Morgunblaðið - 09.06.1995, Page 24

Morgunblaðið - 09.06.1995, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MARGRÉT Guðmundsdóttir: „Ég er hinn sanni vínviður.“ 1995. AFSTEYPUR af verkinu Veð- urspámaður eftir Ásmund Sveinssón verða til sölu í safnaverslununum á Kjarvals- stöðum og í Ásmundarsafni. Veður- spámað- urinn Orðin MYNDLIST Listhús 3 9 — Ilafnarfirði BLÖNDUÐ TÆKNI Margrét Guðmundsdóttir Opið virka daga kl. 10-18, laugard. kl. 12-18 og sunnud. kl. 14-18 til 26. júni. Aðgangur ókeypis. LISTIN í trúnni eða trúin í list- inni virðist mönnun hugleikið við- fangsefni þessar vikumar, ef marka má framboð sýninga á trú- arlegri myndlist og umræðu um þau efni. Er það vel, því tengsl listar og trúar eru jafn gömul hvom tveggja, og munu væntan- lega seint rofna algjörlega, þó á stundum virðist þráðurinn veikur sem tengir þessa mikilvægu þætti mannlífsins saman. Sé hann að styrkjast á ný hér á landi hin síð- ari ár kann það að boða nýja tíma í myndlistinni jafnt sem trúarlíf- inu, og er ekki ólíklegt að hvort tveggja kunni að njóta góðs af. Margrét Guðmundsdóttir legg- ur sitt til þessa viðfangsefnis með sýningunni í Listhúsi 39, sem hún hefur gefíð yfírskriftina „Orðin Hans“. Þar getur að líta fímmtán verk sem listakonan hefur unnið með fijálsum hætti út frá textum Biblíunnar, en þar hefur hún eink- um leitað fanga í guðspjöllunum. Margrét útskrifaðist frá grafík- deild Myndlista- og handíðaskóla íslands fyrir tveimur ámm, en hafði áður stundað listanám í Gautaborg og Kaupmannahöfn auk þess að vera menntuð sem innanhússarkitekt. Hún hefur tek- ið þátt í nokkrum fjölda sýninga síðustu tvö ár, og þá ýmist sýnt grafíkverk, tölvu-grafík eða verk á myndböndum, en að þessu sinni eru flest verkin unnin með bland- aðri tækni á grunni grafíkmynda. „Orðin Hans“ hafa vakið lista- konuna til litríka hugrenninga, sem hafa oftar en ekki leitt af sér afstrakt úrvinnslu á því inntaki, sem viðkomandi boðskapur ber með sér; hin andlega trú kemur því einkum fram í flæði lita og forma, sem má líkja við flæði and- ans fremur en njörvaða staðfræði eða persónugerðir. Þannig er lita- spilið í myndinni „Lifandi vatn“ (nr. 1) í fullu samræmi við þann texta, sem hún sprettur af; „Mannssonurinn kemur“ (nr. 10) vísar á öruggan hátt til þeirrar í TILEFNI af sýningunni Stíllinn í list Ásmundar Sveinssonar í Ás- mundarsafni voru gerðar afsteypur af verkinu Veðurspámaður eftir Ásmund Sveinsson. Munu þær verða til sölu í takmörkuðu upplagi í safnaverslununum á Kjarvals- stöðum og í Ásmundarsafni. Ásmundur Sveinsson skóp Veð- urspámanninn í Reykjavík árið 1934, myndin var síðan stækkuð og steypt í steinsteypu sumarið 1939. Hún sýnir mann sem gáir til veðurs. Ásmundur vann Veðurspá- manninn í tveimur útgáfum, ann- ars vegar klæddan árið 1934, hins vegar nakinn í stækkaðri mynd árið 1939. Afsteypan sem Ás- mundarsafn hefur nú látið gera er gerð eftir útgáfunni frá 1934. Listasafn Reykjavíkur á Kjar- valsstöðum er opið alla daga frá kl. 10-18. Ásmundarsafn er opið alla daga frá kl. 10-16. Safnaversl- anir eru opnar á sama tíma. mmm. VERÐLAUNAHAFAR frá í fyrra, Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld og Guðrún María Finnbogadóttir sópransöngkona. Ian Partridge syngur á Islandi Tekur þátt í flutningi á Maríuvesper eftir Monteverdi HEIMSKUNNUR enskur tenórsöngvari, Ian Partridge_, er væntanlegur til Islands i byijun september- mánaðar. Hann mun taka þátt í flutningiu á Maríuvesper eftir. Claudio Monteverdi ásamt einsöngvurum og hljóðfæraleikurum frá Þýskalandi og Sviss auk íslénskra tónlistar- manna. Stjórnandi á tónleikunum verður Gunnsteinn Ólafsson. Ian Partridge er löngu heimskunnur fyrir söng sinn. Hann hefur helgað Monteverdi dijúgan hluta starfsævi sinnar og flutt flest verka hans ásamt færustu tónlistarmönnum Engiendinga. Það er því fengur í því að fá hann til þess að taka þátt í flutningi á einu kunnasta trúarlega tónverki tónskáldsins hér á landi. Ian Partridge hefur haldið tónleika víða um heim. Systir hans, Jennifer, er undirleik- ari hans og þau hafa meðal annars haldið tónleika á íslandi árið 1986. Þá tók hann einnig þátt í flutningi Pólýfónkórsins á Mess- íasi eftir Hándel undir stjóm Ingólfs - Guð- brandssonar. Ian Partridge hefur gefið út fjölda hljóm- platna og geisladiska. Nýlega kom út hjá Chandos-fyrirtækinu geisladiskur með lögum eftir Robert Schumann í flutningi Ians Partridge ásamt Lynne Dawson og Julius Drake. Þessi útgáfa hlaut góðar