Morgunblaðið - 16.06.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ1995 25
LISTIR
„Á ALLA VEGU“ , einskismannsland, blek,
vatnslitir og litkrít á pappír 1993.
Birta o g ástleitni
MYNDLIST
Sólon íslandus
MYNDVERK
Myriam Bat-Yosef.
Opið frá 10-18 alla daga
til 25. júní.
Aðgangur ókeypis.
ÍSRAELSKA listakonan Myr-
iam Bat-Yosef, eða María Jósefs-
dóttir eins og hún nefnist einnig,
er vel þekkt á íslandi og er ekki
gott að segja hvað oft hún hefur
sýnt í Reykjavík. Hún hefur haldið
fjölda minni sýninga og jafnframt
sýnt á Listasafni Islands (1963), í
Norræna húsinu (1971) og á Kjarv-
alsstöðum (1985). Þá hefur hún
haldið einkasýningar í Evrópu,
ísrael og Japan og tekið þátt í
samsýningum víða um heim, jafn-
framt því sem hún hefur framið
gjörninga við ýmis tækifæri.
Eins og kunnugt er var Myriam
á tímabili gift Guðmundi Guð-
mundssyni Erró og hefur íslenskt
ríkisfang þótt hún sé búsett í Par-
ís-.og komi hingað einungis sem
gestur. Sýning hennar á Sólon ís-
landus er tileinkuð Guðmundu
Kristinsdóttur, móðursystur Guð-
mundar, sem hann er líkast til
heitinn eftir, en sú mikla sómakona
er nýlátin og var alla tíð traust-
asti stuðningsmaður listakonunnar
á íslandi ekki síður en systursonar
síns.
Það eru 37 myndir á sýningunni
sem allar eru unnar með blandari
tækni á pappír og er í senn mikil
birta í þeim og uphafið rými. Og
eins og svo oft áður er grunntónn
þeirra mjög ástugur, skírskotanir
til innra vitundarlífs og innsæis
margar. Franski bókmenntarýnir-
inn Alain Bosquet gefur afurðum
listakonunnar samheitið „Hið dul-
magnaða leikhús“ og má það til
sanns vegar færa, því að myndverk
hennar jafnt í tvívídd sem rúmtaki
eru hlaðin margvíslegum táknum
og tilvísunum, jafnvel galdrarún-
um, sem lesa má í og vekja jafn-
framt upp ýmsar spurningar. Og
rétt er það að táknin geta verið
torráð og mun frekar andleg en
jarðbundin, en um leið er eins og
þau kristalli þörf gerandans til að
tjá sig með líkama sínum og af-
hjúpa óræðar sem augljósar
kenndir. Og sennilega er samlíking
Bosquet ekki fjari lagi, er hann
segir: „Táknmerking í verki list-
málara er ýmis afar augljós eða
torráðin. Það virðist sem móti fyr-
ir kynfærum, sem segja má að
fari í gegnum rýmið líkast ófyrir-
leitnu stjörnuhrapi.“
Undirtónn einstakra verka lista-
konunnar er þannig mjög ást-
þrunginn, en er frekar gæddur
upphöfnum yndisþokka utan við
tíma og rúm en að hægt sé að
tengja hann nokkurri tegund af
ósiðsemi.
Dregið saman í hnotskurn er
sýningin á svipuðum nótum og
fyrri sýningar nema að nú ríkir
tvívíða formið og þannig undir-
strikar sýningin það sem rýnirinn
hefur séð áður og fjallað endurtek-
ið um.
Eins og áður er dijúgt um súr-
realísk tákn í myndverkunum og
hér er „Ástafar“ (2) gott dæmi um
það, einnig skera myndir eins og
„Losti“ og „Ástarbrími" sig úr fyr-
ir tilfinningafuna, en rýmið, birtan
og upphafningin koma einna best
til skila í myndum eins og t.d.
„Art Deco dans“ (24).
Leiðrétting
Eg tel sjálfsagt að koma hér að
leiðréttingu varðandi sýningunna
New York Nýló, því ekki er um
námsfólk eða skólafélaga að ræða,
heldur munu aðrar ástæður liggja
fyrir því að þetta fólk sýnir saman.
Auk þess sem um meistaragráðu-
nemendur er einnig að ræða sem
lokið hafa námi í listum (hvernig
sem það nú er hægt). Ég kom nú
einmitt daginn eftir til að fá upplýs-
ingar sem ég ekki fann í skránni
þótt ég ég fletti henni vel og lengi,
en þá var lok og læs og var þetta
eini sýningarsalurinn sem ég veit
til að ekki var opinn daginn þann.
Fyrirbyggjandi aðgerðir eru far-
sælastar á öllum sviðum, og þannig
er nær útilokað að slíkt komi fyrir,
fái rýnirinn skilvirkar upplýsingar
upp í hendurnar og komi jafnan
að sýningarsölunum opnum á aug-
lýstum sýningartíma.
Bragi Ásgeirsson
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Nýkomin sending
Fætur okkar eru grunnur að vellíðan okkar,
arav Fítness heilsuskórnir stuðla að
heilbrigðu og óþreyttu baki.
Tágrip sem
örvar
blóSrásina.
llshjSningur
sem hvílir.
Slamur innsóli.
Microcellu sóli, sem dregur úr þreytu,
virkar dempandi.
Ekta korkblanda
(einangrar).
LoftbólstraSur sóli
frá hæl aS tábergi.
Laut fyrir hæl sem
veitir stuSning.
FJOLBREYTT URVAL TEGUNDA
STEINAR WAAGE ^
SKOVERSLUN
SÍMI 18519
jf
Ioppskórinn
1 VELTUSUNDI • SÍMI: 21212
Vemdið fæturna
andið skóvalið
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN ^
SÍMI689212 V
GSM
sendar
hafa nýlega verið
settir upp á eftir-
töldum stöðum:
► Egilsstöðum
► Seyðisfirði
► Langholti í
Hrunamannahreppi
► Hellu
► Hvolsvelli
► Selfossi
► Akranesi
► Borgarnesi
► Skálafelli
► Sandgerði
PÓSTUROG SÍMI