Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ1995 49
STÆRSTA
TJALDIÐ MEÐ
HX
SIMI 553 - 2075
SiGOURNEY WEAVER 6EN KINGSLEY
f=| DAUÐINN OG i
® STÚLKAN
Nýjasta mynd Romans
Polanskis (Bitter Moon,
Frantic) meö Sigourney
Weaver (Working Girl,
Gorillas in the Mist) og
Ben Kingsley (Ghandhi,
Bugsy) í aðalhlut-
verkum.Hún upplifir
martraðir fortíðarinnar
á nýjan leik þegar
óvæntan gest ber að
garði. Er hann
dómarinn og böðullinn
sem hún óttast mest
eða blásaklaust
fórnarlamb?
Sýnd kl. 5, 7, 9
og 11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
HEIMSKUR HEIMSKARI
★ ★★ Á.Þ. Dagsljós'Ank'A: S.V. Mbl.
AND
MEGRYAN X
TIM ROBBIN<_
WÁtttftMATTHA
SNILLINGU
Komdu á HEIMSKUR HEIMSKARI strax.
Þetta er einfaldlega fyndnasta mynd ársins.
Þad væri heimska að bíða.
Þú þarft ekki að vera neinn snillingur til að verða
ástfanginn en það gæti hjálpað til! Meg Ryan
(Slepless in Seattle), Tim Robbins (Shawshank
Redemtion) og Walter Matthau (Grumpy Old
Men) i þessari stórskemmtilegu grinmynd.
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
SÍMI 551 9000
FRUMSÝNING: EITT SINN STRÍÐSMENN
Margverðlaunuð
mynd frá Nýja
Sjálandi sem slegið
hefur öll
aðsóknarmet.
„Dramatísk frásögn í
öruggri leikstjórn og
afburða mögnuð
leiktúlkun."
„FULLT HÚS"
★ ★★★ Ó.H.T. Rás 2.
★★★’/2 S.V. Mbl.
★★★'/2 DV.
Aðalhlutverk: Rena
Owen og
Temuera Morrison.
Sýnd kl. 5, 7, 9
og 11. B. i. 16 ára.
KÚLNAHRÍÐ Á BROADWAY
★★★★★ EH. Morgunpóst.
★ ★*’/* A«, Mbl.
*** HK, DV *** ÓT. Rás 2
Rita Hayworth &
Shawshank-fangelsið
*** S.V. Mbl.
*** Ó.T. Rás2
*** Á.Þ. Dagsljós
***'/, H.K. DV.
**** O.H. Helgarp.
LITLA URVALSDEILDIN
Nýr eígandi og $
þjálfari hjá
Minnesota
Twins
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 9. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 6.50.
Ít> - kjarni málsins!
N-TRANCE er hluti nýrrar bylgju
breskra danssveita, sem flétta sam-
an teknói, jungle, tripphoppi og
poppi og ná þannig til þorra ung-
menna víða um heim, enda dans-
tónlistin æ vinsælli. Dale, annar
leiðtogi sveitarinnar, segir að fjöl-
breytnin í tónlist sveitarinnar hafi
einmitt komið henni á toppinn í
Bretlandi „því það skiptir mestu
máli að hafa grípandi laglínu".
Þriggja ára sveit
Dale stofnaði N-Trance með KO
félaga sínum, en þeir hittust í
háskóla þar sem þeir lögðu stund
á hljómfræði fyrir tæpum þremur
árum. Snemma komust þeir í
kynni við söngkonuna og leikkon-
una Kelly Llorenna, og komust
strax á samning hjá smáútgáfu.
Að sÖgn Dales var sá samningur
hljómsveitinni lítt til framdráttar,
því útgáfan gaf ekkert út og ekk-
ert gerðist fyrr en N-Trance skipti
um útgáfu, en lágið sem kom þeim
á toppinn, Set You Free, kom út
fyrir hálfu öðru ári. Viðtökurnar
voru ekki ýkja góðar; lagið fór í
39. sæti á Bretlandi og féll svo út
í ystu myrkur. Dale segir að vissu-
lega hafi þessar fyrstu viðtökur
verið vonbrigði, „því við vissum
að lagið væri gott. Við vorum þó
ekki af baki dottin, héldum áfram
að semja lög og létum endurhljóð-
blanda það til að halda því lif-
andi.“ Það gekk eftir því smám
saman jók orðsporið eftirspurnina
eftir laginu og áður en varði var
hún orðin það mikil að það var
gefið út aftur, að þessu sinni með
þrettán endurhljóðblöndunum, og
fór nú á toppinn í Bretlandi; komst
í annað sætið á vinsældalista, auk-
inheldur sem það varð vinsælt víða
Danshátíð í Kolaportinu
um heim, þar á meðal hér á landi.
