Morgunblaðið - 09.06.1995, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Forstjórí Eimskips um Ameríkusiglingar
Samskip vilja
ekkisamstarf
HÖRÐUR Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, segir að viðræður við
Samskip um samstarf í Ameríku-
siglingum hafi enn staðið yfír þar
til yfírlýsing annars eðlis kom
fram af hálfu Samskipa í frétt í
Morgunblaðinu í gær. Ljóst sé að
raunverulegur samningsvilji Sam-
skipa um samstarf í Ameríkusigl-
ingum sé ekki fyrir hendi enda
hafí þau verið í viðræðum við fleiri
en Eimskip um Ameríkusiglingar.
Samskip var í
öðrum viðræðum
Skipafélögin tvö gengu til
samninga um það fyrir tveimur
árum að Eimskip tæki að sér flutn-
inga fyrir Samskip á milli íslands
og viðkomuhafna Eimskips í Norð-
ur-Ameríku. Samningur um flutn-
ingana var gerður milli félaganna
og gildir hann út júní 1995. Þar
er kveðið á um að Eimskip taki
að sér að flytja ákveðinn fjölda
gáma gegn föstu gjaldi fyrir hvería
flutta einingu. Þessa þjónustu hef-
ur Eimskip veitt með tveimur skip-
um í áætlanasiglingum félagsins
á þessari leið og nú annast Skógar-
foss og Goðafoss þessar siglingar
á hálfsmánaðar fresti.
Hörður segir að í viðræðum um
endumýjun samningsins hafí Eim-
skip lagt fram tillögur um endur-
skoðun í ljósi reynslunnar. Eim-
skip hafí boðið Samskipum áfram-
haldandi hagkvæman samstarfs-
samning um flutningana. Af um-
ræddri frétt að dæma sé hins veg-
ar ljóst að Samskip hafí ekki áform
um áframhaldandi flutningasam-
starf og kjósi fremur að ganga til
samstarfs við erlent skipafélag.
„Við höfum orðið þess varir á
undanfömum vikum og mánuðum
að þeir væm í viðræðum við aðra
um áframhald þessara flutninga
svo að það kemur í sjálfu sér ekki
á óvart að þeir vilji ekki semja við
okkur. Siglingamar em fíjálsar
og það er auðvitað ekkert við það
að athuga að þeir sigli sjálfír eða
leysi flutningana með öðmm
hætti. Það tryggir eðlilega sam-
keppni á þessum flutningamarkaði
eins og í öðram siglingum til og
frá íslandi,“ sagði Hörður.
BAÐMULLARFRAMLEIÐSLA HEIMSINS
Auknar vinsældir baðmullar-
fatnaðar í Asíu, samhliða
minnkandi uppskeru þar,
hafa valdið umframeftirspurn
eftir baðmull í heiminum
FRAMLEIÐSLA
Heimslraml.
Framl. I Asíu'
NOTKUN
Heimsnolkun
Notkun í Aslu"
‘ Kina, Indland. Pakistan
“ Kina, Indland, Pakislan, Japan og önnur ríki I SA-Asíu
20
FRAMLEIÐSLA OG NOTKUN BAÐMULLAR (Milljónir tonna, tölur fyrir 1995 byggjast á spá)
20,69
Wj' U.M- H 18,43 1? 94“ 18,78 “ 18,59 18.33 '8.63 1932 1920
B| Kgjt. ái 16,81 tjm
10,07 pi 10j45
BB
10,50
10,31
10,57
I I
1990
1991
1992
1993
1994
7,52 I
1995
Baðmullarverð hefur náð sögulegu hámarki og
er komið yfir 1 dollar á pund. Því er spáð að
verðið hækki í 1,15 dollara þegar umframbirgðir
þrýtur í Bandaríkjunum í júlí
BADMULLARVERÐ (Dollarar/pund, Cotlook A Index)
1990 1991 1992 1993
Sérfræðingar spá aukinni framleiðslu á þessu ári
Heimild: Inlernalional Texlile Manufacturers Federalion / Collon Oullook
Nýjar reglur um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár
Lágmarkstími lengdur
ÞAÐ er tvennt sem ber hæst í nýjum
reglum Seðlabanka íslands um verð:
tryggingu sparifjár og lánsfjár. I
fyrsta lagi fela nýju reglumar í sér
lengingu á lágmarkstíma verð-
tryggðs sparifjár og lánsfjár og í
öðm lagi breytingu á reglum um
verðtryggingaijöfnuð lánastofnana.
