Morgunblaðið - 03.08.1995, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KÆRUNEFND fjöleignarhúsa-
mála komst nýlega að þeirri niður-
stöðu að kostnaði vegna teppalagn-
ingar í stigahúsi fjölbýlishúss beri
að skipta í samræmi við eignar-
hluta hvers og eins, en ekki jafnt
milli allra eigenda. í lögum um fjöl-
eignarhús kemur fram sú megin-
regla að sameiginlegum kostnaði
skuli skipta á þann hátt sem kæru-
nefndin ályktaði, en lögin gera ráð
fyrir nokkrum undantekningum.
Til dæmis þegar um er að ræða
viðhalds- og rekstrarkostnað lyftu,
en þá skiptist kostnaður að jöfnu,
óháð eignarhluta. Annað dæmi um
undantekningu er þegar unnt er
að mæla óyggjandi not hvers og
eins.
Ósammála um skiptingu
kostnaðar
Forsaga þess að leitað var til
kærunefndar vegna teppalagning-
ar er sú að í apríl 1995 var teppi
endurnýjað í stigahúsi fjölbýlishúss
nokkurs. Meirihluti húsfélagsins
taldi að kostnaði ætti að skipta
jafnt milli íbúðareigenda eða í sam-
ræmi við not þeirra. í rökstuðningi
meirihlutans kom fram að fleiri
íbúar væru að jafnaði í minni ibúð-
um og slitu gólfteppi því meira en
íbúar annarra íbúða. Þá taldi meiri-
hlutinn að stigi gegndi sama hlut-
verki og lyfta og á þeirri forsendu
bæri að skipta kostnaði jafnt.
Minnihluti húsfélagsins var
þessu ósammála og var þá leitað
til kærunefndar fjöleignarhúsa-
mála. Þótt álit kærunefndar sé
ekki bindandi er nefndin opinber
álitsgjafi og má því gera ráð fyrir
að menn sætti sig við niðurstöður
hennar.
Islenskt
blómkál
lækkar
ÍSLENSKT blómkál er að Iækka í
verði þar sem aukið magn af því
er að koma í verslanir þessa dag-
ana. Að sögn Kolbeins Ágústssonar
hjá Sölufélagi garðyrkjumanna er
blómkálið þétt og fallegt þetta árið
enda verið hagstæð tíð fyrir blóm-
kálssprettu að undanförnu.
íslenskar kartöflur eru að koma
á markað og í næstu viku verða
þær eflaust komnar víða í verslan-
ir. Þær eru aðeins seinna á ferðinni
en í fyrra.
Þá eru fyrstu íslensku gulræturn-
ar að koma í búðir, reyndar hafa
um skeið verið til inniræktaðar
gulrætur en það eru útiræktaðar
gulrætur sem eru að koma í verslan-
ir núna.
----♦--------
Bónus selur
geisladiska
í YIKUNNI var farið að seljá vin-
sæla geisladiska í Bónus; Post með
Björk Guðmundsdóttur á 1.390
krónur og History með Michael Jack-
son á 2.490 krónur. Hægt hefur
verið að kaupa safnpakka af geisla-
diskum í Bónus fram til þessa en
nú er sem sagt verið að gera tilraun
með sölu á vinsælum geisladiskum.
NEYTENDUR
Ágreiningsefni hjá kærunefnd fjöleignarhúsamála
Teppi á stigagang og
viðgerðir á raðhúsi
Úr myndasafni/Sverrir
VIÐGERÐIR á fjölbýlishúsi geta valdið ágreiningi meðal eigenda.
Sá sem á stóra íbúð í
fjölbýlishúsi borgar
meira fyrir nýtt teppi
sem lagt er á stigahús-
ið, en sá sem á litla íbúð.
Brynja Tomer komst
að því og ýmsu öðru,
er hún skoðaði álit
kærunefndar í þeim
málum sem nefndin
hefur þegar afgreitt.
Frá því kærunefnd fjöleignar-
húsamála hóf störf í mars s.l. hafa
40 mál borist og hafa 23 mál þeg-
ar veríð afgreidd. í nefndinni eiga
sæti tveir lögfræðingar og einn
byggingafróður maður og taka þeir
fyrir ágreining milli eigenda í fjöl-
eignarhúsum um réttindi þeirra og
skyldur samkvæmt lögum um fjö-
leignarhús. Áður en nefndin tók til
starfa gat verið nauðsynlegt að
fara með slík mál fyrir dómstóla,
sem varð oft tímafrekt og kostnað-
arsamt. Kærunefnd skilar áliti inn-
an 2ja mánaða frá því erindi berst
og er þjónusta hennar ókeypis.
