Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, StMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓIF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Megnið af fiskiskipaflotanum hélt til veiða í nótt að loknu verkfalli Fiskvinnslan komin í fullan gang eftir tíu daga MEGNIÐ af fiskiskipaflota lands- manna lagði úr höfn í nótt eftir að ljóst varð að samningar sjómanna og útgerðarmanna höfðu verið sam- þykktir. Verkfallið stóð í 22 daga. Sjómenn greiddu atkvæði í gær um samkomulagið, sem undirritað var á fjórða tímanum í fyrrinótt. Atkvæði voru talin hjá ríkissáttasemjara í gærkvöldi. Já sögðu alls 1.935 þeirra sjómanna, sem greiddu atkvæði, eða 79,8%. Nei sögðu 450, eða 18,6%, og 38 skiluðu auðu. Fiskvinnslan í landinu verður væntanlega ekki komin í fullan gang á nýjan leik fyrr en eftir viku til 10 daga, að sögn Arnars Sigurmunds- sonar, formanns Samtaka fisk- vinnslustöðva. Hann segir að um miðja næstu viku verði humar- vinnsla sunnanlands sennilega kom- in í gang og einnig vinnsla hjá þeim fyrirtækjum sem kaupa bátafisk og fisk af fiskmörkuðum. „Hjá æði mörgum verður næsta vika samt mjög léleg, og það má reikna með því að það verði ekki fyrr en eftir næstu viku sem vinnsl- an yfir höfuð verður komin í eðlileg- ar skorður á ný,“ sagði Arnar í sam- tali við Morgunblaðið. Hann sagði að ef fyrstu togararnir, sem víðast væru mestu hráefnisöflunartækin, væru komnir inn til löndunar síðari hluta næstu viku, yrði vinnslan ekki komin í fullan gang fyrr en eftir þá viku. Skipin í allar áttir „Yfir sumartímann er lítið unnið um helgar og á nokkrum stöðum er helgarvinnubann. Verkfall sjómanna var lengur að hafa áhrif en við reikn- uðum með, e'n á sama hátt gerist það að þessi tími líður þar til vinnsl- an verður komin í eðlilegan gang aftur,“ sagði Arnar Sigurmundsson. Átta skip Granda hf. áttu að leggja úr höfn á miðnætti og að sögn Þórhalls Helgasonar, aðstoðar- útgerðarstjóra, var meiningin að þijú frystiskip fyrirtækisins tækju stefnuna suður í höf en önnur á mið nær landinu. Hann sagði að ekkert skipa fyrirtækisins færi í Smuguna í Barentshafi enn sem komið væri. Þorleifur Ananíasson hjá Útgerð- .arféiagi Akureyringa sagði að brott- för hefði verið boðuð á miðnætti á sex af sjö skipum fyrirtækisins, en ísfisktogarinn Harðbakur verður hins vegar eftir og fer hann á veiðar síðar. Þorleifur sagði skipin fara í allar áttir, en ekkert þeirra færi þó í Smuguna. Þangað fer hins vegar Stakfellið frá Þórshöfn og er ljóst að margir munu fylgjast vel með aflabrögðum þess þar. Að sögn Kristjáns Guðmundsson- ar hjá Hraðfrystihúsi Eskiíjarðar áttu tvö af þremur skipum fyrirtæk- isins, Guðrún Þorkelsdóttir og Jón Kjartansson, að fara í nótt til síld- veiða, en hins vegar fer Hólmaborg- in ekki út strax. Sagði hann það stafa af því að kvótinn sem eftir væri þýddi ekki nema um einn og hálfan túr á skip og því ætlunin að dreifa því eitthvað. Fleiri yfirmenn samþykkir Heldur fleiri hlutfallslega sam- þykktu samningana í hópi yfirmanna en undirmanna. Af yfirmönnum, þ.e. félögum í Vélstjórafélaginu og Far- manna- og fiskimannasambandinu, sögðu 86,2% já og 12,7% nei. Af undirmönnum, sem eru félagar í Sjómannasambandinu, sögðu 75,8% já og 22,3% nei. ■ Samið um verð alls afla/6 Fiskveiðibrot Aðeins verið dæmt í einu máli FORSTÖÐUMENN Fiskistofu og veiðieftirlits eru óánægðir með hæga meðferð kærumála vegna brota á lögum um fiskveiðar. Af 25 kæru- málum til rannsóknarlögreglu eða sýslumanna hefur aðeins fengizt endanlegur dómur í einu. Hin eru á mismunandi stigum rannsóknar. Fiskistofa og sjávarútvegsráðu- neytið hafa tvenns konar úrræði vegna brota gegn lögum um fisk- veiðar. Annars vegar er að svipta skip og báta veiðileyfi og hefur það verið gert svo hundruðum skiptir. Hins vegar er hægt að kæra og var fyrsta málið, sem snertir brottkast afla, nýlega kært. Fiskistofa hefur ráðið lögfræðing til að fylgja kærumálum eftir og varpað fram þeirri hugmynd að málin fái einn farveg, til dæmis hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, en dreifist ekki á sýslumannsembætti landsins. ■ Forvarnir/26 A Alversdeilan Fundur boðaður í dag