Morgunblaðið - 16.06.1995, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ1995 2i
LISTIR
MYNPLIST
Hallgrímskirkja
KIRKJULISTAHÁTÍÐ
BARNATEIKNINGAR.
MYNDVEFNAÐUR: ELSE
MARIE JAKOBSEN
Opið frá 10-18 alla daga til 18. júní.
Aðgangur ókeypis.
Sýningarskrá 200 kr.
ÞAÐ HEFUR víst trauðla farið
fram hjá athugulum lesendum blaðs-
ins, að trú og list hafa hermt fólk á
fund sinn í Hallgrímaskirkju. Er öðru
fremur blótað á altari tónlistar, en
einnig er flutt leikverk af píslarsögu
Guðríðar Símonardóttur, spúsu
sálmaskáldsins, og svo hafa verið
hengd upp myndriss barna í anddyri
og göngum.
Það er Myndlistarskólinn í Reykja-
vík sem leggur til myndverkin, en
barnadeildir hafa verið virkur þáttur
í starfsemi hans frá stofnári 1947. Á
síðastliðnu hausti unnu böm og ungl-
ingar í námi að ákveðnu verkefni með
þátttöku í Kirkjulistahátíð 1995 í
huga og var verkefnið englaímyndin.
Skírskotunin var, að vængjaðar tákn-
myndir engla hafa fylgt ímyndinni
um þrá og flug mannsandans um
langan veg. Tákn þess sem ekki er
og aldrei verður, en er engu síður til
staðar. Viðfangsefnið var lagt fyrir
með umflöllun fræðimanna og upp-
lýsti séra Karl Sigurbjömsson börnin
um engla í Biblíunni. Lagði hann út
frá þeirri ímynd og tengdi samtíman-
um. Aðalsteinn Ingólfsson listasögu-
fræðingur fjallaði um myndgerð engla
í meðfömm myndlistarmanna með
vísun til listasögunnar í aldanna rás,
svo og erlenda sem íslenzka lista-
menn, Mugg, Kjarval og fleiri.
Þetta er bakgrunnurinn, og er svo
aðeins eftir að upplýsa, að þetta er
einungis hluti úrlausnanna og munu
þær sem mættu afgangi engu síðri.
Það sem við blasir á veggjum and-
dyrisins, staðfestir kenningar ótal
Myndlistarsýning barna
HLUTI af teppinu „Viva - Viva“.
Tilheyrir listhúsinu í Kristjánssandi.
MYND á kápu sýningarskrár.er
eftir Olöfu Ormsdóttur,14 ára.
fræðimanna á sviði barnateikninga
í þá veru, að hugarflugið er mest
hjá yngri hópunum, en minnkar eftir
því sem ítroðningur skólanna verður
meiri. Jafnvel lesturinn rýrir mynd-
rænt hugarflugið, svo fremi sem
skapandi atriði eru ekki virkjuð í
ferlinu, en það virðist fara minna
fyrir því eftir því sem frá líður og
tækniheimurinn stækkar. Og vel að
merkja, það er ekki unnt að stýra
forvitninni, (skapandi kenndum).
Hún verður að koma af innri þörf,
en þær frumþarfir er mögulegt að
vekja til lífs.
Það kemur því ekki á óvart að
englamyndir 13-15 ára hópsins eru
áberandi staðlaðastar og hann hefur
jafnframt án nokkurs vafa „skilið"
boðskap fræðimannanna best. En
skilningur og innsæii er tvennt ólíkt
og þannig virðist hugsæið bersýni-
lega hafa mætt afgangi. í stað þess
að nálgast verkefnið afslöppuð, og
reyna að skynja það, virðast elstu
börnin hafa rembst eins og ijúpa við
staur við að hlutgera ímynd engils
og skapa honum réttan frásagnarleg-
an búning. Eitthvað í anda þess sem
guðfræðingar nefna, „að hugleiða
dýpri merkingu lífs og listar í ljósi
trúarheimspeki og listfræði", en
gleyma innra eðli og óskilgreindum
mögnum sjálfs sköpunarferlisins. Þá
eru myndirnar merkilega keimlíkar,
en ein sker sig úr sem hefur verið
valin á kápu á sýningaskrár og er
eftir Ólöfu Ólafsdóttur (14 ára).
