Morgunblaðið - 16.08.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.08.1995, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ Forstj óri Samvinnuferða-Landsýnar Aðrar ferðaskrif- stofur birta verð án skatta HELGI Jóhannsson forstjóri Sam- vinnuferða-Landsýnar hf. segir það með ólikindum að kæra hafi verið lögð fram á ferðaskrifstof- una vegna auglýsingár um far- gjöld til Óslóar. Hann segir að það hafi viðgengist í heilt ár að ferða- skrifstofan Heimsferðir auglýsi fargjöld án þess að fram komi í meginmáli heildarverð án þess að Samkeppnisstofnun hafi gert at- hugasemd. Islenska auglýsingastofan hf. hefur kært auglýsingu Samvinnu- ferða-Landsýnar um fargjöld til Óslóar til Samkeppnisstofnunar. „Við vorum einna fyrstir til þess að fara mjög nákvæmlega eftir tilmælum Samkeppnisstofnunar um verðbirtingar en við höfum fylgst með því í næstum heilt ár að aðrar ferðaskrifstofur, og þá sérstaklega Heimsferðir, hafa komist upp með það að birta verð án allra skatta. Heimsferðir birta aldrei verð án þess að setja heild- arverðið í smátt letur. Nýjasta dæmið er að Heimsferðir auglýsa á strætó ferðir til London á 19.900 kr. en þá er flugvallarskattur ekki meðtalinn. Frá honum er greint í smáu letri neðanmáls. Við hljótum að skilja þetta svo að leyfilegt sé að auglýsa á þennan hátt,“ sagði Helgi. Hann sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem Samvinnuferðir- Landsýn hefðu breytt til í auglýs- ingum og hingað til hefði jafnan verið birt verð með sköttum. „Okk- ur fannst forvitnilegt hvort það væri bara einn aðili sem kæmist upp með þetta en þó er þetta eng- in lína sem við erum að taka upp í auglýsingum," sagði Helgi. Deilur innan Möðruvallasóknar Krafist brott- vikningar prests HAFIN er undirskriftasöfnun í Möðruvallasókn í Hörgárdal þar sem þess er krafist að biskup víki sóknarprestinum, séra Torfa Hjaltalín Stefánssyni, frá störfum. Ágreiningur er milli sóknarprests og sóknarbarna og var fyrir skömmu óskað eftir aðstoð bisk- ups íslands við að leysa hann. Biskup hefur faiið séra Bolla Gú- stafssyni, vígslubiskupi á Hólum, að leita sátta. Hann hefur boðað séra Torfa og sóknarnefnd til formlegs sáttafundar i kvöld. Ósætti hefur verið í Möðruvalla- sókn í nokkur ár. Deilurnar náðu hámarki eftir að prestur tilkynnti að hann myndi ekki heimila öðrum prestum að vinna prestverk í Möðruvallakirkju. Afstaða hans var sú að hann væri prestur í sókn- inni og ætti því að vinna þau prest- verk sem þar þyrfti að vinna. Tals- vert var um að sóknarbörn óskuðu eftir að fá presta úr öðrum sóknum til að gifta, skíra eða jarða. Séra Bolli Gústafsson sagði að engar formlegar reglur væru til innan kirkjunnar um hvernig bæri að svara óskum sóknarbarna um að fá presta úr öðrum sóknum til að vinna prestverk. Hann sagði þessi mál viðkvæm og mismun- andi væri hvernig prestar tækju á þeim. Bolli sagði að hann hefði þegar rætt við allmarga í sókninni um ágreininginn, en myndi í kvöld halda formlegan sáttafund með sóknarnefnd og sóknarpresti. Hann sagði að sér væri ókunnugt um undirskriftasöfnunina. Að- spurður viðurkenndi hann að sterk krafa sóknarbarna um að prestur- inn víki gerði sáttaumleitanir erfíðari. Útboð Norðurár undirbúið ÚTBOÐ á veiðirétti í Norðurá er í undirbúningi og hefur stjórn veiðifé- lags árinnar auglýst eftir áhugasöm- um leigutökum til viðræðna. „Það má segja að þetta sé lokað útboð, við viljum fá menn fyrst tii viðræðna og að því ioknu sendum við útboðs- gögn til þeirra sem við sjáum fram á að eiga viðræðugrundvöli við,“ sagði Sigurjón Valdemarsson for- maður Veiðifélags