Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 39 FRÉTTIR Morgunblaðið/Björn Blöndal ÞEIR voru heiðraðir á sjómannadaginn í Keflavík, Njarðvík og Höfnum, Guðlaugur Karlsson skipstjóri og útgerðarmaður og Anders Guðmundsson vélsljóri. Sjómenn heiðraðir Keflavík. Morgunblaðið. VERKFALL sjómanna setti óneitanlega nokkurn svip á há- tíðarhöld sjómannadagsins i Keflavík, Njarðvík og Höfnum og ekkert varð úr skemmtisigl- ingum báta sem hafa verið ákaf- lega vel sóttar undanfarin ár. Að öðru leyti voru hátíðarhöldin með hefðbundum hætti. Aðsókn að skemmtidagskránni við höfn- ina hefur þó oft verið meiri. Ræðumaður dagsins var Helgi Laxdal og gerði hann að umtals- efni öryggisútbúnað sjómanna og kvótakerfið. Sjómannamessa var i Ytri- Njarðvíkurkirju en hátíðarhöldin fóru fram í höfn- inni í Keflavík. Þar var m.a. kappróður, koddaslagur, björg- unarsund, reiptog og þyrla Land- helgisgæslunnar sýndi björgun úr sjó. Tveir aldraðir sjómenn voru heiðraðir, Gunnlaugur Karlsson skipsljóri og útgerðarmaður og Anders Guðmundsson vélstjóri. Sjómanna- dagurinn í Stykkishólmi Stykkíshólmi. Morgnnblaðið. SJÓMANNADAGURINN var haldinn hátíðlegur í Stykkis- hólmi á hefðbundin hátt. Sjó- menn gengu í skrúðgöngu til kirkju og var þar haldin sjó- mannamessa þar sem sóknar- presturinn sr. Gunnar Eiríkur Hauksson messaði. Það er siður í Stykkishólmi á sjómannadag eins og víðar ann- ars staðar að heiðra aldna sjó- menn. Að þessu sinni heiðruðu sjómenn Lárus Kristin Jónsson. Lárus Kristinn er fæddur 1913 í Stykkishólmi og hefur starfað allan sinn aldur hér í bæ. Hann hefur stundað margvísleg störf í gegnum árin, var um tíma klæðskeri og þá hefur hann verið umsjónarmaður í skólun- um og kirkjuvörður til margra ára. Þá stundaði hann sjó hér áður fyrr í mörg ár og starfaði þásem kokkur. Lárus fór margar síldar- Morgunblaðið/Árni Helgason Lárus Kristinn Jónsson vertíðar á Tjaldi og Hamri frá Rifi, Runólfi frá Grundarfirði og svo á Þórsnesi frá Stykkis- hólmi. Hann er 82 ára og heldur sér vel og var fyrstur Hólmara til að setja niður kartöflur nú í vor. Lendingarkeppni vélflugmanna Haukur hreppti „Silfur- Jodelinn“ xíi&kiítií Morgunblaðið/PJJ BRÆÐURNIR Haukur og Snorri Snorrasynir eftir velheppnaða lendingu Hauks, sem sést á efri myndinni. FYRSTU lendingarkeppni vélflug- manna í sumar, sem fram fór á Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ fyrir nokkru, lauk með sigri Hauks Snorrasonar. Alls luku 18 flugmenn keppni áður en mótshaldi var hætt eftir að einnni keppnisvélanna hlekktist á í flugtaki. Keppnin var haldin á vegum Flugklúbbs Mosfellsbæjar og var fyrri hluti keppni um bikar sem nefnist „Silfur-Jodelinn“. Keppni um þennan bikar fer þannig fram, að keppt er um hann tvisvar á ári, í upphafi sumars og að hausti, og er sigurvegari keppninnar sá flug- maður sem fæst refsietig fær úr báðum umferðum. Síðari hluti keppninnar um „Silfur-Jodelinn“ verður væntanlega haldinn laugar- daginn 2. september nk. á Tungu- bökkum. í lendingarkeppni vélflugmanna er keppt samkvæmt alþjóðareglum FAI, alþjóðasambands flugmálafé- laga. Hver flugmaður lendir fimm sinnum, einu sinni með fijálsri aðferð, tvær gervinauðlendingar og ein lending