Morgunblaðið - 16.06.1995, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hátíðarhöld þjóðhátíðardaginn 17. júní með hefðbundnu sniði í höfuðborginni
Hátíðardag-
skrá fer fram
í miðbænum
HÁTÍÐARDAGSKRÁ þjóðhátíð-
ardagsins í Reykjavík verður með
hefðbundnum hætti fram að há-
degi._ Forseti borgarstjórnar, Guð-
rún Ágústsdóttir, leggur blómsveig
frá Reykvíkingum að leiði Jóns
Sigurðssonar í kirkjugarðinum við
Suðurgötu og hefst athöfnin kl. 10.
Hátíðardagskrá við Austurvöll
hefst kl. 10.40 með ávarpi for-
manns Þjóðhátíðarnefndar, Stein-
unnar V. Óskarsdóttur. Því næst
leggur forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, blómsveig frá íslensku
þjóðinni að minnisvarða Jóns Sig-
urðssonar og Davíð Oddsson for-
sætisráðherra flytur ávarp. Fjall-
konan flytur ávarp sitt, Kvennakór
Reykjavíkur syngur og Lúðrasveit-
in Svanur leikur. Skátar standa
heiðursvörð að venju.
Klukkan 11.15 verður guðsþjón-
usta í Dómkirkjunni. Sr. Guðlaug
Helga Ásgeirsdóttir predikar,
Dómkórinn syngur og Sigrún
Hjálmtýsdóttir syngur einsöng.
Skrúðganga leggur af stað frá
Hlemmi ki. 13.30 og önnur frá
Hagatorgi kl. 13.45. Lúðrasveitir
og skátar fara fyrir göngunum.
Skemmtidagskrá
í miðhænum
Skemmtidagskrá hefst á þremur
leiksviðum í miðbænum kl. 14; á
Ingólfstorgi, í Lækjargötu og í
Hljómskálagarði. Fram koma ýms-
ir skemmtikraftar og listamenn.
Einnig er boðið upp á fjölmörg
skemmtiatriði um allan miðbæinn
sem hátíðargestir geta tekið þátt
í og fylgst með. í Hallargarðinum
og Hljómskálagarðinum eru leik-
tæki og sýningaratriði, árabátar
og kanóar verða á Tjörninni og
Sautjánda júní lestin ekur um Von-
arstræti. Götuleikhúsið fer um há-
tíðarsvæðið, Brúðubíllinn sýnir við
Tjarnarborg, teiknilistaverk verða
í Austurstræti, Fornbílaklúbburinn
verður með sýningu í Vonarstræti
og þannig mætti lengi telja. í
Tjarnarsal Ráðhússins verður kór-
söngur, óperusöngur og fleira.
Uppákomur víðs
vegar um bæinn
Á Kjarvalsstöðum verður opnuð
sýningin íslensk myndlist kl. 14. Á
sama tíma hefst sérstök dagskrá í
Árbæjarsafni, þar sem ljósmyndari
mun taka gamaldags svarthvítar
myndir af þeim gestum sem þess
óska og kynning verður á þjóðbún-
ingum og búningasilfri. Eldri borg-
arar gera sér glaðan dag á Hótel
íslandi milli kl. 14 og 18. í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum í
Laugardal verður ýmislegt til
skemmtunar og dagskráin hefst
kl. 15. Trúðar, tröll og eldgleypar
verða á staðnum, Furðuleikhúsið
verður með sýningu kl. 16 og farið
verður í skrúðgöngu. Þá mun Trítil-
toppur heimsækja barnadeildir
Landakots- og Landspítala.
Kvölddagskrá í miðbænum
Um kvöldið verður skemmtun á
tveimur sviðum í miðbænum. Á
Ingólfstorgi verða gömlu dansarnir
stignir fram eftir kvöldi en rokkið
tekur við um miðnætti. í Lækj-
argötu verða tónleikar vinsælla
hljómsveita. Á báðum stöðum lýkur
dagskrá kl. 2 eftir miðnætti. Stræt-
isvagnar Reykjavíkur verða með
ferðir úr miðbænum að skemmtun
lokinni.
Hafnarfjörður
HAFNFIRÐINGAR hefja hátíðar-
höld kl. 8 þegar skátar draga fána
að húni. Dagskrá hefst í Hellis-
gerði kl. 13 og þaðan fer skrúð-
ganga af stað kl. 13.45. Gengið
verður upp Reykjavíkurveg, inn
Hraunbrún og inn á Víðistaðatún.
Hátíðarsamkoma verður sett á
Víðistaðatúni kl. 15. Hátíðarræðu
flytur Lúðvík Geirsson og íjallkon-
an fiytur ávarp.