Fyrri breytingin á sér rætur í yfír-
lýsingu ríkisstjómarinnar sem gefín
var í tengslum við gerð kjarasamn-
inga á almennum vinnumarkaði síð-
asta vetur. Þar sagði að stefnt skyldi
að því að draga úr verðtryggingu
fjárskuldbindinga. Að beiðni við-
skiptaráðherra gerði Seðlabankinn
tillögu um afnám verðtryggingar á
skemmri skuldbindingum í áföngum
fram til aldamóta. Ríkisstjómin sam-
þykkti þessa tillögu bankans og em
breytingamar sem í henni fólust
felldar inn í reglumar um verðtrygg-
ingu sparifjár og lánsfjár eins og
fram kemur í frétt frá Seðlabankan-
um.
Samkvæmt tillögu Seðlabankans
era breytingamar á lágmarkstíma
verðtryggðs sparifjár og lánsfjár þær
að frá og með 1. janúar 1996 skulu
verðtryggð lán vera að minnsta kosti
til þriggja ára í stað tveggja eins og
nú er. Frá og með 1. janúar 1998
skal lágmarksbinditími til verðtrygg-
ingar sparifjár vera lengdur úr einu
ári í þijú. Um leið verður lágmarksl-
ánstími verðtryggðra skuldabréfa
lengdur úr þremur ámm í fímm. Þá
er tilgreint í reglunum að stefnt skuli
að því að frá 1. janúar 2000 verði
verðtrygging innlána óheimil og að
lágmarkstími verðtryggðra skulda-
bréfa lengist úr fímm áram í sjö.
Breytingamar á reglunum um
jöfnuð verðtryggðra eigna og skulda
lánastofnana fela í sér nýjar skil-
greiningar á því sem telja má til verð-
tryggðra skulda. Einnig er um að
ræða nýjar skilgreiningar á heimild
til þess að telja bókfært eigið fé,
a.m.k. að hluta, til verðtryggðra
skulda við útreikning á verðtrygging-
aijöfnuði.
THE CHANGE GROUP
THE CHANGE GROUP
ICELAND EHL
Opnun gjaldeyrisskiptistöðvar í Upplýsingamiðstöð
ferðamála, Bankastræti 2,101 Reykjavík
9. júní 1995.
Önnumst allt sem viðkemur gjaldeyrisskiptum.
Opið 7 daga vikunnar.
Ábyrgjumst endurkaup á allt að 30% af erlendum
peningaseðlum sem keyptir eru hjá okkur.
Kaupum aftur á sama gengi! Engin þóknun!
Nýtið ykkur þetta sérstaka tækifæri.
Frekari upplýsingar veittar í síma 552 3735.
■
Skeljungur og
Olís ísamvinnu
á Neskaupstað?
Bensínstöð Shell verðurlokuð
meðan á viðræðum stendur
SKELJUNGUR hefur lokað
bensínstöð sinni á Neskaupstað og
stendur nú í viðræðum við Olís um
hugsanlegt samstarf í bensínsölu
þar. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins kemur annars vegar til
greina að Skeljungur selji Olís bens-
ínstöðina og hins vegar að fyrirtæk-
in sameinist um rekstur bensín-
stöðvar í byggðarlaginu.
Þijár bensínstöðvar í
byggðarlaginu
Um 1600 manns búa á Neskaup-
stað og hingað til hafa þijár bensín-
stöðvar verið reknar þar. Að sögn
Árna Ólafs Lárussonar, fram-
kvæmdastjóra fjármálasviðs Skelj-
ungs, er ástæða lokunarinnar sú
að í raun sé aðeins rekstrargrund-
völlur fyrir eina eða tvær stöðvar
í svo litlu byggðarlagi. Skeljungur
hafi því ákveðið að loka sinni stöð
um stundarsakir vegna viðræðna
um samstarf við Olís. Árni vildi
ekki tjá sig um það hvort Olís myndi
kaupa bensínstöð Skeljungs eða
hvort Olís og Skeljungur myndu
sameinast um rekstur einnar stöðv-
ar en sagði það væntanlega skýrast
á næstu dögum.
