Morgunblaðið - 22.06.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995 9
264 millj. söfnuðust í Samhug í verki
Akvörðun um
ráðstöfun fjárins
á næstu dögum
STJÓRN Samhugar í verki, lands-
söfnunarinnar í þágu Súðvíkinga
og annarra fórnarlamba snjóflóð-
anna í janúar, mun væntanlega
taka ákvörðun um úthlutun eftir-
stöðva söfnunarfjárins fyrir lok
þessarar viku.
264 milljónir króna söfnuðust inn-
anlands og hefur þegar 185,8 millj-
ónum króna af því verið varið úr
sjóðnum til einstaklinga og 2,8 millj-
ónum til samfélagslegra verkefna í
Súðavík, þar á meðal S styrki til
björgunarsveitarinnar á staðnum.
Neyðaraðstoð lokið
Að sögn Jónasar Þórissonar, rit-
ara söfnunarinnar, er litið svo á að
neyðaraðstoð sé lokið og hafa eink-
um þrjár hugmyndir verið til um-
ræðu um ráðstöfun þeirra u.þ.b. 75
milljóna króna sem eftir standa. Þar
á meðal er umsókn sveitarstjórnar-
innar í Súðavík um að féð renni til
að gera lóðir á nýju byggingar-
svæði Súðavíkur byggingarhæfar
þannig að unnt verði að -----------
úthluta þeim endur-
gjaldslaust.
Einnig hafa komið til
umræðu hugmyndir um
að veija fénu til að
stofna sérstakan áfallasjóð til að
mæta hugsanlegum áföllum af líku
tagi í framtíðinni og um að veija
eftirstöðvunum til einstaklinga.
Söfnunarstjórnin hefur verið á
fundum undanfarna daga og er
stefnt að því að ákvarðanir verði
teknar á fundi hennar í dag.
185,8 milljón-
um varið til
einstakiinga
Jónas Þórisson sagði að ekki yrði
nánar upplýst hvernig söfnunarfénu
hefði verið skipt milli þeirra fjöl-
skyldna sem misstu ættingja og
eigur annars vegar og annarra Súð-
víkinga hins vegar. Auk Súðvíkinga
hafa nokkrir einstaklingar sem urðu
fyrir tjóni og missi í snjóflóðum
annars staðar á landinu fengið
framlög af söfnunarfénu.
21,8 milljónir króna eru nú á
reikningi söfnunarinnar, auk 25
milljóna króna framlags frá Færeyj-
um, sem er ætlað sérstaklega til
framkvæmda við leikskóla í þorp-
inu. Þá á sjóðurinn útistandandi
52,9 milljónir króna hjá Súðavíkur-
hreppi vegna láns sem veitt var
vegna bráðabirgðahúsnæðis. Það
lán var veitt með ábyrgð ríkisstjórn-
arinnar og verður endurgreitt fyrir
1. ágúst.
640 þúsund í rekstur
640 þúsund krónur af söfnunar-
fénu hafa runnið til rekstrar Sam-
hugar í verki og hefur
það fé runnið til að
greiða laun starfsmanns.
Allur annar kostnaður,
svo sem ferðakostnaður
........" forsvarsmanna stjórnar-
innar, sem ekki þiggja laun fyrir
störf sín, hefur verið greiddur af
vinnuveitendum þeirra, þ.á m. ríkis-
sjóði, Rauða krossi íslands og
Hjálparstofnun kirkjunnar, sem
einnig hefur borið skrifstofukostnað
að verulegu leyti, að sögn Jónasar
Þórissonar.
FÓLK
Doktor í rekstr-
arhagfræði
• RUNÓLFUR Smári Steinþórs-
son lektor hefur varið doktorsrit-
gerð við rekstarhagfræði- og stjórn-
unardeild Versl-
unarháskólans í
Kaupmannahöfn.
í henni er greint
frá rannsóknum
og fræðilegri út-
tekt á því hvernig
stefnumörkun,
stjórnun og skipu-
lagi atvinnuþróun-
arfélaga í Danmörku er háttað.
