Morgunblaðið - 26.08.1995, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Dýrðlingar
í Kringluna
JJP NÆSTA fimmtudag, þann
^ 31. ágúst opnar bamafata-
bhí verslunin Dýrðlingarnir í
Kringlunni þar sem Mikki og
Qí Mína var áður til húsa.
Kjj Verslunin Dýrðlingamir hef-
ur undanfarin fjögur ár verið
starfrækt í Grafarvogi og
kemur til með að vera þar áfram
líka. Verslunin selur bamafatnað
frá danska fyrirtækinu Legó,
frönsk bamaföt frá Galipette og
Jean Bourget og rúm, bílstóla og
bamavagna frá bandarískum fyrir-
tækjum. Þá verða til sölu í búðinni
franskir bamaskór frá Pom Dápi
og kjólar frá Promme. Eigandi
verslunarinnar er Jómnn Skúla-
dóttir.
Förðunarstofa
og verslun
Þá hyggst Lína Rut Karlsdóttir
opna förðunarstofu þar sem versl-
un Sævars Karls og sona var áður
í Kringlunni. Fýrirtæki hennar
verður opnað innan skamms og
auk þess sem aðstaða verður
til förðunar á staðnum verður
þar verslunin Face sem
mun selja snyrtivömr og
kremlínu frá banda-
ríska fyrirtækinu Face.
Eins og fram hefur komið mun
herrafataverslunin Joe’s opna um
næstu mánðarmót í því húsnæði
sem verslunin 1,2,3 var áður í.
Ekki er búið að taka endanlega
ákvörðun um hvaða verslun verður
þar sem Dídó var.
Hjartað er hætt en í staðinn
opnaði þar bamafataverslunin
Rokklingamir.
í síðasta mánuði opnaði sokka-
verslunin Thelma í Kringlunni én
það er sérverslun sem eingöngu
selur sokka og sokkabuxur og fyrr
á árinu opnaði einnig í fyrrum
húsnæði Sævars Karls og sona
verslunin Serina sem selur undir-
fatnað.
Um miðjan ágúst opnaði Guð-
björg Antonsdóttir fatahönnuður
aðstöðu í Borgarkringlunni og
þangað getur fólk bæði leitað með
fatnað í lagfæringu og fengið
saumað á sig.
Emm-
ess-ísloka
ÍSLOKA heitir nýjung frá Em-
messís hf. Um er að ræða sam-
bland af rjómaís og svokölluðu
Oxford-kexi, nokkurskonar kexs-
amloku með rjómaís á milli.
Nýslátrað lambakjöt
á sama verði og í fyrra
SUMARSLÁTRAÐ lambakjöt er á
sama verði og í fyrra í Nóatúni,
Hagkaup og Fjarðarkaup. Þetta er
gagnstætt því sem tíðkað-
ist fyrir fáum árum þegar
lambakjöt af sumarslátr-
uðu hækkaði yfirleitt um
10% milli ára. í sömu
verslunum er eldra lamba-
kjöt selt á sama verði og
nýtt, en kaupmenn segja
eftirspurn jafnan meiri
eftir því síðamefnda.
Öm Kjartansson,
rekstrarstjóri Hagkaups,
segir að verð á nýslátruðu
hafi verið óbreytt sl. þrjú
ár. í Nóatúni kostar
lambalæri og lambahrygg-
ur 699 kr. kg., súpukjöt
399 kr. og kótilettur 769 kr. Júlíus
Þór Jónsson, verslunarstjóri, segir
verðið einkum standa í stað vegna
þess að framleiðendur séu fúsari
en áður að láta kjöt af sumarslátr-
uðu af hendi vegna aukinnar sam-
keppni, t.d. bjóðist nýslátrað svína-
kjöt allt árið. Hann segir að fyrsta
sumarslátraða lambakjötið, sem
kom í Nóatúnsbúðimar um verslun-
armannahelgina, hafi fljótlega
gengið til þurrðar.
„Framleiðendum gagnast lítið að
sitja uppi með birgðar fram á haust,
sérstaklega þar sem ætíð er ásókn
í nýtt lambakjöt á þessum árstíma
þegar meðlætið, þ.e. kartöflur og
rófur, fást nánast beint úr görðun-
um,“ segir Júlíus.
Fjarðarkaup fékk fyrstu send-
inguna af nýslátruðu fyrir rúmri
viku. Jón Baldvin Haraldsson, ann-
ar tveggja sem veitir kjötborðinu
forstöðu, segir birgðir nægar og
verð ekki hafa hækkað
miðað við í fyrra, þótt
verð frá framleiðanda
hafi hækkað. Lambalæri
er á 797 kr. kg, lamba-
hryggur á 730 kr., súpu-
kjöt á 548 kr. og kótilett-
ur á 730 kr. „Ég á von á
að verðið lækkienn meira
þegar slátrun er komin á
fullan skrið,“ segir Jón
Baldvin.
