Morgunblaðið - 22.06.1995, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Svar brunamálaslj óra við
umfjöllun fjölmiðla um
embættisfærslur hans
UNDIRRITAÐUR kysi helst, að
komast hjá að taka þátt í því fjöl-
miðlafári, sem ríkt hefur undanfar-
ið um Brunamálastofnun og störf
hans sem brunamálastjóra. Umræð-
an er hins vegar komin út á slíkar
brautir rangfærslna og ósanninda,
að bæði varðar hag brunamála í
landinu svo og æru undirritaðs sem
embættismanns. Undirritaður hefði
kosið, að fjölmiðlaumræðan hefði
snúist um aðalatriði niðurstöðu
skýrslu Ríkisendurskoðunar, þ.e.
lög og reglugerðir um brunamál og
Brunamálastofnun, og stöðu
Brunamálaskólans, ‘samræmi eða
ósamræmi á milli laga og reglu-
gerða, hvað þyrfti að skýra og
hveiju þýrfti að breyta. Slík um-
ræða hefði getað skýrt fyrir mönn-
um um hvað væri deilt, og leitt af
sér jákvæða þróun á sviði bruna-
máia. í stað þess hefur umræðan
beinst að deilu stjórnarformanns og
stjórnar við undirritaðann, og hefur
sú deila verið persónugerð og sú
ályktun dregin að þar sem öll stjóm
Brunamálastofnunar og skólanefnd
Brunamálaskólans hafi sagt af sér,
hljóti eitthvað mikið að vera að
embættisfærslum brunamálastjóra.
I umræðunni hefur verið horft
fram hjá þeim þætti, sem að mati
undirritaðs hefur vegið hvað þyngst
í þessari deilu en það eru óskýr og
fáorð lagaákvæði annars vegar og
ósamræmi milli laga og reglugerðar
hins vegar, sem hefur haft í för
með sér mismunandi skilning
stjórnar og brunamálastjóra á verk-
sviði, hlutverki og valdi hvors aðila
fyrir sig. Að mati undirritaðs hefur
stjórn Brunamálastofnunar í seinni
tíð litið á sig líkt og um eigenda-
stjórn væri að ræða en ekki eftirlits-
stjórn með einni af stofnunum
stjómsýslunnar. Slíkt fyrirkomulag
hlýtur að kalla á árekstra, með hlið-
sjón af ákvarðanatöku og ábyrgð.
Þannig hefur undirritaður staðið
frammi fyrir því að
hafa fengið fyrirmæli
formanns og stjórnar
um aðgerðir, sem haft
hafa í för með sér um-
talsverð íjáríitlát án
þess að tilskilin heimild
fjármálavaldsins hafi
legið fyrir. I slíkum til-
vikum hefur undirrit-
aður bent á skort á
heimildum og forsend-
um aðgerða en verið í
því samhengi sakaður
um skort á samstarfs-
vilja, jafnvel þótt undir-
ritaður hafi ekki lagst
gegn fyrirmælum og
umbeðnum fram-
kvæmdum.
Undirrituðum er kunnugt um að
ekki voru allir stjórnarmeðlimir
stjórnar Brunamálastofnunar sam-
mála þessum skilningi stjórnarinnar
á hlutverki sínu. Þá kom það einnig
fram í bókun við afsögn stjórnar
að ekki lágu sömu sjónarmið að
baki afsagnar allrar stjórnarmanna.
A það skal bent að einn stjórnar-
maðurinn lét bóka að hann hefði
haft gott samstarf við alla aðila,
þar á meðal brunamálastjóra.
Hlutverk stjórnar
Brunamálastofnunar
Spyija má hvort eðlilegt sé að
eftirlits- og reglugerðarstofnanir
eigi að hafa yfir sér stjörnir, og
hvert verksvið stjómanna eigi að
vera. Hvort ekki sé nægjanlegt að
ráðherra og Ríkisendurskoðun komi
þar að. Sé hins vegar talið eðlilegt
að slíkar stofnanir hafi eftirlits-
stjórnir, hveijir eigi þá að sitja í
slíkum stjómum. Er til dæmis eðli-
legt að kosningastjórar flokkanna,
sem geta haft óeðlileg tök á ráð-
herrum sínum, sitji þar, svo og full-
trúar þeirra sem stofnanirnar eiga
að hafa eftirlit með? Býður slíkt
Bergsteinn
Gizurarson
um land allt
Þingmenn Þjóðvaka verða á ferð um landið,
heimsækja vinnustaði og halda fundi á
eftirtöldum stöðum nú í junímánuði:
22. júní: Suöurlniul
Þorlákshöfn, Eyrarbakki, Stokkseyi’i, Selfoss, Hella,
I Ivolsvöllur, I Iveragerði.