Runólfur Smári hefur starfað
sem lektor við viðskipta- og hag-
fræðideild HÍ frá árinu 1993. Eigin-
kona hans er Þórunn Björg Guð-
mundsdóttir og eiga þau þijú böm.
Hlýtur alþjóð-
legan styrk
• STEFANÍU K. Sigfúsdóttur
viðskiptafræðingi og meinatækni
hefur verið veittur alþjóðlegur
styrkur frá sam-
tökum banda-
rískra háskóla-
kvenna, AAUW,
til framhaldsnáms
í Bandaríkjun-
um. Styrkupp-
hæðin er rúmlega
15 þúsund dollarar
og er Stefanía ein
42 kvenna sem hlutu styrk. Hún
lauk prófi í viðskiptafræði af mark-
aðssviði frá Háskóla íslands árið
1992. Hún fer til náms við Johnson
& Wales University í Bandaríkjun-
um í alþjóðaviðskiptum og hótel-
rekstri í haust.
Morgunblaðið/Sverrir
JAKOB H. Magnússon, forseti
Klúbbs matreiðslumeistara og
nýkjörinn formaður samtaka
norrænna matreiðslumeist-
ara, NKF, heldur hér á orð-
unni Cordon Bleu, sem honum
var veitt nýlega á þingi NKF.
Auk Jakobs fékk Bragi Inga-
son eins viðurkenningar.
Njr formaður
Utvarpsráðs
• MENNTAMÁLARÁÐHERRA
hefur skipað Gunnlaug Sævar
Gunnlaugsson, framkvæmda-
stjóra, formann nýkjörins Útvarps-
ráðs og Gissur Pétursson, verkefn-
isstjóra, varaformann. Samkvæmt
útvarpslögum er sjö manna út-
varpsráð kosið hlutfallskosningu á
Alþingi eftir hveijar alþingiskosn-
ingar. Menntamálaráðherra skipar
formann og varaformann úr hópi
hinna kjörnu útvarpsráðsmanna.
Starfsmenn
RÚV á ÓL
• INGÓLFUR Hannesson,
íþróttastjóri Ríkisútvarpsins, mun
starfa fyrir Evrópusamband út-
varps- og sjpnvarpsstöðva, EBU,
á ólympíuleikunum í Atlanta á
næsta ári. Ingólfur mun starfa á
upplýsingaskrifstofu sambandsins.
Gunnlaugur Þór Pálsson, upp-
tökustjóri, mun vinna við tækni-
þjónustu EBU.
Morgunblaðið/Golli
fyrir fólk
ALÞJÓÐLEG hjúkrunarráð-
stefna var sett í Háskólabíói í
gær. Á ráðstefnunni verða fluttir
vel á annað hundrað fyrirlestrar
og koma fyrirlesarar víðs vegar
að úr heiminum.
Guðrún Kristjánsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur og forseti ráð-
stefnunar, segðist vona að ráð-
stefnan verði vettvangur skoð-
anaskipta um hjúkrun, bæði
umönnun og rannsóknir, og að
hjúkrunarfræðingar noti tæki-
færið til að stofna til kynna við
starfssystkini sín heima og heim-
an fræðunum til framdráttar.
Guðrún setti ráðstefnuna að
viðstöddu margmenni en um sex
hundruð manns sækja ráðstefn-
una, þar af 250 erlendis frá.
Hjúkrunaráðstefnan er haldin
á vegum námsbrautar í hjúkrun-
arfræði við Háskóla íslands og
hefur undirbúningur hennar
staðið í 2 ár. Henni lýkur föstu-
daginn 23. júní.
I tengslum við ráðstefnuna eru
haldin þrjú námskeið ætluð
hjúkrunarfræðingum og eru þau
vel sótt að sögn Þorgerðar Ragn-
arsdóttur fréttafulltrúa ráð-
stefnunnar.
