Morgunblaðið - 09.06.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 19
LISTIR
Hlaðvarpinn, félags- og menningarmiðstöð kvenna, tíu ára í dag
KVENNABARÁTTAN reis
hátt á íslandi árið 1985.
Kvennaáratug Sameinuðu
þjóðanna var að ljúka og hver við-
burðurinn rak annan í tengslum við
þau tímamót. Konur voru ekki ein-
ungis bjartsýnar og baráttuglaðar
heldur jafnframt stórhuga. Þær
sættu því lagi og settu félags- og
menningarmiðstöð kvenna á lagg-
irnar.
Hlaðvarpinn var keyptur til að
hýsa starfsemina. Vakti sú ráðstöf-
un -nokkra undrun enda hafði tönn
tímans unnið nokkuð á þeim hundr-
að ára gömlu húsakynnum. Kon-
urnar voru engu að síður vissar í
sinni sök. „Sumir héldu að það yrði
aldrei hægt að gera þessi hús al-
mennileg en reyndin hefur orðið
önnur,“ segir Sólveig Ólafsdóttir
sem sat í stjórn Hlaðvarpans í átta
ár. „Það gefur auga leið að mikið
verk er enn fyrir höndum en þessi
hús eiga eftir að verða rósir í Gróf-
inni.“
Hlutafélag var stofnað um kaupin
á húsum Hlaðvarpans en ríkisstjóm-
in lét jafnframt fé af hendi rakna.
Hlutafélagið er eingöngu opið kon-
um en karlmenn mega festa kaup
á bréfum ef þeir skrá þau á konur.
í dag em hluthafar liðlega tvö þús-
und og fer fjölgandi. Sólveig segir
að stjóm Hlaðvarpans hafi alla tíð
verið sparsöm en hafí þó þegið styrki
til viðhalds á húsunum.
Margrísleg starfsemi
Hlaðvarpinn hefur hýst margvís-
lega starfsemi kvenna á þessum
áratug. „Það hefur heyrt til undan-
tekninga ef einhveijir karlmenn
hafa verið hér að vasast," segir
Stefnt að menn-
ingarviðburðum
á hverju kvöldi
Áratugur er liðinn frá því að konur eignuðust sína
eigin félags- og menningarmiðstöð, Hlaðvarpann.
Ása Richardsdóttir og Sólveig Ólafsdóttir segjast
í samtali við Orra Pál Ormarsson vera ákaflega
stoltar og bjartsýnar á þessum tímamótum.
Morgunblaðið/Sverrir
SÓLVEIG Ólafsdóttir fyrrum stjórnarformaður og Ása Ric-
hardsdóttir framkvæmdastjóri Hlaðvarpans fagna tíu ára af-
mæli félags- og menningarmiðstöðvar kvenna í dag.
Sólveig sposk á svip. Verslanir hafa
staðið í blóma í framhúsinu og
Stígamót hafa verið þar frá upp-
hafi og Kvennaathvarfíð um hríð.
Um skeið gátu konur leigt lítil her-
bergi til að sinna hugðarefnunum
sínum og Listmarkaður Hlaðvarp-
ans var í bakhúsinu meðan hann
var og hét. Þá hefur Hlaðvarpinn
verið vettvangur fjölbreyttra list-
sýninga í gegnum árin.
Á liðnu hausti urðu hins vegar
þáttaskil í sögu miðstöðvarinnar.
Menningarstarfsemin í Hlað-
varpanum var stokkuð upp enda
hafði hún átt undir högg að sækja
um nokkurra ára skeið. Kaffileik-
húsi var komið á fót. „Við urðum
að taka áhættu og hún var vel
þess virði,“ segir Ása Richardsdótt-
ir framkvæmdastjóri Hlaðvarpans
sem haft hefur stjórn Kaffileik-
hússins með höndum. „Kaffileik-
húsið hefur slegið í gegn og þetta
er skemmtilegasta verkefni sem ég
hef tekið þátt í um ævina.“
Sólveig tekur í sama streng en
hún var stjórnarformaður Hlað-
varpans á þessum tíma. „Ég var í
stjórn Hlaðvarpans í átta ár en
held að hjartað i mér hafi ekki í
annan tíma slegið hraðar en á opn-
unarhátíðinni í Kaffileikhúsinu."