Sif Guðjónsdóttir, ritari kæru-
nefndar, segir að flest ágreinings-
mál sem nefndinni hafa borist varði
skiptingu sameiginlegs kostnaðar.
„Með nýjum lögum um fjöleignar-
hús, sem tóku gildi um síðustu ára-
mót, var fjölgað nokkuð þeim
kostnaðarliðum sem skipta á að
jöfnu milli eigenda. í lögunum er
tíundað um hvaða kostnaðarliði
þetta gildir, en sem dæmi má nefna
allan sameiginlegan rekstrarkostn-
að, svo sem rafmagn, hita og vatn
í sameign, og umhirðu á sameigin-
legu húsrými og lóð. Meginreglan
er samt að sameiginlegum kostnaði
skal skipta eftir hlutfallstölum og
gildir það t.d. um skiptingu kostn-
aðar við teppalagningu á stigagang
og utanhússviðgerðir. Nokkuð hef-
ur borið á að fólk hafi talið sérregl-
una um jafna kostnaðarskiptingu
hafa víðtækara gildi og viljað beita
henni ranglega um kostnað sem
skipta á eftir hlutfallstölum.“
Deilur í raðhúsi
Meðal annars hafa kærunefnd-
inni borist mál frá eigendum rað-
húsa, þar sem upp kom ágreiningur
um hvernig skyldi skipta viðhalds-
kostnaði. I einu tilviki risu upp
deilur milli eigenda í raðhúsalengju
um greiðslu kostnaðar við viðgerð
og klæðningu á gafli hússins. Alk-
alískemmdir voru á gaflinum og
vildu aðrir eigendur ekki taka þátt
í kostnaði vegna viðgerðar, sem
gerð var sumarið 1994. Töldu þeir
að viðgerðin væri ekki sameiginleg,
enda hefði ekki verið staðið sameig-
inlega að byggingu hússins á sínum
tíma. Sögðu þeir að eigandi enda-
húsins hefði alfarið kostað bygg-
ingu á gafli húss síns og til þessa
einnig annast allt viðhald. Hið sama
hefðu allir aðrir eigendur gert varð-
andi útveggi þeirra.
Hvað er hús?
Kærunefnd taldi að henni bæri
ekki að fjalla um skiptingu
' tilboðin
T1 10-11 BÚÐIRNAR GILDIR 3.-9. ÁGÚST
Ökeypls grillkol fylgja grlllkjötlnu
Lambalæri/hryggur 1. fl. 489 kr.
Goða hangikjöts frampartur Goða úrbeinað hangikjötslæri Ný vínber 498 kr. 985 kr. 198 kr.
| Kims grillftögur 250 g 189 kr.
BurtonsToffypops 79 kr.
Toro bollakjötsúpa 98 kr.
NÓATÚN GILDIR 3.-6. ÁGÚST
Hangiframpartar úrb. 699 kr.
Svínarif í grillsósu 399 kr.
K.S. súrmjólk, karamellu o.fl. 69 kr.
Maarud súrsætt 250 g 199 kr.
Frissi fríski 21 epla og appels. 89 kr.
Bláber, stóraskja 99 kr.
Kantalópur (bleikar melónur) 98 kr.
Pilsner Egils 500 ml 49 kr.
FJARDARKAUP GILDIR 2.-4. ÁGÚST
KjúklingarÖípk. kg 495 kr.
Svínalæri ’/i og Vi kg Rauðvíns- og jurtakr. lambalæri kg 435 kr. 598 krj
Pylsutvenna 1 pk. hvítlaukspylsur og bratwurst 445 kr.
Emmess sumarkassi 289 kr.
Úrvalsflatkökur 27 kr.
Langlokurallarteg. stk. 145 kr.
Valencia súkkulaði 240 g 189 kr.
BÓNUS GILDIR 1.-17. égúst
Bónus hveiti 2 kg 49 kr.
Snickers 6 stk. 149 kr.
Bónus pylsur 367 <r
Hamborgarar 10 stk. 499 kr.
Svali 24 saman, bolur frír 599 kr.
Kútur6x11 377 kr.
Emmes íslurkur 99 kr.
Grillbakki, svín, bak. kartöfl. + sósur 397 kr.
Sórvara í Holtagörðum
Hjol, dömu, 10 gira 7.997 kr.
Strigaskór 99 kr.
Sólstóll, tré 1.879 kr. |
Sólstóll, plast 2.490 kr.