SAMNINGAFUNDUR hefur verið boðaður í deilu starfsmanna álversins í Straumsvík og ÍSAL í dag kl. 14. Þórir Einarsson ríkissáttasemjari ræddi í gær við deiluaðila hvom í sínu lagi og varð niðurstaðan sú að ræða saman í dag. Fjórtán daga lokunarferli álversins nú nærri hálfnað. Unnið er að lokuninni í fullri samvinnu milli full- trúa verkalýðsfélaga og ÍSAL, sem skipa nefnd um framkvæmd verk- fallsins. Að sögn Haraldar Jónsson- ar, fulltrúa verkalýðsfélaganna, hef- ur verið staðið að málum á heldur rólegri nótum en áður. „Verkfall er aðgerð sem í eðli sínu getur valdið tjóni en markmiðið er að valda sem minnstu tjóni á niður- keyrslutímabilinu," segir hann. ■ Stærsti skaðinn/11 ------» ♦ ♦------ Chirac skrif- '*■ ar Davíð FRANSKI sendiherrann, Robert Cantoni, afhenti Davíð Oddssyni for- sætisráðherra bréf í gær frá Jacques Chirac Frakklandsforseta, þar sem hann kveðst vilja skýra forsendur þeirrar ákvörðunar sinnar að hefja aftur kjamorkusprengingar í til- raunaskyni á Kyrrahafi. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra harmaði þessa ákvörðun frönsku ríkisstjórnarinnar á miðviku- dag og er bréf Chiraes svar við þess- yrum andmælum íslenskra stjórnvalda. Frakklandsforseti segir í bréfi sínu að ákvörðunin um að hefja aftur kjarnorkusprengingar í tilraunaskyni hafi verið tekin eftir vandlega íhug- un, enda sé Frökkum nauðsynlegt að viðhalda fælingarmætti kjarn- orkuheraflans. ■ Gerð grein fyrir/14 Morgunblaðið/Kristinn FISKVEIÐIFLOTINN hélt á miðin á ný í gærkvöldi, eftir að ljóst var að sjómannafélögin höfðu samþykkt kjarasamningana °g þriggja vikna verkfalli þar með lokið. Fyrsta skipið sem lagði úr Reykjavíkurhöfn, um kl. 23.30, var Vigri RE 71. Fjárhagsstaða Reykjavíkur neikvæð um 8,7 milljarða FJÁRHAGSSTAÐA borgarsjóðs, þ.e. peningaleg eign að frádregnum skuldum, - reyndist neikvæð um ríflega 8,7 milljarða króna, samkvæmt árs- reikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 1994, sem Iagður var fram á fundi borgarstjórnar í gær- kvöldi. Staða borgarsjóðs versnaði um rúmlega 3,3 milljarða króna á árinu. Peningaleg staða stofnana og fyrirtækja borgarinnar batnaði aftur á móti um 365 milljónir króna. Mikinn halla má fyrst og fremst rekja til stóraukins rekstrarkostn- aðar og minni skatttekna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði það mikið áhyggjuefni, að rekstrarhalli borgar- sjóðs væri svo mikill. Hún taldi ljóst að borgaryf- irvöld væru komin á ystu nöf með rekstur og nauðsynlegt væri að leita nýrra leiða til úrbóta. „Það er hreinlega ekki hægt að stofna til varan- legra rekstrarútgjalda án þess að draga að sama skapi úr kostnaði á öðrum sviðurn," sagði borgar- stjóri. Ingibjörg Sólrún vakti sérstaka athygli á því að fyrrverandi meirihluti sjálfstæðismanna bæri ábyrgð á fjárhagsáætlun síðasta árs í öllum meg- inatriðum. Sameinað átak Árni Sigfússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, tók undir orð borgarstjóra um að rekstrarkostnað- ur borgarinnar væri í hámarki. Hann lýsti því yfír að sameinast yrði um viðamikið átak til að rétta við rekstur borgarinnar. Borgaryfirvöld tækju við æ fleiri verkefnum, en gætu með engu móti aukið skattheimtu sína. Hann lagði til að gagnger form- breyting yrði í rekstri og sagði að ekki væri að sjá að aðgerðir R-istans skiluðu neinu í því skyni að bæta fjárhagsstöðu borgarinnar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kvaðst undrast þann mismun á niðurstöðum skýrslu endurskoðenda frá septem- ber sl. um áætlaða rekstrarafkomu síðasta árs og niðurstöðum ársreiknings. í skýrslunni hefði halli verið áætlaður um 7,5 milljarðar, en reynd- ist nú um 1.200 milljónum hærri. Samkvæmt ársreikningi borgarinnar reyndust skatttekjur 206 milljónum króna lægri en gert var ráð fyrir. Fjárfestingar fóru 602 milljónir fram úr áætlun, en það má að mestu rekja til þess að áætluð sala á skuldabréfum SVR, að nafnvirði 342 millj., gekk ekki eftir. Rekstur málaflokka fór 483 milljónir fram úr áætlun. Mesta frávik á einstökum málaflokkum var vegna viðhalds gatna og holræsa, átaks- verkefna og félagsmála, samtals 306 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.