Hins vegar er hugsæið og sköpun-
arkrafturinn með sanni til staðar í
ábúðarmiklum sjálfsprottnum verk-
um 7 og 8 ára barna, og tók ég eink-
um eftir yndisþokkanum í mynd
Mörtu Maríu Friðriksdóttur og
frekjulegu sposku yfirlætinu í mynd
Mána Guðvarðarsonar. Verk Guð-
mundar K. Gunnarssonar (10 ára)
er mjög athyglisvert í byggingu og
vinnubrögð Rósu Halldórsdóttur (15
ára) bera dijúgum myndrænum
þroska vitni.
Sýningin segir okkur, að mikil-
vægast er að vekja forvitni barn-
anna, virkja athafnaþrána, eitthvað
í Iíkingu við það er slanga er æst
upp af hendi töframannsins.
Else Marie Jacobsen
ÞÓTT rýnirinn hafí nýverið skrifað
um sýningu á verkum norsku lista-
konunnar Else Marie Jacobsen í söl-
um listasafns Akureyrar, er ærið til-
efni til að benda höfuðstaðarbúum á
að verkin eru komin hingað suður
og og eru liður í Kirkjulistahátíðinni
í Hallgrímskirkju
Hér er á ferðinni ein af nafnkennd-
ustu veflistarkonum norsku þjóðar-
innar, sem átti þátt í að brúa bilið
frá fornum veíjum til myndhugsunar
samtímans. Hún telst jafnframt einn
af afkastamestu listamönnum á vett-
vanginum, og mun hafa unnið um
300 teppi af ýmsum stærðum og
gerðum, þó svo að aðferðin sem hún
hefur valið sér sé í senn tímafrek
og ómælt þolinmæðisverk.
Það sem vekur helst athygli á
sýningunni í Hallgrímskirkju er mun-
urinn á rýminu þar og á Akureyri,
sem svo aftur hefur áhrif á sjálf
verkin og hvernig þau komast til
skila til skoðandans. Þótt rýmið á
Akureyri sé enn dálítið frumstætt
þar sem safnið er fjarri því full-
byggt, nutu teppin sín mun betur í
upphengingunni, einkum þau sem
eru rofin og gegnsæ. Einfaldlega
vega þess að þar nutu þau meiri
nálgunar og upphengingin var fjöl-
þættari. Þá er tilbúin lýsingin eitt-
hvað svo annarleg í kirkjunni, en
hins vegar nutu teppin náttúrubirt-
unnar fyrir norðan og litirnir urðu
við það snöggtum hrifmeiri. Hef ég
sjaldan séð meiri mun eða orðið jafn
hissa, því líkast var sem ég gengi inn
á sýningu allt annars listamanns og
var hálf gáttaður í fyrstu.
Hins vegar er því ekki að neita
að einstaka teppi naut sín betur í
kirkjunni og vakti til meiri umhugs-
unar og annarra viðbragða, og eink-
um komu ádeiluteppin mun betur til
skila, en boðskap þeirra hafði ég
minna tekið eftir fyrir norðan, þar
sem ég var meira upptekin af sjálfum
litnum og formrænni hrynjandinni.
Allt um það staðfestir sýningin í
Halgrímskirkju styrk listakonunnar
Elsu Marie Jakobsen, sem að mínu
mati liggur helst í einfaldleikanum,
og mögnuðum heildaráhrifum, en
síður í hinum flóknari og skreyti-
kenndari verkum. Ber að þakka
henni komuna og fróðleiksvirkt sem
hún miðlaði íslenzkum veflistarkon-
um.
Bragi Ásgeirsson
.
lugavegi 170-'l?4, slmi 569 5500
| n il{
i M l 'II f-1- *!(; ||; 1 í || : £ lll »11 , i T
ílk
i«- íhmHR
!I| i* É 'il