Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fiskvinnslufólk fellt fyrirvaralaust af launaskrá vegna hráefnisskorts Starfsmenn fá bætur þrátt fyrir deilur MIKILL ágreiningur er kominn upp á milli Vinnumálasambands- ins og stjórnar Atvinnuleysis- tryggingasjóðs um fyrirkomulag á greiðslum til fiskvinnslufólks vegna verkfalls sjómanna en sjóðs- stjórnin ákvað sl. mánudag að fiskvinnslufyrirtæki sem ekki til- kynntu uppsögn kauptryggingar með fjögurra vikna fyrirvara hafi ekki heimild tii þess að taka starfs- fólk sitt úr af launaskrá. Þessi fyrirtæki eiga svo aftur að fá launakostnað endurgreiddan frá Atvinnuleysistryggingasjóði. Árni Benediktsson, formaður Vinnumálasambandsins, sendi fé- lagsmönnum í sambandinu bréf sl. miðvikudag þar sem hann seg- ir að Vinnumálasambandið muni ekki una ákvörðun Atvinnuleysis- tryggingasjóðs og muni fylgja málinu eftir eins langt og nauðsyn- legt sé. Hvatti hann aðildarfyr- irtæki, sem hafa stöðvast vegna hráefnisskorts, að greiða ekki laun fyrir þá daga sem vinna feilur nið- ur vegna hráefnisskorts af völdum verkfallsins, þrátt fyrir að kaup- tryggingarsamningum hafi ekki verið sagt upp með fjðgurra vikna fyrirvara. í gær ákvað stjóm Atvinnuleys- Agreiningur milli Vinnumála- sambands og Atvinnuleysis- tryggingasjóðs istryggingasjóðs að fiskvinnslu- fólk þessara fyrirtækja muni fá greiddar atvinnuleysisbætur og að sögn Margrétar Tómasdóttur, framkvæmdastjóra sjóðsins, er það gert til að koma í veg fyrir að ágreiningurinn við Vinnumála- sambandið bitni á starfsfólkinu. Með því sé þó ekki verið að viður- kenna sjónarmið Vinnumálasam- bandsins. Ólík túlkun Samtaka fiskvinnslustöðva Samtök fiskvinnslustöðva sendu aðildarfélögum þess tilmæli í byrj- un maí vegna yfirvofandi sjó- mannaverkfalls, þar sem þeim var bent á að tilkynna vinnslustöðvun með Ijögurra vikna fyrirvara svo að þau geti tekið fólk af launaskrá þegar hráefnisskortur verður eða að tilkynna hráefnisleysi með þriggja daga fyrirvara en þá yrðu fyrirtækin jafnframt sjálf að greiða dagvinnulaun, sem þau fengju svo aftur endurgreidd frá Atvinnuleysistryggingasjóði. Telja verkfall ófyrirséð áfall Vinnumálasambandið túlkar kauptryggingarsamninga og lög öðruvísi og telur að fiskvinnslufyr- irtækjum hafi verið heimilt að fella allt starfsfólk fyrirvaralaust af launaskrá vegna vinnslustöðvunar og vísa í lagaheimild sem veitir atvinnurekanda rétt til að fella niður launagreiðslur þegar vinnslustöðvun stafar af ófyrirséð- um áföllum. Telja talsmenn Vinnu- málasambandsins að undir þetta falli ef vinna leggst niður vegna verkfalla, enda alltaf óvíst hvort þau komi til framkvæmda. Árni Benediktsson sagði að þetta skipti fyrirtækin talsverðu máli því þau fengju aldrei allan kostnað við að hafa fólk á launa- skrá endurgeiddan úr Atvinnu- leysistryggingasjóði. „Kristján átti sviðið“ KRISTJÁN Jóhannsson í óperunni Á valdi örlaganna. KRISTJÁN Jóhannsson tenór- söngvari söng í Grímudansleik Verdis, í fyrsta skipti af fjór- um, í fyrrakvöld á frumsýn- ingu í Covent Garden, konung- lega óperuhúsinu í London. Kristján var ánægður með sinn hlut í sýningunni þegar Morgunblaðið náði tali af hon- um í London gær og með sýn- inguna í heild. „Sýningin var mjög glæsileg, búningarnir fal- legir og hljómsveitin alveg stórkostleg. Ég fékk gæsahúð um allan kroppinn á fyrstu æfingunni með henni. Þetta gerist ekki betra.