Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 31 + Lilja Stefáns- dóttir fæddist í V estra-Stokkseyr- arseli í Ölfushreppi 20. okt. 1916. Hún varð bráðkvödd í sumarbústað- arlandi sínu í Önd- verðarnesi 7. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Steinunn Jónsdóttir frá Þor- grímsstöðum í Ölf- usi, f. 17. maí 1892, d. 13. des. 1985, og Stefán Bjarnason frá Vestra-Stokkseyrarseli, f. 27. okt. 1887, d. 22. maí 1935. Systkini Lilju eru Ólafur, f. 3. ágúst 1915, d. 17. maí 1970, Jón, f. 28. okt. 1919, Guðrún, f. 23. ágúst 1921, Bjarni, f. 2. jan. 1923, og Stefán Steinar, f. SÓLIN skein skært og veðrið var eins gott og það getur verið hér hjá okkur. Við höfðum rétt nýlokið við að borða kvöldmat utandyra, þegar síminn hringdi. Kjalar fer í símann og kemur svo út til mín og segir: Hún mamma er dáin. Skyndilega er eins og dragi fyrir sólu. Það þyrmdi yfir okkur, því þetta kom svo óvænt. Guðmundur og hún höfðu verið um nóttina austur í sumarbústað og voru búin að taka saman og ætluðu að fara að leggja af stað heim. Guð- mundur var að ljúka smá verki, en Lilja ætlaði að fá sér göngutúr, rétt nýbúin að dásama hvað það væri gott veður og hvað trén þeirra væru falleg. Eftir smá stund fer Guðmund að lengja eftir henni og finnur hana örenda. Maður skilur ekki alltaf hver stjórnar tilverunni. Manni finnst svo ranglátt þegar fólk, að manni finnst í fullu íjöri, er tekið svona frá okkur fyrirvaralaust. En svo verðum við alltaf að reyna að finna eitthvað 11. des. 1935. Fyrri maður Lilju var Jón Guðmunds- son, f. 7. maí 1904, d. 4. okt. 1980. Börn þeirra eru: 1) Stein- unn, f. 18. nóv. 1942. 2) Guðmund- ur Kjalar, f. 19. okt. 1945, giftur Sær- únu Sigurgeirsdótt- ur og eiga þau þrjú börn. 3) Guðmund- ur Ingvar, f. 7. sept. 1948, og á hann einn son. Lilja og Jón slitu samvist- um. Seinni maður Lilju er Guð- mundur Gíslason, múrari, f. 16. ágúst 1920 í Hvammi á Barða- strönd. Lilja verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. jákvætt í öllu. Hvað er nú dásam- legra en fyrir konu sem þó er komin fast að áttræðu að fá að deyja svona, sátt við allt og alla, á þeim stað sem henni þótti vænst um, eða austur í sumarbústaðarlandinu þeirra, þar sem þau Guðmundur höfðu notið sin best. Elsku Lilja mín, mig langar að minnast þín með innilegu þakklæti fyrir það hvað þú hefur alveg frá upphafi verið mér góð. Við gátum alltaf talað saman um alla hluti, bæði tilfinningalega sem hversdags- lega. Þar sem móðir mín var látin þegar ég kom inn í líf þitt, leitaði ég kannski meira til þín en annars með ýmsa hluti. Og þegar ég átti von á fyrsta barninu okkar Kjalars, var það aldrei spurning í mínum huga, að ef við ættum dóttur, þá myndi hún heita Lilja. Stelpurnar okkar tvær, Lilja og íris, og eins hann Stefnir missa mik- ið þegar amma er farin og vil ég fyrir þeirra hönd þakka þér fyrir allt það góða sem þú hefur verið þeim. Þú varst alltaf hrein og bein, hafð- ir skoðanir á flestum hlutum. í mörg- um fjölskyldum er einn aðili sem er einskonar sameiningartákn, þ.e. heldur