Morgunblaðið - 26.08.1995, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
ftNNAb yvo/zrhR trftu'
/NN / MSSANO/H B/MOUfi/
]of oO^ O ö
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Auður, Auður
Eir, þú mæðist
í mörgu
Frá Helgu R. Ingibjargardóttir:
DROTTINN svaraði henni:
„Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæð-
ist í mörgu, en eitt er nauðsynlegt. 'Maria
valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá
henni tekið“ (Lúk.10, 41-42).
Ég sé hér í blaðinu að þið, dr.
Benjamín Eiríksson, og þú, síra (=
sir = herra) Auður Eir, rökræðið
um kyn guðdómsins._ Er þess þörf?
Hvað segir Jesús? „Ég og faðirinn
erum eitt“ (Jóhs. 10:29). Þetta eru
orð sonar Guðs og þeim er óhætt
að trúa og treysta nú sem fyrr.
(Hebr. 13:8). Ykkur ágætu konum
í kirkjunni, sem að undanfömu haf-
ið glímt við breyta kyni Guðs — sem
er ekki hið eina nauðsynlega — vil
ég benda á tímabært og verðugt
verkefni — einmitt fyrir ykkur.
Fyrir einum 3 árum bjó með
móður sinni í götunni minni lítill
fallegur hnokki, 4-5 ára. Faðirinn
mun hafa verið farandverkamaður
og fjarverandi þá. Þessi kútur kom
oft sídegis og er kvölda tók yfir
götuna í garðinn til mín, horfði
greindarlega og athugull á mig fást
við grös og að snyrta kringum
plöntur. Við spjölluðum og urðum
góðir vinir. í blíðunni eitt sumar-
kvöldið gleymdum við vinirnir okk-
ur í góðri samveru okkar og spjalli.
Ég leit á klukkuna og sagði vð
þennan ljúfa granna minn: Heyrðu
nú, klukkan er orðin margt, heldur
þú ekki að mamma fari að sakna
þín, því nú er kominn háttatími
fyrir litla menn? Jú, sagði vinurinn,
en hélt þó ekki heim til sín yfir
götuna, heldur horfði fallega og
spyrjandi á mig. Þá forvitnaðist ég
og spurði: Farið þið ekki með bæn-
irnar, þú og mamma, áður en þú
ferð að sofa? Sá litli varð undrandi
á svipinn og spurði gætilega: Bæn-
ir, hvað er það? Ég fann til angurs
og mig setti hljóða og líklega hefur
þessi litli, fallegi drengur séð undr-
unarsvip á andliti mínu. Loks svar-
aði ég: Þú skalt spyrja mömmu og
farðu nú heim til hennar.
Senn höfum við íslendingar yljað
okkur við kristinn dóm r 1000 ár
og þess verður væntanlega minnst
með verðugum hætti á Þingvöllum
árið 2000. Nú heiti ég á ykkur,
vígðu konur kirkjunnar, að þið haf-
ið forgöngu um að vinna markvisst
að því á næstu 4 árum, að allar
íslenskar mæður hafi kennt börnum
sínum bænir og bænavers fyrir hina
komandi, stóru kristnihátíð okkar.
Og áfram nú með dug og dáð.
HELGA R. INGIBJARGARDÓTTIR,
Þórsgötu 7a.
Hægt er að
^ útiloka aðild
íslands að ESB
Frá Bjarka Má Karlssyni:
EINS og Morgunblaðið hefur greint
frá samþykkti nýafstaðið SUS-þing
breytingartillögu við ályktun um
utanríkismál. I stað orðanna „ekki
er hægt að útiloka aðild íslands að
ESB“ kom textinn „hægt er að
útiloka aðild íslands að ESB“.
Tæplega er hægt að finna dæmi
um skýrari og afdráttarlausari kú-
vendingu á orðalagi en hér um
ræðir, svo algjörlega er breytt um
kúrs frá fyrirliggjandi drögum.
Engu að síður er það túlkun Jó-
hönnu Vilhjálmsdóttur, formanns
utanríkisnefndar SUS, að aðild hafi
alls ekki verið hafnað, en þeirri
skoðun lýsir hún í athyglisverðri
grein í Morgunblaðinu fimmtudag-
inn 24. ágúst.
Pólitísk niðurstaða hennar er orð-
rétt þannig: „Því miður var þessi
breytingartillaga samþykkt, sem
breytir þó ekki innihaldi ályktunar-
innar að neinu leyti(!)“.
Svona endemis hringavitleysa er
vart sæmandi jafn vel gefinni mann-
eskju og formanni utanríkisnefndar
SUS. Svona má ekki trampa á skýr-
um vilja meirihlutans. Öllum, sem á
staðnum voru, var ljóst um hvað
málið snerist. Nei þýðir nei, Jó-
hanna, líka í Evrópumálunum.
Þá er sá siður löngu aflagður að
láta drepa boðbera slæmra frétta.
Kjartan Magnússon, blaðamaður
Morgunblaðsins, sagði aðeins satt
og rétt frá því sem gerðist á þing-
inu og það var alls ekki „mjög
gróft“ hjá honum að gera það.
Hann skýrði réttilega frá því sem
samþykkt var og hallaði hvergi
réttu máli. „Því miður“.
Hitt er aftur annað mál að for-
manninum er fijálst að vera ósam-
mála meirihluta félaga sinna og
færa rök fyrir stefnu sinni. En stað-
reyndum skulum við ekki hnika.
Tillagan var samþykkt, þótt sumum
þyki það „því rniður".
BJARKIMÁR KARLSSON,
flutningsmaður breytingartillögu
þeirrar, sem samþykkt var við
utanríkismálaályktun SUS.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.