Morgunblaðið - 16.08.1995, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jóhannes
keppir
áfram í
Englandi
SNÓKERSPILARINN Jóhannes
B. Jóhannesson fer í vikunni til
Blackpool í Englandi, þar sem
hann heldur áfram þátttöku í at-
vinnumannamótunum í snóker.
Jóhannes keppir laugardaginn 19.
ágúst í 7. umferð og aftur á sunnu-
dag ef hann sigrar en síðan tekur
við tveggja vikna hlé.
„Ég verð þá líklega að koma
heim því það er mjög dýrt að vera
úti og ég er þegar búinn að eyða
200 þúsundum úr eigin vasa í
mótið hingað til. Seglagerðin
Ægir og Emerald Air eru þegar
búin að styrkja mig um hluta
framhaldsins þótt enn vanti mikið
upp á,“ sagði Jóhannes. Hann
sagðist vera í góðri æfingu og
hefur æft á fullu síðan hann kom
heim eftir 6. umferð.
„Líkur á árangri eru nokkuð
góðar, ég spila næst við Oliver
King sem er atvinnumaður og ég
hef oft séð hann spila. Annars vil
ég segja sem minnst en spila bara
betur,“ bætti Jóhannes við en hann
er 22ja ára og ætlar að gefa snó-
kernum þrjú ár til viðbótar en
skoða þá stöðuna.
„Bestu menn voru um þrítugt
fyrir nokkrum árum en aldurinn
er nú kominn niður í tvítugt enda
eru efnilegir strákar settir inn á
snókerstofur átta ára til að byrja
þjálfun. Sjálfur byrjaði ég fyrir
níu árum þegar ég skrapp í snó-
ker í frímínútum.“-
Sjálfstæðiskonur óánægðar með stöðu sína innan flokksins
Rætt um að fjölga
í flokkssljórninm
FRAMKVÆMDASTJÓRN Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna hélt
óformlegan fund með konum úr
þingflokki Sjálfstæðisflokks og
fleiri sjálfstæðiskonum á mánu-
dagskvöld. Birna Friðriksdóttir,
formaður Landssambandsins, segir
að forsenda fundarins hafi verið
óánægja með stöðu kvenna innan
flokksins.
Birna tók fram að aðeins hefði
verið um óformlegan fund að ræða.
„Við komum saman og reifuðum
ýmsar hugmyndir. Ég get nefnt að
dustað var rykið af hugmynd um
að ljölga um einn, úr tveimur í þijá,
í forystu flokksins. Engar ákvarð-
anir voru teknar í því sambandi.
Hins vegar var fundurinn ákaflega
góður og ákveðið var að koma fljót-
lega saman aftur,“ sagði Bima og
fram kom að hún teldi forgangs-
verkefni að bæta stöðu kvenna í
Sj álfstæðisflokknum.
Þegar Birna var spurð að því
hvort til greina kæmi að Landssam-
bandið stæði fyrir því að kona gæfi
sig fram á móti sitjandi varafor-
manni flokksins, Friðriki Sophus-
syni, sagðist hún ekki telja í verka-
hring sambandsins að velja kandí-
data fyrir einstök embætti eða
hvetja einstaklinga. Hlutverk þess
væri fremur að efla félagsstarf og
styðja konur aimennt til pólitískra
áhrifa. Birna tók fram að löngu
væri orðið tímabært með meiri at-
vinnuþátttöku kvenna, reynslu og
menntun að þær tækju virkan þátt
í mótun leikreglna.
Sjálfstæðum konum boðið
Á fundinn var meðal annars boðið
fulltrúa frá Sjálfstæðum konum,
þ.e. sérstökum hópi ungra kvenna
innan Sjálfstæðisflokksins. Hópur-
inn hefur, samkvæmt heimildum frá
einni kvennanna í hópnum, ekki
fundað sérstaklega um hvort
ástæða sé til að fjölga í forystu
flokksins og hefur því ekki tekið
formlega afstöðu til þess.
Grafa
valt ofan
í skurð
Eyrarbakka. Morgunblaðið.
TRAUSTI Sigurðsson, bifreiðar-
stjóri, var að flytja Broyt gröfu sína
um sexleytið á laugardaginn og
lenti í að velta henni.
