Morgunblaðið - 16.06.1995, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SCOTT Sherrin I hlutverki Tyrone, dansar
blöndu af hipphoppi og nútímadansi.
EIN mynda Braga.
Ljósmyndir
Braga
NÚ stendur yfir sýning á ljós-
myndum Braga Þ. Jósefssonar í
verslun Hans Petersen í Austu-
veri, en hún opnaði 3. júní síðast-
liðinn.
A sýningunni eru tólf módel og
tískumyndir. Sýningin stendur út
mánuðinn og er opin á verslunar-
tíma.
-----»-♦-♦--
Söngsveit-
in NA-12 á
Húsavík
Húsavik. Morgunblaðið.
SÖNGSVEITIN NA-12 á Húsavík
hélt tónleika í Samkomuhúsinu á
Húsavík um síðustu helgi og flutti
létt og leikandi lög við hrifningu
áheyrenda.
Söngsveitin hefur sungið fyrir
Þingeyinga í nokkur ár, en nú með
undirleik hljómsveitar og stjórn
Helga Péturssonar.
-----»-■».--
Ljósmynda-
sýning í
Lundi
SIGRÍÐUR Soffía ljósmyndari
opnar sýningu á Polaroid Transfer
ljósmyndum í Keramikgalleríinu
Lundi Varmahlíð, Skagafirði á
sunnudag kl. 17.
Opið er alla daga frá kl. 9-18
og stendur sýningin til 16. júlí.
„Fame“ á
fjalirnar
KVIKMYNDIN og sjónvarps-
þættirnir „Fame“ (Frægð), sem
slógu í gegn árið 1980 hafa nú
ratað á svið í London, þar sem
frumsýndur verður söngleikur,
byggður á myndinni. Tvær vik-
ur eru síðan hann var frum-
sýndur í Plymouth þar sem han
hefur fengið góðar viðtökur,
ekki síst hjá yngra fólki, sem
hingað til hefur ekki verið tíðir
gestir á söngleiki. Breskir
fjölmiðlar segja söngleikinn
einkum höfða til X-kynslóðar-
innar svokölluðu, þeirra sem
voru á aldrinu átta ára til þrí-
tugs þegar myndin sló í gegn.
„Þrá eftir hinu nýliðna," sagði
í The Daily Telegraph um sýn-
inguna.
Aðalsöguhetjurnar í „Fame“
eru nemendur í listaskóla í New
York. Sú ímynd sem Alan Par-
ker skapaði í kvikmynd sinni frá
1980 hefur tekið nokkrum
breytingum og söngleikurinn
nú státar ekki aðeins af af nýj-
um dansatriðum og nýrri tón-
list, heldur hefur einnig verið
hresst upp á söguþráðinn.
Kostnaður við uppsetninguna
nemur um einni milljón punda,
um 100 milljónum ísl. kr. Flest
bendir þó til þess að sú upphæð
muni skila sér að nýju í kass-
ann, því ungt fólk sýnir sýning-
unni mikinn áhuga.
Olafur A. Bjarnason
syngur með Sinfóníu-
hljómsveit Islands
ÓLAFUR Á. Bjarnason
tenórsöngvari og Sin-
fóníuhijómsveit Islands
halda tónleika í Há-
skólabíói, fimmtudag-
inn 22. júní næstkom-
andi kl. 20.
Ólafur sem nú _kem-
ur frá Bologna á Ítalíu
hefur undanfarin fjög-
ur á_r verið fastráðinn
við Óperuhús í Þýska-
landi. Auk þess hefur
hann víða komið fram,
hérlendis sem erlendis.
íslenskir óperuunnend-
ur hafa átt þess kost
að hlýða á hann í óper-
unum La Boheme, Rigoletto og nú
síðast í uppfærslu íslensku óper-
unnar á La Traviata.
Ólafur hefur fengið margar við-
urkenningar fyrir söng
sinn, m.a. veitti Metro-
politan-óperan honum
námsstyrk sumarið
1994, og 1 október sl.
var hann í hópi fimm
tenóra sem komust í
úrslit í alþjóðlegu Jussi
Björling-tenórkeppn-
inni sem fram - fór í
Svíþjóð.
I janúar sl. hélt Ól-
afur einsöngstónleika
í boði Marilyn Horne-
stofnunarinnar í
Stamford í Bandaríkj-
unum.
Hljómsyeitarstjóri
tónleikanna á fimmtudaginn verður
Ítalinn Nicola Rescigno en Ólafur
og hann hafa unnið mikið saman
að undanförnu.
FINNSKU og íslensku listamennirnir sem taka þátt í Órum,
samnorrænu leiklistarverkefni.
*
Orar - Yrsel - Huimaus
FINNSKI leikstjórinn Kaisa
Korhonen, sem sviðsetti sýn-
ingu Þjóðleikhússins á Fávitan-
um eftir Dostojevskí nú í vetur,
og Kári Halldór leikstjóri hafa
í tæp tvö ár unnið að undirbún-
ingi fyrstu samvinnuuppfærslu
finnskra og íslenskra leikara.
