Morgunblaðið - 16.06.1995, Page 1
64 SÍÐUR B/C
134. TBL. 83. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reichstag
pakkað inn
VERKAMENN hafa hafist handa
við að pakka Reichstag, þinghús-
inu í Berlín, inn í silfurlitt gervi-
efni, sem minnir helst á silki.
Innpökkunin er verk búlgarska
listamannsins Christos, sem hef-
ur hlotið heimsfrægð fyrir að
pakka m.a. inn minnismerkjum,
brúm, eyjum og húsum. Lista-
maðurinn segir þetta merkasta
og umfangsmesta verk sitt til
þessa en hann hefur lagt drög
að því sl. 24 ár. Búist er við að
verkamenn og klettaklifrarar
hafi lokið við að þekja húsið þann
21. júní en efnið utan á Reichstag
myndi nægja til að hylja 14 knatt-
spyrnuvelli. Reipið, sem efnið er
bundið utan á húsið með, er um
15 km langt.
Christo hlaut i gær hin eftir-
sóttu Praemium Imperiale verð-
laun fyrir höggmyndalist og deil-
ir hann verðlaunafénu, 176.000
dölum, með eiginkonu sinni og
nánasta samstarfsmanni, Je-
anne-Claude. Það er japanska
listasambandið sem stendur að
verðlaununum, sem afhent voru
í fyrsta sinn árið 1989, en til-
kynnt var um þau í London í
gær. Christo og Jeanne-Claude
voru hins vegar ekki viðstödd,
þar sem þau eru nú í Berlín til
að fylgjast með framgangi nýj-
asta verks listamannsins.
Hartbanst
við Sarajevo
Sar^jevo. Reuter.
MIKLIR bardagar brutust út fyrir
norðan Sarajevo í gær og var beitt
stórskotaliðsvopnum á tveimur
stöðum þar sem bosníski stjórnar-
herinn hefur verið með mikinn liðs-
safnað. Talið er, að hann hafi á
að skipa 15 þúsund mönnum á
þessu svæði að minnsta kosti og
var búist við, að þeir reyndu að
ijúfa umsátur Serba um borgina.
Jim Landale, upplýsingafulltrúi
Sameinuðu þjóðanna í Sarajevo,
sagði, að stórskotaliðshríðin beind-
ist aðallega að bænum Vogosca,
sem er í höndum Serba, og að
mikilvægri aðdráttaleið þeirra fyrir
norðan höfuðborgina. Aður höfðu
stjórnarhermenn takmarkað ferðir
gæsluliða SÞ utan borgarmark-
anna-til að halda þeim frá átaka-
svæðunum og þeir hafa sett upp
tugi nýrra varðstöðva og lokað
fjallavegi til Sarajevo.
Það benti einnig til, að sókn
stjórnarhersins væri hafin eða að
hefjast, að útgöngubann í Sarajevo
að næturlagi var lengt um tvær
klukkustundir, verslunum í mið-
borginni var Iokað og tilkynnt um
allsheij arviðbúnað.
A Vesturlöndum hafa menn
fylgst með liðssafnaði Bosníu-
stjórnar með nokkrum áhyggjum
og ótta við, að mjög blóðug átök
væru í uppsiglingu. Bill Clinton,
forseti Bandaríkjanna, kvaðst í
gær efast um, að bosníski stjórnar-
herinn gæti unnið hernaðarsigur á
Serbum og lagði áherslu á, að eina
leiðin væri að leita samninga.
Bosníustjórn virðist hins vegar
vera búin að fá sig fullsadda af
árangurslausum tilraunum Sam-
einuð þjóðanna í þijú ár til að
tryggja öryggi Sarajevo og vista-
flutninga til hennar.
Bildt svartsýnn
Carl Bildt, sáttasemjari SÞ,
sagðist ekki telja miklar líkur á
að hægt yrði að miðla málum á
næstunni og að átökin stefndu í
stríð.
Serbar hafa enn 26 gæsluliða
SÞ á valdi sínu og Radovan
Karadzic, leiðtogi þeirra, segist
nú ekki munu sleppa þeim fyrr
en fjórum Serbum, sem franskir
gæsluliðar tóku til fanga, verði
sleppt. Því er þó varlega treyst,
að hann standi við það og er ótt-
ast, að Serbar hyggist nota gæslu-
liðana sem skjöld I átökum við
stjórnarherinn.