Kvöldskemmtun í miðbæ Hafn-
arfjarðar hefst kl. 20.30 og þar
munu koma fram Lúðrasveit Hafn-
arfjarðar, Pez, Stólía, Botnleðja,
Laddi, Bubbleflies og Svala Björg-
vinsdóttir, Radíusbræður og Jet
Black Joe. Á Ráðhústorgi verða
gömlu dansarnir stignir frá kl. 21
við undirleik Guðmundar Stein-
grímssonar og félaga.
Garðabær
HÁTÍÐAHÖLDIN í Garðabæ eru
í umsjá skátafélagsins Vífils. Við
Garðabæjarhöfn verður boðið upp
á útsýnissiglingu og koddaslag
milli 9.30 og 11.30. Fjársjóðsleit
verður við skátaheimilið milli 10
og 12 og á sama tíma verður gróð-
ursetning í Sandahlíð í umsjón
Skógræktarfélags Garðabæjar.
Hátíðarstund verður í Vídalíns-
kirkju kl. 13 og skrúðganga leggur
af stað þaðan kl. 13.30. Sigrún
Gísladóttir forseti bæjarstjómar set-
ur hátíðina við Flataskóla kl. 14.
Fjallkonan flytur ávarp og Lúðra-
sveit Garðabæjar leikur. Ýmiss
skemmtiatriði verða við Flataskóla
og Garðaskóla milli 14.30 og 16.
Kaffihlaðborð Kvenfélags
Garðabæjar verður í Garðalundi
kl. 15 og skemmtun verður í íþrótt-
amiðstöðinni milli 16 og 17. Há-
tíðahöldum dagsins lýkur með di-
skóteki fyrir yngstu kynslóðina
sem haldið verður í Garðalundi kl.
20.30 og stendur það til kl. 22.30.
Selljarnarnes
SKRÚÐGANGA leggur af stað frá
, dælustöðinni við Lindarbraut kl.
13.30. Gengið verður upp Hof-
garða, eftir göngustígum Stranda-
hvei-fís og niður Nesveg að Eiðis-
torgi.
Hátíðin verður sett kl. 14 á Eið-
istorgi. Þar mun Lúðrasveit Sel-
tjarnarness flytja ættjarðarlög og
Ijallkonan flytur ávarp. Selkórinn
mun syngja nokkur lög og leikþátt-
urinn Mókollur á þjóðhátíð verður
fluttur kl. 14.45. Sýndir verða fim-
leikar og Brassbandið kemur fram.
Hátíðinni verður slitið kl. 15.30,
en kl. 22 hefst ball á Eiðistorgi.
Mosfellsbær
SKRÚÐGANGA heldur frá
íþróttahúsinu kl. 14 og setning
hátíðardagskrár verður við útisvið
kl. 14.20. Þar verða fluttar hátíð-
arræður og menningarverðlaun
Mosfellsbæjar verða afhent.
Boðið verður upp á skoðunar-
ferðir um_ Mosfellssveit og fara
rútur frá Álafossvegi kl. 15, 16 og
17. Hátíðardagskrá stendur fram
eftir degi og ýmislegt verður á
döfinni; spákona, tívolí, andlitsmál-
un, reiptog ofl.
Sigrún Hjálmtýsdóttir kemur
fram í Teppasal í Álafosskvos kl.
21 og karaokee-keppni verður á
útisviði. Sniglabandið tekur við kl.
21 og dagskrárlok verða kl. 2.
Hrafnseyri
AÐ venju mun Hrafnseyrarnefnd .
standa fytir hátíðardagskrá á
Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðing-
arstað Jóns Sigurðssonar.
Dagskráin hefst kl. 14 á hátíðar-
messu. Séra Kristinn Jens Sigur-
þórsson sóknarprestur þjónar og
kirkjukór Þingeyrarkirkju syngur.
Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir
og forseti bæjarstjórnar ísafjarðar
mun flytja hátíðarræðu. Að lokum
leika Helga Aðalheiður Jónsdóttir
og Guðmundur Vilhjálmsson á
blokkflautu og píanó.
Þess má geta að safn Jóns Sig-
urðssonar verður opið í sumar frá
17. júní til 1. september frá kl.
14-20. Safnvörður er Guðrún Þor-
geirsdóttir.
Morgunblaðið/Silli
Björgin klofnuðu
HÚSAVÍKURHÖFN afmarkast af
Húsavíkurhöfða að norðan og
Kaldbaksnefi að sunnan og með
sumarkomunni hrundi allnokkuð
fram af Kaldbaksncfi.