-----♦ ♦ ♦-----
Tékkafalsari í
gæsluvarðhald
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær mann í 44 daga
gæsluvarðhald fyrir tékkafals.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknarlögreglu ríkisins hefur
maðurinn ítrekað komið við sögu
slíkra mála áður.
Breytt samninganefnd ríkisins
Indriði og* Þor-
steinn hætta
BREYTINGAR hafa verið gerðar
á skipan samninganefndar ríkis-
ins. Birgir Guðjónsson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, tekur
við formennsku af Þorsteini Geirs-
syni og Gunnar Björnsson, deildar-
stjóri í fjármálaráðuneytinu verður
varaformaður í stað Indriða H.
Þorlákssonar.
Auk Birgis og Gunnars sitja í
nefndinni Arngrímur V. Angan-
týsson, launaskrárritari í fjármála-
ráðuneytinu, Árni Gunnarsson,
aðstoðarmaður félagsmálaráð-
herra, Ásta Lára Leósdóttir,
launaskrárritari í félagsmálaráðu-
neytinu, Grétar Guðmundsson,
launaskrárfulltrúi í fjármálaráðu-
neytinu, Guðmundur H. Guð-
mundsson, launaskrárfulltrúi. í
fjármálaráðuneytinu, Guðríður
Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Rík-
isspítalanna, Haraldur Sverrisson,
deildarstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu, Inga Svava Ingólfsdóttir,
starfsmannastjóri Pósts og síma,
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
deildarstjóri í heilbrigðisráðuneyt-
inu, Óðinn Helgi Jónsson, launa-
skrárfulltrúi í fjármálaráðuneyt-
inu, Ólafur Darri Andrason, deild-
arsérfræðingur í menntamála-
ráðuneytinu, Sigrún V. Ásgeirs-
dóttir, deildarstjóri í fjármálaráðu-
neytinu, Sigurður Helgason, deild-
arstjóri í menntamálaráðuneytinu
og Steingrímur Ari Arason, að-
stoðarmaður fjármálaráðherra.
PARTAR
Kaplahrauni 11, S. 565 3323
Eigum nýja og notaða boddýhluti í japanska & evrópska
bíla. Húdd, bretti, stuðara, grill, hurðir, hlera, skottlok, rúður.
Góðir hlutir — gott verð.
Sumarútsala
Sumarútsalan
er hafin
Póstsendum kostnaðarlaust.
Opið laugardaga kl. 10-16.
Eiðistorgi 13, 2. hæð,
yfir torginu,
cími Z.G.O-'XQ7n
Gsði í
hverjjum
þrsði!
Vönduð ensk ullarteppi
Wilton - Axminster - límbundin
Á heimli - Hótel - Veitingahús - sali
•
Stök teppi og mottur úr ull
Mikil gæði - Gott verð
•
Epoca - dönsku álagsteppin á
stigahús - skrifstofur - verslanir
•
Sérpöntunarþjónusta
Mælum - sníðum - leggjum
TEPPAVERSLUN
FRIÐRIKS BERTELSEN
Fókafeni 9 s. 568 6266
FJÖGUR GOÐ GRAM TILBOÐ
VERULEG VERÐLÆKKUN Á FJÓRUM VINSÆLUM GERÐUM
GRAM KF-263
200 l.kælir +
55 I. frystir.
HxBxD = 146,5 x
55,0 x 60,1 cm.
56.990,- stgr.
GRAM KF-245E
172 I. kælir +
63 I. frystir.
HxBxD = 134,2 x
59,5 x 60,1 cm.
58.990,- stgr.
GRAM KF-355E
275 l.kælir +
63 I. frystir.
HxBxD = 174,2 x
59,5 x 60,1 cm.
74.990,- stgr.
Gefðu gæðunum gaum!
GRAM KF-335E
196 l.kælir +
145 I. frystir.
HxBxD = 1 74,2 x
59,5 x 60,1 cm.
74.990,- stgr.
Gefðu gæðunum gaum!
GÓÐIR SKILMÁLAR
FRÍ HEIMSENDING IIJL
TRAUST ÞJONUSTA hátúni 6A reykjavik sími 5524420