Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 2C Dauðinn kveður dyra KVIKMYNPIR Laugarásbtó DAUÐINN OGSTÚLKAN „DEATH AND THE MAIDEN“ ★ ★'/2 Leikstjóri: Roman Polatiski. Byggð á samnefndu leikriti Ariel Dorf- mans. Aðalhlutverk: Sigourney Weaver, Ben Kingsley, Stuart Wilson. New Line. 1994. NÝJASTA mynd Roman Pol- anskis, Dauðinn og stúlkan eða „Death and the Maiden“, er byggð á samnefndu leikriti eftir Ariel Dorfman, sem einnig á hlut í kvik- myndahandritinu, og er skelfileg úttekt á sambandi kvalara og fórnarlambs hans. Stykkið var sett upp hér á landi og er lítið um sig, persónurnar aðeins þrjár og leiksviðið íbúð eða hús fórnar- lambsins og Polanski, sem er ekki óvanur persónulegum átökum í einangruðu umhverfi, á í nokkrum erfiðleikum með að „opna“ það eins og kallað er, búa til kvikmynd úr stofudramanu. Hann fer þá leið að byggja myndina að nokkru upp eins og hryllingsmynd og það dugar hon- um eitthvað. Hann sýnir okkur hús á fáförnum stað út við dumbshaf eina óveðursnótt þar sem loft er drungalegt, myrkur grúfir yfir staðnum og sjórinn hamast við klettana og það á vel við efnið, sem er í raun hroll- vekja. En þetta er gamalkunnug og klisjukennd bygging, sem dregur athyglina meira að sér sjálfri en innihaldinu. Polanski nær ágætum leik út úr þremenningunum. Sigourney Weaver, sem er vanari því að leika ódrepandi hasarblaðahetjur, sýnir á sér viðkvæmu hliðarnar og að hún er efni í skapgerðarleikkonu í hlutverki hinnar þjáðu stúlku, sem titillinn vísar til, sem var fangelsuð, pýnd og nauðgað fyrir mörgum árum í ónefndu S-Amer- íkuríki þar sem atburðir myndar- innar eiga sér stað. Ben Kingsley er, að hennar viti, dauðinn, sá sem pýndi hana forðum en er nú kom- inn í hendurnar á henni fyrir glettni örlaganna. Og Stuart Wil- son er eiginmaðurinn hennar eða fulltrúi almennings, sem er áhorf- andi að átökunum og veit ekki hveiju skal trúa. Heiti myndarinnar er dregið af strengjakvartett Schuberts, sem kvalarinn var vanur að leika und- ir pyndingunum, svo fórnarlambið fékk ógeð á tónlistinni og ógeð á lífinu yfirleitt. Með myndinni er verið að segja að pyndingar séu persónulegar og með því að snúa hlutverkunum við reynir hún að lýsa hinu persónulega sambatidi kvalarans og fórnarlambsins. Pyndingar snúast ekki um mál- stað eða hugsjónir eða einræðis- stjórnir eða herinn heldur mann á móti manni, fórnarlambið og kval- arann og þær snúast um vald. Polanski tekst að byggja upp spennu og átök á þessum nótum við undirleik óveðursins og í manni situr dauðinn í andliti Weaver, sem á aldrei eftir að endurheimta líf sitt. Arnaldur Indriðason Sumarsýning Kjarvalsstaða Islensk myndlist á 20. öld SUMARSÝNING Kjarvals- staða, „íslensk myndlist“, verður formlega opnuð á laugardag 17. júní kl. 16. Islensk myndlist er yfirlits- sýning á íslenskri tuttugustu aldar myndlist úr eigu Lista- safns Reykjavíkur sem verður haldin í öllum salarkynnum Kjarvalsstaða. Þessi sýning hefur annarsvegar það mark- mið að bregða ljósi á þróun íslenskrar myndlistar frá byij- un þessarar aldar fram til dagsins í dag og hins vegar er henni ætlað að vera kynn- ing á listaverkaeign Lista- safns Reykjavíkur. Á sýninguni verða olíumál- verk, grafík, textílverk, leirl- ist, installationir og verk unn- in með blandaðri tækni eftir mikinn fjölda íslenskra mynd- listarmanna. Athöfnin hefst kl. 16 með því að lúðrasveit mun leika nokkur lög við inngang Kjarv- alsstaða. Borgarlistamaður verður tilnefndur og Bernardel- strengjakvartettinn mun leika. Sýningin verður opin dag- lega til 10. september frá kl. 10-18 og er kaffístofan opin á sama tíma. Aukabúnaður ó mynd álfelgur, aukaljós, samlitir stuðarar - kjurni málsins! Skeljungsbúöin v Suðurlandsbraut 4 • -Sími 5603878 lclseðnaiður RENAULT ClÍO RN MARGVERÐLAUNAÐUR ÞÆGILEGUR, SNARPUR OG SPARNEYTINN 5 DYRA Á VERÐI FRÁ KR 1.049.000 Á GÖTUNA REYNSLUAKTU RENAULT ÞAÐ ER VEL ÞESS VIRÐI BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR • ARMULA 13 SÍMI: 568 1200 • BEINN SÍMI: 553 1236 RENAULT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.