Grill, stórt á hjólum 1.890 kr.
HAGKAUP GILDIR 31. JÚLÍ til 23. ÁQÚST
Hagkaupsgos, 1 l,7teg. 69 kr.
Einnota grill 249 kr.
SW maískorn, 432 g 39 kr.
Engja'þykkni, 4 teg. ~ 39 kr.
2 ferskir sætir bandarískir kornstönglar 79 kr.
Áppelsínur, kg ______________ 89 l<r-
Búrfells svínakótilettur marineraðar 799 kr.
Urbeinaður hangiframp. frá Kjarnafæði 769 kr.
Soðið hangilæri m/beini, 1 kg 995 kr.
Fjórir hamborgarar með Brauði 249 kr.
Grillpylsuf, kg 429 kr. j
Lambagrillsneiðar, kg 299 kr.
London lamb, kg 690kr.j
Bóndabrauð 99 kr.
Papriku- og ostaflögur, 100 g 99 kr.
Viking og Tuborg pilsner 0,51 59 kr.
GARÐAKAUP GILDIR TIL 8. ÁQÚST
Reykt svínaspareribs, kg 598 kr.!
Beikon í bitum, kg 798 kr.
Knorr bollasúpur, 3 í pk. 98 kr.!
Fílakaramellur, 200 g 179 kr.
Kraft salatdressingar, 3 í pk. 49 kr.
Vatnsmelónur, kg 19kr.
Kindakæfa, kg 498 kr.!
Orville örbylgjupopp, 3 í þk. 85 kr.
i
MIÐVANGUR, HAFNARFIRÐI GILDIR TIL OG MEÐ 7. ÁGÚST Þurrkr. lambalærissneiðar 799 kr."|
Þurrkr. svínakótilettur 789 kr.
5 SS pylsur, 5 pylsubrauð 219 kr.
Grillkol, 4,5 kg 199 kr.
Maarud Snack, 250 g 299 kr. j
ABT mjólk, 3teg. 39 kr.
Nuðlusúpur I9kr.j
Sunkist, 2 I 89 kr.
SKAGAVER HF., AKRANESI HELGARTILBOÐ
Orville örbylgjupopp S&W Pik-Nik kartöflup., 255 g Toro sósur, pipar- og bemaise "gð'k'Ll 269 kr. 42 kr.
Brauðhringir, Myllan 89 kr.
Rauðvínslegið lambalærí 798 kr.
GrÍIÍkoí, l O lbs ......................298 kr.
ÞIN VERSLUN
Plúsmarkaðir Grafarvogl, Grímsbæ og
Straumnesi, 10/10 Hraunbæ, Suðurveri
og Norðurbrún, Austurver, Breið-
holtskjör, Garðakaup, Melabúðin,
Hornið, Selfossi, Sunnukjör, Þín
verslun, Seljabraut 54, Vöruval, ísafirði
og Bolungarvík.
GILDIR 2.-20. ÁGÚST
Þurrkryddaðar grillsneíðar 39'9kr.j
Griiísneiðar, frosnar ~ ~ ™ 299 kr.
4 stk. maísstönglar 99 kr. |
12 hamborgarar í kassa 989 kr.
Bakarabrauð, gróf 99 kr. ]
Vatnsmelónur 19 kr.
Þykkmjólk, Vi Iftri 86 kr.
Pepsi og Seven Up, 2 I 129 kr.
ARNARHRAUN, HAFNARFIRÐI
GILDIR TIL 7. ÁQÚST
| Þúrrkr. svínabógsneiðar, kg 598 kr |
Þurrkr. lambagrillsneiðar, kg 398 kr.
j Bestu kaupin, 7? lambaskrokkur, kg 389 kr. j
Pik-nik franskar, 50 g dós 59 kr.
SWmaiskorn,'/2dós 45 kr.
Maggi bollasupur, 4 stk. í pk. 59 kr.
Tampico svaladrykkur, f I
Marmarakaka, 400 g 138 kr.
L Verslanlr KA H
QILDIR 3.-9. ÁQÚST
[Tommi og Jenni appelsínu- og ávaxtasafí 29 kr.
bwiss Miss súkkulaðidrykkur, 3 teg. 275 kr.
j Hunt's tómatsósa, 680 g 89 kr, j
Maggi bollasúpur 69 kr.
[Bridgeblanding, 400 g 229 kr.
Súkkuiaðirúsínur, 500 g 199 kr.
j Hvítlauksbrauð, ffn og gróf ii109kf:|
Marmarakaka ' 139kr.