Morgunblaðið - 22.06.1995, Page 23

Morgunblaðið - 22.06.1995, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÖNÍ ’1995 23 LISTIR VERÐ GREINILEGA AÐ KOMA OFTAR HEIM Morgunblaðið/Rúnar Þór PÁLL Jóhaniiesson tenór segir að það sé mun skemmtilegra að syngja fyrir Islendinga en Svía. í kvöld kiukkan 20.30 syng- ur hann ásamt Lenu Tivelind sópran fyrir sveitunga sína á Akureyri og annað kvöld á sama tíma verður hann á Dalvík. Páll Jóhannesson tenór sló í gegn á tónleikum í Hafnarborg á dögun- um. Nú er hann kominn norður yfir heiðar og mun rödd hans óma á Akureyri í kvöld og á Dalvík á morgun. Orri Páll Ormarsson komst að hinu sanna um „týnda tenórinn“. PÁLL Jóhannesson tenór efnir til tónleika í Glerárkirkju á Akureyri í kvöld ásamt sænska mezzósópran- inum Lenu Tivelind og Ólafi Vigni Albertssyni píanóleikara. Á efnis- skránni eru meðal annars söngljóð og óperuaríur eftir Verdi, Saint- Saéns, Bizet, Puccini og Sigvalda Kaldalóns. Hópurinn verður síðan aftur á ferð í safnaðarheimilinu á Dalvík annað kvöld. Páll hefur haft sig lítt í frammi hér á landi síðustu árin, en hann er búsettur í Svíþjóð. Á dögunum vann tenórinn hins vegar hug og hjörtu áheyrenda á tónleikum í Hafnarborg, menningarmiðstöð Hafnarfjarðar; sínum fyrstu í níu ár á höfuðborgarsvæðinu. Meðal áheyrenda í Hafnarborg var Ríkarður Ö. Pálsson, tónlistar- gagnrýnandi Morgunblaðsins og komst hann svo að orði í dómi sín- um um söng Páls: „Strax frá fyrsta tóni í Hamraborginni varð ljóst að hér var mikið fágæti á ferð ... Satt bezt að segja var hin hljómmikla og áreynslulausa tenórrödd Páls af þeirri stærðargráðu, að hlustandinn gleymdi stað og stund, og mun það ein af furðum íslenzks tónlistarlífs, að slíkur maður skuli nánast týnast almennum tónlistarunnendum, enda þótt nokkur kunnug andlit meðal áheyrenda úr innsta hring söngmennta virtufet vita fyrir hveiju þau gengu." Tími til kominn að minna á sig Páll segir að það sé frábært að fá svo góðar viðtökur eftir allan þennan tíma. „Það var tími til kom- inn að minna á sig, en ég hef ekki verið nógu hreyfanlegur upp á síð- kastið. Á þessu átti ég hins vegar ekki von. Eg verð greinilega að koma oftar heim.“ Tenórinn segir að söngáhuginn sé meiri hér á landijgn í Svíþjóð. „Svíarnir eni svolítið lokaðir. Það er því miklu skemmtilegra að syngja fyrir íslendinga; þeir sleppa sér meira.“ Hann vonast til að geta efnt fljótlega aftur til tónleika á höfuðborgarsvæðinu og lítur Sin- fóníuhljómsveit íslands hýru auga í því samhengi. Páll óx úr grasi á jörðinni Stíflu, sem nú tilheyrir Akureyri. Ungur hóf hann upp raust sína en lauk engu að síð.ur námi í búfræði og lagði stund á nám í skipasmíði áður en hann sneri sér alfarið að söngn- um. Fyrsti lærimeistari Páls var Sigurður Demetz Franzson, en meðal annarra söngvara sem nutu leiðsagnar hans á þeim árum var Kristján Jóhannsson. Síðan lá leið Páls í Söngskólann í Reykjavík, þar sem Magnús Jónsson tók hann upp á sína arma, og loks í framhaldsnám til Piacenza og Mílanó á Ítalíu. Árið 1989 settist tenórinn að í Svíþjóð. Fyrsta árið starfaði hann í Gautaborg en fór síðan á flakk með flokki listamanna sem sýndi óperettuna Vínarblóð eftir Johann Strauss víðsvegar um landið. Frá árinu 1991 hefur Páll verið fastráð- inn við Konunglegu óperuna í Stokkhólmi. Nú er tenórinn hins vegar farinn að ókyrrast í Svíþjóð og hefur hug á að mjaka sér sunnar. Meginland Evrópu er draumastaðurinn og þessa dagana íhugar hann nokkur tilboð sem honum hafa borist frá óperuhúsum á þeim slóðum. „Ég hef ekki gert upp hug minn, en maður verður að hugsa um fram- ann. Maður er náttúrulega mun nær öllum möguleikum ef maður fer þarna niður eftir. Það er auðvitað gott að vera fastráðinn, en ég gæti alveg eins hugsað mér að fara í lausamennsku um tíma.