Morgunblaðið - 22.06.1995, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
SG Einingahús hf.
Eyrarvegi 37, Selfossi
fyrir íslenskar aðstæður.
Húsin frá SG eru bæði traust og hlý.
sími 482 2277 fax 482 2833
VelduSG.
Siiluskrilslnfa í Rcykjavík 588 11 40
Vaskhugi kann símanúmer
Ný útgáfa af forritinu vinsæla er komin út.
Margar-nýjungar eru í forritinu, m.a.
★ Breytir sjálfvirkt símanúmerum í ný.
★ Betri uppgjör fyrir sjóövélar.
★ Reiknar út neytendalán.
★ Launabókhaldið er enn betra.
★ Aðgangsorðakerfi fyrir 20 notendur.
★ Minnisbók og dagatal.
★ Ótal smábreytingar gera Vaskhuga aðgengilegri
en nokkru sinni fyrr.
Veldu Vaskhuga, það borgar sig fljótt.
Vaskhugi hf.
Skeifunni 7, sími 568 2680
Auglýsing
Líflegt Kolaport um helgina
Löng helgi hjá Kolaportinu:
Krakkadagar og
kompudagar
Kolaportið efnir til sérstakra kompudaga um hclgina og býður
þá seljendum notaðra muna sérstakan afslátt af básaverði.
Efnt hefur verið til sérstakra
kompudaga nokkrum sinnum á
undanfömum mánuðum og hafa
þeir jafnan tekist vel.
Fjöldi seljenda með notaða muni
hefur farið í allt að tvö hundruð
um helgi og sannkölluð hátíð hef-
ur verið hjá þeim gestum sem
kunna vel að meta slíkan vaming.
Þá er einnig nýjung hjá Kolaport-
inu að hafa markaðstorgið opið
fimmtudag og föstudag, og lofar
sú tilraun góðu. Auk fjölmargra
fastra seljenda verða „aukadagar-
nir“ þessa viku sérstaklega til-
einkaðir ungum seljendum, en
börn og unglingar fá þá sölubása
ókeypis til að bjóða hvers konar
varning eða þjónustu. Búist er við
mikilli þátttöku barnaog unglinga
og óhætt er að fullyrða að líf og
fjör verði í Kolaportinu þennan
fimmtudaga og föstudag.
Kolaportið er opið fimmtudag og
föstudag kl. 12-18, laugardag kl.
10-16 og sunnudag kl. 11-17.
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Verslanir opnar
17. júní
MIG langar að lýsa bæði
undrun . og hneykslun
minni yfír því að verslanir
séu opnar 17. júní. Þetta
er þjóðhátíðardagur ís-
lendinga og mér fínnst
þetta jafnast á við að versl-
anir væru opnar á okkar
aðalhátíðisdögum, svo sem
á jólum eða páskum. Hing-
að til hafa margar raddir
heyrst sem hvetja til þess
að hafa opnunartíma versl-
ana fijálsan, en minna hef-
ur heyrst frá þeim sem
vilja ekki að allir dagar séu
jafnir.
Guðlaug
Pottablóm tekin
HÚSMÓÐIR á Kleppsvegi
hringdi og sagði frá því
að á kvennadaginn hefðu
tvær konur komið að fjöl-
býlishúsi sem hún býr í og
sennilega hringt á efstu
bjöllu hússins til þess að
komast inn óséðar. Þær
höfðu síðan á brott með
sér tvö pottablóm. Einn
íbúi hússins sá til þeirra á
götunni þar sem þær óku
brott á rauðum bíl. Heldur
er það lágkúrulegt að
skreyta heimili sín með
stolnum blómum.
Tapað/fundið
Casio - barnaúr
SVART úr með bláum
tölustöfum og bláum mín-
útuvísi tapaðist. Finnandi
vinsamlegast hafi sam-
band í síma 568-0689.
Hálsmen fannst
GUÐRÚN sem týndi
hálsmeni með stjörnumerki
hafi samband í síma
568-0689.
Hringur tapaðist
LITILL gullhringur með
tveimur safírum tapaðist
frá Súlnasal Sögu eða í
leigubíl aðfaranótt 13. maí
sl. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 551-0647.
Fundarlaun.
Peningaveski
tapaðist
SVART peningaveski tap-
aðist, annaðhvort í Leið 2
eða í miðbæ Reykjavíkur
sl. þriðjudag. Á veskinu
stendur New Sport og það
er með frönskum rennilás.
Finnandi vinsamlegast
hringi í Bryndísi eða Odd
í síma 588-1143.
Pæjumót í Eyjum
ELLEFU ára reykvísk
stúlka sem var á fótbolta-
móti stúlkna í Vestmanna-
eyjum týndi lítilli sjálfvirkri
myndavél þar 11. júní sl.
Finnandi vinsamlegast skili
myndavélinni til lögreglu
eða til íþróttafélagsins
Þórs í Eyjum eða hafi sam-
band í síma 588-7318.
Köttur týndist
KÖTTUR, gulrauðbrönd-
óttur, tapaðist frá Vestur-
bergi 189 sl. sunnudag.
Hann er með hálsól með
tveimur bjöllum og er
eymamerktur. Hafi ein-
hver orðið hans var vin-
samlegast hringið í síma
557-5812 eða 557-6122
eða Kattholt.
Páfagaukur gefins
GRÆNN páfagaukur fæst
gefíns. Uppl. í síma
554-4904 frá kl. 20-22
næstu kvöld.
HÖGNIHREKKVÍSI
Hvítur lék síðast 22. Rb5-
c7?
22. - h3!l 23. Rxa8 -
hxg2+ 24. Kxg2 — Hxh2+!
