Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
L
Lýðræðis-
umbætur í
Tyrklandi
TYRKNESKA þingið sam-
þykkti í gær í fyrstu umferð
að fella úr gildi hluta úr stjórn-
arskrá landsins, þar sem borið
er lof á valdarán hersins árið
1980. Breytingin er hluti af
lýðræðisumbótum sem Evrópu-
þingið hefur gert kröfu um,
eigi það að samþykkja samning
um toliamál við Tyrki. Þá ræddi
tyrkneska þingið' einnig um að
aflétta hömlum á starfsemi
stjórnmálaflokka og verkalýðs-
félaga. Greidd verða atkvæði
um hverja breytingu fyrir sig
en að síðustu verður atkvæða-
greiðsla um heildarniðurstöð-
una. Stjórnmálaskýrendur hafa
fagnað umræðunum og breyt-
ingunum en hafa verið varkárir
í yfirlýsingum sínum. Gagnrýn-
endur segja hins vegar að
ákvæði í stjórnarskránni koma
í veg fyrir að samþykktir þings-
ins breyti nokkru.
Rússar að-
stoða í kjarn-
orkumálum
RÚSSAR munu undirrita
samning við Kínverja í septem-
ber um byggingu kjarnorku-
vers í Liaoning-héraði í Kína,
að sögn Itar-Tass fréttastof-
unnar. Munu Rússar útvega 2
kjamakljúfa og aðstoða við
byggingu versins, sem verður
hið þriðja í Kína. Gert er ráð
fyrir að það taki til starfa í
upphafi næstu aldar.
Clarke ræðst
á Evrópuand-
stæðinga
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Bretlands, Kenneth Clarke,
sakaði þá íhaldsmenn sem
lengst eru til hægri í flokknum
um útlendingahatur og sagði
stefnu þeirra gegn Evrópu
kunna að draga úr möguleik-
um flokksins á endurkjöri.
Aukafjárveit-
ingar til Ira
BÚIST er við að ráðherrar
sjávarútvegsmála í Evrópu-
bandalagsríkjunum muni sam-
þykkja aukafjárveitingu til íra
til að þeir geti aukið eftirlit
með miðunum. Fjárveitingar
til sjávarútvegsmála hafa auk-
ist mjög á undanförnum ámm,
verða líklega 41 milljónir Ecu
1996-2000 en voru 22 milljón-
ir fímm ár þar á undan.
Savimbi vill
í sljórn
JONAS Savimbi, leiðtogi
skæruliðahreyfingar UNITA í
Angóla, sagðist í gær myndu
taka sæti varaforseta landsins,
yrði honum boðið það í nýrri
ríkisstjórn. Samningaviðræður
um stjómina standa nú yfir.
Imdelda að
missa sjón
IMELDA Marcos, fyrrum for-
setafrú á Filippseyjum er með
gláku og kann að að missa
sjónina, fái hún ekki viðeigandi
meðferð í Bandaríkjunum, að
sögn læknis hennar.
ERLEIMT
í
I
Snarpur jarðskjálfti reið yfir vesturhluta Grikklands
Jafnaði hótel
og fjölbýlishús
• X ••• X
viðjorðu
Egion. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti tíu manns fór-
ust, þeirra á meðal tveir franskir
ferðamenn, í öflugum jarðskjálfta,
sem reið jríir vesturhluta Grikklands
í gærmorgun. Hótel og fjöibýiishús
jöfnuðust við jörðu í bænum Egion
og sagði lögregla ljóst að fleiri hefðu
farist, þar sem fjölmargir væru enn
fastir í rústum húsanna.
Jarðskjálftinn, sem mældist 6,1
stig á Richter-kvarða, reið yfir
skömmu eftir miðnætti, aðfaranótt
fimmtudags. „Allt hrundi á fímm
sekúndum," sagði Brian Clavaud,
Frakki sem starfar á hótelinu sem
hrundi til grunna. Um 160 franskir
ferðamenn voru í fastasvefni á hót-
elinu þegar jarðskjálftinn varð og
fórust karl og kona á þrítugsaldri en
tíu ferðamenn voru fastir í rústunum.
Átta manns, þar af þijú böm, sem
bjuggu í fjölbýlisbúsi skammt frá
hótelinu, fórust og tuga manna er
saknað. Fjörutíu íbúðir voru í húsinu.
Fólk sat skjálfandi á náttfötum,
vafið í teppi, við rústirnar en þaðan
bárust hróp þeirra sem enn voru
fastir í húsunum. Jarðýtur voru not-
aðar til að lyfta hlutum úr veggjum
og gólfi til að komast að fólkinu 'en
það verk gekk hægt og óttuðust
menn að fáir þeirra sem enn voru í
rústunum myndu lifa af. 44 slösuð-
ust, sumir alvarlega.
Eleni Seriato, 31 árs, komst lífs
af úr fjölbýlishúsinu ásamt átta ára
syni sínum en ellefu ára sonur henn-
ar og eiginmaður voru enn fastir í
rústunum. „Við reyndum að flýja og
eiginmaður minn var fyrir aftan mig
þegar hluti úr múrhúð féll á hann
og hann komst ekki lengra,“ sagði
Seriato.
