Morgunblaðið - 22.06.1995, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ1995 37
Þingflokkur Þjóðvaka
í fundaferð um landið
ÞINGFLOKKUR Þjóðvaka verður
nú í júní á ferð um Suðurland,
Austurland, Vestfirði og Norður-
land.
Þingmenn Þjóðvaka munu
heimsækja vinnustaði í þessum
kjördæmum, halda fundi og ræða
við kjósendur. Síðar í sumar og
haust verða önnur kjördæmi heim-
sótt. Ferðaáætlun er sem hér seg-
ir: 22. júní Suðurland: Þorláks-
höfn, Eyrarbakki, Stokkseyri, Sel-
foss, Hella, Hvolsvöllur, Hvera-
gerði. Opinn þingflokksfundur
verður haldinn um kvöldið kl.
20.30 í Hótel Ljósbrá í Hveragerði.
22.-24. júní. Vestfirðir: ísa-
fjörður, Hnífsdalur, Bolungarvík,
Súðavík, Þingeyri. Opinn þing-
flokksfundur verður haldinn á
laugardaginn kl. 16 á Hótel
ísafirði.
28. júní. Norðurland: Akureyri,
Dalvík, Ólafsfjörður, Laugar í
Reykjadal. Opinn þingflokksfund-
ur verður haldinn á miðvikudags-
kvöldið á Laugum kl. 20.30.
29. júní-1. júlí. Austurland:
Egilsstaðir, Reyðarfjörður, Eski-
fjörður, Neskaupstaður, Seyðis-
íjörður. Opinn þingflokksfundur
verður haldinn í Golfskálanum
Ekkjufelli föstudagskvöld 30. júní
kl. 20.30.
m \ B-
lilií
F ím TlJ:
SVEINN Björnsson, fyrrverandi forstjóri SVR, en hann átti
hugmyndina að gjöfinni, Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR og
Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri við „fræðsluvagninn" sem
SVR gaf Landgræðslunni.
Kennslu-
stofa
á hjólum
SVR færði Landgræðslu ríkisins
nýlega að gjöf strætisvagn af gerð-
inni Volvo B-59, árgerð 1973.
Gjöfinni er ætlað að vera framlag
SVR til umhverfismála.
Hjá Landgræðslu ríkisins hafa
menn í hyggju að nota vagninn í
fræðslustarfi á Suður- og Suðvest-
urlandi. Með slíkri kennslustofu á
hjólum skapast bætt aðstaða til
að kynna starfsemi Landgræðsl-
unnar unglingum og vekja áhuga
þeirra og tilfinningu fyrir mikil-
vægi þess að græða landið.
WtÆkWÞAUGL YSINGAR
Barngóð kona
eða amma óskast til að gæta og sinna árs
gömlum dreng í Kópavogi hálfan daginn,
a.m.k. til að byrja með.
Upplýsingar hjá Sólveigu í síma 564 4442
eftir hádegi.
Sandvíkurskóli,
Selfossi
Kennara vantar
í nokkrar stöður í almennri kennslu
í 1. til 6. bekk.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 482 1320,
aðstoðarskólastjóra í síma 482 1714
og í síma skólans, 482 1500.
Skólastjóri.
Sölufulltrúi
Sölufulltrúi óskast til starfa við útgáfufyrir-
tæki. Fyrirtækið selur sérhæfða vöru til fyrir-
tækja og einstaklinga í rekstri.
Sölufulltrúi þarf að hafa góða framkomu,
geta unnið sjálfstætt og hafa bíl til umráða.
Árangurstengd laun sem gefa mjög góða
tekjumöguleika.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir Birgir
í síma 568 9938.
Kllltlllflll ErtBISgSBBÍia liIimnfeB ll P SptlfltBEKBEnnil 11 iifsiímmm Bflmfj fiiimimii
Frá Háskóla íslands
Starf deildarstjóra hjá Alþjóðaskrifstofu há-
skólastigsins er laust til umsóknar.
Um er að ræða verkefnabundna ráðningu í
fullt starf sem hugsanlega gæti orðið fram-
hald á. Starfið felst m.a. í umsjón með ýms-
um þáttum er tengjast Sókrates-áætluninni
um samstarf við ríki ESB í menntamálum.
Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið
sjálfsætt að mörgum verkefnum í einu. Kraf-
ist er háskólamenntunar og góðrar tungu-
málakunnáttu. Tölvukunnátta er nauðsynleg.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst. Laun skv. kjarasamningi Félags há-
skólakennara og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til 30. júní nk. og skal
umsóknum ásamt meðmælum skilað til
starfsmannasviðs Háskóla íslands, aðal-
byggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Sölustarf
Kona eða karl, á aldrinum 30-45 ára, getur
fengið sölustarf í virtri húsgagnaverslun.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „Vön að selja - 16167.“
Flökun á kola
Maður, vanur flökun á kola, óskast til starfa
fram á haust.