Opinn þingflokksfuiHlur í Hótel Ljósbrá. I iveragerði kl. 20:30.
23. og 24. júní: Veslfiröir
Isafjörður, I liiífsdalur, Bolungarvík, Súöavík, Þingevri.
Opinn þingflokksfundur á I lótel Isafirði kl. 16:00.
28. júní: Noröurlaml
Akureyri, Dalvík, Olafsfjörður, Laugar í Reykjadal.
Opinn |)ingliokksfundur á Lauguni kl. 20:30.
29. júní - 1. jiilí: Auslurlund
Egilsstaðir, Reyðarfjörður, Eskifjörður, Neskaupstaður,
Seyðisfjörður.
Opinn þingflokksfundur í golfskálanum Ekkjufelli 30. júní
kl. 20:30.
Þeir sem óska eliir viðtali við þiiiginenn Þjóðvaka á viðkonumdi
stiiðum lial'i vinsainlegast samband við Katrínu Theodórsdóttur í
síma 563 0736 eða bílasíma 892 7637.
r* //trr/ltt% jólksins
ekki upp á hagsmuna-
árekstra og átök milli
stjómar og stofnunar?
Sé hins vegar sá skiln-
ingur hafður á málum
að vald slíkra stjórna
sé hið sama og hjá eig-
endastjórnum, og að
slíkar stjórnir taki fag-
legar ákvarðanir, fylg-
ist með öllum dagleg-
um rekstri og taki
ábyrgð á einstaka að-
gerðum, má spyija
hvort ekki verði að
gera sömu hæfniskröf-
ur til stjórnarmanna
sem og embættis-
manna, um menntun
og starfsreynslu á sviðinu.
Það er mat undirritaðs að hinn
síðast taldi skilningur, þ.e. hlutverk
og va|d líkt og í eigendastjórnum
hafí aldrei verið skilningur hinnar
íslensku stjómsýslu, og að formað-
ur Stjórnar Brunamálastofnunar
hafi af reynsluleysi af störfum inn-
an stjórnsýslu ríkisgeirans viljað
túlka hlutverk og vald sitt með fyrr-
greindum hætti. Þá hafi sumir
nefndarmanna fylgt formanninum
í þessum skilningi.
Landssamband
slökkviliðsmanna
Margrét Björnsdóttir, þjóðfélags-
fræðingur, skrifaði grein í Morgun-
blaðið þann 20. apríl sl. þar sem
hún fjallaði um ómótaðar stefnur
stjórnmálaflokkanna á einstökum
sviðum og áhrif þrýstihópa á stefn-
ur þeirra. Benti hún á, að ákvarð-
anataka á einstaka sviðum eins og
heilsu-, fræðslu- og menningarsviði
væri farin að snúast um hagsmuni
einstakra stétta, sem þar ynnu
fremur en hag hins almenna borg-
ara. Vildi hún kenna um stefnulegu
tómi innan flokkanna og skipulögðu
starfi þrýstihópa, sem röðuðu sér á
flokkana, hagsmunum sínum til
framdráttar.
Landssamband slökkviliðsmanna
er nú orðið stéttarfélag og sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem for-
maður þess, Guðmundur Vignir
Óskarsson, gefur er helmingur
slökkviliðsmanna á landinu, sem
alls eru u.þ.b. 1.600 manns, í
Landssambandinu. í þessum 800
manna hópi eru u.þ.b. 210 atvinnu-
menn. Þar með taldir eru slökkvi-
liðsmenn Keflavíkurflugvallar og
Reykjavíkurflugvallar, sem munu
vera um 100 talsins, en þeir heyra
ekki undir lögin um brunavarnir og
brunamál. Að minnsta kosti helm-
ingur slökkviliðsmanna mun ekki
vera í Landssambandinu. Mikill
munur er á stöðu almennra slökkvil-
iðsmanna annars vegar og atvinnu-
BRIDS
Urnsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Félags eldri
borgara Kópavogi
SPILAÐUR var tvímenningur
föstudaginn 9. júní. 14 pör mættu
og urðu úrslit þessi:
Eysteinn Einarsson - Baldur Ásgeirsson 186
Fróði Pálsson — Karl Adolfsson 178
Ingiríður Jónsdóttir—Bragi Salmómonsson 177
Július Ingibergsson - Jósef Sigurðsson 177
Meðalskor 156
Spilaður var tvímenningur þriðju-
daginn 13. júní. 22 pör mættu, tveir
riðlar A-B. Úrslit í A-riðli:
Bergsveinn BreiðQörð - Stígur Herlufsen 189
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 187
Bergur Þorvaldsson - Þórarinn Ámason 179
Þórhildur Magnúsdóttir - Sigurður Pálsson 176
Meðalskor 165
manna hins vegar. Þarfir þessara
hópa eru mismunandi. í starfi sínu
hefur undirritaður viljað styðja báða
hópana á faglegum grunni en ekki
hagsmunalegum. Landssamband
slökkviliðsmanna hefur átt fulltrúa
í stjórn Brunamálastofnunar en
ekki sá hópur sem utan þess stend-
ur. Undirritaður hefur ekki talið það
fara saman, að vera fulltrúi ákveð-
ins hóps í stjóm stofnunar, þess
hins sama hóps og stofnunin á að
hafa eftirlit með. Þáð er hins vegar
ekki á hans valdi á kveða á um
slíkt. Skoðun undirritaðs er að sá
háttur bjóði upp á hagsmuna-
árekstra. Sem dæmi um sllkan
hagsmunaárekstur má benda á að
sumir meðlimir Landssambandsins
eru eldvarnareftirlitsmenn sem í
starfi sínu setja fram kröfur um
slökkvibúnað, en um leið selur
Brunamálin sjálf eru í
góðu lagi, segir Berg-
steinn Gizurarson,
sem hér svarar gagn-
rýni á störf brunamála-
stjóra.