utan um fjölskylduna. Ég leit á þig sem slíka í fjölskyldunni. Og oft minntir þú mig á ungamömmu, sem vildi breiða vængina yfir ungana sína, því svo sannarlega varstu vak- andi yfir velferð barnanna þinna og tókst nærri þór ef eitthvað bjátaði á. Hjá því verður ekki komist að missir Guðmundar og Steinu er mestur og bið ég Guð almáttugan að hjálpa þeim og styðja í gegnum þessa miklu sorg, því lífið heldur áfrarri þótt tómarúmið sé stórt. Elsku Lilja mín, ég kveð þig með miklum söknuði, en eftir lifir minn- ingin um þá bestu tengdamóður sem ég hefði getað hugsað mér. Guð blessi minningu þína. Særún Sigurgeirsdóttir. Ég vil með nokkrum fátæklegum orðum kveðja föðursystur mína, sem varð bráðkvödd að kveldi 7. þ.m. austur í Öndverðarnesi, við sumar- bústað þeirra hjóna, hennar og Guð- mundar Gíslasonar. Þar höfðu þau búið sér unaðsreit sem hún unni, en hún var mikið fyrir að hlúa að því sem fallegt var bæði í náttúrunni og mannlífinu. Ég vil þakka þá miklu vináttu og elsku sem mér hefur ávallt verið sýnd af henni og manni hennar allt frá barnæsku, og nú síðari árin ekki síður, manni mínum sem þau tóku frábærlega vel eins og þeim einum var lagið. Ótal ljúfar minningar koma fram í hugann um föðursystur mína og mann hennar og ekki síður um börn þeirra, Steinunni, Guðmund Kjalar og Guðmund Ingvar sem ávallt hafa reynst mér hinir bestu vinir, og aldr- ei hefur fallið skuggi þar á. Ég vil að endingu biðja góðan Guð að styrkja Guðmund og systkinin í sorg þeirra, og minnast hlýjunnar og birtunnar sem ávallt umiukti móðurina og eiginkonuna. Far þú í friði, elsku frænka mín. Birna S. Ólafsdóttir. LILJA STEFÁNSDÓTTIR + Ósk Sigmunds- dóttir fæddist á Görðum á Akranesi 29. júní 1903. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 8. júní sl. Hún var dóttir hjónanna Vigdísar Jónsdóttur og Sig- mundar Guðmunds- sonar, sem bjuggu á Görðum. Ósk var yngst fjögurra barna þeirra hjóna. Elstur var Jón, framkvæmdastjóri á Akranesi, f. 1893, d. 1982, þá var Magnús, sjómað- ur á Akranesi, f. 1895, d. 1930, ÞÓTT ALDURSÁRIN séu orðin mörg, kemur andlát ástvina og náinna ættingja á óvart og veldur söknuði og trega. Þegar Eiríkur kom til mín og sagði mér andlát konu sinnar ætlaði ég tæpast að trúa því, því hann hafði sagt mér kvöldið áður að hún hefði verið hress, þegar hann var í heimsókn hjá henni um daginn. Heimilið að Görðum var mjög gestkvæmt á uppvaxtarárum Óskar því sjálfsagt þótti að gista að Görð- um, þegar bændur ofan úr Borgar- firði fóru í kaupstaðarferð til Akra- ness og jafnvel á bátum áfram til Reykjavíkur. Oft var veiku fólki og sængurkonum komið fyrir um tíma að Görðum, því hjá Vigdísi í Görðum var það í góðum höndum. Ósk var snemma vanin á að hjálpa til á stóni heimili og margar ferðirnar sagðist hún hafa átt sem unglingur að sækja og fara með hesta gestanna. og svo Maríus Theo- dór, vinnumaður á Akranesi, f. 1898, d. 1924. Ósk giftist 27. október 1951 Eiríki Jenssyni, verkamanni í Reykjavík. Þau hjón ólu upp að mestu leyti tvær systur- dætur Eiríks, þær