Morgunblaðið - 31.08.1995, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1995 25
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
STJÓRNARFORMAÐUR
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
TIMABÆRT
HÆTTUSPIL
ARÁSIR Atlantshafsbandalagsins í umboði Sameinuðu
þjóðanna á stöðvar Bosníu-Serba í grennd við griða-
svæði múslima, Sarajevo, Tuzla, Gorazde og Mostar eru óneit-
anlega hættuspil.
Þetta eru umfangsmestu hernaðaraðgerðir sem sveitir
bandalagsins hafa staðið fyrir frá stofnun þess. Loftárásum
var fyrst hótað í ársbyrjun 1994 og til þessa hefur níu sinnum
verið varpað sprengjum á Bosníu-Serba. Þær loftárásir hafa
verið umfangslitlar og beinst að mjög afmörkuðum skotmörk-
um, jafnvel einu fallbyssuhreiðri. Aðgerðir þessar hafa að
sama skapi verið mjög árangurslitlar og ekki megnað að koma
í tfeg fyrir áframhaldandi árásir á griðasvæðin, sem Samein-
uðu þjóðirnar höfðu heitið að vernda.
í raun má færa sterk rök fyrir því að árásirnar, sem hóf-
ust aðfaranótt miðvikudags, séu bein afleiðing þess að Samein-
uðu þjóðunum hefur mistekist ætlunarverk sitt í Bosníu. Ann-
ars vegar er auðveldara að grípa til loftárása en áður þar sem
friðargæsluliðar eru ekki lengur á helstu átakasvæðunum og
því ekki hætta á að Serbar reyni að koma í veg fyrir þær
með því að taka friðargæsluliða í gíslingu, líkt og gerðist í
maí síðastliðnum. Hins vegar virðist sem Atlantshafsbandalag-
ið, Vestur-Evrópusambandið og Evrópusambandið muni í
auknum mæli ráða ferðinni í málefnum Bosníu.
Árásirnar voru gerðar í refsiskyni fyrir hrottalega árás
Serba á Sarajevo á mánudag en þá féllu 37 óbreyttir borgar-
ar. Umfang refsiaðgerðanna þýðir hins vegar einnig að eðli
deilunnar hefur breyst. í stað þess að reyna að leysa deiluna
við samningaborðið einvörðungu er nú verið að knýja Serba
til sátta með valdi. Margt bendir til að Bosníu-Serbar hafi
vanmetið Atlantshafsbandalagið og hugsanlegt að árásirnar
verði til þess að þeir breyti um stefnu. Bosníudeilan er hins
vegar of flókin til að hægt sé að leysa hana með sprengju-
regni og vissulega er hætta á að Serbar ákveði að bjóða Atl-
antshafsbandalaginu birginn.
Úr því sem komið var áttu Vesturlönd samt ekki annarra
kosta völ. Áframhaldandi aðgerðaleysi hefði verið versti kost-
urinn.
SAMEINING
VINSTRIMANNA
ÞAÐ ER nokkuð föst regla að i hvert sinni sem nýtt flokks-
brot verður til á vinstri væng íslenzkra stjórnmála er
boðskapur þess sá að það hafi verið stofnað til að sameina
vinstri menn í einum flokki. Þegar Alþýðuflokkurinn klofnaði
árið 1938 var stofnaður nýr flokkur sem fékk nafnið Samein-
ingarflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkur og af nafninu mátti
sjá að markmið flokksins var að sameina vinstri menn.
Hið sama gerðist þegar Alþýðuflokkurinn klofnaði á ný á
sjötta áratugnum og vinstri armur flokksins myndaði kosn-
ingabandalag með Sósíalistaflokknum. Þá átti iíka að sameina
vinstri menn. Hið sama átti að gera árið 1968, þegar Alþýðu-
bandalagið varð að formlegum stjórnmálaflokki. Samtök
fijálslyndra og vinstri manna voru stofnuð með klofningi í
Alþýðubandalaginu og höfuðmarkmið þeirra var að sameina
vinstri menn. Bandalag jafnaðarmanna átti líka að sameina
vinstri menn. Og Jóhanna Sigurðardóttir ætlaði að sjálfsögðu
að sameina vinstri menn með því að kljúfa Alþýðuflokkinn
einu sinni enn og sameina vinstri menn með því að stofna
Þjóðvaka.
Niðurstaðan af tæplega 60 ára tilraunum íslenzkra vinstri
manna til að sameinast er sú að þeir hafa aldrei verið sundr-
aðri en nú. Hvaða líkur eru á því að það sameiningartal, sem
enn einu sinni er komið til sögunnar, leiði til einhvers? Þær
líkur eru sáralitlar, ef nokkrar.