Landssambandið slíkan búnað, fé-
lagi sínu til fjáröflunar. Sjái formað-
ur Landssambandsins ekkert at-
hugavert við slíkt sem formaður,
er ekki við því búið að hann geri
það sem meðlimur stjórnar. Erfitt
hlýtur að vera fyrir eftirlitsaðila að
koma að málum við slíkar aðstæð-
ur. Að mati undirritaðs létu tveir
fyrirrennarar hans af störfum, í
kjölfar árekstra sem meðal annars
mátti rekja til áhrifa frá einstökum
fulltrúum Landssambandsins. Á
þetta hefur ekki verið minnst í hinni
opinberu umræðu. í umræðu síð-
astliðinna vikna hefur formaður
Landssambandsins hins vegar, sak-
að undirritaðan um að stunda eigin-
hagsmunagæslu í starfi, án þess
að færa fýrir því rök. Spyrja má
hvað fyrir honum vaki með slíku
athæfi. Undirritaður hefur almennt
átt gott samband við slökkviliðs-
menn í landinu, en telur það ekki
vera í sínum verkahring að gæta
stéttarhagsmuna einstakra hópa
slökkviliðsmanna.
Umræða á Alþingi
Undirrituðum þótti miður er
hann heyrði í ijölmiðlum haft eftir
þingmönnum, gagnrýni á embættis-
færslur hans, þar sem hann sætti
persónulegum ásökunum. Það er
þó skoðun undirritaðs, að sá mál-
flutningur, sem átti sér stað í utan-
dagskrárumræðu þingsins og
kynntur var í hádegisfréttum Ríkis-
útvarps þann 15. júní sl., hafi verið
byggður á röngum upplýsingum til
þeirra þingmanna er til máls tóku.
Draga verður þá ályktun að upplýs-
ingar þessar hljóti að vera komnar
frá einhveijum fyrrum stjórnarmeð-
limum Brunamálastofnunar og að
þingmenn hefðu ekki stigið í ræðu-
stól vitandi að um rangar upplýs-
ingar væri að ræða. Að mati undir-
ritaðs er það skiljanlegt að alþingis-
B-riðill:
Hannes Adolfsson - Einar Eilíasson 134
Sveinn Sæmundsson — Þórhallur Árnason 130
Valdimar Pálsson - Hörður Davíðsson 123
Helga Guðbrandsdóttir - Ásbjöm Magnússon 112
Meðalskor 108
Sveit Magnúsar bikarmeistara
Bikarkeppni Norðurlanda í sveita-
keppni er lokið. Sveit Magnúsar Magn-
ússonar, Bridsfélagi Akureyrar, mætti
sveit Stefáns G. Stefánssonar, Brids-
félagi Akureyrar, í skemmtilegum úr-
slitaleik síðastliðinn laugardag og
sigraði sveit Magnúsar nokkuð örugg-
lega með 46 impa mun 118-72. í sig-
ursveitinni spiluðu auk Magnúsar
Anton Haraldsson, Grettir Frímanns-
son, Hörður Blöndal, Pétur Guðjóns-
son og Stefán Ragnarsson.
Þar með iauk síðasta mótinu á
starfsárinu, en bridsáhugamenn eru
minntir á sumarbrids í Hamrinum,
félagsheimili Iþróttafélagsins Þórs, kl.