Reuter
Reuter
Gíslatakan í Budennovsk
Skæruliðar taka
fimm gísla af lífi
Moskvu. Reuter, Daily Telegraph
SKÆRULIÐAR sem halda hundr-
uðum manna í gíslingu í bænum
Budennovsk, skammt norður af
mörkum Tsjetsjníu, tóku fimm gísla
Leiðtoga-
fundur
í Halifax
FUNDUR leiðtoga sjö helstu
iðnríkja heims hófst í Halifax
í Kanada í gær. Boris Jeltsin,
forseti Rússlands, situr einnig
fundinn að hluta. Talið er að
sú ákvörðun Frakka að hefja
að nýju tilraunir með kjarn-
orkuvopn ásamt bifreiðadeilu
Bandaríkjainanna og Japana
verði meðal helstu umræðu-
efna fundarins. Þá verður rætt
um hvernig styrkja megi fjár-
málakerfi heimsins og Bosniu-
deiluna. Heiðursvörður kanad-
íska hersins tók á móti leiðtog-
unum við komuna til Halifax í
gær.
Átök milli ír-
askra hersveita
Washington, Damaskus. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN staðfesti í
gær, að komið hefði til minniháttar
átaka milli hersveita í Bagdad, höf-
uðborg Iraks, í gær en talsmenn
shíta og andstæðinga Saddams
Husseins, forseta íraks, gera meira
úr átökum í landinu. Heimildir inn-
an bandaríska varnar- og utanríkis-
ráðuneytisins herma að þetta sé í
annað skipti á skömmum tíma sem
hópar innan hersins rísi upp gegn
Saddam.
„Það kom til vopnaviðskipta við
útvarpshúsið, fremur minniháttar,
og þau höfðu engin áhrif á stöðu
stjórnarinnar og Saddams," sagði
bandarískur leyniþjónustumaður,
sem ekki lét nafns síns getið, en
benti jafnframt á, að átökin sýndu,
að andstaða væri við Saddam.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins segir að það hafi ver-
ið hermenn úr skriðdrekasveitum
Lýðveldisvarðarins sem hófu upp-
reisnina en að sveitir úr Lýðveldis-
verðinum, hliðhollar Saddam, hafi
náð að beija uppreisnina niður.
Talið er að uppreisnin eða átökin
hafi hafist vegna aftöku bróður
foringjans í skriðdrekasveitinni.
Hafi liann verið sakaður um að
hafa ætlað að steypa Saddam.
af lífi í gær. Fréttastofan Ekho
Moskví hafði í gærkvöldi eftir
Shamíl Basajev, háttsettum tsjetsj-
enskum liðsforingja, sem sagður er
fara fyrir skæruliðunum, að gíslarn-
ir hefðu verið myrtir sökum þess
hversu treg rússnesk yfirvöld hefðu
verið til að leyfa þeim að ræða við
íjölmiðla.
Fréttaritari útvarpsstöðvarinn-
ar, sem sat blaðamannafund
Basajevs í spítalanum í Bud-
ennovsk, sagðist hafa séð . að
minnsta kosti tvö þúsund gísla.
Basajev, sem er náinn samstarfs-
maður Dzokhars Dúdajevs, leið-
toga Tsjetsjena, sagðist ekki hafa
í hyggju að leysa gíslana úr haldi
fyrr en gengið væri að kröfum
hans og að hann myndi ekki hika
við að taka þá alla af lífi.
Krafðist hann þess að Rússar
hættu öllum hernaðaraðgerðum í
Tsjetjsníu og drægju herlið sitt
þaðan. Dúdajev hefur lýst því yfir
að hann hafi engin tengsl við
skæruliðana i Budennovsk.
Skæruliðarnir hafa sagt að það
muni enda með blóðbaði ef rúss-
neskir hermenn reyni að beita valdi
til að frelsa gíslana.
Talið er að fjörutíu manns hafi
verið myrtir og tugir særðir þegar
250 skæruliðar létu til skarar
skríða á miðvikudag með hríð-
skotabyssur og sprengjuvörpur að
vopni.
Pavel Gratsjev, varnarmálaráð-
herra Rússlands, hélt því fram í
gær að þúsund manns væru í haldi
í sjúkrahúsinu, en heimildarmenn
innanríkisráðuneytisins, sem sér
um þetta mál, segja að skærulið-
arnir séu um fimmtíu og hafi um
þrjú hundruð manns á valdi sínu.
Boris Jeltsín, forseti Rússlands,
skoraði í gær á Rússa að halda
stillingu sinni og styðja hernaðar-
aðgerðimar í Tsjetsjníu.
Gorbatsjov kennir
valdhöfum um
Mikhaíl Gorbatsjov, síðasti leið-
togi Sovétríkjanna, kenndi hins
vegar ráðamönnum í Moskvu um
það hvernig komið væri.
„Það er ótækt að láta friðsamt,
saklaust fólk gjalda fyrir ráða-
brugg og misgjörðir stjórnmála-
manna með lífi sínu,“ sagði Gorb-
atsjov og bætti við að árásin væri
„verk örvinglaðs fólks“.
■ Skæruliðar Tsjetsjena/19