Hvernig ætla Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag t.d. að
móta sameiginlega stefnu gagnvart Evrópusambandinu? Það
er nánast óhugsandi að flokkarnir geti fundið málamiðlun í
þeim efnum. Afstaða þeirra til málefna neytenda í þéttbýli
og hagsmuna landsbyggðar er gjörólík. Slík ágreiningsmál
eru vissulega til staðar í Sjálfstæðisflokknum en þau eru inn-
an flokks sem byggir á sterkum grunni. Það gegnir því allt
öðru máli en ef menn vilja sameina stjórnmálahreyfingar með
svo ólík sjónarmið.
Eitt er að sameinast um framboðslista til sveitarstjórna
eins og gerðist í síðustu borgarstjórnarkosningum, annað að
ná málefnalegri samstöðu um meginmál á landsmálavett-
vangi. Á vinstri vængnum takast bæði á gjörólík sjónarmið
í stórum málum og metnaðarfullir stjórnmálaleiðtogar, sem
hingað til hafa ekki unað því að verða undir í lýðræðislegum
kosningum og stofna þá gjarnan nýjar stjórnmálahreyfingar.
Kannski verður þessi persónulegi þáttur erfiðari viðureignar
fyrir vinstri menn en málefnin, þótt skoðanamunur sé mikill.
HEIMSPEKI
Hugsað um nútím-
ann í Astralíu
íslenzki félagsheimspekinfflirínn Jóhann Páll
Ámason gegnir prófessorsstöðu við ástralskan
háskóla. Hann er víðlesinn höfundur á sviði
*
félagsvísinda og eftirsóttur fyrirlesari. Olafur
Þ. Stephensen ræddi við Jóhann um fræði-
grein hans, námsárin í Tékkóslóvakíu,
fráhvarf hans frá marxisma, mótsagnir
nútímans og ýmislegt fleira.
Morgunblaðið/ÓÞS
JÓHANN Páll Árnason á Nesjavöllum: Kominn heim til fósturjarð-
arinnar að miðla því, sem hann hefur verið að hugsa í Ástralíu.
Brotthvarf Madelins
breytir ímyndinni
MADELIN ásamt hinum nýja fjármálaráðherra Jean Arthuis,
JÓHANN Páll Árnason er sá'
íslenzkur fræðimaður á sviði
félagsvísinda, sem hefur náð
einna mestri athygli í alþjóð-
legu fræðasamfélagi. Hann hefur
verið prófessor við La Trobe-háskóla
í Melbourne í Ástralíu í hartnær
tuttugu ár og starfaði áður m.a. við
Heidelbergháskóla í Þýzkalandi.
Hann hefur gefið út fjölda bóka á
þýzku og ensku og á meðal þeirra
nýjustu má nefna bók um uppruna
og endalok hinna kommúnísku
stjórnkerfa í Austur-Evrópu. Jóhann
Páll vinnur nú að viðamiklu verki
um nútímann. Hann er eftirsóttur
fyrirlesari og kom hingað til lands
um síðustu mánaðamót til að flytja
þrjá fyrirlestra á sumarþingi Nor-
ræna sumarháskólans á Nesjavöll-
um.
Sérgrein Jóhanns Páls er félags-
heimspeki. Hann gegnir prófessors-
stöðu í félagsfræði en segist reyna
að leggja mikla áherzlu á félags-
heimspeki. En hvað felst í félags-
heimspekilegum fræðum? „Félags-
heimspeki er ekki til sem opinber-
lega sjálfstæð fræðigrein við engil-
saxneska háskóla. Það er hún hins
vegar í Þýzkalandi. Sumir myndu
telja að félagsheimspeki fælist fyrst
og fremst í því að horfa á þjóðfélag-
ið frá gildishlöðnu sjónarhorni, en
ég tek ekki undir þá skilgreiningu.
Fyrir mér snýst félagsheimspeki
fremur um að taka grundvallarhug-
tök félagsvísindanna til skoðunar
og leitast við að útskýra þær undir-
stöður, sem þjóðfélagsfræði hvíla á.
Uppskurður á
þjóðfélagshugtakinu
Undanfarin ár hefur til dæmis
verið gert nokkuð af því að skera
þjóðfélagshugtakið sjálft upp og ég
hef tekið þátt í því. Það er ástæða
til að spyija hvað felist í hugtakinu
og hvað standi að baki því sögulega
séð. Ég er sammála þeim, sem telja
hið allsráðandi þjóðfélagshugtak
Vesturlanda vera fegraða eða
„ídealíseraða" mynd af þjóðríkinu.
Hinu sögulega fyrirbæri, þjóðríkinu,
er lyft upp í æðra veldi og sem ab-
strakt hugtak verður það að horn-
steini félagsvísindanna.
