Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 17 Bronfman Spielberg í samstarf Los Angeles. Reuter. EDGAR Bronfman, aðalfor- stjóri Seagram Co. Ltd, hefur samið við DreamWorks, fyrir- tæki Stevens Spielbergs, um bandalag við MCA/Universal um heimsdreifingu á kvik- myndum, teiknimyndum, myndböndum og tónlist. Tugmilljónatekjur Samningurinn getur haft í för með sér tugmilljóna dollara tekjur af dreifingu Spielberg- kvikmynda. Sex þeirra eru meðal 10 söluhæstu kvikmynda allra tíma og hafa gefið af sér rúmlega 1.8 milljarða dollara á Bandaríkjamarkaði. Hlutabréf í Seagram hækk- uðu um 1,75 dollara í 30,875 dollara í kauphöllinni í New York þegar fréttist af samn- ingnum. Þegar Seagram stóð í samn- ingum um að kaupa verið af Matsushita Electric Industrial Co. Ltd, lék mönnum forvitni á að vita hvort Spielberg mundi starfa áfram hjá MCA/Univer- sal en hann og Sidney Shein- berg, forstjóri MCA/Universal, eru góðvinir og kynni Spielberg að hafa hætt ef Sheinberg hefði farið. Murdoch semur við Dagblað alþýðu Peking. Reuter. RUPERT Murdoch, sem vakti uppnám í Peking þegar hann kallaði gervihnattasjónvarp „banabita einræðisherranna," er aftur kominn í náðina hjá kínverskum valdhöfum vegna meiriháttar samnings við Dag- blað alþýðunnar. News Corp, fyrirtæki Murdochs, og aðalmálgagn kommúnistaflokksins hafa komið á fót sameiginlegu fyr- irtæki til þess að kanna og nýta tækifæri á sviði upplýs- ingatækni á næstu 30 árum. Starfsemi sameignarfyrir- tækisins mun hefjast með bein- tengdri gagnaþjónustu en staf- ræn útgáfa, gagnaflutningsnet og stafræn vörpun eru einnig í undirbúningi. Samningurinn verður mikil- vægur liður í því að bæta ímynd Murdochs í Kína. Það tryggir honum einnig fótfestu á ört vaxandi markaði og bætist við sendingar STAR-sjónvarps hans. Samningurinn virðist binda enda á illdeilur Murdochs við Kínveija, sem hófust í septem- ber 1993 þegar hann skrifaði að „gervihnattasjónvarp stofn- aði einræðiskerfum hvarvetna í ótvíræða hættu.“ Mánuði síð- ar bannaði Peking-stjórnin ein- staklingum að eiga STAR- gervihnattadiska. Tannsmiðir siiji við sama borð SAMKEPPNISRÁÐ hefur beint þeim tilmælum til Tryggingar- stofnunar ríkisins að gæta þess að raska ekki með ákvörðunum sínum innbyrðis samkeppnisstöðu tannsmiða. Tryggingastofnun hefur einung- is gert samning við einn tannsmið, Bryndísi Kristinsdóttur, um endur- greiðslu vegna vinnu tannsmiða fyrir sjúkratryggða elli- og örorku- lífeyrisþega. Hefur stofnunin hafn- að umsóknum um samninga við aðra tannsmiði á þeim forsendum að ekki sé hægt að fjalla um beiðni þeirra þar til dómur sé fallinn í máli Tannlæknafélags íslands gegn Bryndísi sem nú er rekið fyrir hæstarétti. Þar er deilt um hvort tannsmiðum sé heimilt að vinna í munnholi sjúklinga. Samkeppnisstofnun telur að á meðan núverandi ástand vari sé augljóslega verið að mismuna tannsmiðum og raska samkeppnis- stöðu þeirra. Sá tannsmiður sem Tryggingastofnun hafi gengið til samninga við hafi afgerandi for- skot á keppinauta sína þegar komi að því að afla viðskipta hjá þeim hópi sjúklinga sem rétt eigi til endurgreiðslna. Þá segir ennfremur að sú stjórn- valdsákvörðun að fresta að taka afstöðu til þess hvort aðrir tarm- smiðir fái sambærilega samninga við Tryggingastofnun stríði gegn markmiðum samkeppnislaga.' Ákvörðunin kunni einnig að fara í bága við lögmætisreglu stjórn- sýsluréttarins. Samkeppnisráð tekur ekki af- stöðu til þess hvort gengið verði til samninga við alla tannsmiði eða samningurinn við Bryndísi Krist- insdóttur verði endurskoðaður. Hins vegar er lögð á það áhersla að tannsmiðir í landinu sitji við sama borð og njóti jafnra sam- keppnisskilyrða. Vélsmiðja Orms og Víglundar kaupir eignir Drafnar hf. Samdrætti ínýsmíði mættmeð skipaþjónustu Kaupverð húsnæðis, lóðar og slipps 39 milljónir króna Stofnandi Subway á Islandi FRED DeLuca, stofnandi Subway-keðjunnar, kom hingað til lands í gær. Hann kemur hingað til þess að skoða aðstæð- ur hjá Subway á íslandi auk þess sem hann mun ferðast lítil- Íega um landið. DeLuca