Morgunblaðið - 09.06.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ1995 31 -
AÐSENDAR GREINAR
Alþjóðabankinn á
Suðurlandsbraut 30
ÞANN 23. maí sl. birtist stór-
furðuleg grein í Morgunblaðinu
sem bar fyrirsögnina „Eiga lífeyris-
sjóðimir að fjárfesta erlendis“, en
höfundur var Hrafn Magnússon,
framkvæmdastjóri SAL,_Sambands
almennra lífeyrissjóða. Ég vil taka
það fram vegna þess sem á eftir
kemur að Hrafn er persónulega
ágætis maður og það sem gerir
mig enn sárari vegna þessara skrifa
hans er sú staðreynd að hann er
af góðum Dagsbrúnarættum.
Hrafn er í grein sinni eitthvað að
svara Birgi Isleifi, seðlabanka-
stjóra, sem að mér skilst hefur
varað við fjárfestingum lífeyris-
sjóðanna erlendis.
Kenning Hrafns er í stuttu máli
sú að nú séu lífeyrissjóðimir aðeins
búnir að fjárfesta í erlendum verð-
bréfum og hlutabréfum fyrir um
tvo milljarða króna. En í lok grein-
ekki síðri en erlendis.
Hrafn kvartar undan
því að húsbréf hafí
lækkað að raungildi
um 3%, hvaðan sem
hann nú hefur þá tölu,
en hann sleppir að geta
þess að milli 10-20%
afföll voru af húsbréf-
unum sem lífeyrissjóð-
imir keyptu.
Þetta minnir mig á
að ég frétti af því í
vetur að nokkrir for-
ystumenn lífeyrissjóða
hefðu laumast til
London og verið á rölti
í kauphöllinni þar. Að
vísu var vel og ræki-
lega þagað yfir þessu ferðalagi
þeirra. Hvað er nú næst? Mega
launþegar, sem jafnframt eru eig-
endur lífeyrissjóðanna, vænta þess
að sjá stjórnendur
þeirra í tíðum ferðum
á Saga Class með
milljarðafúlgumar í
kauphallarbraski er-
lendis meðan okkur
sárvantar fé til fram-
kvæmda innanlands
og verðum að hreinsa
af okkur atvinnuleys-
ið?
Hrafn telur að í
væntanlegum kaupum
á skulda- og hluta-
bréfum erlendis muni
þeir sjóðastjórar hafa
sér til fulltingis góða
og trausta erlenda
ráðgjafa. Það má víst
ekki óska Hrafni og kollegum hans
þess, að ráðgjafarnir verði í jafn
miklu áliti fyrir snilli á fjármála-
sviðinu og hann Leeson sem setti
Guðmundur J.
Guðmundsson
Barings-bankann á hausinn hérna
um daginn. Leeson þessi var „díl-
er“ fyrir Barings-bankann í Singa-
pore og talinn einn traustasti og
hæfasti „díler" breskra banka og
Barings-banki einn traustasti og
besti banki Bretlands.
Mér er minnisvert að þegar At-
vinnuleysistryggingasjóður var
stofnaður árið 1956 þá var sagt í
stofnskrá sjóðsins að tilgangurinn
væri í fyrsta lagi að lána fé með
góðum tryggingum til að afstýra
atvinnuleysi og i öðru lagi að greiða
þeim bætur sem atvinnulausir
væm. Þessi sjóður lánaði mjög vel
mörgum atvinnufyrirtækjum frá
1960-1974 og afstýrði víða at-
vinnuleysi. Að vísu eru samskonar
ákvæði ekki í lögum lífeyrissjóð-
anna. Hins vegar ef að lífeyrissjóð-
irnir eiga ráðstöfunarfé svo millj-
örðum skiptir umfram skuldbind-
ingar þá er ekkert hagkvæmara
lífeyrissjóðunum heldur en að
ávaxta fé sitt á þann hátt að sem
flestir hafí vinnu og greiði í lífeyris-
sjóðina, ég tala nú ekki um þegar
þeir eiga kost á góðri ávöxtun
innanlands.