Trausti keyrði eftir gömlum
ræktunarvegi sem liggur meðfram
svokölluðum Móskurði skammt of-
an við Eyrarbakka. Allt í einu lét
vegurinn undan öðru hjóli gröfunn-
ar, sem við það færðist út í vegar-
kantinn sem var gljúpur eftir alla
bleytuna undanfarið. Grafan risti
kantinn sundur og féll á hliðina
niður í skurðinn. Ekki leið á löngu
uns lögreglan mætti á staðinn til
skýrslutöku. Um sjöleytið kom
Tyrfíngur Halldórsson á öflugum
kranabíl og hífði gröfuna upp.
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Forstjóri Skeljungs um úrskurð Samkeppnisstofnunar
Átti ekki von á að Sam-
keppnisráð ógilti kaupin
KRISTINN Björnsson forstjóri Skeljungs segir að forsendur fyrir
niðurstöðum Samkeppnisráðs vegna kaupa Olíufélagsins hf. og Hydro
Texaco A/S á hlutum í Olíuverslun íslands séu ekki sannfærandi,
einkum er varði spádóma um starfsemi Irving Oil félagsins hérlend-
is. „Ég átti ekki von á því að Samkeppnisráð myndi ógilda kaup
fyrirtækjanna á hlutabréfum -Sunda í Olís og mér finnst kaupin í
sjálfu sér ekkert annað en „bisness“,“ segir Kristinn.
Orkusjóður lánar
til jarðhitaleitar
Samvinna
umjarð-
skjálfta-
mælingar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að borgarverkfræðingur leiti
eftir samkomulagi við önnur
sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu og Veðurstofu Íslands
um samvinnu við mælingar og
rannsóknir á jarðskjálftum og
misgengi á Biáfjallasvæðinu.
Ragnar Stefánsson, jarð-
skjálftafræðingur á Veðurstofu
íslands, hefur í bréfi til borgar-
stjóra lagt til að settar verði
upp þrjár jarðskjálftamæli-
stöðvar kringum Bláfjallasvæð-
ið, en kostnaður vegna þessa
er talinn 5 milljónir króna en
árlegur rekstrarkostnaður 1,2
milljónir.
Hitaveitan áhugasöm
í bréfi Stefáns Hermanns-
sonar borgarverkfræðings til
borgarráðs kemur fram að
Hitaveita Reykjavíkur hafi sýnt
áhuga á þessu máli, enda megi
búast við að niðurstöður geti
orðið henni gagnlegar. Þó sé
líklegt að tii að svo verði þurfi
að bæta við fjórðu mælistöðinni
á Hengilssvæðinu.
Stefán telur æskilegt að
umræddar mælingar fari fram
t.d. um 5 ára skeið, og kostn-
aðarhlutdeild borgarsjóðs,
Hitaveitu Reykjavíkur og jafn-
vel Vatnsveitu Reykjavíkur
vegna almenns mats á hættu
sé eðlileg. Hins vegar sé einnig
eðlilegt að leita eftir því að
Veðurstofa íslands, sem annast
rannsóknir á þessu sviði al-
mennt í landinu á kostnað ríkis-
sjóðs, beri hluta kostnaðarins
við þetta verkefni.
RÍKISSJÓÐUR styrkir ekki kostn-
að við boranir eftir heitu vatni en
orkusjóður veitir lán til jarðhita-
leitar sem nemur yfjrleitt um 60%
af borkostnaði, sveitarfélögum,
fyrirtækjum og einstaklingum.
Lánin eru til tíu ára og eru vísitölu-
tryggð og með 2 '/2% raunvöxtum.
Stjórn sjóðsins, orkuráð, er kjörin
af Alþingi.
Jakob Björnsson orkumálastjóri
segir að því sé í raun um að ræða
styrki í formf vaxtaniðurgreiðslu.
Lán orkusjóðs eru áhættulán í
þeim skilningi að mistakist að
virkja jarðhitasvæði sem lánað var
til þarf ekki að endurgreiða Lánið.
Það er þó ekki fellt niður strax
því hugsanlegt er að reynt verði
að virkja svæðið seinna. Takist
virkjunin þá er lánið endurkræft
jafnvel þó nokkuð sé um liðið frá
því það var tekið. Þó eru ekki
reiknaðir af því vextir á þessum
tíma.