(Fórnar hinum hróknum
líka fyrir óstöðvandi
sókn) 25. Kxh2 -
Df2+ 26. Khl - Rh5!
27. Hgl - Rg3+ 28.
Hxg3 - fxg3 29. Bfl
— Dxc2 30. Hcl — Dh2
mát.
Hjalti Rúnar sem
hafði svart í skákinni
fer í byrjun júlí á Evr-
ópumeistaramót bama
og unglinga í Verdun í
Frakklandi. Auk hans
fara þau Bragi Þorf-
innsson, Guðjón Heiðar
SVARTURáleik Valgarðsson, Harpa Ing-
Staðan kom upp á Skák- ólfsdóttir og Ingibjörg Edda
þingi Reykjavíkur í janúar. Birgisdóttir á mótið. Farar-
Ólafur G. Jónsson (1.640) stjóri er Bragi Kristjánsson,
var með hvítt, en Hjalti skólastjóri Skákskólans.
Rúnar Ómarsson (1.565), Æfmgar standa nú sem
hafði svart og átti leik. hæst.
SKAK
Umsjón Margeir
l'étursson
Yíkverji skrifar...
SVO SANNARLEGA setja hvítir
kollar nýstúdentanna skemmti-
legan svip á þjóðhátíðardaginn í
Reykjavík og reyndar annars stað-
ar. Einhvern veginn hefur þetta þó
breyst í áranna rás og stúdentarnir
víða horfíð í fjöldann. Kannski er
það vegna þess að stöðugt fleiri
skótar útskrifa stúdenta og einnig
eru stúdentar nú útskrifaðir að
minnsta kosti þrisvar sinnum á ári.
í minni bæjum er þessu trúlega
öðru vísi farið en í Reykjavík og á
Akureyri er enn haldíð í gamlar
hefðir í þessu sambandi og hvítu
kollarnir setja mikinn svip á hátíða-
höldin 17. júní í höfuðborg Norður-
lands.
Á miðnætti þjóðhátíðardagsins
marseruðu stúdentarnir niður
göngugötuna og nokkra hringi á
Ráðhústorginu. Fjöldi fólks beið
komu þeirra og fagnaði með þeim.
Reyndar var fjölmennt í skólabæn-
um Akureyri um síðustu helgi og
afmælisárgangar frá MA minntust
áranna i skólanum með því að hitt-
ast í góðra vina hópi. Þó skrifari
eigi ekki rætur í merku starfi
Menntaskólans á Akureyri gat hann
ekki annað en hrifist með þennan
dag.
xxx
IFERÐINNI um Norðurland um
helgina koma það skrifara mjög
á óvart hve tún voru víða orðin
græn og grösug í Eyjafirði. Bóndi
sem Víkverji spjallaði við sagði að
mörg tún hefðu komið svona undan
snjónum loksins þegar hlánaði.
Helsta vandamálið væri bleytan í
túnunum, en ekki að þau væru illa
sprottin eða kalin. Skafla mátti þó
enn víða sjá í hlíðum rétt fyrir ofan
byggð þannig að veturinn minnir
enn á sig þó komið sé undir Jóns-
messu.
xxx
Kunningi Víkveija - í höfuð-
borginni - hafði orð á því
fyrir nokkru hve seinir túlipanarnir
væru í garðinum hjá honum. Hann
sagðist ekkert skilja í þessu þar sem
þeir væru fyrir löngu farnir að
blómstra hjá nágrönnunum. í byij-
un vikunnar hvíslaði kona kunningj-
ans því að skrifará að skýring væri
komin á þessu með túlipanarra.
Kunninginn hafði sum sé snúið þeim
öfugt er hann setti þá niður í mold-
ina. Það er mörg búmanns raunin,
en þetta ku vera grundavallaratr-
iði. Næsta vor gengur vonandi bet-
ur hjá manninum.
XXX
YÍKVERJI á oft leið út á nátt-
úruperlu Seltirninga, Suður-
nesið, þar sem kylfingar slá kúlur
sínar í nábýli við ótrúlega fjöl-
breytt fuglalífið í kringum Bakka-
tjörnina. Svanahjón hafa tekið sér
bústað í tjarnarhólmanum, sem
gerður var af mannavöldum fyrir
fáeinum árum, og hafa nú komið
upp tveimur ungum en þeir voru
þrír í fyrra.
Á þessum slóðum mun líka vera
stærsta kríubyggð á höfuðborgar-
svæðinu, með alls um 900 pör og
flest á tiltölulega afmörkuðu svæði
norður og austur af Bakkatjörninni
og allt upp undir ystu húsin í
byggðinni við Nesbalann vestan-
verðan. Krían setur óneitanlega
mikinn svip á allt líf á þessum slóð-
um, ekki bara fuglalífið því mann-
fólkið verður líka að taka tilit til
hennar.
Svæðið sem blasir við augum frá
læknasafninu í Nesstofu er því ör-
ugglega einstakt. Nokkuð mun hins
vegar hafa vafíst fyrir heimamönn-
um að ákveða hvort aðalakvegurinn
að læknasafninu eigi að liggja að
því að sunnanverðu eða frá norðan-
verðu nesinu. Nú heyrist að það sé
að nást sátt um að vegurinn liggi
úr norðri að safninu, og er það gleði-
efni. Sú leið mun valda mun minna
raski á náttúrunni heldur en vegur
úr suðri, sem gæti valdið tjóni á
þessari fugla- og náttúruparadís
sem æ fleiri útivistarunnendur höf-
uðborgarsvæðisins leita í jafnt að
sumri sem vetri.