Þetta á sér eðlilegar skýringar
því bergið þarna er allsprungið
og ef mikið vatn er í sprungum
þegar frysta tekur að hausti þá
klýfur frostið bergið og afleiðing-
arnar koma í ljós með vorleysing-
unum.
Þegar Húsavíkurkirlga var
byggð notaði steinsmiðurinn Jón
Ármann Árnason þetta lögmál
náttúrunnar við að meitla grjótið
í grunninn. Hann meitlaði rifur í
steinana og fyllti þær síðan með
vatni sem fraus og klauf steininn.
Myndin sýnir nefbrotið.
Bréf Chiracs Frakklandsforseta til Davíðs Oddssonar
Gerð grein fyrir kjarn-
orkutilraunum Frakka
SENDIHERRA Frakklands á ís-
landi, Robert Cantoni, afhenti í gær
Davíð Oddssyni forsætisráðherra
bréf frá Jacques Chirac Frakklands-
forsetá vegna þeirrar ákvörðunar
frönsku ríkisstjórnarinnar að hefja
aftur kjarnorkusprengingar í til-
raunaskyni.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra lýsti yfir því á miðvikudag að
hann harmaði þá ákvörðun frönsku
ríkisstjórnarinnar að hefja aftur
kjarnorkusprengingar í tilrauna-
skyni á Kyrrahafseyjum. Kvaðst
utanríkisráðherra undrast þessa yf-
irlýsingu Chiracs forseta og lýsti
jafnframt yfir því að von sín væri
sú að þessi ákvörðun Frakka myndi
ekki torvelda viðræður í Genf þar
sem stefnt er að því að koma á alls-
heijar banni við slíkum tilrauna-
sprengingum á næsta ári.
Takmarkaðar tilraunir
Sendiherra Frakka á íslandi gekk
í gær á fund forsætisráðherra og
afhenti honum bréf frá FYakklands-
forseta. í því kveðst Chirac forseti
vilja nota tækifærið og útskýra for-
sendur þessarar ákvörðunar sinnar
sem tekin hafi verið að vandlega
yfirlögðu ráði. I fyrsta lagi sé Frökk-
■ um nauðsynlegt að viðhalda fæling-
armætti kjarnorkuheraflans og því
hafi tilraunir þessar verið ákveðnar.
Tilraunirnar verði takmarkaðar.
Þær geri Frökkum hins vegar kleift
að gerast aðilar að samkomulagi
um algjört bann við kjarnorku-
sprengingum í tilraunaskyni á
næsta ári. Kveðst forsetinn vera
sammála því mati forsætisráðherra
að sáttmáli í þá veru sé ein af for-
sendum þess að unnt verði að
stemma stigu við útbreiðslu kjarna-
vopna.
Chirac forseti kveðst þeirrar
hyggju að aðeins með takmörkuðum
tilraunasprengingum verði unnt að
viðhalda trúverðugri fælingu á sama
tíma og unnið verði að því að upp-
fylla skilyrði sáttmála sem kveður
á um bann við kjarnorkusprenging-
um í tilraunaskyni. Þessi niðurstaða
sé í samræmi við hagsmuni Frakka
og stefnu þeirra í málefnum Evrópu.
Samningur verður staðfestur
Forseti Frakklands leggur á það
áherslu að hann sé öldungis ákveð-
inn í að Frakkar gerist aðilar að
samningnum um bann við tilrauna-
sprengingum. Frakkar hyggist einn-
ig beita sér fyrir því að ákvæðum
þessa samnings verði hrint í fram-
kvæmd svo fljótt sem auðið er eftir
mað hann hefur öðlast gildi.
„Forsætisráðherra kær, vinsam-
legast meðtakið bréf þetta sem tákn
um hversu mikilvæg ég tel traust
og vinsamleg samskipti þjóða vorra
vera og veitið viðtöku kærri kveðju
minni,“ segir í lok bréfsins sem
undiritáð er af Chirac.
Jákvæð yfirlýsing
í fréttatilkynningu frá forsætis-
ráðuneytinu segir að Davíð Oddsson
forsætisráðherra hafi lýst fyrir
sendiherra FYakklands áhyggjum
ríkisstjórnar íslands af ákvörðun
FYakklandsstjórnar. Forsætisráð-
herra hafi jafnframt tekið fram að
jákvætt væri að FYakkar hefðu lýst
yfir því að þeir hygðust hætta
kjarnasprengingum á næsta ári og
myndu þá gerast fullgildir aðilar að
samningi um bann við tilrauna-
sprengingum.