“ Gott að vera íslendingur Jónas R. Jónsson dagskrár- stjóri sjónvarpsstöðvarinnar Filmnet í Hollandi og dr. Guð- rún Sveinbjarnardóttir forn- leifa- og sagnfræðingur við Lundúnaháskóla voru viðstödd sýninguna. Jónas kvað sýning- una hafa verið mjög góða og Kristján óumdeilda stjörnu hennar. „Kristján átti sviðið. Þetta var í fyrsta skipti sem ég sé hann syngja utan íslands og það var gott að vera íslend- ingur I salnum.“ Guðrún Svein- bjarnardóttir sagði þetta í fyrsta skipti sem hún hlýddi á Kristján á sviði og skemmti sér vel. „Krislján kom vel fyrir í söng og leik, ég var stolt af því að vera Islendingur. Þetta var mjög hátíðlegt.“ í lok sýn- ingarinnar fögnuðu gestir af miklum krafti, að sögn Guð- rúnar og Jónasar. Aðspurður sagði Krislján muninn á áhorfendum í Lond- on og á Ítalíu t.d. vera að ítal- ir fögnuðu vel og lengi, fagn- aðarlæti stæðu í allt að 20 mín- útur, en í London væri fagnað af miklum krafti en styttra. Störf Jakobs ómetanleg Kristján segir að störf Jak- obs F. Magnússonar, menn- ingarfulltrúa íslenska sendi- ráðsins í London, hafi reynst ómetanleg fyrir íslenska lista- menn. „ Jakob er óþreytandi í kynningarstarfi sínu á íslensk- um listamönnum og menningu okkar. Fyrir það eigum við öll að vera honum þakklát. Það er gamall og úreltur hugsunar- háttur að íslensk sendiráð eigi fyrst og fremst að vera einhver þjónustumiðstöð fyrir íslenska pólitíkusa." Fjölmiðlar í Englandi hafa haft mikinn áhuga á Kristjáni undanfarið og meðal annars var hann í viðtali hjá tímaritinu Opera Now og á fimmtudaginn var tekinn upp þáttur um hann í BBC world service. Búist er við að 40 milljónir horfi á þátt- inn í hvert sinn, en hann verð- ur sýndur þrisvar. „Ég er bú- inn að vera óvenju mikið í pressunni undanfarið og meira en nokkru sinni, það má eigin- lega segja að það sé að hitna í kolunum,“ sagði Kristján. Ofrágengnir kjarasamningar VSÍ 09 Vinnumálasambandsins við: j Starfsmenn Álversins Flugvirkjafélag íslands Yfirmenn á farskipum Fjármálaráðuneytisins við stéttarfélög verkamanna, iðnaðarmanna og sjómanna: Alþýðusamband Vestfjarða vegna ræstingarstarfa og sjúkrahúsa Verkalýðsfélag Fljótsdalshéraðs vegna vistheimila og sjúkrahúsa Verkakvennafélagið Snót, Vestmannaeyjum, vegna ræstingarstarfa Verkalýðsfélagið Einingu, Akureyri, vegna ræstingarstarfa (þó ekki í MA) Verkalýðsfélag Akraness vegna ræstingarstarfa og sjúkrahússins Verkakvennafélagið Framsókn vegna ræstingarstarfa í skólum í Kópavogi Verkakvennafélagiö Framtíðina, Hafnarfirði, vegna ræstingarst. í skólum Verkalýðsfélög á Norðurlandi vegna sjúkrahúsa annarra en FSA Félag íslenskra atvinnuflugmanna vegna Landhelgisgæslunnar Flugvirkjafélag íslands vegna Landhelgisgæslunnar Stéttarfélög sjómanna Fjármálaráðuneytisins við aðildarfélög BSRB: | Landssamband lögreglumanna Landssamband slökkviliðsmanna Leikarafélag íslands Sjúkraliðafélag íslands