Morgunblaðið - 16.06.1995, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 15
AKUREYRI
Með sól í hjarta
* -g ^ • * *
a 17. jum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
SKÁTARNIR voru byrjaðir að koma upp tækjum á flötinni við Samkomuhúsið í gær.
SKÁTARNIR munu sjá um
hátíðarhöldin á Akureyri á
þjóðhátíðardaginn 17. júní,
en hefð hefur skapast fyrir
því að þeir haldi þau á þriggja ára
fresti, en íþróttafélögin á Akureyri
hin árin. „Þetta er svipuð dagskrá
og við höfum verið með hingað til,
segir Ásgeir Hreiðarsson, starfs-
maður Skátafélagsins.
Hátíðin hefst í bítið
Hátíðardagskráin hefst kl. 8 þeg-
ar fánar verða dregnir að húni. Þá
munu Björg Þórhallsdóttir söng-
kona og Daníel Þorsteinsson píanó-
leikari fara í heimsóknir á Fjórð-
ungssjúkrahús Akureyrar og Hlíð,
dvalarheimili aldraðra, og leika fyr-
ir viðstadda. Einnig mun blómabíll
Bílaklúbbs Akureyrar aka um götur
bæjarins og að því loknu verður
opnuð árleg sýning Bílaklúbbsins
við Oddeyrarskóla.
Hornaflokkur Lúðrasveitar Ak-
ureyrar mun hefja samkomu við
styttu Helga magra á Hamarkots-
klöppum kl. 10. Þá tekur við fána-
hylling, Karlakór Akureyrar - Geys-
ir flytur nokkur lög, Séra Birgir
Snæbjörnsson annast helgistund,
Sigfríður Þorsteinsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, flytur ávarp, blóm-
sveigur verður lagður að minnis-
merki lýðveldisafmælisins og loks
munu krakkar frá Hlíðabóli syngja
og sleppa blöðrum upp í loftið.
Hjóla- og kassabílarallí
Að þessu loknu verða keppendur
ræstir í hjólarallíi á fjallahjólum við
lögreglustöðina í Þórunnarstræti.
Keppnisleiðin er fjórir og hálfur
kílómetri að lengd og liggur yfir
malbik, möl, mold og móa. Skráning
byijar kl. 9:45 á klöppunum og
verður keppendum líklega skipt í
tvo flokka, 13-15 ára og 16 ára og
eldri. Allir keppendur VERÐA að
hafa hjálma. Þess má geta að
þarnæstu helgi verður íslands-
keppni á fjallahjólum haldin á Akur-
eyri og þetta ætti að vera ágætis
undirbúningur undir hana.
Staðið verður fyrir kassabílarallíi
í Þverholti og Langholti, sem hefst
kl. 11. Þrír til fimm krakkar verða
í hveiju liði og verður keppt í tveim-
ur aldursflokkum. Einn fullorðinn
ábyrgðarmaður verður að fylgja
hveiju liði. Keppnin er fólgin í því
að ýta kassabíl tvö til þrjú hundruð
metra vegalengd og láta hann síðan
renna niður brekku. Sá vinnur sem
rennur lengst.
Skrúðganga frá Ráðhústorgi
Skátar munu fara fyrir skrúð-
göngu frá Ráðhústorgi, sem hefst
kl. 13.30. Lúðrasveit Akureyrar
mun leika göngulög og marséra
með skrúðgöngunni, en gengið
verður að sviði á flötinni við Sam-
komuhúsið.
Þar hefst hátíðardagskrá kl. 14
á ávarpi fjallkonu, sem verður El-
ísabet Eik Guðmundsdóttir úr M.A.,
og ræðu nýstúdents, Bjarma Guð-
laugssonar úr V.M.A. Þá tekur við
ávarp Jakobs Björnssonar bæjar-
stjóra. Að því loknu verða veitt
verðlaun fyrir hjólarallí og kassa-
bílarallí, þ.e. fyrir bestan árangur
1 öllum aldursflokkum og fyrir
frumlegasta kassabílinn, Vaxtar-
ræktin heldur sýningu í þolfimi,
Ingimar Björn Davíðsson flytur
söng unga sveinsins, Rósmundína
og Albertínó fara með töffarabrögð
og börn frá Fimleikaráði Akureyrar
halda sýningu.
Okeypls í tívolí
Ýmislegt fleira verður í boði á
svæðinu og verður aðgangur ókeyp-
is í alla dagskrárliði sem eru á veg-
um skátanna þennan dag. Má þar
helst nefna tívolíið „Með sól í
hjarta“. Allir sem taka þátt í tívolí-
inu fá sérstakan safnmiða fyrir
punkta, en fyrir þátttöku í hverju
atriði fæst einn punktur. Auk þess
fær viðkomandi smá glaðning ef
hann nær tilsettum árangri í tæk-
inu. Ef lágmarks fjöldi punkta næst
á safnkortið er hægt að skila honum
inn og komast þannig í stóra pott-
inn, þar sem stærri vinningar verða
dregnir út eftir tívolíið.