yfir tveggja metra hindrun sem er í fimmtíu metra fjarlægð frá marklínu. Gefín eru refsistig fyrir fjarlægð frá mark- línu. Ennfremur eru gefin refsistig fyrir hluti eins og að nota hreyfil- afl í gervinauðlendingu, að nota vængbörð þegar það er ekki heim- ilt, o.fl. Sigurvegari í fyrri umferð um „Silfur-Jodelinn“, Haukur Snorra- son, flaug einmitt flugvél af Jodel- gerð, Jodel DR 250, TF-RJR, og hlaut hann alls 93 refsistig. í öðru sæti var Bernharð Linn, sem keppti á Piper Warrior TF-SPA, með 109 refsistig, í þriðja sæti var Kári Kárason á Cessna 152 TF- FTL með 122 refsistig. SVR ekur eins og á helgidögum VAGNAR SVR aka laugardaginn 17. júní eftir tímaáætlun helgidaga, þ.e. á 30. mín. fresti, þó þannig að aukavögnum verður bætt á leiðir eftir þörfum. Frá kl. 12, þegar hátíðarhöldin hefjast í Lækjargötu, er breytt frá venjulegri akstursleið vagnanna og nær breytingin til þeirra vagna sem aka um Lækjargötu. Vagnar^á leiðum 2, 3, 4 og 5 á vesturleið munu aka um Sæbraut, Geirsgötu, Pósthússtræti og Tryggvagötu með viðkomu við Toll- stöð. Á austurleið hafa þessir vagnar viðkomu í Hafnarstræti. Vagnar á leiðum 6, 7, 111 og 112 sem venjulega hafa endastöð við Lækjartorg verða með endastöð í Hafnarstræti vestan Pósthússtrætis. Vagnarnir munu aka þar til dag- skrá lýkur og verða síðustu ferðir frá miðborg kl. 2.05 eftir miðnætti. -----»--------- Kynning á Nátt- úrufræðihúsi Háskóla Islands SAMSTARFSNEFND Háskóla ís- lands og Reykjavíkurborgar um skipulagsmál á lóð H.í. auglýsir kynningu á fyrirhugaðri byggingu Náttúrufræðihúss á lóð Háskólans í Vatnsmýri. Kynningin er á af- greiðsluhæð Þjóðarbókhlöðu og stendur hún í fjórar vikur frá og með 15. júní til 13. júlí. Einnig er til sýnis rammaskipulag að austurhluta háskólalóðar sem unnið hefur verið á sl. árum á vegum samstarfsnefndarinnar og var kynnt almenningi í janúar 1991. Ábendingar eða athugasemdir skulu sendar til Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 13. júlí 1995. .....■»'■»• ♦-- Barmnælur til styrktar fötluðum ÍÞRÓTTASAMBAND fatlaðra stendur fyrir sölu, í dag, föstudaginn 16. júní, í Kringlunni, á sérhönnuð- um barmnælum til styrktar utanför íþróttamanna á Alþjóðasumarleika þroskaheftra sem verða í Connectic- ut í Bandaríkjunum 1.-9. júlí nk. Listakonan Elínrós Eyjólfsdóttir hannaði skartgrip, barmnælu með tákni leikanna og handmálaði á .postulín í númerraröð frá 1-900. Verð á barmnælu er 1995 kr. Doktorsritgerð í rafmagnsverkfræði ELÍAS Bjarnason varði 27. febrúar sl. doktors- ritgerð í rafmagns- verkfræði frá Tec- hnische Hochschule Darmstadt í Þýska- landi. Ritgerðin fjallar um stærðfræðilega grein- ingu ákveðins hóps að- hæfðra sía og prófun þeirra í rauntímaum- hverfí. Síur þessar hafa þann eiginleika að læra af reynslunni og endur- bæta sig sífellt. Þær eru m.a. notaðar í mögnunarkerfum sem hafa þann tilgang að eyða truflandi lágtíðnihljóum eins og vélarhljóðum úr umhverfi okkar. Andmælandi var Prof. Dr.-Ing. W.F.G. Mecklenbráuker frá Tækni- háskólanum í Vín í Austurríki. Leið- beinandi var Prof. Dr.-Ing. E. Hánsler, prófessor í merkjafræði við Tækniháskólann í Darmstadt. Elías lauk stúdents- prófi frá MA árið 1980, prófí í rafmagnsverk- fræði frá HI 1984. 