Meiri eftirspurn en
fjárveitingar
Seðlabankinn annast vörslu
orkusjóðs. Sjóðurinn er fjármagn-
aður með ríkisframlagi á fjárlög-
um og var á þessu ári 6 milljónir
króna. Jakob segir að fjárveiting
til orkusjóðs sé mun minni en eftir-
spurn eftir lánum úr honum sé.
Jakob segir að býsna mörg lán
hafi ekki verið innheimt og sjóður-
inn hafí gegnt mikilvægu hlutverki
við jarðhitaleit á landinu. Margar
smærri hitaveitur hafa fengið lán-
úr sjóðnum og fjölmargir einstakl-
ingar, t.a.m. gróðurhúsabændur.
Kristinn segir að hlutabréfakaup-
in bendi til þess að félögin muni
renna saman. „Ég hef lýst því yfir
áður að ég tel að þessi gjörningur
leiði til þess að félögin renni saman.
Samkeppnisráð tekur undir það þar
sem í niðurstöðum þess kemur fram
að stofnun Olíudreifingar hf. sé
samruni. Að öðru leyti eru mín við-
brögð við þessum úrskurði mjög afs-
löppuð," segir Kristinn.
Býst við uppnámi ef
Irving Oil kemur
Kristinn kvaðst ekki sjá að þessi
tvö félög sem væru við það að renna
saman gætu verið í samkeppni sín
í milli. „Samkeppnin er núna aðeins
á milli Skeljungs og hinna.“
Kristinn segir að það hefði aldrei
verið inni í myndinni hjá Skeljungi
að kaupa hlutabréfin í Olís. „Sú
hugsun var rædd einhvern tíma að
ef hlutabréfin færu í sölu, gæti það
verið álitlegur kostur að Skeljungur
Margeir í
GRÍSKI stórmeistarinn Vasilios
Kotronias fór með sigur af hólmi á
opna alþjóðamótinu í skák í Gausdal
í Noregi með Vk vinning af 9 mögu-
legum. Mótinu lauk á sunnudag.
Margeir Pétursson varð í 2.-5.
sæti með 6V2 vinning, ásamt þeim
Jansa frá Tékklandi, Gausel frá
Noregi og Sutovsky frá ísrael. Þröst-
ur Þórhallsson hlaut 5Vá vinning og
þeir Héðinn Steingrímsson og Krist-
fengi hóp fjárfesta, lífeyrissjóði eða
aðra öfluga aðila, til þess að kaupa
bréfin með það í huga að sameina
síðar rekstur Olís og Skeíjungs. Þá
hefði kannski náðst jafnvægi á þess-
um markaði því Olíufélagið er það
stórt, með liðiega 40% af markaðn-
um. En það er mjög mikil fjárfesting
fyrir eitt fyrirtæki að greiða 800-900
milljónir kr. fyrir þennan 35% hlut,“
sagði Kristinn.
Hann segir að búast megi við því
að allt fari í uppnám á markaðnum
hérlendis ef Irving Oil kemur inn á
hann. „Þá kemur hér inn nýr aðili
sem ætlar sér ugglaust að vinna hér
markað. Það eru þó ekki mikil efni
til verðlækkana og þær yrðu þá ein-
vörðungu í þá veru að fyrirtækin
lækkuðu álagningu sína og hún er
nú ekki mjög mikil eins og sést á
afkomutölum olíufélaganna," sagði
Kristinn. Ekki náðist í gær í Arthur
Irving Jr., einn af forstjórum Irving
Oil í Kanada.
2.-5. sæti
ján Eðvarðsson 5 vinninga hvor.
Opnu skákmóti sem haldið var í
Leeuwarden í Hollandi lauk einnig
um helgina en þrír íslenskir stór-
meistarar voru meðal keppenda. Jó-
hann Hjartarson varð í 6.-12. sæti
með G vinninga af 9 mögulegum,
Helgi Áss Grétarsson í 13.-22. sæti
með 5 V2 vinning og Hannes Hlífar
Stefánsson í 35.-40. sæti með 4'/2
vinning.