið þeim opnum örm-
um alls staðar, því á mörgum
stöðum, einkum á Vestfjörð-
um og Norðurlandi, hefur
verið frost um nætur og
dæmi eru um að fuglar hafi
orpið í svellilögðum klett-
asyllum. En nú hefur ræst
mjög úr alls staðar. Hlýindi
og sólríkt var mestan hluta
maímánaðar og júnímánaðar
sunnan- og suðvestanlands
og í gær voru mikil hlýindi
norðanlands. Þessi svartbak-
ur, sem búið hafði um sig við
Markarfljótsós, átti þó eftir
að liggja á í nokkurn tíma
þegar ijósmyndari heimsótti
hann.
UTANRÍKISRÁÐHERRA sagði í
umræðum á Alþingi í gær að í við-
ræðum við Norðmenn um nýtingu
á norsk-íslenska síldarstofninum
væru ekki uppi hugmyndir um að
byggja eingöngu á veiðireynslu frá
þeim tíma er síldin veiddist heldur
á dreifíngu síldarstofnsins í lögsögu
þjóðanna. Þingmenn stjómarand-
stöðunnar gagnrýndu þessa afstöðu
og töldu óvarlegt að byggja á dreif-
ingu síldarstofnsins sem enn væri
ekki farinn að ganga inn í íslensku
lögsöguna.
Þetta kom fram í umræðu um
tillögu til þingsályktunar vegna
samnings íslands og Færeyja um
stjóm veiða úr norsk-íslenska síldar-
stofninum árið 1995. Halldór Ás-
grímsson sagði að ekki væri rétt
að byggja á veiðireynslunni þar sem
langt væri um liðið og veiðin hefði
verið mjög misjöfn frá ári til árs.
Fyrir lægi vísindalegt líkan að dreif-
ingu stofnsins og það væri mikil-
vægt að styrkja það líkan með því
að stuðla að vexti stofnsins eins og
nokkur kostur væri og fylgjast með
útbreiðslunni, þar sem stofninn
væri ekki enn farinn að taka upp
fyrri háttu og ganga inn í íslenska
lögsögu.
Dreifing stofnsins á sínum tíma
væri það sem við byggðum á, en
það gæti tekið aillangan tíma að
ganga endanlega frá þessum samn-
ingum við Norðmenn, jafnvel 2-3
ár. Norðmenn vildu ekki byggja á
hegðan síldarinnar eins og hún hefði
verið fyrr en síldin hefði tekið upp
sitt fyrra mynstur. Þess vegna væri
verið að tala um skammtímasamn-
inga sem tryggðu það að ekki yrði
ofveiði úr stofninum og hann byggð-
ist upp.
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Alþýðuflokksins, sagðist vera
mjög ósáttur við að dreifing stofns-
ins í lögsögu þjóðanna væri lögð til
grundvallar í þessum viðræðum.
Með því móti væru íslendingar að
selja sig undir duttlunga náttúrunn-
ar, en alls óivíst væri að síldin tæki
upp fyrri hegðan. Þannig væri sjór-
inn fyrir norðan og austan landið
miklu kaldari en verið hefði. Síldin
hefði ekki gengið inn í íslensku lög-
söguna og alls óvíst væri hvað fram-
tíðin bæri í skauti sínu hvað það
varðaði. Nauðsynlegt væri að
byggja á veiðireynslu okkar. Þar
stæðum við vel og að minnsta kosti
jafnfætis Norðmönnum.
Fordæmi eða ekki
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
kröfðust þess við umræðuna að upp-
lýst yrði hvaða kröfur um síldar-
kvóta Islendingar hefðu gert í upp-
hafi viðræðnanna við Norðmenn í
vor. Því var hafnað, en á það berit
að upplýsingar hefðu verið lagðár
fram í utanríkis- og sjávarútvegs-
nefnd. Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra sagði að aðilar hefðu
verið sammála um að nefna ekki
tölur í þessu sambandi til að þrengja
ekki möguleika á að taka upp við-
ræður á nýjan leik.
í umræðunni komu fram efa-
semdir hjá þingmönnum stjórnar-
andstöðunnar varðandi það að í
samningnum við Færeyinga væri
heildarkvóti þjóðanna ákvarðaður
250 þúsund tonn. Töldu þeir hættu
á því að sá kvóti gæti orðið fordæmi
í samningaviðræðum í framtíðinni.
Utanríkisráðherra sagði að samn-
ingurinn tæki einungis ti! ársins
1995 og hefði ekkert fordæmisgildi
varðandi framtíðina.
Morgunblaðið/SHS
Samningafundir FÍ A og Flugleiða
Afturkippur kom
í viðræðumar
ENGINN árangur varð af viðræðum
samninganefnda Félags íslenskra
atvinnuflugmanna og Flugleiða um
gerð nýs kjarasamnings í gær, að
sögn Kristjáns Egilssonar, for-
manns FÍA. Deiluaðilar komu sam-
an til fundar kl 13 og lauk honum
síðdegs, en ríkissáttasemjari hefur
boðað til næsta fundar á mánudag.
Björn Theódórsson, fram-
kvæmdastjóri flugrekstrar- og
stjórnunarsviðs Flugleiða, varðist
allra frétta af gangi viðræðnanna.
Kristján Egilsson, sagði að við-
ræðurnar hefðu ekki verið komnar
langt á veg og í gær hefðu mál
heldur færst aftur á bak.
