Morgunblaðið - 08.07.1995, Side 1
64 SIÐUR LESBOK C/D
152. TBL. 83.ÁRG.
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Spillingar-
dómur á Italíu
De Mich-
elis fékk
fjögur ár
Róm. Reuter.
GIANNI de Michelis, fyrrver-
andi utanríkisráðherra Ítalíu,
var dæmdur í fjögurra ára
fangelsi í
gær vegna
spillingar. De
Michelis var
mjög áber-
andi í emb-
ætti, ekki síst
vegna hár-
prýði, um-
fangsmikils vaxtarlags og
áhuga á diskódansi.
De Michelis, sem var ráð-
herra sósíalista 1990 til 1992,
var dæmdur ásamt Carlo
Bemini, fyrrum samgönguráð-
herra Kristilega demókrata-
flokksins sáluga, fyrir að fal-
bjóða stuðning sinn við lagn-
ingu hraðbrautar í héraðinu
Veneto í norðausturhluta ítal-
íu. Bernini var dæmdur í
þriggja og hálfs árs fangelsi.
Sakaður um
mútuþægni
De Michelis var sakaður um
að bijóta lög um fjármögnun
á starfsemi stjórnmálaflokka
og þiggja 840 milljónir líra
(um 30 milljónir ÍSK) í mútur.
Hann vísar þessum ásökun-
um á bug. Þess er vænst að
hann muni áfrýja og á meðan
mun hann ekki þurfa að gista
fangageymslur.
Spillingarmálum linnir ekki
á Ítalíu. Fyrr í vikunni vom
fýrirskipuð réttarhöld í máli
helstu tískufrömuða landsins,
þeirra á meðal Giorgios Ar-
manis, og á þriðjudag var
frestað fram í september
ákvörðun um það hvort Silvio
Berlusconi, fyrrverandi for-
seta, verði stefnt vegna spill-
ingar í kringum íjölmiðlafyr-
irtæki sitt, Fininvest.
Reuter
Skotið á þyrlu
Bildts í Bosníu
Króatar hyggjast
tryggja birgðaleið
til Sarajevo
Sarajevo, Zagreb. Reuter.
BOSNÍU-Serbar skutu sprengjum
að þyrlu Carls Bildts, sáttasemjara
Evrópusambandsins í Bosníu,
skömmu áður en henni var flogið
frá flugvelii smábæjar skammt frá
Sarajevo í gær. Króatar lýstu því
yfir í gær að umsátrinu um
Sarajevo yrði aflétt á næstu tveim-
ur til þremur mánuðum og þá yrði
hægt að tryggja birgðaleið inn í
borgina.
Bildt sakaði ekki í árásinni og
hélt hann til Belgrad til viðræðna
við Slobodan Milosevic, forseta
Serbíu, í því skyni að fá hann til
að þrýsta á Bosníu-Serba um að
samþykkja friðaráætlun stórveld-
anna.
Filip Filipovic, herstjórnandi í
sameinlegum stöðvum Króata og
múhameðstrúarmanna, sagði að
birgðaleið til Sarajevo yrði opnuð
annað hvort með valdi eða hjálp
Sameinuðu þjóðanna og Serbar
myndu ekki geta lokað henni að
vild.
Mannréttindi í molum
Tadeusz Mazowiecki, fyrrum
forsætisráðherra Póllands, dró upp
dökka mynd af mannréttinda-
ástandinu á átakasvæðum fyrrver-
andi Júgóslavíu í skýrslu, sem
Sameinuðu þjóðirnar gáfu út í
gær. Sagði hann að bæði Króatar
og Serbar hefðu gerst brotlegir á
undanförnum mánuðum. Króatar
hefðu meðal annars myrt almenna
borgara á svæði, sem er á valdi
Serba.
Serbar bæru hins vegar ábyrgð
á því að staða múhameðstrúar-
manna og Króata hefði versnað í
Banja Luka og árásir á almenna
borgara í Sarajevo, þar á meðal
börn, hefðu færst í vöxt. Lagði
hann til að leyniskyttur yrðu
dregnar fyrir rétt vegna „mannúð-
arbrota".
