Morgunblaðið - 22.06.1995, Qupperneq 1
80 SÍÐUR B/C/D
Rússneska þingið samþykkir vantrauststillögu á ríkisstjórnina
Tsjernomyrdín sagður
blóraböggull fyrir Jeltsín
Ákvörðun Shell
fagnað í Evrópu
Ovíst hvað
verður um
pallinn
Japanska lögreglan frelsar 365 manns úr haldi flugræningja í Hakodate
Hakodate. Reuter.
JAPANSKA lögreglan réðst í gær-
kvöldi til atlögu gegn flugræningja
sem haldið hafði 365 mamns í gísl-
ingu um borð í flugvél í um 15
klukkustundir. Yfírbugaði lögregla
manninn, sem reyndist vera vopn-
aður skrúfjárni. Að sögn lögreglu
særðist ung kona þegar ræninginn
stakk skrúfj'árninu í bak hennar og
Qórir veikir farþegar voru fluttir á
sjúkrahús. Þá skrámaðist flugræn-
inginn á enni í árás lögreglunnar.
„Okkur létti öllum mjög. Þetta
hefur verið langur dagur,“ sagði
fulltrúi flugfélagsins All Nippon
Airways (ANA). Ekki er vitað hvað
manninum gekk til en í fyrstu var
fullyrt að hann væri áhangandi
sértrúarsafnaðarins Æðsti sann-
leikur. Safnaðarmeðlimir og flug-
ræninginn þvertóku hins vegar fyr-
ir það.
Það var Tomichi Murayama, for-
sætisráðherra Japans, sem fyrir-
skipaði árásina eftir að honum
höfðu borist fregnir um að flug-
stjóri vélarinnar væri greinilega
skelfinu lostinn. Að sögn lögreglu
reyndist erfiðast að ganga úr
Yfirbugaður á
3 mínútum
Reuter
FLUGRÆNINGINN leiddur frá borði eftir að lögregla hafði
yfirbugað hann. Maðurinn skrámaðist á enni í átökunum.
skugga um að maðurinn væri einn
að verki og að hann hefði ekki
komið fyrir sprengiefni um borð í
vélinni, eins og hann hafði fullyrt.
Þegar dagur rann réðust um
fimmtíu lögreglumenn til inngöngu
og yfirbuguðu flugræningjann á
aðeins þremur mínútum.
Virtist veill á geði
Flugræninginn er um fertugt og
kvaðst heita Saburo Kobayashi en
í gærkvöldi var ekki vitað hvort
það væri hans rétta nafn. Þá var
ekki vitað hvers vegna hann rændi
flugvélinni eða hvort hann tengist
einhveijum samtökum.
Farþegunum létti að vonum þeg-
ar þeir losnuðu úr haldi. Lýstu þeir
flugræningjanum sem illmenni, þar
sem hann hefði ekki tekið neitt til-
lit til veikra farþega og barna. Þá
sögðu þeir hann hafa virst eiga við
geðræn vandamál að stríða. Eftir
fimmtán stunda umsátur var flug-
ræninginn uppgefínn og varð lög-
regla að styðja hann frá borði.
■ Flugfreyju ógnað/20
London, Amsterdam, Kaupmannah. Reuter.
ÁKVÖRÐUN Shell-olíufélagsins í
Bretlandi um að hætta við að sökkva
olíubirgðapallinum Brent Spar í sjó
var fagnað víða í Evrópu í gær.
Hyggst danska stjórnin beita sér
fyrir alþjóðalögum um bann við að
farga olíubor- og olíubirgðapöllum
með þeim hætti, sem fyrirhugaður
var, og hefur þýska stjórnin tekið
undir það. Breska stjórnin er hins
vegar ævareið Shell fyrir sinnaskipt-
in. Hefur hún gefíð í skyn að fyrir-
tækið fái ekki að taka pallinn í sund-
ur í Bretlandi. Forstjóri Shell í Bret-
landi bað bresk yfirvöld í gær afsök-
unar á skyndilegri stefnubreytingu
fyrirtækisins.
Svend Auken, umhverfísráðherra
Danmerkur, sagði í gær að þetta
mál sýndi hverju almenningsálitið
og umhverfisverndarsamtök gætu
komið til leiðar. Grænfriðungar
hrósa líka sigri enda eru þessir at-
burðir uppreisn fyrir þá eftir fremur
misjafnt gengi á síðustu árum.
Gramir Shell
Breska stjórnin hefur aftur á
móti brugðist ókvæða við ákvörðun
Shell, sem hún telur vera niðurlægj-
andi fyrir sig og stuðning sinn við
að sökkva pallinum. Forsvarsmenn
Shell hafí haldið því fram að það
væri besti kosturinn að sökkva pall-
inum og því þyrftu þeir að rökstyðja
sitt mál vel áður en þeir fengju leyfi
til að taka hann í sundur við land.