Sjóðir lífeyrissjóðanna geta verið
gott hjálpartæki til að tryggja at-
vinnu í landinu og það er áhættu-
laust fyrir þá með þeim kjörum sem
í boði em hérlendis. Hvemig for-
stjóra Sambands almennra lífeyris-
sjóða getur yfirsést jafn einfalda
hluti er mér hulin ráðgáta og ekki
minnkar siðferðileg skylda við
ríkissjóð um góð verðbréfakaup
eftir að búið er að gera greiðslur
til lífeyrissjóðanna skattfijálsar.
Eigum við eftir að uppíifa það
að sjá fulltrúa lífeyrissjóðanna á
næstu árum í kauphöllum við að
kaupa hlutabréf og skuldabréf í til
dæmis í Bethlehem Steel, General
Motors, IBM og Daimlier Benz og
kannski má maður næst vænta
þess að vitleysan taki á sig svo
kátbroslega mynd að Lífeyrissjóður
bænda taki að ávaxta fé sitt í
dönskum ostagerðarfyrirtækjum,
en ég hef heyrt að sá sjóður sé í
þessu kompaníi?
Stjórnendur lífeyrissjóða vil ég
biðja um að halda sig heimavið,
nema þegar þeir fara í venjulegar
orlofsferðir til útlanda. Hrafn
Magnússon, forstjóra SAL, vil ég
að lokum aðeins ávarpa með orðum
skáldsins sem sagði, „Ekki meir,
ekki meir.“
Höfundur er formaður
verkamannafélagsins
Dagsbrúnar.
Ekkert er lífeyrissjóðun-
um hagkvæmara held-
ur, segir Guðmundur
J. Guðmundsson, en
að ávaxta fé sitt á þann
hátt að sem flestir hafí
vinnu og greiði í þá.
arinnar segir Hrafn: „Hitt er þó
jafnljóst að lífeyrissjóðirnir munu
hægt en örugglega feta sig áfram
með fjárfestingar erlendis, enda
mæla öll rök fyrir því að slíkt sé
bæði hagkvæmt sjóðsfélögum líf-
eyrissjóðanna og í reynd þjóðarbú-
inu í heild sinni.“
Maður á bókstaflega ekki orð
þegar maður les slíkt. Þúsundir
manna ganga atvinnulausar á ís-
landi. Greinilegt er að meira fé
þarf að veita út í atvinnulífið og í
einstakar framkvæmdir ef atvinnu-
leysi á ekki að verða hér viðvar-
andi. Ráðstöfunarfé lífeyrissjóð-
anna er nú um 50 milljarðar króna
þegar undanskildar eru skuldbind-
ingar þeirra fyrir sjóðsfélaga. Er
ekki augljóst mál að hluta af þessu
ráðstöfunarfé verður að lána í ís-
lenskt atvinnulíf til þess m.a. að
útrýma atvinnuleysinu og auka
framleiðslu? Er hagkvæmara fyrir
þjóðarbúið að ríkið taki erlend lán
til að halda uppi atvinnu- og fram-
kvæmdastigi, en lífeyrissjóðirnir á
sama tíma veiji milljörðum til
kaupa á hlutabréfum og skulda-
bréfum erlendis?
Allar tölur Hrafns í grein þess-
ari eru rangar. Fram til þessa hafa
lífeyrissjóðir getað lánað fé með
góðum vöxtum og í dag geta þeir
keypt vísitölutryggð ríkisskulda-
bréf eða ríkisvíxla áhættulaust með
fyllilega sambærilegum kjörum og
Al.VEG ElNSTÖK ('ÆDI
SUMARTHBOÐ
Þegar gamla ryksugan sýgur sitt sí&asta,
jbó er kominn tími til að endurnýja.
Er jpá ekki tilvalið að skoða AEG möguleikana.
AEG
Ryksuga Vampyr 7400 1400 w.
Þrjár sogstillingar. Sexföld síun.Ultrafilter skilar 99.97%
hreinu lofti. PokastærS 4 L. Inndraganleg snúra.
Lengjanlegt sogrör. Fylgihlutageymsla.
Verb áður 18.720,- e&a 17.789,- stgr.
Ver& nú 15.900,- stgr.
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8, Sími 553 8820