Öðruvísi leikhús
Meira en sjö þúsund manns hafa
lagt leið sína í Kaffileikhúsið frá
því í október síðastliðnum en það
hefur á sama tíma verið vettvangur
þrettán leiksýninga á vegum jafn
margra leikhópa. „Viðtökurnar
hafa verið aldeilis frábærar og allir
eru á einu máli um að hér sé mjög
gott að vera. Það er ekki hægt að
lýsa því með orðum hvað við erum
Framúrskarandi plata
__________TÖNLIST_____________
Gcisladiskur
POST ,
Post Bjarkar Guðmundsdóttur. Flest lög og textar
eftir Björk, en ýmsir leggja hönd á plóginn, helst
Graham Massey, Tricky, Howie Bemstein, Marius
De Vries og Nellee Hooper. Hþóðfæraleikur er og
i höndum þeirra auk Bjarkar. Sjón semur einn
texta með Björk. Platan var hljóðrituð í Bretlandi
og á íslandi, en lokafrágangur fór fram á Baliama-
eyjum. Útsetningar eru í höndum Bjarkar, Nellee
Hooper, Howie Bemstein, Marius De Vries, Gra-
Iiam Massey og Tricky, en strengi útsettu Björk
og Eumir Deodato. Einar Öm Benediktsson blæs
á trompet í einu lagi. Björk Overseas á útgáfurétt-
inn en leigir hann til Smekkleysu á Islandi, Electra
í Norður-Ameríku og Mother Records í öðrum
löndum. 46,17 mín., 1.899 kr. Kemur út 12.júní.
FÁRRA platna hefur verið beðið með annarri
eins eftirvæntingu og annarrar sólóskífu Bjarkar
Guðmundsdóttur. Vísast hafa flestir beðið eftir
álíka plötu og Debut og því hefur fyrsta smáskíf-
an af plötunni, Army of Me, líklega komið á óvart.
Lagið hefst með harkalegum rytma og drífandi
og undirleikurinn er oft grófur. Björk syngur það
líka með meiri drunga en önnur lög á plötunni
og sem slíkt er það fyrirtaks upphaf; fær fólk til
að leggja við hlustir og hrista af sér slenið sem er
í góðu samræmi við inntak textans. Fleiri lög eiga
örugglega eftir að koma mörgum á óvart, þar
helst fjórða lagið, gamall sveifluslagari með fram-
úrskarandi útsetningu.
Þegar við fyrstu hlustun má heyra að Post er
nokkuð frábrugðin Debut; hafi sú verið fjölbreytt
þá gengur Post enn lengra í þá átt. Bestú lögin
á plötunni, Hyper-ballad, The Modem Things, Iso-
bel, Possibly Maybe, I Miss You og Cover Me, eru
Post Bjarkar Guðmundsdóttur er framúr-
skarandi plata vaxandi listamanns.
þannig hvert öðru ólíkt; allt frá seiðandi hugleið-
ingu með þungri undiröldu í nútímasalsa með
þéttum hornablæstri. Það er og helsti kostur plöt-
unnar að hún sýnir á sér sífellt fleiri hliðar, við
hveija hlustun má greina eitthvað nýtt, og á henni
er varla snöggan blett að finna. Lagasmíðar eru
samfelldari og betur unnar; eins og Björk hafi
gefið sér meiri tíma í að fægja lögin, eða þá að
henni fer fram í því að koma hugsun sinni á band.
Hljóðfæraleikur er hnökralaus og útsetningar
líka. Sérstaklega er gaman að heyra strengjaút-
setningar og víða bregður fyrir snilldartilþrifum
í áslætti. Söngur Bjarkar er á lágum nótum í
gegnum plötuna, utan í It’s Oh So Quiet, sem er
áhrifameira fyrir vikið. Gaman er að heyra hve
það fer henni miklu betur að syngja á íslensku,
eins og heyra má í laginu The Modem Things,
þegar íslenskt innskot leikur á allt aðra og við-
kvæmari og innilegri strengi.
Textar á plötunni fjalla um fólk og sambönd
fólks frá ólíkum sjónarhornum og víða kemur
Björk vel fyrir sig orði, til að mynda í Possibly
Maybe: Eins og kann að meta einveruna / þá
hefði ég kannski ekkert á móti því / að eyða smá
tíma með þér / stundum, og I miss You, Ég sakna
þín / en ég hef ekki hitt þig enn. Isobel, sem
verður víst næsta smáskífa plötunnar, er einnig
með skemmtilega margræðum texta, en hann
semur Björk reyndar með Sjón, í rykfylltu hjarta
/ býr skepnan fýsn.