1986 hóf hann seinni- hlutanám við Tæknihá- skólann í Darmstadt í Þýskalandi og lauk þaðan Dip.-Ing. prófi 1989 og Dr.-Ing. prófi í rafmagnsverkfræði frá sama skóla 27. febrúar sl. Elías er fæddur 11. apríl 1959, sonur hjónanna Bjarna P. Jónssonar og Estherar Elíasdótt- ur. Elías er kvæntur Salóme Kristj- ánsdóttur, líffræðingi, og eiga þau tvö börn, Bryndísi Björk 5 ára og Ásgeir Björn 1 árs. Elías starfar nú hjá Rockwell á íslandi. Dr. Elias Bjarnason Messur sautjándajúní KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há- Messa kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugardaga messa kl. 14 og ensk messa kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur kl. 8 og kl. 18. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl. 11. HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía: HJÁLPRÆÐISHERINN: Kaffisala í dag kl. 14-19. Hugvekjustund kl. 18. Hjálpræðissamkoma á sunnu- dag kl. 20: Elsabet Daníelsdóttir talar. FÆREYSKA sjómannaheimilið: Samkoma sunnudag kl. 17. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Morg- unsöngur kl. 11. Organisti Helgi Bragason. Athugið breyttan tíma. Þórhildur Ólafs. GRINDAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 13 þann 17. júní. Sr. Bjarni Þór Bjarnason messar. Ritningar- lestra flytja þeir Jón Gunnar Stef- ánsson, bæjarstjóri og Jón Hólm- geirsson, bæjarritari. Kór kirkjunn- ar syngur. Organisti er Siguróli Geirsson. Sr. Jóna Kristín Þorvalds- dóttir. Guðspjall dagsins: En Abraham sagði við hann: „Ef þeir hlýða ekki Móse og spámönnunum, láta þeir ekki heldur sannfærast, þótt ein- hver rísi upp frá dauðum." (Lúk. 16, 31.) KEFLAVÍKURKIRKJA: Hátíðar- guðsþjónusta kl. 12.30 þann 17. júní. Athugið breyttan messutíma. Barn borið til skírnar. Skátar að- stoða. Prestur: Ólafur Oddur Jóns- son. Kór Keflavíkurkirkju syngur ættjarðarlög við athöfnina. Organ- isti: Einar Örn Einarsson. BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjal- arnesi: Messa 17. júní kl. 11 f.h. Gunnar Kristjánsson sóknarprest- ur. SKÁLHOLTSPRESTAKALL: Messa á Torfastöðum 17. júní kl. 13.30. Síra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup, predikar. Organisti Hilmar Örn Agnarsson. Hesta- menn fylkja liði við messulok og ríða í Reykholt. Messa í Skálholti sunnudaginn 18. júní kl. 11. Org- anisti sá sami. Messa og skírn í Haukadal 18. júní kl. 14. Organisti sami. Sóknarprestur. STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA, Hvols- velli: Hátíðarguðsþjónusta þjóðhá- tíðardaginn 17. júní kl. 11. Sóknar- prestur. ODDASÓKN: Messa í Oddakirkju á Rangárvöllum 1. sunnudag eftir trínitatis, 18. júní kl. 11. Sóknar- prestur. LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj- um: Hátíðarmessa á þjóðhátíðar- degi kl. 11. Altarisganga. Heitt á könnunni að messu lokinni. Boðið er upp á akstur frá dvalarheimilinu Hraunbúðum. AKRANESKIRKJA: Hátíðarguðs- þjónusta 17. júní kl. 13. Ávarp flytja stúdentarnir Arnheiður Hjörleifs- dóttir og Hrafnhildur Ýr Kristjáns- dóttir. Björn Jónsson. BORGARPRESTAKALL: Messa verður í Borgarneskirkju kl. 13. Ath. breyttan messutíma. Árni Pálsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.