Morgunblaðið - 09.06.1995, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 09.06.1995, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Átakanleg örlagasaga LEIKOST Ilallgrímskirkja HEIMUR GUÐRÍÐAR Höfundur og leikstjóri: Steinunn Jó- hannesdóttir. Tónlist: Hörður Áskels- son. Leikmynd og búningar: Elin Edda Ámadóttir. Hljóðstjóm: Guð- mundur Finnsson. Mánudagur 5. júní. SÍÐASTA heimsókn Guðríðar Símonardóttur í kirkju Hallgríms er undirtitill verksins sem hefst á því að Guðríður, uppnefnd Tyrkja- Gudda í íslenskri sagnfræði, stend- ur yfír líki sonar síns í kirkjunni í Saurbæ við Hvalfjarðarströnd. Hún er háöldruð og hefur misst allt. Það er í kirkjunni sem hún rifj- ar upp ævi sína. Ávarpar látinn eiginmann sinn til að reyna að fá svör við einhveijum af öllum þess- um hvers vegna-spumingum. En það er fátt um svör og gamla konan röltir út, lotin í herðum. Á ekkert nema trúna. Það verður að segjast eins og er að þessi kona er óvenjulega áhugaverð. Það voru engin smá örlög sem mættu henni í lífínu; ekkert lítið sem Guð lagði á hana. Og er næsta óviðeigandi hvemig hún hefur verið afgreidd í ís- lenskri sagnfræði. Ævi Guðríðar er frásögn og hefst þar sem hún er ung kona í Vestmannaeyjum, gift með einn son, þegar Tyrkir koma og fara ránshendi um eyjarnar. Ræna, rapla, nauðga, drepa. Flytja fólk til síns lands og selja í ánauð. Frásögnin er tvískipt. Annars veg- ar segir hin aldraða Guðríður (Helga Bachmann) frá, hins vegar Guðríður yngri (Helga E. Jóns- dóttir) og er það sú yngri sem leikur samskipti við Hallgrím (Þröstur Leó Gunnarsson). Soninn Sölmund bamungan sem er num- inn á brott með henni leikur Bjöm Brynjólfur Björnsson og ungling- inn Sölmund leikur Guðjón Davíð Karlsson. Þetta verk Steinunnar Jó- hannesdóttur fínnst mér gott. Sag- an er grípandi, textinn er fallegur og vel skrifaður. Hún hefur valið sér erfitt form; frásagnar- og upp- rifjunarform en brýtur það upp með því að færa frásögnina á milli Guðríðar eldri og Guðríðar yngri og vekja til lífs á sviðinu samskipti Guðríðar við þá tvo menn sem hafa haft dýpst áhrif á hana í lífínu; soninn Sölmund sem hún skildi eftir í Tyrklandi, af óviðráðanlegum ástæðum, og Hallgrím sem hún virðist hafa verið hamingjusöm með, a.m.k. um tíma. Textinn er vel fluttur af þeim Helgu Bachmann, Helgu E. Jóns- dóttur og Þresti Leó Gunnarssyni. Morgunblaðið/Jón Svavarsson AÐSTANDENDUR í lok sýningar. Fyrir mér munar þar mestu um flutning Helgu Bachmann. Hún hefur frásögnina þar sem Guðríður eldri sest inn í kirkjuna þar sem lík sonar hennar liggur. Sorgin, tómleikinn og auðnuleysið í rödd- inni er þvílíkt að tilfínningamar sem liggja undir texta verksins ná heljartökum á manni. Þetta er eins og að hlusta á fagra tónlist. Guðríður yngri, leikin af Helgu Jónsdóttur, er öðravísi. Hún er óþreyjufull og lengst af svo sterk- ur vilji sem ber hana áfram, þótt smám saman megi segja að æsku- þróttur og vongleði dvíni. Þröstur Leó Gunnarsson skilar sínu líka vel. Þau koma öll tilfínningum persónanna til skila, jafnvel þótt þau þurfí að leika í gegnum hátal- ara og allt bergmáli í kirkjunni. Tónlistin sem verkinu var valin er áhrifarík. Ekki treysti ég mér til að fjalla um sýninguna að öðra leyti en því sem snýr að texta og flutningi hans. Og er það vegna þess að ég sá ekki sýninguna. Það er að segja, ég sat svo áftarlega að ég sá ekki neitt, utan tvö til þijú skipti sem ég fékk lánaðan kíki hjá sessu- nauti mínum og komst að raun um að höfuðbúnaður og smink Guðríðanna var mjög vel unnið. Það er algert lágmark þegar gagnrýnendur eru boðaðir á sýn- ingu að þeir sjái hana. Ekki vegna þess að við sem störfum við þetta eigum að njóta forréttinda, heldur vegna þess að það er varla hægt að tjá sig um það sem maður sér ekki. Ég sá aldrei búningana. Ég sá ekki neina leikmynd. Ég sá ekki hvernig persónurnar hreyfðu sig á sviðinu. Ég hefði alveg eins getað hlustað á verkið í útvarpi. Þetta er skaði því efniviðurinn er mjög áhugaverður og mér fínnst hafa verið illa farið með hann að setja hann upp í þessari kirkju með sinn hroðalega hljómburð, þar sem stærstur hluti áhorfenda sá ekki neitt. Ég vona að við fáum annað tækifæri til að sjá þessa leikara vinna úr honum, við aðrar aðstæður. Súsanna Svavarsdóttir Tímarit • ÞRÍTUGASTI