Morgunblaðið - 09.06.1995, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 15
*
Islensk
fjallagrös hf.
Nýjar
heilsu-
vörur
Nýtt íslenskt fyrirtæki hyggst
setja á markað um miðjan júní
heilsuvörur sem unnar eru úr ís-
lenskum fjallagrösum.
Fyrirtækið er íslensk ijallagrös
hf. og var því komið á fót árið
1993. Samkvæmt því sem fram
kemur í Púlsinum, fréttablaði Iðn-
tæknistofnunar, er ætlunin að
framleiða þrjár afurðir úr fjalla-
grösum fyrst um sinn, en þar er
um að ræða hálstöflur sem fylltar
eru með möluðum fjallagrösum,
húðkrem og fjallgrasasnafs sem
er bitter drykkur um 38% að styrk-
leika.
Hrein
náttúra
Kveikjan að þessari starfsemi
hér á landi var aukin eftirspum
eftir íslenskum fjallagrösum frá
evrópskum lyfjaframleiðendum í
kjölfar Chemobyl-slyssins árið
1986. Því þótti full ástæða til þess
að reyna að framleiða þessar af-
urðir hér á landi og vora íslensk
fjallagrös stofnuð árið 1993 í þeim
tilgangi. Fyrirtækið er í eigu
Hvatningar hf., Iðntæknistofnun-
ar, Blönduóssbæjar og Iðnþró-
unarfélags Norðurlands. Öll fram-
leiðsla fyrirtækisins fer fram hér
á landi og mun markaðssetning
fyrst um sinn miðast við innlendan
markað en stefnt er að markaðs-
setningu erlendis þegar í sumar.
Allra meina bót
Fjallagrös innihalda hátt hlut-
fall af vatnsleysanlegum fjölsykr-
um sem hafa mýkjandi áhrif á
slímhúðina og draga því úr særind-
um og óþægindum í hálsi. Hál-
stöflurnar nefnastSoprano og em,
líkt og nafnið bendir til, einkum
ætlaðar söngvurum og öðmm
þeim er reyna mikið á raddböndin.
Snafsinn er bragðbættur með
fjallagrösum og verður eingöngu
á boðstólum í fríhöfninni í Leifs-
stöð. Einnig er ætlunin að fram-
leiða húðkrem ætlað fólki með
þurra húð.
(Wseagate
Seagate® er skrásett
vörumerki Seagate Technology Inc.
Hágæðadiskar
á betra verði
VIÐSKIPTI ________
Verðbólguhraðinn
0,7% sl. þijá mánuði
VÍSITALA neysluverðs miðað við
verðlag í júníbyrjun reyndist vera
172,3 stig og hafði hækkað um
0,1% frá maímánuði. Vísitala
neysluverðs án húsnæðis í júni
reyndist vera 175,9 stig og hafði
hækkað um 0,1% frá því í maí,
skv. tilkynningu Hagstofu íslands.
I síðasta mánuði hækkaði bensín
um 3,0% sem olli 0,12% hækkun
vísitölunnar. Þá hafði 3,8% hækkun
á orlofsferðum erlendis í för með
sér 0,11% hækkun vísitölunnar.
Hins vegar olli 25% lækkun á
grænmeti 0,20% vísitölulækkun.
Af einstökum breytingum á græn-
meti má nefna að tómatar lækkuðu
um 46,9% sem olli 0,09% lækkun
vísitölunnar og agúrkur lækkuðu
um 36,0% sem olli 0,07% vísitölu-
lækkun. Dilkakjöt, nýtt eða frosið,
lækkaði um 5,7% sem hafði í för
með sér 0,06% lækkun á vísitölu
neysluverðs.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
1,3% og vísitala neysluverðs án
húsnæðis um 1,2%. Undanfarna
þijá mánuði hefur vísitala neyslu-
verðs hækkað um 0,2% sem jafn-
gildir 0,7% verðbólgu á ári. Sam-
bærileg þriggja mánaða breyting á
vísitölu neysluverðs án húsnæðis
svarar til 1,6% verðbólgu á ári.
Vísitala neysluverðs í júní, sem
er'172,3 stig, gildir til verðtrygging-
ar í júlí. Vísitala fyrir eldri fjárskuld-
bindingar, sem breytast eftir lán-
skjaravisitölu, er 3402 stig fyrir júlí.
Fossháls 1 110 Roykjavik Slmi 563-4000
) skutbíll
.337.000.-
nlegur sjálfskiptur
Opel Astra er
tilbúinn í
feröalagib enda
einstaklega
rúmgóöur og bjartur
er allt aö
1630 lítra.
Opel Astra
er einn öruggasti
bíllinn á
markaöinum
meö tvöfalda
styrktarbita í
I öllum hliöum.
Eigum örfáa Astra Joy
og Corsa Joy
á sérstöku tilboðsverði
vorum aö fá
nýjan sendibíl
Opel combo sendibíll