“ Kominn á toppinn Páll hefur stóra og mikla tenór- rödd, sem krefst gríðarlegrar tækni. „Það er erfitt að finna allar hliðarn- ar á svona stóru „hljóðfæri" og það tekur mann því tíma að læra virki- lega á að tengja það við tilfinning- arnar. Ég held hins vegar að ég sé á toppnum núna og ég ætti að geta haldið mér þar töluvert lengi þar sem ég hef yfir ágætri tækni að ráða,“ segir hann. Páll er metnaðargjarn og setur markið hátt. Vitanlega á hann sér draumahlutverk. „Eg gæti vel hugsað mér að spreyta mig á Óþelló, en mín rödd ætti að henta vei í því hlutverki. Maður verður að hafa mikla leik- og sönghæfi- leika til að geta túlkað Öþelló; rödd- in verður að vera jafnvíg á reiði, sorg og blíðu.“ Páll á vafalítið mörg góð ár eftir í heimi sönglistarinnar. Óperu- söngvarar fara hins vegar tiltölu- lega snemma á eftirlaun og bónda- sonurinn neitar því ekki að rætum- ar togi í sig. „Þegar ég hætti að syngja gæti ég vel hugsað mér að fá mér litla jörð og hokra á henni.“ „Mitt augci leit tvo annarlega skugga“ Tónlistarhátíð 1 Borgarleikhúsinu HALDIN verður tónlistarhátíð á litla sviði Borgarleikhússins í til- efni þess að í ár eru 150 ár liðin frá fæðingu Gabriels Fauré og 100 ár frá fæðingu Pauls Hindemith. Flutt verða ýmis verk þessara tón- skálda, bæði þekkt sem og lítt þekkt, er sýna á þeim hinar marg- víslegustu hliðar. í dag hefst hátíðin á því að flutt verða einleiks- og kammerverk. Þar koma fram þau Þórunn Guð- mundsdóttir, sópran, Daníel Þor- steinsson, píanóleikari, Sigurður Halldórsson, sellóleikari, gítarleik- ararnir Hinrik Bjarnason, Páll Eyjólfsson og Rúnar Þórisson og Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðlu- leikari og Kristinn Örn Kristins- son, píanóleikari. Sönglög eftir Fauré Aðrir tónleikar verða sunnudag- inn 25. júní og þar flytja þeir Jón Þorsteinsson, tenór, og Gerrit Schuill, píanóleikari, sönglög eftir Fauré. Einnig verður fluttur síðari píanókonsert Faurés af þeim Sig- urlaugu Eðvaldsdóttur, fiðluleik- ara, Bryndísi Pálsdóttur, fiðluleik- ara, Guðmundi Kristmundssyni, víóluleikara, Sigurði Halldórssyni, sellóleikara og Daníel Þorsteins- syni, píanóleikara. Lokatónleikar Lokatónleikar hátíðarinnar verða svo þriðjudaginn 27. júní, helgaðir verkum eftir Hindemith. Flytjendur þá verða Marta G. Halldórsdóttir, sópran, Gísli Magnússon, píanóleikari, Anna Sigríður Helgadóttir, mezzósópr- an, Camerarctica-hópurinn og Venzlatríóið. Allir tónleikarnir hefjast kl. 21 og aðgangseyrir er 1.000 krónur. Hægt er að kaupa miða á alla tónleikana á 2.200 krónur. Verð fyrir nemendur er 500 krónur. MATVINNSLUVEL fjölhæf og sterk. KENWOOD HRÆRIVEL kraftmikil og hljóölát. mmmmzm HEKLA Söluaðilar: REYKJAVÍK OG NÁGRENNI: Hagkaup Skeifunni, Hagkaup Kringlunni, Heimilistæki Sætúni 8, Raftækjaverslunin Glóey Ármúla, Húsasmiðjan Skútuvogi, Húsasmiðjan Helluhrauni, Rafmætti Miöbæ, Stapafell Keflavík, VESTURLAND: Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi, Ratþjónusta Sigurdórs Akranesi, VESTFIROIR: Straumur Isafiröi, NORÐURLAND: Kaupfélag V.-Húnvetninga Hvammstanga, Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi, Verslunin Hegri Sauðárkróki, Kaupfélag Eyfiröinga Akureyri, Radiónaust Geislagötu Akureyri, Radíóvinnustofan Mýrarvegi Akureyri, Rafland Sunnuhlíð Akureyri, Metró Akureyri, Öryggi Husavik, Kaupfélag Þingeyinga, AUSTURLAND: Kaupfélaa Héraösbua Eqilsstöðum, Húsgagnaverslun J.A.G. Höfn, SUÐURLAND: Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, Mosfeli Hellu, Kaupfélag Árnesinga Seltossi, Brimnes Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.