Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ1995 2ö
Menning-
arhátíð
í Mun-
aðarnesi
Á ANNAN í hvítasunnu opnuðu
Bryndís Jónsdóttir og Kristín
Geirsdóttir myndlistarsýningu í
Munaðamesi, orlofshúsabyggð
BSRB í Borgarfirði. Við opnun-
ina lék Blásarakvintett Reykja-
víkur, Einar Ólafsson skáld las
ljóð og KK og Þorleifur spiluðu.
Þær Bryndís og Kristín stund-
uðu nám við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands og hafa haldið
einkasýningar og tekið þátt í
mörgum samsýningum. Árið
1993 sýndu þær saman í Ólafs-
vík og árið 1994 í Deiglunni á
Akureyri. Kristín er þátttakandi
í sýningunni Andinn sem nú
stendur yfir í Hafnarborg í
Hafnarfirði. Bryndís tók þátt í
sýningunni íslensk leirlist á
Kjarvalsstöðum fyrr á þessu ári.
Á sýningunni í Munaðamesi
sýnir Kristín málverk, pastel-
myndir og tréristur. Bryndís
sýnir leirverk úr steinleir og
postulíni.
Þetta er fimmta sumarið sem
myndlistarsýningar eru haldnar
í veitingasalnum í Munaðamesi.
Sýningin stendur til 5. sept-
ember.
Krapp leikur
Bach, Liszt
og Bartholdy
BACH, Liszt, Bartholdy og
Reger eru á efnisskrá prófess-
ors Edgars
Krapps á
tónleikum í
Hallgríms-
kirkju í
kvöld kl. 20.
Tónleikarnir
eru liður í
Kirkjulista-
hátíð 1995.
Edgar
Krapp hefur í mörg ár verið
einn af þekktustu organistum
Þýskalands. Hann hefur þrisv-
ar sinnum unnið til verðlauna
fyrir hljómplötur sínar og leik-
ið með mörgum frægum
stjórnendum svo sem Kubelik,
Davis, Stein og Inbal og farið
í margar tónleikaferðir innan
Evrópu, til Ameríku og Jap-
ans.
Edgar Krapp er nú kennari
við Tónlistarháskólann í
Múnchen.
Guðni sólisti
á Sólon
GUÐNI Franzson verður
„sólisti á Sólon" næstkomandi
sunnudagskvöld. Guðni er einn
af forsprökkum Caput-hóps-
ins, sem nýlega hlaut menn-
ingarverðlaun DV.
Auk þess að leika hin marg-
víslegu sóló á klarinettuna er
Guðni einn af stofnendum
Keltanna.
Truin flytur fjöll
KVIKMYNPIR
Bí ó h ö11 i n
ENGLARNIR (ANGELS IN
THE OUTFIELD)
★ ★
Leikstjóri William Dear. Handrits-
höfundur Dorothy Kingsley, byggt á
samn. kvikmyndahandriti frá 1951.
Kvikmyndatökustjóri Matthew Leo-
netti. Tónlist Randy Edelman. Aðal-
leikendur Danny Glover, Tony
Danza, Brenda Fricker, Ben John-
son, Christopher Lloyd, Jay O. Sand-
ers, Joseph Gordon-Levitt. Banda-
rísk. Caravan Pictures 1994.
ENDURGERÐ vinsællar myndar
frá 1951 segir frá litlum, munaðar-
lausum snáða (Joseph Gordon-
Levitt) sem biður Guð um gott
gengi til handa uppáhalds hornabol-
taliðinu sínu, bæði liðsins vegna og
eins vonast hann til að velgengni
þess geti orðið til þess að hann
endurheimti föður sinn. Drottinn
allsheijar svíkur ekki unga einstæð-
inginn heldur færir liðinu hans
sannkallaða himnasendingu og
leysir fjölskyldumálin.
Lítil og sæt mynd sem efnisins
vegna á ósköp lítið erindi til okkar.
íslendingar hafa ámóta mikinn
áhuga og þekkingu á hornabolta
og landamærum Burkina Faso.
Boðskapurinn er ljúfur og í anda
þeirra melódramatísku, létt væmnu
og guði þóknanlegu fjölskyldu-
mynda sem lengi settu svip sinn á
alla framleiðslu Disney-fyrirtækj-
anna. Ef þú trúir á Guð og sjálfan
þig gerast kraftaverkin. Mundu
það, stúfur minn.
Nokkrir valinkunnir skapgerðar-
leikarar hressa uppá framhliðina,
en segja fátt af viti. Gordon-Levitt
stendur sig prýðilega í hlutverki
stráksa en hlutverk þjálfarans er
of burðarlítið fyrir Danny Glover.
Leikstjórnin er linjuleg, t.a.m. eru
lykilatriði undir lokin ótrúlega
bragðlaus, engu líkara en Rocky,
og þær myndir allar, hafi farið gjör-
samlega framhjá Dear, sem er gam-
alreyndur B-myndasmiður.
Sæbjörn Valdimarsson
Aukasýninffar
- „Mitt
bælda líf “
LEIKFÉLAGIÐ Leyndir draumar
hefur ákveðið að fjölga sýningum
á leikriti sem nefnist „Mitt bælda
líf“ og verða því aukasýningar i
dag, á morgun og á þriðjudag. Leik-
ritið er frumsamið af Hlín Agnars-
dóttur, sem jafnframt er leikstjóri
sýningarinnar, og leikhópnum.
Leikritið fjallar um Baldur sem
þorði ekki að lifa en átti 8.000
bækur, rithöfundinn Ragnar, fram-
kvæmdakonuna Önnu Osk og ann-
að fólk sem varð á vegi Baldurs í
lífinu. Sýningar fram fram í Mögu-
leikhúsinu við Hlemm og heijast
kl. 20.30.
ISLAND - UNGVER J ALAND
Á LAUGARDALSVELLI SUNNUDAGINN
11. JÚNÍ KL. 20:00
Forsala aðgöngumiða er í Eymundsson, Spörtu
og hjá íslenskum getraunum.
Einnig á Laugardalsvelli, laugardag kl. 11:00 - 18:00
og sunnudag frá kl 11:00.
Verð aðgöngumiða:
í stúku: 1.500 kr. í stæði: 1.000 kr. Börn og unglingar,
10-16 ára: 500 kr. Börn yngri en 10 ára fá ókeypis inn.
Pakkatilboð í forsölu: 10 stúkumiðar á 12.000 kr.
SAMSTARFSAÐILAR KSI
íslandsbanki Prentsmiðjan |
I íwr Isttak gks BMSXIR ES NÝHERJI
#Ska,,<1ia S
MUjW VISA /5LANO
HEKLA QQTT FÓLK