stofnaði fyrsta Subway veitingastaðinn fyrir 30 árum, þá aðeins 17 ára gam- all og hefur fyrirtækið vaxið ört síðan. Velta fyrirtækisins var um 2.5 milljarðar dollara á síðasta ári og voru sölustaðir þess um 11.000 talsins víðsveg- ar um heiminn. McDonalds er eina fyrirtækið sem getur stát- að af fleiri skyndibitastöðum í heiminum. Á myndinni má sjá DeLuca (t.h.) ásamt Skúla G. Sigfússyni; framkvæmdasljóra Subway á Islandi við komuna til landsins. ----» ♦ «--- Námskeið í viðskipta- áætlunum KYNNINGARMIÐSTÖÐ Evrópu- rannsókna (KER) og Fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins halda námskeið kl. 9 í dag að Grand hóteli í gerð viðskiptaáætl- ana sem miða að nýtingu niður- staðna úr rannsókna- og nýsköp- unarverkefnum í atvinnulífinu. Markmiðið námskeiðsins er að aðstoða þá sem standa að rann- sókna- eða nýsköpunarverkefnum, sem leiða eiga til markaðsafurða. VÉLSMIÐJA Orms og Víglundar hefur keypt fasteignir Skipaþjón- ustu Drafnar af Iðnlánasjóði. Að sögn Eiríks Orms Víglundssonar, framkvæmdastjóra vélsmiðjunnar er tilgangurinn að færa út kvíarnar í skipaþjónustu til þess að mæta samdrætti í nýsmíði. „Við höfum til þessa lítið verið í skipaviðgerðum. Það hefur hins vegar verið alger auðn í nýsmíðinni og við erum að bregðast við því,“ sagði Eiríkur Ormur. Skipaþjónustan Dröfn er enn í rekstri/þannig að ekki er ljóst hve- nær eignirnar verða afhentar vél- smiðjunni. í kaupsamningnum er þó kveðið á um að það verði eigi VERSLUNARRÁÐ íslands hefur opnað heimasíðu á veraldarvefí int- ernetsins. Er það fyrst af samtökum atvinnulífsins til að veita slíka þjón- ustu. Á heimasíðu ráðsins er að finna almenna kynningu á því auk ann- arra upplýsinga eins og lista yfir stjórn og starfsfólk. Þá er þar einn- ig að finna fréttir úr starfi ráðsins og væntanlega viðburði á vegum þess. „Við lítum á þetta sem þjón- ustu við félagsmenn og þá sem vilja fræðast um Verslunarráð og starf- semi þess. Nú geta allir átt gagn- síðar en 15. júlí nk. „Við erum til- búnir til að hefjast handa um leið og við fáum eignirnar. Starfsemin á helst ekkert að stöðvast," sagði Eiríkur Ormur. 39 milljónir Vélsmiðja Orms og Víglundar kaupir af Iðnlánasjóði húsnæði, lóð og slipp Skipaþjónustu Drafnar og er kaupverðið 39 milljónir króna. „Við erum ekki að kaupa rekstur- inn þannig að starfsmenn Drafnar fylgja ekki með. Hins vegar munum við væntanlega endurráða einhvern hluta þeirra," sagði Eiríkur Ormur. „Það sem fyrir okkur vakir er að afla verkefna, en við höfum átt í virk samskipti við okkur með því að óska eftir frekari upplýsingum um það, sem birtist á heimasíð- unni, með tölvupósti," segir Jónas Fr. Jónsson, lögfræðingur Verslun- arráðs. Slóð heimasíðu Verslunarráðs er eftirfarandi: http://www.chamber.is/chamber/ .. .blabib - kjarni málsins! erfiðleikum með það. Þetta er hrein viðbót við þann rekstur sem fyrir er hjá okkur. Sumt fellur vel að því sem við höfum verið að gera, en við munum ráða viðbótarfólk eftir því sem þörf verður á.“ Dröfn hf., móðurfyrirtæki Skipa- þjónustu Drafnar, var lýst gjald- þrota fyrir nokkrum mánuðum. Félagið hafi þá engan eiginlegan rekstur með höndum, heldur var hann í höndum tveggja dótturfyrir- tækja frá upphafi síðasta árs. Ánn- að sá um fasteignaþjónustu, en var lýst gjaldþrota 20. janúar sl. Hitt fyrirtækið, Skipaþjónustan Dröfn, var með greiðslustöðvun til 1. maí sl. Garðsláttuvélar ÞÓR HF Reykjavík - Akureyri Reykjavík: Ármúla 11 - Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - Sfmi 461-1070 Verslunarráðið á veraldarvefinn ASKO - BYGGÐ TIL AÐ ENDAST LENGUR * BYGGÐ TIL AÐ GÆLA VIÐ ÞVOTTINN ÞINN * ASKO FRÁ FÖNIX - ÞAÐ ER MÁLIÐ \ Það er sama hvort ASKO þvottavélin hefur 1000,1200,1400 eða jafnvel 1500 sn. vinduhraða, gæðin eru alltaf þau sömu. NÚ ER LAG AÐ FÁ SÉR ASKO, HÁGÆÐA SÆNSKA ÞVOTTAVÉL Á HAGSTÆÐU VERÐI Æonix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420 10504: 69.980,- 10604: 73.970,- 10524: 75.980,- 10624: 80.960,- .11004: 83.980,- 1 2004: 88.970,- FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.