við- tökur gagnrýnenda. Árið 1992 var Ian heiðraður af breskum stjómvöldum fyrir störf í þágu tónlistar í landinu. Ian Partridge Tónlistarverðlaun Ríkisútvarpsins Sex valdir til keppni í TónVakanum FJÓRÐA árið í röð efnir Rík- isútvarpið til tónlistarkeppni, er nefnist TónVakinn. Verðlaun hafa hlotið: Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari 1992, Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari 1993 og Guðrún María Finnbogadóttir sópran- söngkona 1994. Ríkisútvarpið hefur jafn- framt veitt starfandi tónlistar- manni heiðursfé fyrir áralöng o g merk störf í þágu íslenskrar tónmenningar. Jón Nordal hlaut þessa viðurkenningu 1992, þá Páll P. Pálsson 1993 og Þorkell Sigurbjörnsson 1994. Fyrsti og annar hluti keppn- innar í ár eru nú að baki. Sext- án tónlistarmenn skráðu sig til keppni í fyrsta hlutann. í öðrum hluta keppninnar, sem fram fór mánudaginn 29. maí, voru eftir- taldir sex keppendur valdir til framhalds í 3. hluta: Ármann Helgason, klarinett- leikari, Emil Friðfinnsson, hornleikari, Jón Ragnar Örn- ólfsson, sellóleikari, Jón Rós- mann Mýrdal, baritónsöngvari, Júlíana Rún Indriðadóttir, píanóleikari, og Sigurður Mar- teinsson, píanóleikari. Sigurvegarinn kemur fram með Sinfóníuliljómsveitinni Þriðji hluti keppninnar, sem fer fram mánudaginn 31. júlí, felst í því að flytja a.m.k. 40 mínútna efnisskrá fyrir dóm- nefnd í sal, líkt og um tónleika væri að ræða. Þessum tónleik- um verður útvarpað á Rás 1 á sunnudögum í ágústmánuði og fram í september, en að því búnu verður tilkynnt, hver hlýt- ur TónVaka-verðlaunin í ár. Sigurvegarinn kemur fram með Sinfóníuhljómsveit íslands á tónleikum í Háskólabíói 26. október nk., undir stjórn Ola Rudners. ofanbirtu, sem má vænta af því tilefni, og „Ég er hinn sanni vínvið- ur“ (nr. 8) er fallega unnin tilvísun í þá ímynd stofns og greina trés- ins, sem felst í tilvitnuninni. Tilefni hátíðarinnar er nýtt til fullnustu í síðasta verki sýningar- innar, sem ber einfaldlega titilinn „Á hvítasunnudag" (nr. 15); inn- takið er skýrt og tignarlega fram sett í ljósi þeirra viðburða, sem urðu þann dag í sögu kristninnar. Einu undantekningarnar frá þessu óhlutbundna myndmáli er að fínna í tveimur röðum lítilla mynda, þar sem annars vegar er vísað til fiskimannanna sem urðu annað og meira og hins vegar til innblásturs heilags anda, þegar lærisveinarnir tóku að tala öðrum tungum. Þessar myndraðir, eink- um hin síðari, verða til þess að fylla enn betur inn í þann boðskap orðanna, sem hér er tekist á við. Þetta litla rými í bakherbergi Listhússins að Strandgötu 39 er að sanna sig sem ágætur vett- vangur fyrir ýmiss konar mynd- list. Sýning Margrétar að þessu sinni er best metin í samhengi við það „Stefnumót trúar og listar“ sem nú stendur yfír handan göt- unnar, í lista- og menningarmið- stöðinni Hafnarborg. Þar er unnið á sama vettvangi í samhengi orða og boðskaps biblíunnar með stórri samsýningu, en sýningin hér er engu að síður ágæt viðbót við það efni sem þar getur að líta. Eiríkur Þorláksson Mynd- banda- maraþon BÓKASAFN Norræna húss- ins mun í dag standa fyrir 24 klst. myndbandamaraþoni. Sýnd verða myndbönd sem framleidd hafa verið sérstak- lega fyrir ungt fólk og mynd- bönd sem ungt fólk á Norður- löndunum hefur sjálft staðið að. Dagskráin hefst í dag kl. 14 og henni lýkur laugardag- inn 10. júní kl. 14. Bókasafn Norræna hússins hefur séð tvær ástæður til að setja þessa dagskrá saman sérstaklega fyrir ungt fólk. í fyrsta lagi verður opnuð sýningin „Mix 5“ laugardag- inn 10. júní kl. 16.00 á Ing- ólfstorgi. „Mix 5“ er farand- sýning sett upp í tveimur gámum sem ferðast mun á milli Norðurlandanna í þtjú sumur. Sýningin byijar ferða- lag sitt á íslandi og mun hún standa til 23. júní og halda þá ferð sinni áfram til Nor- egs. Viðfangsefnið er nútím- inn og sú veröld sem fjærst er söfnunum, nefnilega veröld unga- fólksins. I öðru lagi er dagskrá þessi hugsuð sem kynning á mynd- bandaútláni bókasafns Nor- ræna hússins, þar sem sér- staklega hefur verið lögð áhersla á myndbönd fyrir börn og unglinga. Á þessum 24 tímum verða sýnd myndbönd af ýmsum toga, bæði leiknar myndir og heimildarmyndir. Einnig verður myndband- aupptökuvél á staðnum, sem allir munu hafa fijálsan að- gang að. Myndbandið „Ný-rokk í Reykjavík" eftir Harald Siguijónsson verður m.a. frumsýnt á Myndbandamara- þoni í Norræna húsinu. Norræna húsið verður öll- um opið og aðgangur er ókeypis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.