Fjármálaráðuneytisins við aðildarfélög BHMÍrF| Dýralæknafélag íslands Félag bókasafnsfræðinga Félag háskólakennara Félag háskólamenntaðra starfsmenn stjórnarráðsins Félag íslenskra fræða Félag íslenskra náttúrufræðinga Félag tækniskólakennara Kjaradeild Félag íslenskra félagsvísindamanna Kjarafélag iðjuþjálfa Kennarafélag Kennaraháskóla íslands Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga Matvæla- og næringarfræðingafélag íslands Meinatæknafélag íslands Röntgentæknafélag íslands Stéttarfélag sálfræöinga á íslandi Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa Stéttarfélag lögfræðinga í ríkisþjónustu Fjármálaráðuneytisins við stéttarfélög utan bandalaga:| Félag íslenskra flugumferðarstjóra Kjarafélag tæknifræðinga Starfsmannafélag Sinfóníuhljómsveitar íslands Stéttarfélag verkfræðinga Staða samningamála hjá ríki og á almenna vmnumarkaðinum Osamið er við 20 aðildarfélög BHMR FLEST aðildarfélög BHMR eru enn með lausa samninga og eru viðræður samninganefndar ríkis- ins við nokkur félög í gangi en viðræður við önnur eru í biðstöðu. Samkvæmt upplýsingum Hann- esar G. Sigurðssonar, aðstoðar- framkvæmdastjóra VSÍ, eiga vinnuveitendur á almenna vinnu- markaðinum ólokið gerð samninga við starfsmenn ÍSAL og Flug- virkjafélag íslands, og ekki hafa enn tekist samningar í viðræðum VSÍ og Vinnumálasambandsins við félög yfirmanna á kaupskipum, en sú deila er til meðferðar hjá ríkissáttasemjara. Samkvæmt upplýsingum starfs- mannaskrifstofu fjármálaráðu- neytisins á ríkið eftir að ganga frá kjarasamningum við sjo verkalýðs- félög utan Reykjavíkur og Alþýðu- samband Vestfjarða vegna ræst- ingastarfa ófaglærðs starfsfólks m.a. á nokkrum sjúkrahúsum og í skólum. Einnig er ósamið við atvinnuflugmenn og flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni og stéttarfé- lög sjómanna. Fjögur aðildarfélög BSRB með lausa samninga Fjögur aðildarfélög BSRB eru enn með lausa sámninga en við- ræður eru í gangi við Landssam- band lögreglumanna, Landssam- band slökkviliðsmanna og Leik- arafélag íslands. Einnig eru við- ræður hafnar við Sjúkraliðafélag íslands. I seinasta mánuði voru undirrit- aðir kjarasamningar milli ríkisins og Félags fréttamanna, Stéttarfé- lags_ sjúkraþjálfara í ríkisþjónustu og Útgarðs, félags háskólamanna, en þessi félög eru öll innan BHMR. Ósamið er við önnur félög BHMR eða 20 alls. Kjaradeilum Félags náttúrufræðinga og Stéttarfélags lögfræðinga í ríkisþjónustu hefur verið vísað til ríkissáttasemjara og var haldinn sáttafundur í deilu lögfræðinga og ríkisins í gær. Viðræður eru hafnar milli ríkis- ins og Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins, Fé- lags íslenskra fræða, Kjarafélags iðjuþjálfa, Kjarafélags viðskipta- og hagfræðinga og Stéttarfélags sálfræðinga. Onnur félög í þjón- ustu ríkisins hafa ýmist óskað eft- ir viðræðum eða mál þeirra eru í biðstöðu. Að sögn Páls Halldórssonar, formanns BHMR, er gerð samn- inga aðildarfélaganna mjög mis- langt á veg komin og sagði hann að hjá stöku félögum virtist sam- komulag vera nokkuð langt und- an. I ' i i k í i \ >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.