Morgunblaðið - 09.06.1995, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*
Skrifstofustjóra Slysavarnafélags Islands sagt upp störfum
Félagið ber við
trúnaðarbresti
SKRIFSTOFUSTJÓRA Slysa-
varnafélags íslands hefur verið
sagt upp störfum. Garðar Eiríks-
son, gjaldkeri félagsins, sagði að
ástæða uppsagnarinnar væri trún-
aðarbrestur milli skrifstofustjór-
ans, Guðbjörns Ólafssonar, og
stjórnar SVFÍ auk samstarfsörð-
ugleika. Guðbjöm kveðst engar
skýringar hafa fengið á uppsögn-
inni og segir að svo sé komið inn-
an SVFÍ, að menn megi ekki hafa
eigin skoðanir.
Starfsmenn vildu leita
sátta milli stjómar
og starfsmanna
Þá hafa Þór Magnússon, sem
m.a. stýrir björgunarskóla SVFÍ
og Kristján Friðgeirsson, fulltrúi
í björgunardeild, sagt upp störfum.
Guðbirni og Kristjáni var gert að
hætta áður en lögboðinn uppsagn-
arfrestur var liðinn þar sem stjórn
SVFÍ túlkaði það sem trúnaðar-
brest að þeir skýrðu frá starfs-
mannamálum í viðtali í útvarpi í
fyrradag. Á blaðamannafundi sem
SVFÍ gekkst fyrir í gær kom fátt
nýtt fram í málinu annað en það
að á starfsmannafundi sem hald-
Þrjátíu
metra hár
reykháfur
INNAN skamms verður settur
upp við hús fiskinyölsverksmiðju
Loðnuvinnslunnar hf. á Fá-
skrúðsfirði nýr þrjátíu metra hár
reykháfur úr stáli sem smíðaður
var og settur saman á mettíma,
þremur vikum. Guðmundur
Sveinsson hjá Héðni hf. segir að
reykháfurinn verði eftir upp-
setningu hans með stærstu stál-
reykháfum í landinu.
Reykháfurinn var fluttur í
fyrrakvöld á stórum flutningabíl
frá Héðinshúsinu í Vesturbænum
niður í Sundahöfn þaðan sem
hann verður fluttur með skipi til
Fáskrúðsfjarðar. Reykháfurinn
er engin smásmíði. Hann er um
30 metrar á hæð, vegur um 25
tonn og er mest 2,5 metrar í
þvermál.
inn var í fyrradag var stjórn fé-
lagsins falið að leita sátta milli
stjórnar og starfsmanna SVFÍ.
Garðar Eiríksson sagði að skrif-
stofustjórinn væri nákvæmur og
ágætur starfsmaður en ef ekki
ríkti fullur trúnaður með starfs-
mönnum og stjórnarmönnum, eins
og í þessu tilfelli, yrðu að koma
til einhveijar breytingar. Trúnað-
arbrestur hefði orðið milli skrif-
stofustjórans og stjórnar SVFÍ og
var það einróma ákvörðun stjórn-
arinnar að segja honum upp störf-
um.
Vinnur ekki út
uppsagnarfrestinn
Stjóm SVFÍ óskaði eftir því að
Guðbjörn ynni ekki út uppsagnar-
frest sinn og sagði Garðar að
ástæða þess væri hin opinbera
umræða sem hefði farið í gang
um uppsögn hans. Hið sama ætti
við um Kristján Friðgeirsson.
Garðar sagði að á starfsmanna-
fundi sem haldinn var í fyrradag
hefði Þór Magnússon lagt fram
uppsagnarbréf sitt vegna undan-
genginna atburða. Á fundinum
hefði verið ákveðið að vinna að
lausn mála, bæði innanhúss og
innan félagsins. Garðar sagði að
stjórnin vonaði að sú vinna leiddi
til þess að Þór Magnússon drægi
uppsögn sína til baka. Stjórn-
arfundur hefur verið boðaður 1.
júní nk. og þar verða tillögur í
þessum efnum lagðar fram.