Miðja jarðskjálftans var skammt
fyrir norðan Egion og urðu töluverð-
ar skemmdir á svæðinu frá Patras
til hinnar fornu borgar Delfí. Þar
urðu hins vegar ekki slys á mönnum.
Fannst skjálftinn í Aþenu en Egion
er 145 km vestur af höfuðborginni.
Á síðustu mánuðum hefur'fjöldi
jarðskjálfta orðið á Grikklandi. Rúm-
lega 8.000 manns hafast við í tjöldum
eftir að jarðskjálfti, sem mældist 6,6
stig á Richter, reið yfir nærri bænum
Kozani. Þá slösuðust 25 manns.
neuier
GRISKUR slökkviliðsmaður stendur við rústir hótelsins Eliki í
Egion en um 160 ferðamenn, voru í fastasvefni á hótelinu er jarð-
skjálftinn reið yfir. Á neðri myndinni er belgisk kona, Moirehe,
mikið kvalin í rústum hótelsins og bíður þess að vera losuð.
m.
Deilur vegna kvennaráðstefnu
Kínverjar heita
bót og betrun
NÁÐST hefur samkomulag í deil-
um fulltrúa óháðra samtaka og
Sameinuðu þjóðanna við kínversk
stjórnvöld vegna kvennaráðstefn-
anna fy/irhuguðu í Peking í lok
ágúst. Óháðu samtökin, er halda
sinn eigin fund, vilja vera í nánu
sambandi við opinberu ráðstefn-
una og mótmæltu m.a. harðlega
að þeim skyldi ætlað að vera í
Huairou-borg um 45 km frá Pek-
ing.
Irene Santiago, framkvæmda-
stjóri fundar óháðu samtakanna,
hefur skýrt frá því að Kínveijar
heiti því nú að auk ráðstefnusala
í Huariou verði aðstaða fyrir sam-
tökin í Peking, rétt hjá ráðstefnu
Sþ, Engum þátttakanda verði
meinað að koma til landsins og
tryggt verði að allar aðstæður, þ.
á m. gistirými, samgöngur og fjar-
skipti, verði viðunandi.
Búist er við að um 36.000
manns sæki óháðu ráðstefnuna.
Fullyrt var að kínversk stjórnvöld
óttuðust að þátttakendur í henni
myndu efna til mótmæla í Peking
vegna mannréttindabrota í Kína
og væri það ástæðan fyrir staðar-
valinu.
Lestar-
slys við
Hamborg
UM 100 farþegar, flestir
skólabörn, slösuðust í gær
þegar tvær lestir rákust sam-
an í Schneverdingar, 50 km
suður af Hamborg. Tuttugu
farþegar slösuðust alvarlega,
þeirra á meðal annar lestar-
stjóranna, en nota varð klipp-
ur til að ná honum út úr íest-
inni. Slysið varð skömmu fyrir
kl. 10 að staðartíma en þá
hélt annar lesterstjóranna af
stað án þess að bíða eftir því
að hin lestin kæmi inn á lestar-
stöðina, en lestirnar ganga á
sama spori. Þær voru á um
50 km hraða.
Hlóðu for-
ritum á al-
þjóðanetið
ÞÆR þúsundir tölvunotenda um all-
an heim sem hafa nælt sér ólöglega
í forrit gegnum alþjóðanetið mega
fara að vara sig, eftir að lögregla í
Svíþjóð hafði hendur í hári metnaðar-
fullra hugbúnaðarþjófa í vikunni.
Tveir nemendur við Konunglega
tækniháskólann í Stokkhólmi hafa
játað að hafa hlaðið vinsælum for-
ritapökkum, til dæmis Aldus Páge-
maker og Microsoft Word, inn á ál-
þjóðanetið og boðið notendum nets-
ins að taka afrit.
Að sögn blaðsins Financial Times
hafði lögreglan nemendurna undir
eftirliti í þrjár vikur eftir að netnot-
andi í Bandaríkjunum lét háskólann
vita að skólinn hefði verið nefndur
sem uppspretta ókeypis forrita.
Fyrir frægðina
Tekin voru afrit af rúmlega þrjú
þúsund pökkum á tímabilinu, eða um
150 á dag. Tap rétthafa er áætlað
sem nemur um 107 milljónum ís-
lenskra króna.
Lögfræðingurinn Agne Lindberg
starfar fyrir samtök sem beijast
gegn ránum á hugbúnaði, og sagði
að nemendurnir hefðu ekki verið
reknir áfram af hagnaðarvon. „í
þeirra menningu eru það ekki pen-
ingarnir sem skipta máli heldur heið-
urinn. Þeir eru orðnir býsna frægir
fyrir þetta,“ sagði Lindberg.
Agreiningur
innan Shell
Rotterdam. Reuter.
TALSMAÐUR olíufélagsins Sheil í
Hollandi sagði í gær að enn kæmi
til greina að endurskoða þá fyrirætl-
an að sökkva olíuborpalli í hafið.
Talsmaður Shell í Bretlandi var
hins vegar ekki með öllu sammála
og sagði að ekki komi til greina að
hefja samningaviðræður nema því
aðeins að ríkisstjórnin breytti um
stefnu.