og þriðji árgangur Sögu, tímarits Sögufélags, er kom- inn út. Tímaritið er helsti vettvang- ur í landinu fyrir greinar um sagn- fræðileg efni og er fjölbreytt að vanda. Fyrsta ritgerð þessa bindis er eftir Val Ingimundarson og ber heitið „Áhrif bandarísks fjármagns á stefnubreytingu vinstri stjómar- innar í varnarmálum árið 1956“. Ritgerð Vals hlaut verðlaun í rit- gerðarsamkeppni sem Sögufélag, Sagnfræðifélag íslands og Sagn- fræðistofnun Háskóla íslands efndu til í tilefrii 50 ára afmælis íslenska lýðveldisins á síðastliðnu ári. Þá eru birt erindi af ráðstefnu sem Sagnfræðingafélag íslands hélt snemma á árinu 1994 um sögu- skoðun íslendinga og áhrif sögunn- ar á sjálfsmynd Islendinga en þessi mál hafa verið mjögtil umræðu á undanföram áram. Þorsteinn Helgason skrifar rit- gerð sem hann nefnir „Hveijir voru Tyrkjaránsmenn?" þar sem hann veltir fyrir sér spurningunni um uppruna ránsmanna hér á landi árið 1627, auk þess sem hann setur Tyrkjaránið í alþjóðlegt sögulegt satnhengi. í ritgerðinni „Ömmuskeytin" ijallar Jón Þ. Þór um mikið hitamál í íslensku þjóðlífí á árunum milli stríða, loftskeytasendingar á dul- máli um ferðir varðskipa. Ármann Jakobsson skrifar greinina „Hákon Hákonarson: Friðarkonungur eða fúlmenni?" Að venju birtir Saga fjölda rit- dóma um verk sögulegs efnis. Að þessu sinni er fjallað um 27 rit í 23 ritdómum. Sú nýbreytni var tekin upp á þessu ári að skipa sameiginlega rit- stjórn fyrir bæði tímarit Sögufé- lagsins og var ákveðið að Saga kæmi út að vori en Ný saga að hausti. í ritstjórninni sitja Anna Agnarsdóttir, Guðmundur J. Guð- mundsson, Guðmundur Jónsson, Ragnheiður Mósesdóttir og Sigurð- ur Ragnarsson. LÍNA langsokkur fer í Ævintýrakringluna á morgun til að frelsa börnin sem þar eru í gæslu. Lína í Ævintýra- kringlunni LEIKFÉLAG Reykjavíkur gengst í samvinnu við forráða- menn átaksins Island - sækjum það heim og Kringluna til skemmtunar við Borgarleik- húsið og á Kringlutorginu á morgun, laugardag. Skemmt- unin hefst kl. 13 við Borgar- leikhúsið, þar sem snýr út að Kringlutorginu. Til skemmtunar teflir Leik- félagið fram söngatriðum úr söngleiknum Jesús Kristur Súperstar, sem áætlað er að frumsýna um miðjan júlí, og fyrir yngri kynslóðina mætir Lína Langsokkur á staðinn. Heyrst hefur að Lína ætli í Ævintýrakringluna til að frelsa börnin, sem þar eru í gæslu og taki þau með sér út í sumarið. Sýning á óþekktum myndum Á SÍÐASTA ári fannst safn af ljósmyndaplötum í risinu á Laugavegi 46 í Reykjavík. Plöturnar vora afhentar Þjóðminjasafn- inu til varðveislu. Eftir að búið var að gera eftirtökur eftir plötunum kom í ljós að þetta var safn af plöt- um frá ljósmyndastofu Bjarna Kristins Eyjólfs- sonar (1883-1933) frá Hofsstöðum í Hálsasveit. Bjami rak ljósmyndastofu undir heitinu Atelier Mod- erne í Templarasundi í Reykjavík árin 1904- 1910. Stofan þótti ein sú fínasta í landinu á þeim tíma. Alls fundust 800 ljós- myndaplötur frá stofunni, nær eingöngu manna- myndir. Allt var fólkið óþekkt þeg- ar eftirtökurnar voru gerðar, en búið er að bera kennsl á fáeina einstaklinga. Nú er leitað til gesta safnsins til að sjá hvort unnt reynist að þekkja fleiri. Safnið hefur áður SÝNING verður áóþekktum myndum í Þjóðminjasafninu 8.-25. júní. gengist fyrir sýningum á óþekkt- um myndum með góðum árangri. Sýnmgin í Bogasal Þjóðminja- safns íslands frá 8.-25. júní og er opin á opnunartíma safnsins alla daga frá kl. 11-17 nema mánudaga en þá er lokað. Leiksýning við Vogaskóla FYRSTA sýning Sumarleikhúss barnanna verður við Vogaskóla í dag, föstudag, og hefst hún kl. 16. Þar munu börnin sýna þijá frumsamda sjónleiki, götuleikhús Hins hússins kemur í heimsókn og skemmtivagn ÍTR verður á staðnum með útval leiktækja. Þátttakendur í Sumarleikhúsinu eru á aldrinum 6-12 ára og hafa þeir undanfarna viku unnið hörð- um höndum við að semja og æfa leikþætti og búa til leikbúninga og leikmunu. Allir íbúar hverfís- ins, sem og aðrir Reykvíkingar, eru velkomnir á sýninguna. Sumarleikhúsið er opin leik- smiðja fyrir börn og er starfstími þess á hveijum stað frá mánudegi til fimmtudags kl. 10-16. A fimmtudögum sýna börnjn síðan afrakstur verka sinna. í næstu viku, 12.-15. júní, verður Sumar- leikhúsið við Grandaskóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.