Norðurár í sam- tali við Morgunblaðið í gærdag. Þreifíngar félagsins koma í kjölfarið á tilboði Péturs Péturssonar kaup- manns í veiðiréttinn til fimm ára í vor, en bændur höfnuðu því tilboði en boðuðu í staðinn útboð á leigu- réttinum. Endurheimtur hoplax Nokkrir áhugasamir veiðimenn tengdir Laxá í Leirársveit undir for- ystu Hauks Geirs Garðarssonar tóku sig til síðastliðið vor og veiddu nokkra hoplaxa sem þeir síðan slepptu aftur merktum í ána. Voru þetta milli 20 og 30 laxar og hug- myndin að halda verkefninu áfram næstu sumur. Lengi hafa verið vangaveltur um hve mikið af laxin- um deyr eftir fyrstu hrygningu og trúlega er ekkert eitt svar til við því. Getur margt haft þar áhrif, ekki síst árferði. En það gerðist fyr- ir skömmu, að einn hinna merktu hoplaxa veiddist aftur í ánni. Sann- aðist þar með að hoplax getur geng- ið aftur á sama ári. Laxinn sem var FRÉTTIR Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið Páll Signrðs- son lætur af störfum EMBÆTTI ráðuneytisstjóra í heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- inu hefur nú verið auglýst laust til umsóknar en Páll Sigurðsson lætur af því starfi fyrir aldurs sakir 1. desember. Páll Sigurðsson, sem verður sjö- tugur í nóvember, hefur gegnt emb- ætti ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu frá árinu 1970, eða í aldaríjórðung. Páll er sérfræðingur í bæklunar- skurðlækningum og embættislækn- ingum og hefur starfað á Landakots- spítala, í Gautaborg og á Borgarspít- ala, auk þess sem hann var trygg- ingayfirlæknir hjá Tryggingastofn- un ríkisins 1960-1970. Þá hefur hann gegnt fjölda trúnaðarstarfa á sviði heilbrigðismála og í þágu Reykj avíkurborgar. Forseti íslands veitir embætti ráðuneytisstjóra og rennur umsókn- arfrestur út 20. september. Embætt- ið veitist frá 1. desember. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Hættulegar brýr EINBREIÐAR brýr við slétta og breiða þjóðvegi landsins hafa reynst slysagildrur. Bílstjóri fiskflutningabílsins á myndinni var að koma að slíkri brú við Hvammsá nálægt Vík í Mýrdal sl. laugardag þegar hann kom auga á fólksbíl á brúnni. Til að forðast árekstur sveigði bílstjór- inn út af með þessum afleiðing- um. Sæmundur Hjaltason bóndi á Norður-Götum í Mýrdal varð vitni að óhappinu. Hann sagði að gírskipting hefði mistekist hjá bílstjóranum þegar hann reyndi að stöðva bílinn í tæka tíð við brúarendann. Tengivagninn lyft- ist og fór eina og hálfa bíllengd á tveimur hjólum, síðan rakst hornið á honum niður í malbikið og vagninn valt út af veginum og tók bílinn með sér niður 3-4 m háan kant. Að sögn Sæmundar er það orðinn árviss viðburður að bílar velti í þessari kröppu beygju. Bíllinn, sem er frá Austfrakt á Reyðarfirði, er stór- skemmdur en bílstjórinn slapp betur en á horfðist. Vitni vantar að óvenjulegum atburði í Reykjavík Geimverur sagðar hafa numið ungt par á brott GEIMVERUR virðast hafa haslað sér völl í Reykjavík og ekki óhugs- andi að þær eigi eftir að leysa huldu- fólk og drauga af hólmi í þjóðsögum framtíðarinnar. Tengsl Snæfells- jökuls og fljúgandi furðuhluta eru flestum kunn þótt vart sé hægt að benda á áþreifanleg dæmi í því sam- bandi. Nú berast hins vegar fréttir af ungu pari í Reykjavík sem geimver- ur eru sagðar hafa numið á brott um stundarsakir aðfaranótt fimmtu- dagsins 10. ágúst sl. og er þetta væntanlega fyrsta brottnámið af slíku tagi sem heimildir geta um hér á landi. Frá brottnáminu er greint í nýj- asta tölublaði Geimdisksins, frétta- bréfí Félags áhugamanna um fljúg- andi furðuhluti. Magnús H. Skarp- héðinsson skrifar