Vinna við annað kemur til greina eftir þann
tíma. Flúsnæði fyrir hendi.
Upplýsingar gefur Jakob í síma 456 2220.
Trostan ehf.,
Bíldudal.
Sumartími hjá Lánasjóði
íslenskra námsmanna
26. júní - 4. september
Vegna sumarleyfa starfsmanna LÍN verða
viðtalstímar ráðgjafa frá 26. júní til 4. sept-
ember sem hér segir:
Miðvikudaga: Enskumælandi lönd.
Fimmtudaga: ísland.
Föstudaga: Önnur lönd.
Viðtölin standa yfir frá kl. 11.00 til 15.00;
engin viðtöl mánudaga og þriðjudaga.
Símatími ráðgjafa er frá kl. 9.15 til 12.00
aHa virka daga.
Afgreiðsla LIN á Laugavegi 77 verður opin
í sumar eins og venjulega alla virka daga frá
kl. 9.15 til 15.00; skiptiborðið verður opið frá
kl. 9.15 til 12.00 og frá kl. 13.00 til 16.00.
Símanúmer sjóðsins er 560 40 00 og grænt
númer er 800 66 65. Bréfasími er 560 40 90.
Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur
1995-’96 fást í afgreiðslu LÍN, hjá náms-
mannasamtökunum, lánshæfum skólum inn-
anlands, útibúum banka og sparisjóða og í
sendiráðum íslands. Auk þess er hægt að
nálgast úthlutunarreglurnar á internetinu,
slóðin er http://www.itn.is/lin/.
Umsóknarfrestur vegna láns á haustmisseri
1995 er til 1. ágúst nk., en æskilegt er að
umsóknum sé skilað sem fyrst.
Búast má við að einhverjar tafir verði á þjón-
ustu sjóðsins vegna sumarleyfa starfsmanna
og eru menn hvattir til að hafa samband
utan sumarleyfistíma ef þess er kostur.
Auk þess má hafa samband við námsmanna-
samtökin (Bandalag íslenskra sérskólanema,
Iðnnemasamband íslands, Samband ís-
lenskra námsmanna erlendis og Stúdentaráð
Háskóla íslands) sem einnig veita upplýs-
ingar um námslán.
Munið að upplýsingar um LÍN er að finna
á internetinu: http://www.itn.is/lin/.
Starfsmenn LIN.
Verslunarhúsnæði
við Laugaveg
Óska eftir að taka á leigu 70-120 fm verslun-
arhúsnæði við Laugaveginn.
Tilboð sendist afgreiðslu Mbl. sem fyrst,
merkt: „Leiga - 15817“.
Viljum selja lítið keyrða GEHL-sýningarvél
fyrir aðeins kr. 1.750.000 með vsk.
G.Á. Pétursson hf
Nútíðinni, Faxafeni 14,
sími 568 55 80.
Uppboð
Að kröfu tollstjórans á Selfossi fer fram opinbert uppboð á ótollaf-
greiddum vörum i vörugeymslu Eimskips hf., Gagnheiði 28, Sel-
fossi, fimmtudaginn 29. júní 1995 kl. 15.00.
Selt verður m.a.: Oldsmobile Wag. árgerð 1984, ýmsir varahlutir,
gírfeiti, smurtúpur, perlusteinsduft, svinastiugrindur, bækurog ýmis-
legt fleira.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
21. júní 1995.
auglýsingar
FÉLAGSLÍf
l/>
Hallveigarstíg 1 • sími 614330
Kvöldferð föstud. 23. júní
Kl. 20.00 Jónsmessunætur-
ganga: Marardalur-Hengill.
Verð kr. 1.200/1.300.
Dagsferð laugard. 24. júní
Kl. 9.00 Ingólfsfjall.
Fjallasyrpa 2. áfangi.
Dagsferð sunnud. 25. júní
Kl. 10.30 Krísuvík-Herdísarvík.
Gengin gömul póstleið.
Brottför frá BS(, bensínsölu,
miðar við rútu. Einnig uppl. í
Textavarpi bls. 616.
Helgarferðir 23.-25. júní
1. Básar í Þórsmörk.
2. Jónsmessunæturganga yfir
Fimmvörðuháls.
3. Fimmvörðuháls.
Fullbókað er í ferðina.
Miðar óskast sóttir í helgarferð-
irnar.
Upplýsingar og miðasala á skrif-
stofu Útivistar.
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Völvufell
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Lofgjörðarsamkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Ath.: Útsala í Flóamarkaðsbúð-
inni, Garðastræti 6, í dag og á
morgun kl. 13-18.