„Ég mun ekki stofna umhverfinu
í landi í neina hættu eða öryggi
breskra verkamanna," sagði Tim
Eggar, orkumálaráðherra Bretlands,
i viðtali við breska útvarpið, BBC, í
gær. Norska stjórnin tilkynnti í gær
að hugsanlega yrði Shell leyft að
geyma pallinn tímabundið í einhverj-
um norskum firði.
Moskvu. Reuter.
GÍSLAMÁLIÐ í Budennovsk hefur nú komið
af stað valdabaráttu í Moskvu. Rússneska þing-
ið samþykkti í gær vantrauststillögu á Viktor
Tsjernomyrdín forsætisráðherra og stjórn hans
og stjórnarandstaðan vinnur að því að steypa
Boris Jeltsín forseta úr stóli.
Vantraustsyfirlýsing neðri deildar þingsins,
sem var samþykkt með 241 atkvæði gegn 72,
er þó ekki bindandi og stjórn Tsjernomyrdíns
stafar ekki bráð hætta af henni. Stjórnin hefur
verið gagnrýnd harkalega fyrir frammistöðu
sína í gíslamálinu og í ræðum þingmanna í gær
kom hvað eftir annað fram að forsætisráðherr-
ann væri blóraböggull fyrir Jeltsín, sem þing-
heimur á erfitt með að gera skráveifu.
Kommúnistar á þingi hafa verið að safna
atkvæðum til að víkja Jeltsín úr embætti og
geta sennilega knúið fram umræður um brott-
vikningu, en tæplega náð þeim tveimur þriðju
hluta þingmanna á sitt band, sem þarf til að
setja forsetann af. Frumkvæði kommúnista
nýtur hins vegar stuðnings jafnt til vinstri sem
hægri.
Þingið brást einnig við í gær með því að leggja
fram frumvörp um að draga úr valdi forsetans
til að skipa ráðherra. Samkvæmt þeim myndi
þingið öðlast vald til að reka ráðherra og skipan
þeirra myndi krefjast staðfestingar á þingi.
Jeltsín hefur þijá mánuði til að bregðast við
vantraustsyfirlýsingunni. Hafni hann henni inn-
an þess tímá getur þingið ítrekað vantraustið
og myndi forsetinn þá neyðast til að reka stjórn-
ina eða leysa upp þing, sem hvort tveggja hefði
í för með sér stjórnarkreppu.
Jeltsín lýsti í gær yfir fullum stuðningi við
Tsjernomyrdín. Sagt er að forsetinn gæti lægt
öldurnar á þingi með því að reka einhvern ráð-
herra sinna, en það gæti vakið óeiningu í hans
eigin röðum.
Á meðan umræður fóru fram á þingi veitti
rússneska stjórnin hernum ákúrur fyrir hótanir
um að ráðast á ný á tsjetsjenska skæruliða og
ijúfa þar með þriggja daga vopnahlé nema árás-
armennirnir, sem tóku gíslana í Budennovsk,
yrðu afhentir rússneskum yfirvöldum.
í yfirlýsingu blaðafulltrúa stjórnarinnar, Vikt-
ors Konnovs, sagði að það væri ekki ástæða til
að hefja vopnaskak að nýju, þótt yfirvöld vildu
hafa hendur í hári Basajevs.
■ Gíslar snúa aftur/20
Hattahaf
HINAR árlegu Ascot-veðreið-
ar eru hafnar í Bretlandi.
Hefðarfólk flykkist á staðinn
til að fylgjast með veðreiðun-
um, sýna sig og sjá aðra og
eru höfuðföt hefðarfólksins
óaðskiljanlegur hluti veðreið-
anna. A myndinni fylgist hóp-
urinn með komu Elísabetar
drottningar á staðinn en hún
er mikil hestakona og keppti
eitt hrossa hennar á Ascot í
gær.
Reuter
Ottast inn-
rás Tyrkja
í Iran
Ankara. The Daily Telegraph. Reuter
AUKIN hætta er talin á því
að Tyrkir ráðist gegn skæru-
liðum Kúrda í íran í kjölfar
árása tyrkneska hersins á
búðir skæruliða í norðurhluta
íraks.
Tansu Ciller, forsætisráð-
herra Tyrklands, sem situr
fund Vestur-Evrópusam-
bandsins í París, sagði í gær
að líta bæri á innrás Tyrkja
í írak sem skilaboð til ná-
grannaríkja Tyrklands. „Við
‘getum ekki þolað að hryðju-
verkamenn laumist inn í land-
ið frá nágrannalöndum og
myrði saklaust fólk.“
Hætt við loftárásir
Ótti manna við innrás
Tyrkja jókst í gær er dagblað-
ið Hurryiet upplýsti að Ciller
hefði veitt leyfí fyrir því að
gerðar yrðu loftárásir á
írönsku borgina Ourumiyah
þann 18. maí sl. Forseti Tyrk-
lands, Suleiman Demirel, fyr-
irskipaði hins vegar að hætt
yrði við aðgerðirnar.