greinina eftir frá- sögn sautján ára kærustupars sem var í ökuferð eftir Miklubraut um klukkan háiftvö umrædda nótt. „Atvikið átti sér stað um miðja nótt á Miklubrautinni þar sem þau voru á ferð í bifreið sinni og biðu á rauðu ljósi við gatnamót Háaleit- isbrautar og Miklubrautar í austur- átt. Þá gerðist það að mjög sterkt ljós skall beint ofan frá á bifreiðina með miklum dynk. En án þess að þau hafi á nokkurn eðlilegan hátt tekið eftir því þá virðist eins og þau hafi misst á þessu stutta augnabliki um það bil hálftíma úr nóttinni og úr minni sínu án þess að geta hið minnsta gert grein fyrir hvernig það gæti hafa gerst,“ segir í greininni. Þegar pilturinn og stúlkan rönk- uðu við sér var klukkan orðin tvö, bíllinn hafði færst nokkuð úr stað og skyndilega var hætt að rigna. Er þau gerðu sér grein fyrir að háif- tími hafði iiðið í óminni urðu þau að vonum smeyk en stúlkan setti sig fljótlega í samband við Magnús H. Skarphéðinsson, stjórnarmann í Fé- lagi áhugamanna um fljúgandi furðuhluti, sem taldi víst að skýring- in á atvikinu væri sú að parið hefði verið numið á brott af geimverum. Magnús óskar eftir vitnum að þessum atburði og þiggur fúslega allar upplýsingar um ljósagang eða torkennileg loftför yfir Reykjavík áðurnefnda nótt. Ekki náðist í Magn- ús í gær en þess má geta að aðal- fundur Félags áhugamanna um fljúgandi furðuhluti verður haldinn í Norræna húsinu í kvöld og ef til vill má búast við því að hin óvæntu brottnámstíðindi auki áhuga fólks á félagsskapnum. KRISTJÁN Ljótsson, 12 ára, og Jón Hallgrímsson með 23 punda hæng Kristjáns úr Norðlingafljóti fyrir nokkru. áætlaður rúmlega 4 pund þegar hann veiddist um miðbik árinnar í vor, var nú rúmlega 6 punda og veiddist mjög nærri þeim stað sem hann var merktur. Fljótaá full af bleikju Feiknaleg sjóbleikjuveiði hefur verið í Fljótaá í Fljótum í sumar og eru komnir rúmlega 2.000 fiskar á land. Að sögn Ástþórs Jóhannsson- ar, sem var þar að veiðum fyrir skömmu, virtust engin takmörk vera fyrir því hve margar bleikjur hægt væri að draga þarna. „Við vorum meira að eltast við laxinn, en þegar maður var búinn að draga 10-12 bleikjur úr hylnum í jafn mörgum köstum, var nokkuð ljóst að laxinn kæmist ekki að. Þá var að færa sig, en þá tók það sama við í næsta hyl. Þannig leið nú túrinn," sagði Ástþór, en hann og félagar hans fengu 7 laxa og rúmlega 400 bleikj- ur. Voru þá komnir rúmlega 60 lax- ar á Iand auk bleikjanna. Að sögn Ástþórs er bleikjan yfirleitt fremur smá, frá hálfu pundi upp í 2 pund, en hann hafði eftir kunnugum mönn- um á svæðinu að tími stærri silungs- ins væri að renna upp. Enn reytist úr Hítará Enn gengur nokkuð vel í Hítará' þótt mesti slagkrafturinn sé úr veið- inni. í fyrradag voru komnir 278 laxar á land og algengt er að 5-10 laxar liggi í valnum eftir hvern veiði- dag. Fiskurinn er dreifður um allt svæðið og talsvert af sjóbleikju drýg- ir aflann. Dauft yfir Þverá „Þetta var orðinn barningur og lítill afli. Þrátt fyrir rysjótt veður hefur lítið nýtt vatn komið í Þverá og svo hefur dregið úr göngum. Það er þó talsverður lax í ánni en hann hefur tekið illa við þessar kringum- stæður. Þó litaðist áin um helgina og veiðin tók aðeins við sér. Lofar það góðú, en við verðum að sjá hvað setur,“ sagði Jón Ólafsson, einn leigutaka Þverár, í samtali við Morg- unblaðið í gær. Þá voru komnir um 1.380 laxar á land, en það skipar ánni í annað sætið yfir landið. Norð- urá er aðeins ofar, en fast á hæla þeirra kemur Laxá á Ásum þar sem veiðin hefur verið góð að undan- förnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.