í Hagkaup hefur nýtt
lambakjöt fengist síðan
um verslunarmannahelg-
ina á sama verði og var
á síðasta ári. Lambalæri
er á 795 kr. kg, lambahryggur á
734 kr., súpukjöt á 519 kr. og
kótilettur 764 kr. Örn Kjartansson
segir lambakjöt af nýslátruðu bjóð-
ast í fyrra fallinu í ár. Miklar birgð-
ir af eldra kjöti séu í landinu og
því hugsanlegt að það verði selt á
lægra verði en nýslátrað er líður á
haustið.
Miklar birgðar eru til af eldra kjöti.
Uppskrift vikunnar
Sterkur og suðrænn
kjötréttur á grillið
FYRIR þá sem unna sterkum
mat er þessi uppskrift kærkomin
búbót. Uppskriftin á rætur að
rekja til framandi landa, þekkist
til dæmis í Nígeríu. Sumum kann
þó að finnast bragðið minna á
indverskan mat eða thailenskan.
Unnendur framandlegrar matar-
gerðar hafa oft kvartað yfír því
að of mikið tilstand fýlgi slíkum
réttum, hin ýmsu krydd sé erfitt
að nálgast og aðferðimar séu
flóknar. Þessi réttur er langt frá
því að vera flókinn, og kryddið
fæst í næstu stórverslun. Matar-
gerðin felst í því að hræra saman
þykka sósu og maka á þunnar
nautakjötsneiðar og grilla.
Hvað sem uppruna réttarins
líður finnst mörgum hann vera
góð tilbreyting á grillið enda ekki
notaðar hinar hefðbundnu grill-
sósur.
Farið varlega með
kryddið þegar þið hrærið
sósuna saman og smakk-
ið ykkur til á meðan þið
eruð enn óvön þessum
rétti. Smekkur manna er
misjafn og margir vilja að hafa
réttinn annaðhvort sterkari eða
veikari, en rétturinn á að vera í
sterkara lagi.
Kjötréttur á grillið
fyrir fjóra
600-700 g gott nautakjöt, fille
eða innralærisvöðvi skorið í mjög
_________þunnar sneiðar.________
______15 sléttfullar mgtskeiðar
___________hnetusmjör___________
_______1-1 % tsk chilipipgr_____
'A-'/z tsk coyenne pipar
________%tsk svartur pipar______
__________1 tsk hunang__________
________1 -2 tsk sítrónusafi____
Vátsk þurrkuð myntulauf
Vihvítlauksrif ef vill
Hrærið kryddinu vel saman við
hnetusmjörið. Sítrónusafi,
myntulauf og hunang fylgja á
eftir. Athugið að kjötsósan getur
verið mjög sterk og ef þið viljið
milda bragðið er upplagt að bæta
í einni matskeið af hnetusmjöri,
eða svolitlu hunangi og sítrónu-
safa. Best er að smakka sig til.
Farið mjög varlega með cayenne
piparinn, hann getur orðið yfir-
gnæfandi.
Makið sósunni sem á að vera
í þykkara lagi á þunnar kjötsneið-
amar. Til að sneiðarnar Iafí ekki
og festist við grillið er best að
þræða þær á grillspjót og leggja
á heita grillteinana í u.þ.b. 1-2
minútur á hvorri hlið.
BEST erað
þræða þunnar
^ kjötsneið-
j arnara
grillspjót til
'' ' þess að þær
verði viðráð-
anlegri á grillinu.
Gott er að bera fram með kjöt-
inu heitt pítubrauð, bakaða kart-
öflu með kartöflusósu, eða soðin
hrísgijón og ferskt salat.
Athugið að þessi réttur er mjög
seðjandi og hnetusmjörið bætir á
næringargildi kjötsins. Hafíð nóg
af svaladrykk með.
Passið upp á
vetrarskóna
EFLAUST eru margir búnir að
fjárfesta í skóm fyrir veturinn.
Það kostar vinnu að halda vetr-
arskóm fallegum. Eftirfarandi
ráð birtust í bandaríska blaðinu
Firstá dögunum.
1. Séu leðurskór blautir er árang-
ursríkt að troða dagblöðum inn
í þá til að þeir haldi upprunalegu
lagi.
2. Hafi skórnir lent í seltu eða
miklum snjó er best að láta þá
þorna við opinn glugga. Aldrei
að þurrka þá við heitan ofn.
3. Leðurskór eru þrifnir með því
að bera á þá leðursápu með
bómullarklút.
4. Burstið af aukaóhreinindi sem
ekki fara með leðursápunni.
5. Ef saltblettir hverfa ekki má
nudda þá með sápu ogköldu
vatni eða nota gömul húsráð. Þau
eru að nudda blettina með sterku
kaffi eða blanda saman hálfri
teskeið af ediki og einum bolla
af vatni og nudda blettina með
þeim vökva. Látið þorna.
6. Burstið þar til góður gljái er
kominn á skóna.
Fimm nauð-
synlegir hlut-
ir fyrir skó-
burstunina
Skóáburður, leðursápa
Silíkonúði
Skóbursti með náttúruleg-
um hárum
Bómullarklútur
Skóþvinga sem sett er
í skó til að halda lögun eða
víkka þá