■ SÞ íhugi/18
Urslita-
leikur end-
urtekinn
Heimsmeistaralið Þjóðverja frá
árinu 1974 atti í gær kappi við
lið Hollendinga, sem lék á móti
þeim úrslitaleikinn á sínum tíma.
Hér sjást Franz Beckenbauer,
fyrirliði þýska liðsins, og Johan
Neeskens, fyrirliði þess hol-
lenska, takast í hendur fyrir leik-
inn. Þjóðverjar imnu 2-1 á sínum
tíma, en Hollendingarnir höfðu
greinilega fundið nýja leikaðferð
á þeim rúmlega 20 árum, sem
síðan eru liðin, því að í vináttu-
leiknum í gærkvöldi unnu þeir
með sömu tölum.
Reuter
Morð varpa skugga á við-
ræðurnar um Tsietsimu
Grozní. Reuter.
Menn í rússneskum herklædum sagdir
hafa myrt sjö manna fjölskyldu
VIÐ LÁ að Tsjetsjenar hættu í gær
viðræðum við Rússa um framtíð
Tsjetsjeníu þegar sjö manna fjöl-
skylda var myrt í úthverfi Grozní.
Usman Imajev, aðalsamningamað-
ur Tsjetsjena, hafði lýst yfir því
að viðræðum yrði ekki haldið
áfram fyrr en morðingjarnir næð-
ust, en seint í gærkvöldi barst sú
frétt frá Interfax að sest yrði við
samningaborðið í dag eftir að hald-
in hefði verið minningarathöfn um
fjölskylduna.
Rússneski herinn kveðst ekki
hafa átt þátt í morðunum Imajev
sagði að menn í rússneskum her-
klæðum hefðu framið morðin
snemma í gærmorgun.
Imajev tilkynnti að viðræðunum
hefði verið slitið á vörubílspalli
fyrir utan höfuðstöðvar Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu
(OSE), sem hefur milligöngu um
viðræðurnar. „Hvers tsjetsjensks
blóðdropa verður hefnt,“ sagði
hann og hélt á líki tveggja ára
stúlku, sem hann sagði að hefði
verið meðal fórnarlambanna.
„Styrkur þeirra skiptir engu,
þeir munu aldrei sigra tsjetsjensku
þjóðina," sagði Imajev og mann-
fjöldinn fyrir utan fundarstaðinn
kyrjaði „Tsjetsjnía, Tsjetsjnía!"
Ekki var greint frá því hvers
vegna Imajev hefði séð sig um
hönd. Mikið ber enn á milli í við-
ræðunum. Tsjetsjenar vilja sjálf-
stæði, en Rússar hafa aðeins boðið
sjálfstjórn í ákveðnum málum.
Rússar hafa haldið því fram frá
því að sjálfstæðisbarátta Tsjetsj-
ena hófst að þeir hafi engan rétt
til aðskilnaðar. Eini árangur við-
ræðnanna til þessa er ótraust
vopnahlé og bráðabirgðasam-
komulag um að rússneski herinn
hverfi á braut.
Rússar sögðu í gær að mikil
spenna ríkti í Tsjetsjníu og tsjetsj-
enskir skæruliðar hefðu í fyrrinótt
skotið á rússneska hermenn.
Flýja flóð
Peking. Reuter.
1200 manns hafa nú látið lífið í
sumarflóðunum í Kína og 26.000
slasast. Embættismenn segja að
gífurleg eyðilegging hafi átt sér
stað í tíu héruðum. Talið er að
tjónið nemi 4,4 milljörðum
Bandaríkjadollara og að hundrað
milljónir manna, eða einn tólfti
hluti þjóðarinnar, hafi orðið fyrir
tjóni. Rigningarnar hafa staðið
linnulítið síðan í maí. Veðurfræð-
ingar spá mestu flóðum í Kína á
þessari öld vegna þess að hlýn-
andi veðurfar í heiminum hafi
brætt snjóa á hásléttunni við
upptök árinnar Yangtze. Neðar-
lega í henni hefur yfirborð hækk-
að verulega. Því er talið hætt við
að stíflur, sem hafa verndað
bændur svo öldum skiptir, bresti.
Á myndinni sjást bændur í Hun-
an-héraði flýja heimili sín.