Simonettu og Krist- ínu Bruvik og einn- ig var Bertha Bru- vik systir þeirra nokkur ár í fóstri þjá þeim. Ósk verð- ur jarðsungin frá Akranes- kirkju í dag. Þegar Ósk var tvítug dó móðir hennar og tók hún þá við störfum móður sinnar á heimilinu í nokkur ár, meðan faðir hennar bjó, þar á meðal að annast uppeldissystur sína Guðrúnu Brynjólfsdóttur, sem þá var aðeins fimm ára. Einnig var á heimilinu Maríus bróðir hennar, sem dó árið eftir, og Eiríkur Jóns- son, uppeldisbróðir hennar. Þegar faðir hennar hætti búskap fór hún að vinna ýmis störf á Akranesi, m.a. í fiskvinnu, afgreiðslu í bak- aríi, vinnu í mjólkurstöð og fl. Árið 1937 fór hún til Reykjavíkur til lækninga og lá á sjúkrahúsi í eitt ár, en fór síðan að vinna á Landa- kotsspítala í Reykjavík. Á Landa- koti hitti hún mannsefni sitt Eirík Jensen, sem hún hjúkraði í tvö ár á Landakoti, en þau giftu sig árið 1951 og hætti hún þá að vinna utan heimilisins. Eiríkur og Ósk bjuggu sér hlý- legt heimili fyrst í Drápuhlíðinni, þá í Sörlaskjólinu og seinna byggðu þau sér hús að Suðurlándsbraut 91E í Reykjavík, þar sem þau bjuggu lengst eða í 28 ár þar til rýma þurfti fyrir stórhýsi við Ár- múlann. Fluttu þau þá að Grensás- vegi 52 og bjuggu þar síðustu 10 árin í Reykjavík. Haustið 1993 festa þau kaup á þjónustuíbúð við Dvalar- heimilið Höfða á Akranesi og fannst Ósk þá að hún væri aftur komin heim. Þau hjón áttu engin börn en ólu upp þrjár mannvænlegar systur- dætur Eiríks og eru tvær þeirra giftar og búsettar erlendis, Simo- netta er hjúkrunarfræðingur gift norskum manni og starfa þau með kristniboðum í Kenya í Afríku, Kristín er gift Suður-Afríkubúa af hollenskum ættum og reka þau veitingahús í Malasíu. Sú þriðja er Bertha Bruvik kennari á Ákureyri. Alltaf var jafnnotalegt að koma við hjá Ósk og Eiríki þegar við vorum á ferð í Reykjavík, fá sér kaffi og skoða fallegu málverkin hans Eiríks, sem hann málaði og veit ég að hann var hvattur af eigin- konunni við listsköpun sína, sem er alveg sérstök. Ekki var síður notalegt að koma við hjá þeim eftir að þau fluttu til Akraness og fylgj- ast með hvað Eiríkur bjó þeim þar notalegt heimili og fallegt. Ósk var rúmliggjandi að mestu leyti frá árinu 1985 og stundaði Eiríkur hana og sá um heimilið allt þar til hún lagðist inn á Sjúkrahús Akraness fyrir um mánuði. Það má segja að hún hafi hjúkrað honum þegar þau kynntust, en hann við leiðarlokin. Ég vil að lokum þakka frænku minni alla hlýju og vináttu við mig og mína fjölskyldu frá fyrstu tíð. Ég bið guð að veita Eiríki vini mín- um styrk í hans sorgum því hans missir er mikill. Ólafur I. Jónsson. ÓSK SIGMUNDSDÓTTIR ítt /V[ -C^sJtAz íslenskt grænmeti er safríkt, bragð- mikið, hreint og hollt. Hreinleikarannsóknir hafa sýnt að engin aukaefni finnast í íslensku grænmeti. Það er ómissandi í salöt, sem álegg, í pottrétti eða sem ferskur biti á milli máltíða. Njóttu hreinleikans og hollustunnar í íslensku grænmeti. ÍSLENSK GARÐYRKjA ISLENSKUR LANDBUNAÐUR HllEINT OG HOLLT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.