Huimaus - Yrsel - Órar er
í senn listrænn viðburður og
rannsókn á listsköpun leikar-
ans, þar sem nokkrir af fremstu
leikurum Finna og Islendinga
leika hver á móti öðrum á sínum
móðurmáli. Leitað hefur verið
vinnubragða þar sem auður
tungumálanna fengi notið sín,
yrði jafnt uppsprettulind sem
og inntak.
Órar er fjölskyldusaga þar
sem ást, völd, stríð, svik og
hefnd ráða ríkjum. Spurningin
er um brot mannsins gegn sjálf-
um sér, gegn náttúrunni og
gegn almættinu, samkvæmt
frétt frá leiksmiðjunni. Þar seg-
ir að sjónleikurinn dragi upp
mynd af veröldinni eins og hún
sé í dag, veröld þar sem ótti og
óróleiki ríki. Frásögnin og per-
sónurnar komi úr vægðarlaus-
um heimi forngrísku harmleikj-
anna, úr einni af undirstöðum
okkar menningar.
Sex íslenskir leikarar taka
þátt í sýningunni, þau Arnar
Jónsson, Tinna Gunnlaugsdótt-
ir, Bára Lyngdal Magnúsdóttir,
Björn Ingi Hilmarsson, Jóna
Guðrún Jónsdóttir og Ingvar
E. Sigurðsson.
Frumsýning verður á stóra
sviði Þjóðleikhússins, fimmtu-
daginn 22. júní kl. 20 og 2. sýn-
ing verður laugardaginn 24.
júni kl. 14. Sýningar í Finnlandi
eru 17. og 18. júní.
Miðasala er í Þjóðleikhúsinu
og í Upplýsingamiðstöð ferða-
mála í Bankastræti.
Aðeins verða þessar tvær sýn-
ingar á íslandi.
RÝMISVERK eftir Krist-
ínu Reynisdóttur.
Er listalíf
á Laugar-
vatni?
Laugarvatn. Morgunblaðið.
Á LAUGARVATNI fara í hönd
listadagar sem heita einu nafni
Gullkistan og hefjast þeir 17. júní
en lýkur 2. júlí. Undirbúningi lista-
daganna er að Ijúka og eru flestir
listamenn vel á veg komnir við
sköpun verka sinna.
140 listamenn væntanlegir
til Laugarvatns
Það má líklega fullyrða að íjöl-
breytnin verði ríkjandi þá daga
sem hátíðin stendur yfir. Til
Laugarvatns, þar sem búa um það
bil 140 manns, koma 139 lista-
menn, tónlistarmenn, leikarar,
myndlistarmenn og skáld. Fjöldi
myndlistarmanna er þegar orðinn
104 og gæti Gullkistan orðið ein
fjölmennasta myndlistarsýning
sem haldin hefur verið á íslandi.
Sýningin er blanda af amatörlist
og „viðurkenndri" list en engin
takmörk voru sett þeim sem vildu
á annað borð sýna list sína. Elsti
listamaðurinn er 84 ára gömul
kona sem nam meðferð lita og
dráttlist hjá Finni Jónssyni og Jó-
hanni Briem en yngstu þátttak-
endurnir eru enn í námi við MHÍ.
Turn breytt í rýmisverk
Til marks um fjölbreytileikann
í myndlistinni hefur hringstiginn
í turni menntaskólahússins breyst
í rýmisverk þar sem á hvert þrep
er skráð eitt orð; á veggjum skól-
anna hanga verk af ólíkum toga
og kona úr sandi liggur skreytt
glingri við Laugarvatnshver;
gamla sundlaug Héraðsskólans er
klædd álpappír og neðan úr loftinu
hanga bláar blöðrur fylltar af
vatni. Það er því óhætt að fullyrða
að listalíf sé á Laugarvatni og
verði þar næstu vikurnar.
------» ♦ ♦------
Barokk í
Dómkirkjunni
TÓNLEIKAR verðá í Dómkirkjunni
dagana fyrir og eftir Jónsmessu. Á
þrennum tónleikum verður leikið á
orgel kirkjunnar, Dómkórinn syngur
á Jónsmessutónleikum og flutt verð-
ur barokktónlist með gömlum hljóð-
færum.
Orgelið í Dómkirkjunni er smíðað
af fyrirtækinu Schuke í Berlín, en
það fyrirtæki hefur komist einna
lengst í því að ná þeim hljómgæðum
sem J.S. Bach óskaði sér fyrir sína
tónlist.
Orgelið í Dómkirkjunni er í ár 10
ára gamalt. Á sumartónleikum Dóm-
kirkjunnar verða þrennir orgeltón-
leikar, á þeim fyrstu leikur Kjartan
Siguijónsson og verða þeir sunnu-
daginn 18. júní kl. 17. Þriðjudags-
kvöld 20. júní kl. 20.30 leikur Mar-
teinn H. Friðriksson og mánudags-
kvöld 26. júní kl. 20.30 Kári Þormar.
Árlegir Jónsmessutónleikar Dóm-
kórsins verða föstudagskvöld 23.
júní kl. 22.
Sunnudaginn 25. júní kl. 17 verða
barokktónleikar þar sem leikið verð-
ur á gömul hljóðfæri.