Dale segir að þó sveitin hafi
fengið ýmsa hljóðblendla til liðs
við sig til að endurvinna lagið, sé
hann almennt ekki hrifinn af slíku;
„okkar útgáfa er einfaldlega best“,
segir hann og hlær við, „en það
var meðal annars fyrir ósk útgáf-
unnar að við létum til leiðast. Það
kemur vissulega fyrir að ég heyri1
nýjar og góðar hugmyndir í hljóð-
‘ blöndun annarra, en við skiljum
einfaldlega lögin okkar best og
vitum best hvað hæfir þeim,“ seg-
ir hann ákveðinn.
Breiðskífa í augsýn
í kjölfar vinsælda áðurnefnds
lags hafa margir beðið fýrstu
breiðskífu sveitarinnar með nokk-
urri eftirvæntingu og Dale ségir
að henni sé nánast lokið. „Við
áttum að skila henni í apríl," ség-
ir hann, „en eftir að Set You Free’
varð svona vinsælt var skyndilega
enginn tími tíl að gera neitt. Við
höfum þó tekið upp lag og lag
þegar stund hefur gefist milli
stríða. Set You Free er vitanlega
á plötunni, en það er lélegasta
lagið,“ segir hann og hlær, „það
eru mörg miklu betri.“
Dale segist ekki hafa áhyggjur
af langlífi sveitarinnar, það hafi
tekið hana þijú ár að komast á
toppinn og þeir félagar eigi í fórum
sínum nóg af lögum og hugmynd-
um til að duga lengi enn. „Við
höfum á hraðbergi allar helst
stefnur í danstónlist," segir hann,
„vegna þess að okkur fínnast allar
í kvöld verður í Kolaportinu danshátíð þar
sem fram kemur meðal annarra breska dans-
sveitin N-Trance. Dale, leiðtogí sveitarínnar,
spáir henni langlífi, ekki síst fyrir þá sök
að tónlist sveitarinnar spanni allar stefnur
og strauma danstónlistarinnar.
Jungle
Nýtt afbrigði dans-
tónlistar sem haslað
hefur sér völl í Bret-
landi og sótt í sig veðr-
ið hér á landi er svokall-
að jungle, sem byggist
á hröðu teknói eða ho-
use-tónlist með takt-
slög yfir 150 á mínútu.
Með helstu spámönn-
um í jungle í Bretlandi
er Doc Scott, sem leik-
ur af fingrum fram í
Kolaportinu í kvöld líkt
og N-Trance. Hann hóf
tónlistaðiðju sína í hipphoppi fyrir
sex árum eða svo. Þaðan segist
hann hafa mjakast í átt á „house“
tónlist og með tímanum haslaði
hann sér völl sem plötusnúður, en
plötusnúðar í danstónlistinni gera
meira en bara skipta um plötur;
þeir endurhljóðblanda lög á staðn-
um, flétta saman rytmum og búa
til ný lög eftir því sem andinn blæs
KELLY Llorenna söngkona N-Trance,
gerðir hafa nokkuð til sín máls.
Þannig höfðum við til fleira fólks
og höfum síðan grípandi laglínur
til að halda öllum við efnið. Það
er allt of mikið af sveitum í gangi
sem byggja allt sitt á einum takti
eða taktsyrpu; ef þú hefur ekki
grípandi laglínur, endist enginn til
að hlusta á þig nema nokkrar
mínútur."
þeim í bijóst. Doc Scott, sem hef-
ur haft viðurnefnið frá því hann
byijaði að troða upp, hefur einnig
gefið út tónlist og reyndar gaf
hann út sitt fyrsta lag 1991, þá
all ungur. Hann hefur líka unnið**--'
með öðrum tónlistarmönnum og
er eftirsóttur til þeirrar iðju, þar
á meðal til að endurhljóðblanda lög
og færa þau í nútímalegri búning.
Sjálfur segist hann ekki bara leika
jungle-tónlist. „Ég get leikið hvaða
tónlist sem er og geri það; ég vel
viðeigandi tónlist eftir því hvað er
í gangi á dansgólfínu og hvaða
stemmning er í húsinu. Eg legg
áherslu á að það sé eitthvað í tón-
listina spunnið og ég leik ekki lög
sem eru að mínu mati ódýrar
dægurflugur. Ég hef dálæti á
vandaðri úthugsaðri tónlist og vil
kalla hana framúrstefnu; þetta er
þróun frá hipphoppi í house. Við -
byijuðum á að færa taktinn upp
fyrir 150 slög á mínútu, nú eru
menn farnir að flétta inn í tónlist-
ina jassfrösum og söng, þannig
að ef menn vilja skipa mér í flokk,
þá mega þeir kalla mig framúr-
stefnu neðanj arðarplötusnúð.“
Tónleikarnir kvikmyndaðir
Eins og áður segir leika N-
Trance og Doc Scott í Kolaportinu
í kvöld, en einnig troða upp ís-
lenskir plötusnúðar, þeir Grétar,
Margeir, Robbi rapp og Maggi
legó. Kvikmyndafélag íslands
stendur að tónleikunum og hyggst
kvikmynda þá til að nota í mynd
sem það er að gera í samvinnu
við Heimsendi a/r og frumsýnd
verður í desember.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
standa til miðnættis.