Auk tívolísins munu skátar, sem
fara síðar í sumar á alheimsmót
skáta til Hollands, sýna tjaldbúð
sína og Hjalti Úrsus Árnason og
Torfi Olafsson verða í hópi afl-
raunamanna sem munu keppa um
nafnbótina aflraunameistari ís-
lands. Þá mun siglingaklúbburinn
Nökkvi bjóða upp á skútusiglingar
frá Höfnersbryggju og hesta-
mannafélagið Léttir sjá um hesta-
ferðir fyrir ungu kynslóðina. Loks
mun hljómsveit leika Týrólatónlist
í veitingatjaldi, sem komið verður
upp á svæðinu.
Dansað fram á nótt
Um kvöldið verður haldin
skemmtidagskrá á Ráðhústorgi sem
hefst kl. 21. Til að byija með koma
fjórir fjörugir fram á Týrólabuxum.
Þá tekur við söngur Bjargar Þor-
hallsdóttur við undirleik Dam'els
Þorsteinssonar, atriði úr Hárinu í
flutningi nemenda úr Gagnfræða-
skóla Akureyrar, fimleikar og þol-
fimisýning. Þá skjóta vandræða-
skátar upp kollinum og bregða á
leik og Zúluman fursti og Hermína
prinsessa sýna töfrabrögð. Loks
leikur Bítlahljómsveitin Sixties á
sviðinu og harmóníkuhljómsveit í
göngugötunni fyrir dansi fram á
nótt. Búist er við að dagskránni
ljúki kl. 2.
Dómur kveð-
inn í hníf-
stungumáli
ÞRÍTUG kona var dæmd í tólf mán-
aða fangelsi, þar af níu mánuði skil-
orðsbundið, í Héraðsdómi Norð-
urlands í gær. Auk þess var hún
dæmd til greiðslu sakarkostnaðar.
Málsatvik voru þau að konan stakk
samstarfskonu sína þrívegis með
hníf eða í vinstri öxl, vinstra hné og
vinstri hönd, eftir að þeim hafði lent
saman. Atvikið átti sér stað á mótum
Eyrarvegar og Norðurgötu á Akur-
eyri í lok nóvember í fyrra.
----........-
Minjasafnið opið
á þjóðhátíðardag
MINJASAFNIÐ á Akureyri, Aðal-
stræti 58, er opið daglega frá 11-17
og gildir það einnig um þjóðhátíðar-
ardaginn.
Sýningar safnsins hafa verið end-
urnýjaðar á síðustu árum og nú í vor
var sýning á íslenskum búningum
og textílum endurbætt.
í safninu stendur yfir sýning á
verðlaunagripum úr minjagripasam-
keppni Handverks og h'ður að næst-
síðustu sýningarhelgi.
Aðgangseyrir að safninu er 250
kr. en frítt er fyrir börn að sextán
ára aldri og eldri borgara.
-----» * ■■■*-
Menntasmiðja
kvenna fær styrk
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur lýst yfir stuðningi sínum við
Menntasmiðju kvenna á Akureyri
sem þróunarverkefni í tvö skólaár,
1995-1996 og 1996-1997. Hvort ár
mun ráðuneytið leggja fram þijár
milljónir króna til verkefnisins að því
tilskildu að félagsmálaráðuneytið og
Akureyrarbær geri slíkt hið sama.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Rennt fyrir fisk
á pollinum
SIGLINGAKLUBBURINN
Nökkvi stendur fyrir árlegu sigl-
inganámskeiði fyrir krakka á
pollinum á Akureyrijim þessar
mundir. Vegna þess hve vinda-
samt hefur verið undanfarna
daga hafa nemendur lítið getað
siglt skútum klúbbsins og því
kynnt sér aðrar liliðar sjó-
mennskunnar. í gær fóru þau í
róður með trillubát út á pollinn
og renndu fyrir fisk.
* >
Kvennahlaup ISI
á sunnudag
SAFNAST verður saman fyrir
kvennahlaup ÍSÍ á Ráðhústorgi
milli klukkan 11 og 12 sunnudaginn
18. júní, en skráning fer fram
klukkan 10.30 og létt upphitun
klukkan 11.45. Leikin verður lifandi
tónlist á staðnum.
Þátttökugjald er 550 krónur og
fær hver þátttakandi bol við skrán-
ingu, en verðlaunapening og Blöndu
eða Frissa fríska frá mjólkursam-
lagi KEA að hlaupi loknu. For-
skráning verður föstudaginn 16.
júní kl. 15-18 fyrir utan Sporthús-
Attaius
binding-laminating
✓ Plasthúðun
- innbinding
✓ Allur vélbúnaður
- og efni
✓ Úrvals vara
- úrvals verö
J. tiSTVRlDSSON HF.
Skipholti 33,105 Reykjavík,
simi 552 3580
ið, við Hrísalund, Hagkaup, Nettó
og í Sunnuhlíð.
Markmiðið með hlaupinu er að
leggja áherslu á þátttöku kvenna í
almenningsíþróttum og hollum lífs-
háttum. I fyrra tóku 1078 konur
þátt í hlaupinu. Það eru engin ald-
urstakmörk og hver og ein velur
sinn hraða í göngu eða skokki. Þá
er hægt að velja um að fara 2,4
eða 4,5 kílómetra. Þær konur sem
eiga ósótta boli frá því í fyrra geta
fengið þá afhenta á Ráðhústorginu
18. júní kl. 10.30 - 12.
Hin geysivinsozla
hljómsveit
heCdur uppi fjörinu
áföstudagskvöCd.
‘JíóteC ‘KEA
- kjarni málsins!