Lokalag plötunnar er prýðilegur endir afbragðs
plötu; einfalt lag og lágstemmt; tónlistin nánast
fjarar út og textinn verður að sundurlausum til-
búnum orðum, en þó er þar líkt og hvarvetna á
plötunni heilmikið að gerast undir sléttu yfírborð-
inu — það þarf að leita að því og sú leit borgar sig.
Post er að mörgu leyti rökrétt framhald af
Debut, en þó esérstök. Björk hefði eflaust getað
valið auðveldari leið og söluvænlegri, en fyrir vik-
ið á platan eftir að lifa lengur og endast betur.
Björk hefur langt í frá sagt sitt síðasta og eins
og Debut var vel heppnuð er Post enn betri; fram-
úrskarandi plata vaxandi listamanns.
Árni Matthíasson
stoltar af þessum árangri," segir
Ása.
Stöllurnar segja að Kaffíleikhús-
ið sé öðruvísi leikhús. Formið sé
sérstakt, verðinu stillt í hóf og fólk
þurfí ekki að setja sig í stellingar
til að koma þar inn. „Fólki virðist
líka þetta vel og okkur hefur með-
al annars tekist að ná til hóps sem
fer sjaldan eða aldrei á hefðbundn-
ar leiksýningar," segir Ása. „Fólk
kemur hingað til að slappa af, borða
góðan mat og skemmta sér.“
Kaffileikhúsið hefur verið kær-
kominn vettvangur fyrir fijálsa
leikhópa sem fengið hafa þar inni
gegn vægu gjaldi og vonast Ása
til að Hlaðvarpinn verði helsta
bækistöð þeirra þegar fram líða
stundir.
Sólveig og Ása telja ekki síður
brýnt að hlú áfram að umhverfinu
og útliti húsanna. Þeim þykir því
miður að fjárframlög til slíkra verk-
efna séu ekki í samræmi við þá
stefnu stjórnvalda að friða beri
gömul hús. „Varðveisla gamalla
húsa er spurning um menningararf-
leifð þjóðarinnar.“
Hlaðvarpinn ætlar ekki að reisa
sér hurðarás um öxl og mun því
einbeita sér að rekstri Kaffileik-
hússins á næstunni. „Við höfum
hins vegar ýmsar hugmyndir um
það hvernig þróa á starfsemina og
eigum okkur þann draum að í fram-
tíðinni verði menningarviðburðir í
bakhúsinu öll kvöld vikunnar," seg-
ir Ása. „Auk þessa höfum við verið
að velta fyrir okkur hugmyndum
um barnalistaskóla, listagallerí og
dansklúbb.“ Sólveig og Ása líta því
björtum augum til framtíðar enda
sannfærðar um að Hlaðvarpinn
hafi mikilvægu hlutverki að gegna.
Þrjú sýna
í Gallerí
Fold
í GALLERÍ Fold við Rauðarárstíg
verður opnuð sýning á olíuverkum
Dóslu, Hjördísar G. Bergsdóttur.
Jafnframt verður í galleríinu kynning
á verkum Soffíu
Sæmundsdóttur
og Arnar Inga
Gíslasonar.
Dósla er fædd
1945. Hún stund-
aði myndlist-
arnám við Mynd-
lista- og handíða-
skóla Islands og
lauk þaðan prófi
úr textíldeild
1978. Árið eftir
var hún í framhaldsdeild skólans.
Síðar tók hún kennarapróf frá sama
skóla, auk þess sem hún stundaði
nám við málaradeild hans.
Dósla hefur haldið nokkrar einka-
sýningar, bæði á textílverkum og
málverkum og tekið þátt í fjölda
samsýninga.
Soffía Sæmundsdóttir er fædd
1965. Hún stundaði myndlistamám
við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og lauk prófí frá grafíkdeild
skólans 1991.
Öm Ingi er fæddur 1945. Hann
er sjálfmenntaður listamaður og hefur
hann viða komið við á listabrautinni.
Sýningamar standa til 25. júní.
Opið er daglega frá kl. 10-18, nema
sunnudaga frá kl. 14-18.
DÓSLA við
verk sín.