Olís með
sterka stöðu
Bensínstöð Skeljungs á Neskaup-
stað er nýleg og stendur í miðjum
bænum en Olísstöðin er komin til
ára sinna og stendur í bæjaijaðrin-
um. Olís hefur þó sterkari stöðu í
bænum enda sér fyrirtækið um
þjónustu við Síldarvinnsluna. Gæti
því komið til greina samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins að
Olís keypti Shellstöðina og flytti
bensínsölu sína þangað. Gengi það
eftir myndi Skeljungur hætta
rekstri á Neskaupstað en gæti vel
stundað bátaþjónustu frá Eskifirði
þar sem fyrirtækið hefur sterka
markaðsstöðu.
Samstillt
markaðs-
átak sveit-
arfélaga
FYRIRTÆKI í Stykkishólmi
og nágrenni hafa tekið hönd-
um saman um átak í markaðs-
málum á svæðinu. Stofnfund-
ur markaðsráðs Stykkishólms
var haldinn í vikunni og er
ætlunin að halda framhalds-
fund í lok mánaðarins. Um 20
fyrirtæki á svæðinu hafa nú
þegar ákveðið að taka þátt í
þessu samstarfí. Að sögn Ólafs
H. Sverrissonar, bæjarstjóra í
Stykkishólmi er ráðgert að
einn starfsmaður verði ráðinn
í hálft starf vegna þessa átaks
til að byija með.
í Borgarnesi hefur verið
starfrækt sérstakt markaðs-
ráð undanfarin 2 ár og hefur
starfsemin gefíð góða raun að
sögn Guðrúnar Jónsdóttur
framkvæmdastjóra Markaðs-
ráðs Borgarness. Ráðið er rek-
ið með framlagi atvinnulífsins
I Borgarnesi og nágrenni en
að auki hafa bæjaryfirvöld lagt
fram fé til rekstursins. Árlegt
rekstrarfé ráðsins heíur verið
um það bil 2 milljónir króna.
Ráðið hefur einkum fengist við
útgáfu á ýmsum upplýsingum
um Borgarnes og nágrenni en
einnig hafa ýmis samstarfs-
og gæðaverkefni einstakra
fyrirtækja átt rót sína að rekja
til ráðsins.
Póstgíróstof-
an þjónar
Diners Club
PÓSTGÍRÓSTOFAN hefur
tekið að sér þjónustu fyrir
Diners Club af Islandsbanka.
Hún mun nú sjá um greiðslum-
iðlun, þ.e. taka við greiðslum
frá korthöfum og miðla
greiðslum til þjónustuaðila.
Hægt er að greiða kortareikn-
inga á öllum pósthúsum. Þá
mun Póstgíróstofan einnig
greiða út reiðufé til korthafa
og stendur sú þjónusta til boða
í Póstgíróstofunum að Ármúla
8 og Pósthússtræti 5.
Handsal hf. verður áfram
þjónustufulltrúi Diner’s Club
og hefur umsjón með umsókn-
um vegna nýrra korthafa og
þjónustuaðila.
Að sögn Arnar Stefánsson-
ar í alþjóðadeild íslandsbanka
óskaði bankinn eftir því að
hætta þjónustu við Diners þar
sem hún svaraði ekki kostn-
aði. Auk þeirrar þjónustu sem
póstgíróstofan hefur tekið við
sá íslandsbanki um skráningu
greiðslukortanótna en sú þjón-
usta hefur nú verið flutt til
Danmerkur.
Sigurður J. Hafsteinsson
hjá Handsali hf. segir að Din-
ers korthafar séu nú um 600
talsins á íslandi en þjónustuað-
ilar um 700. Diners korthafar
eru alls um sjö milljónir í heim-
inum en þjónusta fyrirtækisins
hefur einkum verið sniðin að
þörfum þeirra sem ferðast
mikið.
Foster’s til
íslands
VÍFILFELL hefur fengið um-
boð fyrir Foster’s, þekktasta
bjór Ástrala og er gert ráð
fyrir því að dreifing til veit-
inga- og skemmtistaða hefjist
fljótlega. í kjölfarið er ætlunin
að geta boðið upp á þessa teg-
und á öllum helstu útsölustöð-
um ÁTVR.