19.30 á þriðjudögurm.
menn, sem ekki hafa haft aðstöðu
til að kynna sér málið í heild, haldi
að það hljóti að vera eitthvað meira
á ferðinni en þeir hafi vitneskju um
eftir hin stóru orð, sem fallið hafa
í garð undirritaðs, og afsögn stjórn-
ar Brunamálastofnunar og skóla-
nefndar. Undirritaður spyr sig hvað
fyrir þeim vakir, sem kemur röng-
um upplýsingum á framfæri við
alþingismenn.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar
Undirritaður vill upplýsa að hann
óskaði sjálfur eftir úttekt Ríkisend-
urskoðunar haustið 1994, um valds-
svið sitt og ábyrgð annars vegar
og stjórnar Brunamálastofnunar
hins vegar, í tengslum við fyrir-
mæli um þær fjárhagsskuldbinding-
ar sem áður er getið. Um síðustu
áramót óskaði þáverandi ráðherra
jafnframt eftir úttekt Rikisendur-
skoðunar í kjölfar bréfs frá stjórn
Brunamálastofnunar. Niðurstaða
Ríkisendurskoðunar liggur nú fyrir.
Engar athugasemdir koma þar
fram sem réttlæta stór orð stjórnar-
formanns og fulltrúa Landssam-
bands slökkviliðsmanna í stjórninni
í garð brunamálastjóra. í skýrslu
Ríkisendurskoðunar segir hins veg-
ar á bls. 4: „Að mati Ríkisendur-
skoðunar er ástæða deilna um
Brunamálaskólann m.a. tilkomin
vegna ósamræmis í lögum um
Brunamálastofnun ríkisins og
reglugerð um Brunamálaskólann,
sem gerir hlutverk og verksvið
þeirra aðila sem tengjast skólanum
óljós.“ Um framkvæmd stjórnar
Brunamálastofnunar segir jafn-
framt á bls. 13: „Stjórnin hefur
falið skólanefnd verkefni sem til-
heyra ekki verksviði hennar“ og
með því sé stjórnin að fara út fyrir
þau lög og reglugerðir sem hepni
er gert að starfa eftir. Loks telur
Ríkisendurskoðun með tilliti mennt-
unar og mögulegra hagsmunaá-
rekstra: „æskilegt að skipan manna
í skólanefnd verði endurmetin."
Undirritaður telur að í hinni opin-
berru umræðu hefði verið eðlilegast
að tengja afsagnir stjórnar Bruna-
málastofnunar og skólanefndar við
þessa niðurstöðu Ríkisendurskoð-
unar en ekki embætti brunamála-
stjóra, enda kom það fram í bréfi
ráðherra til stjórnar Brunamála-
stofnunar að hann teldi, að ekki
yrði annað ráðið af skýrslunni en
að stjórn Brunamálastofnunar hafi
getað framfylgt lagalegri skyldu
sinni við eftirlit með fjárreiðum
stofnunarinnar.
Lokaorð
Undirritaður vill að lokum benda
á að á síðustu árum hefur verið
unnið mikið og gott starf af starfs-
mönnum Brunamálastofnunar í
samvinnu við fjölda aðila um land
allt. Starf þetta hefur skilað góðum
árangri, m.a. í mun lægri bruna-
tjónum hér á landi heldur en í ná-
grannalöndum okkar. Að mati und-
irritaðs eru því brunamálin sjálf í
góðu lagi þrátt fyrir að í seinni tíð
hafi verið reynt að blanda öðrum
sjónarmiðum og hagsmunum inn í
þennan málaflokk.
Höfundur er brunamálastjóri.
Sumarbrids
Sunnudaginn 11. júní var spilað-
ur howell tvímenningur á fjórum
borðum í sumarbrids. Efstir urðu
Björn Theodórsson - Sigurður B. Þorsteinsson 116
Einar Sveinbjömsson - Jón Stefánsson 93
Gestur Pálsson - Guðmundur Sigurbjömsson 84
Mánudaginn 12. júní-var spilaður
mitchell tvímenningur á níu borðum.
Efstu pör urðu þessi:
N-S-riðill:
Jón Stefánsson - Guðlaugur Sveinsson 274
Guðlaugur Nielsen - Óskar Karlsson 222
Ingimundur Guðmundsson - Friðrik Egilsson 219
A—V-riðill:
ÓIi B. Gunnarsson - Valdimar Elíasson 257
Egill Darri Brynjólfsson - Snorri Karlsson 248
Baldur Bjartmarsson - Halldór Þorvaldsson 230
Næstu tvo sunnudaga, þ.e. 18. og
25. júní færist spilatíminn til kl. 19.
Þriðjudaginn 20 júní verður spilaður
barometer með tölvugefnum spilum í
sumarbrids, Þönglabakka 1, 3. hæð.