Kristján vildi ekki greina frá
kröfugerð flugmanna á hendur
Flugleiðum en sagði að flugmenn
hefðu ekki sett fram beinar kaup-
hækkunarkröfur, heldur vildu m.a.
skilgreina nánar ýmis atriði í sam-
bandi við vinnutímareglur.
Aðgerðir hugsanlegar ef næsti
fundur verður árangurslaus
Kristján sagðist telja að samnings-
vilja skorti af hálfu viðsemjendanna
og aðspurður hvort aðgerðir væru
fyrirhugaðar af hálfu flugmanna til
að fylgja kröfum eftir sagði hann að
flugmenn ætluðu að bíða og sjá hvaða
árangur yrði af fundinum á mánu-
dag. „Ef ekkert gerist þar, þá getum
við ekki beðið fram á sumaráætlun.
Það skaðar alla aðila. Okkur er vel
ljóst að okkar hagsmunir fara saman
við hagsmuni félagsins og okkur er
jafn óljúft að sjá illan gang þess eins
og stjórnendum ætti að vera, þannig
að ef ekkert gengur á mánudag,
verðum við að sjá hvaða aðferð við
beitum til þess að þeir skilji okkur,“
sagði Kristján.
Morgunblaðið/Þorkell
íðir í Perlunni
SÝNINGIN íðir, sem Rósa Ingólfsdóttir hefur haft veg
og vanda af, var formlega opnuð í Perlunni klukkan 17
í gær. Vemdari sýningarinnar, Böðvar Bragason lög-
reglustjóri, opnaði sýninguna, en hann sést hér tala
við Rósu. Sýningin stendur fram á sunnudag og verður
margt til skemmtunar og fróðleiks alla dagana. Tísku-
sýningar verða á boðstólum og skartgripir sýndir, svo
eitthvað sé nefnt.
New York. Morgunblaðið.
., KRISTJÁN Tómas Ragnars-
son, forstöðumaður endurhæfing-
ardeildar Mount Sinai sjúkrahúss-
ins í New York, tók við mannúð-
arverðlaunum Dr. Howard A.
Rusk við hátíðlega athöfn á
Marriott Marquis hótelinu sl. mið-
vikudagskvöld.
Alþjóðlegi endurhæfingarsjóð-
urinn, WRF, sem á 40 ára afmæli
um þessar mundir, veitir verð-
launin og er Kristján Tómas 33.
einstaklingurinn sem þau hlýtur.
í umsögn WRF kemur fram að
Kristjáni Tómasi sé veitt viður-
kenningin þar sem líf hans og
starfsferill endurspegli andatrú-
mennsku og mannúðarstefnu Dr.
Rusks og samtaka hans, Alþjóð-
lega endurhæfingarsjóðsins, sem
gefið hefur fjölda fólks nýja von
um betri heilsu um heim allan.
Kveðjur frá Clinton
Kristjáni bárust kveðjur víða
að, meðal annars frá Bill Clinton
Bandaríkjaforseta, sem sagði að
markviss vinna Kristjáns sem
læknis og uppfræðara hefði þróað
endurhæfingarvísindi og fært
ótölulegum fjölda fólks vonir og
aukin lífsþægindi.
Kristján Tómas komst á forsíð-
ur dagblaða í Bandaríkjunum fyr-
ir rúmum tveimur árum, þegar
hann meðhöndlaði kunnan ruðn-
ingsleikmann, Dennis Byrd, sem
hafði hálsbrotnað á leikvelli. Byrd
Islenskur
læknir verð-
launaður í
New York
var lamaður fyrst eftir slysið en
undir handleiðslu Kristjáns auðn-
aðist honum að ganga að nýju.
Byrd var heiðursforseti athafnar-
innar í fyrrakvöld og greindi frá
því hvemig Kristján hefði gefið
sér nýja von og kraft, komið sér
á fætur þegar lífinu hefði virst
lokið, og gæti hann aldrei þakkað
Kristjáni nægilega fyrir það sem
hann hefði gert.
í þakkarávarpi sínu minntist
Kristján Dr. Howard A. Rusk, en
hann var kennari Kristjáns og
síðar samstarfsmaður við end-
urhæfingardeild New York há-
skólans. Þá sagði hann viðurkenn-
ingu þessara virtu samtaka vera
mikinn heiður sem hvetti sig til
frekari átaka á sviði endurhæf-
ingar bæklaðra sjúklinga.
í fremstu röð
Kristján Tómas útskrifaðist frá
læknadeild Háskóla íslands árið
1969. Hann var við framhaldsnám
og kenndi einnig við New York
háskólann á fyrri hluta áttunda
áratugarins. Hann starfaði á
Landspítalanum í eitt ár, 1976,
en hvarf síðan aftur til starfa í
New York. Árið 1986 var Kristján
skipaður prófessor og stjórnandi
endurhæfingardeildar Mount
Sinai sjúkrahússins þar sem hann
hefur starfað síðan. Deildin þykir
hafa vaxið undir hans stjóra og
telst nú í fremstu röð á sínu sviði
í Bandaríkjunum. Þá hefur Krist-
ján haldið fyrirlestra víða, sent
frá sér yfir 100 vísindagreinar
og ritgerðir, og hlotið fjölda
styrkja fyrir rannsóknir sína á
sviði endurhæfingar.