Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
GRÓÐURSETNINGARHÓPUR Skógrækterfélags Selfoss
Selfossi - Á undanförnum níu
árum hafa 132 þúsund plöntur
verið gróðursettar í Hellisskógi
sem er útivistarsvæði Selfossbúa
og skógræktarsvæði Skógræktar-
félags Selfoss. Undanfarin ár hef-
ur félagið staðið fyrir umfangsmik-
illi gróðursetningu á svæðinu með
þátttöku almennings ásamt því að
atvinnuátaksverkefni hafa verið
unnin þar.
Gróðursett
í Hellisskógi
Land Hellisskógar er utan Ölf-
usár og nær frá ánni á móts við
Laugardælaeyjar upp að Ingólfs-
fjalli. Mest hefur verið gróðursett
Morgunblaoið/Sig. Jóns.
í gróðursetningarferð.
í neðri hluta svæðisins en efri hlut-
inn var ræstur í fyrra og verður
girtur í ár og búinn undir gróður-
setningu. Gróður undanfarinna ára
dafnar vel og plöntunum fer víðast
vel fram. Hellisskógur er orðinn
að skemmtilegu svæði fyrir göngu-
fólk og skokk.ara enda stígar um
svæðið í ýmsum krákustígum.
Ýmis örneéii eru á svæðinu sem
tengjast sögu Selfoss og Flóans.
Golfvöllurinn Strönd á Rangárvöllum
Lokið við endur-
bætur fyrir
Landsmót í golfi
Hellu -Landsmót í golfi verður hald-
ið á Strandarvelli á Rangárvöllum
30. júlí til 4. ágúst í sumar, en ný-
lega var lokið við 50 fermetra við-
byggingu við eldri golfskálann. I við-
byggingunni er búnings- og hrein-
lætisaðstaða auk þess sem nýjar inn-
réttingar í eldri skálann og sólpallur
hafa verið smíðuð.
Endurbætumar voru sýndar vel-
vildarmönnum fyrir stuttu, þar sem
Svavar Friðleifsson formaður Golf-
klúbbs Hellu rakti sögu framkvæmd-
anna fyrir gestum og forsvarsmönn-
um Rangárvallahrepps, Hvolhrepps
og Búnaðarbanka Islands sem
styrktu verkefnið. Sagði hann það
kraftaverki líkast hversu vel hefði
gengið að byggja þessa aðstöðu upp,
en klúbburinn sem er áhugamanna-
félag, ætti marga eldhuga að sem
lagt hefðu ómetanlegt vinnuframlag
af mörkum. Formaður byggingar-
nefndar viðbyggingarinnar var Emil
Gíslason en yfirsmiður verksins var
Óskar Pálsson hjá Krappa hf. á
Hvolsvelli.
Að sögn Gunnars Bragasonar
formanns landsmótsnefndar er búist
við allt að 300 keppendum á mótið
en þátttökuréttur er bundinn við
forgjöf þannig að í karlaflokki eiga
rétt til þátttöku kylfingar með allt
að 20 í forgjöf í fjórum flokkum. I
kvennaflokki er forgjöfin allt að 24
í þrem flokkum. „Þetta er í fyrsta
sinn sem keppt er á landsmóti í öllum
flokkum á Strandarvelli og er auðvit-
að stórviðburður í litlu samfélagi að
taka á móti öllu því sem svona stóru
móti fylgir. Það eru aðeins sex 18
holu golfvellir á landinu og í raun
og veru merkilegt hversu vel hefur
gengið að byggja aðstöðuna upp í
svo litlum klúbbi, en félagar eru að-
eins um eitt hundrað. En við njótum
nálægðarinnar við þéttbýlið því mik-
ið af utanaðkomandi golfleikurum
koma hér reglulega til að spila, ges-
takomur voru t.d. skráðar hér í maí
sl. um 1800. Völlurinn er auðveldur
í viðhaldi og er oft fyrstur í gang á
vorin og opinn langt fram á vetur.
Hann lítur mjög vel út í dag, en vinna
við undirbúning er nú í fullum gangi
og allt verður tilbúið þegar stóra
stundin rennur upp.“ sagði Gunnar
Bragason að lokum.
Slysavarna-
menní
heimsókn
FORRÁÐAMENN Slysavarna-
félags íslands voru nýlega í
heimsókn hjá Helgu Bárðardótt-
ur, slysavamardeild kvenna á
Hellissandi. Tækifærið var notað
til að líta út að Gufuskálum til
að líta á mannvirki og aðrar að-
stæður því verið er að kanna
hvort kleift sé að stofnsetja þar
alþjóðlegan björgunarskóla.
Myndin var tekin fyrir utan hús
Slysavarnadeildanna á Heilliss-
andi eftir að gestirnir höfðu þeg-
ið veitingar kvennanna.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
FRÁ golfvellinum á Strönd á RangárvöIIum þar sem endurbætum er nýlokið fyrir landsmót í golfi.
Gefa björg-
unarbúnað
SLYSAVARNARDEILDIR
kvenna á Snæfellsnesi gera nú
stórátak í slysavörnum vegna
barna. Verið er að afhenda sund-
jakka í sundlaugar og sérstök
björgunarvesti ætluð börnum
sem sækja í að veiða við bryggj-
ur. Á myndinni eru þær Þorbjörg
Alexandersdóttir, Hrafnhildur
Óskarsdóttir og Brynja Guð-
mundsdóttir sljórnarkonur og
Helga Bárðardóttir slysavarnar-
deild kvenna á Hellissandi með
sundjakkana og vestin. Með þeim
á myndinni er Hrafnhildur yngri.
Ný sund-
laug vinsæl
Hellu - Ný sundlaug var opnuð í
fyrrasumar á Laugalandi í Holta- og
Landsveit í Rangárvallasýslu. Laugin
nýtist vel ferðamönnum á leið um
Suðurland auk þess sem hún er not-
uð til kennslu á vetrum, en eigendur
hennar eru Ásahreppur auk Holta-
og Landsveitar.
Við laugina eru tveir heitir pottar
og vaðlaug, vatnsrennibraut, gufa
og ljósabekkir. Þess má geta að á
Laugalandi eru prýðisgóð tjaldstæði
auk þess sem nýr íþróttasalur hefur
verið tekinn í notkun. Hægt er að
fá gistingu í herbergjum og svefn-
pokaplássi.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadðttir
BORNIN kunna vel að meta vatnsrennibrautina í sundlauginni.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Foreldrar taka til
Á HREIN SUN ARDEGI á Egils-
stöðum brettu foreldrar í Mið-
garði upp ermar, drifu sig í
hlífðarföt og máluðu leiktæki
á leikvelli barna við Miðgarð.
Foreldrar báru sig vel þrátt
fyrir að vera flestir vanir skrif-
stofu- og innistörfum. Fengu
allir kaffi og vöfflur að íslensk-
um sið að verki loknu.