Garðar bað fyrir hönd stjórnar
SVFÍ um vinnufrið og kvaðst ekki
geta greint nánar frá því í hveiju
trúnaðarbrestur Guðbjörns væri
fólginn. Hann sagðí að það tíðkað-
ist ekki að gefa mönnum skýring-
ar á slíku í smáatriðum. Hann
sagði að ágreiningur innan félags-
ins snerist hvort tveggja um
starfsaðferðir og persónur.
Engar skýringar fengið
Guðbjöm sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði farið
fram á skýringar á uppsögninni
en ekki fengið þær. „Eg skrifaði
stjórn félagsins 2. júní og fór fram
á viðhlítandi skýringar á uppsögn-
inni og óskaði eftir svari innan
tveggja vikna. Á miðvikudag fékk
ég það svar frá stjórninni að ekki
væri óskað eftir því að ég ynni
út uppsagnarfrestinn."
Guðbjörn sagði að slíkt ástand
væri að myndast innan SVFÍ að
félagið yrði að taka á því innan
frá. „Það hefur ekki valist til for-
ystu í félaginu fólk sem veldur
sínu hlutverki. Það er mín reynsla
að menn megi ekki hafa andstæð-
ar skoðanir innan félagsins," sagði
Guðbjörn.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
VESTURBÆINGAR máttu vara sig þegar reykháfurinn risastóri var fluttur úr Héðinshúsinu í
fyrrakvöld um Vesturbæinn og um borð í skip í Sundahöfn.
Nýr aðstoð-
aryfirlög-
regluþjónn
HILMAR Þorbjörnsson tók við
starfi aðstoðaryfirlögregluþjóns við
umferðardeild lögreglunnar í
Reykjavík í gær. Hilmar tekur við
af Magnúsi Ein-
arssyni, sem
skipaður var yf-
irlögregluþjónn í
Kópavogi fyrir
nokkru.
Hilmar sagði,
aðspurður í gær
hvort hann
hygðist standa
fyrir breytingum
í umferðardeild-
inni, að nýjum
mönnum fylgdu
alltaf nýjar
áherslur og markmiðið væri að
bæta ástandið í umferðinni. „Mein-
ingin er að reyna að stjórna deild-
inni með þessum góðu mönnum,
sem hér eru. Við gerum það í sam-
einingu. Ég vona að okkur takist í
samvinnu við ökumenn og aðra að
koma á betri umferðarmenningu í
borginni," sagði Hilmar.
Hilmar Þorbjörnsson er fæddur
23. október 1934. Hann hóf störf
í lögreglunni í Reykjavík árið 1958.
Eiginkona hans er Ágústa Guð-
bjartsdóttir.
------♦ ♦ <------
Havel með
viðdvöl á
Islandi
VACLAV Havel forseti Tékklands
hafði klukkustundarlanga viðdvöl
hérlendis um hádegi á miðvikudag,
á leið sinni til Bandaríkjanna ásamt
um 12 manna fylgdarliði i flugvél
forsetaembættisins.
Fulltrúar flugvallaryfirvalda og
lögreglustjóraembættisins á Kefla-
víkurflugvelli tóku á móti forsetan-
um, ásamt ræðismanni Tékklands
hérlendis.
Jón Ólafsson ræðismaður Tékk-
lands á íslandi segir að Havel hafi
verið á leið til Bandaríkjanna í
bæði opinberum erindagjörðum og
einkaerindum. Megintilgangur far-
arinnar hafi verið að veita viðtöku
nafnbót heiðursdoktors við Har-
vard-háskóla.
I
)
i
j
Andlát
EIRÍKA ANNA
FRIÐRIKSDÓTTIR
EIRÍKA Anna Frið-
riksdóttir hagfræðing-
ur lézt mánudaginn 6.
júní sl. 84 ára að aldri.
Eiríka fæddist í Ess-
en í Þýzkalandi þann
23. desember 1911.
Stúdentspróf tók Ei-
ríka í Berlín árið 1930
og hagfræðiprófi lauk
hún í Prag 1936. Ei-
ríka stundaði nám í
tölfræði við Kaup-
mannahafnarháskóla
1936-38, og fram-
haldsnám í hagfræði í
Birmingham 1941-
1944.
Á árunum eftir stríðið starfaði
Eiríka hjá Sameinuðu þjóðunum,
fyrst í London 1946-1947, síðan
í New York 1947-1953. Þá flutti
hún til íslands og gerðist íslenzkur
ríkisborgari árið 1955.
