Morgunblaðið - 09.06.1995, Side 16

Morgunblaðið - 09.06.1995, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERIIMU Morgunblaðið/Liney Sigurðardóttir ÓLÖF Jónsdóttir við hrognaskiljuna í fiskverkunarhúsi þeirra hjóna. Tuttugn vertíðir við hrognasöltun Morgfunblaðið. Þórshöfn. VORIÐ er tími grásleppunnar, segja menn hér um slóðir og gera nú um tólf bátar út á grásleppu héðan. Gæftir hafa verið slæmar og hafa einkum minni bátarnir goldið þess. Gott verð fæst fyrir grásleppu- hrogn núna og er brúttóverð um 73 þúsund á tunnuna hjá þeim sem salta sjálfir. Nokkrir salta sjálfir en aðrir leggja upp hjá Hraðfrysti- stöðinni og er verðið þar 480 kr. á lítrann, ofan af hellt. Að sögn grásleppukarlanna er aflinn ýmist svipaður og í fyrra eða ögninni skárri en netaskemmdir mun minni núna. Hreinlæti og snyrtimennska í myndarlegu fiskverkunarhúsi í einkaeign stóð frúin sjálf við hrognaskiljuna en hjónin Ólöf Jónsdóttir og Sigurður G. Jónsson eða Siggi Jóns eins og hann nefn- ist í daglegu tali heimamanna, gera sjálf að sínum afla með sóma. Sigurður er einn af hinum rótgrónu útgerðarmönnum . í plássinu og byggði saltfiskverk- unarhús fyrir nokkrum árum og hafa þau hjón gert þar sjálf að sínum afla, stundum með aðstoð barna sinna. Við komuna í húsið var ein- stakt hreinlæti og snyrtimennska það sem fyrst vakti athygli frétta- ritara, svo og örugg vinnubrögð Olafar en hún hefur saltað hrogn í u.þ.b. tuttugu vertíðir. Fimmtíu tunnur er aflinn orðinn það sem af er þessari vertíð og segir hún það vera svipað magn og í fyrra. Þegar grásleppuvertíð lýkur tekur saltfiskverkunin við og kann Ólöf vel til verka þar - ekki síður en í hrognavinnslunni. Markaðurinn fyrir úthafskarfa í Austurlöndum Verkfall sjómanna hefur ekki skaðað markaðinn „ÞÓTT verkfall sjómanna hafi auð- vitað verið bagalegt fyrir fisk- vinnslu og útflutning, er ekki hægt að segja að það hafí haft neikvæð áhrif á karfamarkaðinn í Japan. Mesta tjónið er hins vegar tekju- missir útgerðar og sjómanna við þessar veiðar, því reikna má að tveggja vikna veiðistopp þýði um 200 tonnum minni afla á skip. Sala á úthafskarfa gengur annars vel og verð er heldur hærra en á sama tíma í fyrra,“ segir Halldór G. Eyj- ólfsson, markaðsstjóri hjá SH, í samtali við Morgunblaðið. Þær fréttir hafa borizt hingað til lands, hafðar eftir japönsku sjávar- útvegstímariti, að verkfall sjó- manna hér hafí haft mjög slæm áhrif á úthafskarfamarkaðinn í Jap- an. Kaupendur þar geti ekki lengur treyst Islendingum og muni því snúa sér til Norðmanna með kaup á þessum físki, til að tryggja sér stöðugt framboð. Halldór segir þessa frétt koma sér á óvart og hún geti tæpast átt við rök að styðjast. Enginn karfaskortur í Japan „Það er enginn karfaskortur í Japan og auk þess hafa Norðmenn ekki verið afkastamiklir í úthafs- Staðan á mörkuð- unum góð og verð ívið hærra en á sama tíma í fyrra karfaveiðum, svo ekki er mikið þangað að sækja. Staðreyndin er sú, að fram eftir þessu ári var eftir- spurn eftir úthafskarfa í Japan mjög lítil, enda töluverðar birgðir þar frá árinu áður. Því fór karfasal- an mjög hægt af stað og verð var lágt í upphafí vertíðar. Það hefur hins vegar hækkað síðan og er nú ívið hærra en á sama tíma í fyrra eða um 105 krónur á kíló að meðal- tali. Allur karfinn seldur Salan hefur tekið ágætan kipp síðustu vikurnar og SH hefur selt allan sinn karfa og liggur því ekki með neinar birgðir nú. Við gætum því selt meira, fengist karfínn og vonandi er þessu verkfalli að ljúka, þannig að veiðin hjá íslenzku skip- unum komist í gang á ný. Staðan á flestum mörkuðum fyrir afurðir af úthafskarfa er góð um þessar mundir og því rétt að sæta lags, sé þess kostur,“ segir Halldór. Halldór segir að umrætt tímarit um sjávarútveg í Japan sé aðeins eitt margra sem þar sé gefíð út. Helzta tímaritið á þessu sviði, Tókýó Seafood, hafi ekkert fjallað um markaðsmál úthafskarfa og verkfall sjómanna hér heima hafi ekki borið þar á góma. Fleiri markaðssvæði Heildarafli af úthafskarfa á Reykjaneshrygg í fyrra var um 100.000 tonn og hlutur okkar ís- lendinga þar af rúmlega 50.000 tonn. Úthafskarfaafli okkar hefur aukizt mjög hratt ár frá ári frá því veiðar hófust fyrir fáum árum. Fyrst í stað var karfinn nær ein- göngu heilfrystur um borð fyrir markaði í Austurlöndum fjær, en síðan hefur hann einnig verið flak- aður um borð. Þá hafa ísfisktogar- ar, bæð innlendir og erlendir, aukið þessar veiðar verulega og landað aflanum til vinnslu hérlendis. Mark- aðssvæðin eru orðin fleiri en Aust- urlöndin, svo sem Þýzkaland, sem tekur flök og Kanada, sem kaupir heilfrystan karfa til frekari vinnslu og endurútflutnings. TROLLIÐ tekið á úthafskarfamiðunum. Morgunblaðið/Svavar QMI rallycross keppnin verður haldin sunnudaginn 11. júní, kl. 14.00 á Rallycross-brautinni við Krýsuvíkurveg (við Hafnarfjörð). Aðgangseyrir 500 - kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri. Rallycross æfing og sýning á laugardaginn 10. júní, kl. 16.00 á Bílanaustplaninu við Borgartún 26.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.