Fyrst eftir að hún settist að á
íslandi starfaði Eíríka sem hag-
fræðingur hjá SÍS, var síðan kenn-
ari og starfsmaður
Fram k v æmd astof n -
unar. Á árunum
1961-62 og 1963-65
kenndi hún - tölfræði
við Australian Nati-
onal University. Frá
árinu 1965 var Eiríka
starfsmaður Efna-
hagsstofnunar og
Þjóðhagsstofnunar,
þar sem hún lauk
starfsævi sinni 1981.
Eiríka var meðal
annars kunn fyrir
störf sín að neytenda-
málum. Hún var um
árabil í stjórn Neytendasarntak-
anna (1972-1977) og hún tók virk-
an þátt í norrænum samvinnu-
verkefnum á sviði neytendamála,
allt til ársins 1985.
Eftir Eiríku liggja meðal annars
rit um slys í heimahúsum og varn-
ir gegn þeim, en Eiríka beitti sér
mjög fyrir verndun barna gegn
slysum.
Nýtt tölvukerfi kynnt á ráðstefnu uni ávanalyf
Virkara eftirlit með
aukaverkunum lyfja
NÝTT tölvukerfi verður kynnt á
ráðstefnu um ávanalyf sem nú
stendur yfir á Grand Hótel Reykja-
vík. Kerfið verður sett upp á öllum
heilsugæslustöðvum á landinu á
næsta ári og með notkun þess kom-
ast læknar ekki hjá að skrá þær
aukaverkanir af lyfjum sem þeir
verða varir við hjá sjúklingum sín-
um.
Á ráðstefnunni, sem lýkur í dag,
er fjallað um lyf sem hafa ávana-
hættu í för með sér þótt þau séu
tekin í venjulegum skömmtum. Þau
lyf sem einkum er um að ræða eru
róandi lyf svo sem díasepam eða
valíum, þunglyndislyf, verkjalyf,
sýklalyf og anabólískir sterar.
Skráning aukaverkana
Erfitt reynist að safna upplýsing-
um um aukaverkanir lyfja því lækn-
ar láta undir höfuð leggjast að til-
kynna þær til heilbrigðisyfirvalda.
Að sögn Matthíasar Halldórsson-
ar aðstoðarlandlæknis er ástæðan
sú að aukaverkanir lyfjanna eru
flestar vel þekktar og að skráning
þeirra er viðbótarvinna fyrir lækn-
ana. Tölvukerfið ætti að auðvelda
eftirlit með óæskilegum áhrifum
lyfja á fólk og að fylgjast með að
læknar fylgi þeim reglum sem gilda
um lyfjaávísanir.
Hamingjupillan
Á ráðstefnunni kemur fram að
heilbrigðisyfirvöld hafa vaxandi
áhyggjur af notkun nýrra þung-
lyndislyfja svo sem Fontex en lyfin
hafa verið nefnd „Hamingjupillan".
Fyrrverandi landlæknir í Svíþjóð,
Bror Rexed, segir að markaðssetn-
ing lyíjanna minni á markaðssetn-
ingu amfetamínskyldra lyfja á
fimmta áratugnum en þau áttu að
vera nokkurs konar töfralausn.
Hætta sé á að enn og aftur séu
komin á markað lyf sem verði gróf-
lega misnotuð. Notkun lyfjanna
hefur aukist mikið á undanförnum
tveimur árum en markaðssetning
þeirra hefur gengið út á að þau séu
án aukaverkana. Minnt er á að það
sama var sagt um díazepam og
skyld lyf þegar þau voru fyrst sett
á markað en reyndin varð öll önn-
ur. Nú þegar er komið í ljós að
Fontex hefur ýmsar aukaverkanir,
til dæmis getuleysi.
Bíla/lyfjaauglýsingar
Að sögn Ólafs koma 95 hundr-
aðshlutar þeirra upplýsinga sem til
eru um lyf frá lyfjaframleiðendum
en einungis 5% frá yfirvöldum eða
óháðum vísindamönnum og segir
hann að nauðsynlegt sé að breyta
þessu. Brögð séu jafnvel að því að
framleiðendur auglýsi lyf eins og
um bifreiðar sé að ræða.