Tveir fræðimenn, sem þarna hafa
valdið mestu um, eru Emile Durk-
heim og Talcott Parsons, og þeir
verða helzt fyrir gagnrýni þegar
farið er að ijalla um þjóðfélagshug-
takið á gagnrýnan hátt. Þetta er
dæmi um það hvað fé-
lagsheimspekin fæst við.
Næsta skref er svo að
setja þessa hluti í hug-
mynda- og menningar-
sögulegt samhengi. Þar
með er félagsfræðin komin í nánari
tengsl við menningar- og saman-
burðarsögu, sem kemur við öðrum
þætti í fræðunum, sem ég kenni og
skrifa um, og er kallaður söguleg
félagsfræði. Henni er kannski bezt
lýst sem tilraun til að ijúfa einangr-
un félagsfræðinnar og sagnfræðinn-
ar hvorrar frá annarri.
Frá Lenín til Hayeks
Það hefur verið talað um flótta
félagsfræðinga inn í nútímann —
að þeim hætti til að gleyma hinum
sögulega bakgrunni. Söguleg fé-
lagsfræði er um leið tilraun til að
taka upp aftur þráðinn þar sem
hann var slitinn hjá hinum sígildu
félagsvísindamönnum. Sérstaklega
Max Weber var sögulegur félags-
fræðingur, eins og nú er talað um.“
Jóhann Páll hélt til náms við
Karlsháskólann í Prag í Tékkóslóv-
akíu árið 1959 og var þar í sjö ár.
Hann segir það hafa verið mikil-
væga reynslu og mikilvægasta hluta
menntunar sinnar. „Þar var harð-
línustalínismi ríkjandi þegar ég kom
og einhver forhertasta kommúnista-
stjórn sem um getur,“ segir hann.
Jóhann segist síðan hafa getað
fylgzt með fyrstu áriim umbóta-
hreyfingarinnar í landinu og ljóst
hafi verið að miklar breytingar
hefðu verið að eiga sér stað er hann
fór frá Tékkóslóvakíu árið 1966, en
hann hafi þó ekki órað fyrir „spreng-
ingunni“ í janúar 1968,
sem olli síðan innrás Sov-
étmanna og bandamanna
þeirra í Varsjárbandalag-
inu, sem kæfði „vorið í
Prag“ í fæðingu.
Jóhann Páll hefur á seinni árum
fjallað talsvert um Austur-Evrópu
og Sovétríkin fyrrverandi og segir
það eiga rætur að rekja til þess, sem
hann las og hugsaði í Prag á sjö-
unda áratugnum. Hann hafi jafn-
framt komið oft í heimsókn til
Tékkóslóvakíu og annarra Austur-
Evrópuríkja. Hann segir þjóðirnar,
sem sækist nú eftir vestrænum
fyrirmyndum af kappi, oft hafa fegr-
aða ímynd af Vesturlöndum. „Það
er mikið af mönnum, sem hafa
stokkið beint úr marx-lenínisma yfir
í róttæka frjálshyggju; hafa snúizt
frá Lenín til Hayeks, ef svo má
segja, og gleyma því kannski að
Max Weber er til.“
Weber fram yfir Marx
Jóhann Páll, sem hefur skipað sér
á bekk með gagnrýnum, vinstrisinn-
uðum fræðimönnum, segir reynslu
sína í Tékkóslóvakíu hafa gerbreytt
skilningi sínum á Marx. „I Tékkó-
slóvakíu tileinkaði ég mér gagnrýn-
inn marxisma með sterku ívafi frá
vestrænni heimspeki, sérstaklega
varðandi hugtakanotkun," segir
hann. Nú hefur hann hins vegar
tekið þýzka þjóðfélagsfræðinginn
Max Weber fram yfir Marx. „Það
er hægt að hafa ýmislegt gagn af
Marx, ekki sízt með því að lesa
hann með - hliðsjón af Weber. Það
er meira af Marx í Weber en marg-
ir gera sér grein fyrir. En það má
segja að Weber hafi nú tekið sess
Marx sem höfuðspámaður gagnrýn-
inna kenninga í félagsvísindum. Það
er hins vegar annar Weber en lengi
var í tízku í Bandaríkjunum. Virtur
bandarískur félagsfræðingur hefur
sagt að Ameríkanar hafi farið með
Max Weber eins og með Sigmund
Freud; þeir breyttu þeim báðum í
bjartsýnismenn! Að mínu mati er
það verðmætasta í kenningum Web-
ers áherzlan á átök, mótsagnir og
ósamrýmanlega þætti í nútíman-
um.“
Jóhann Páll segist þeirrar skoðun-
ar að bæði Weber og Durkheim
skilji betur og taki alvarlegar menn-
ingarlega og pólitíska þætti í bygg-
ingu og breytingu samfélagsins en
Marx, sem hafi lagt ýkta áherzlu á
hinn efnahagslega grunn þess. „Ég
hef því sagt skilið við Marx. Ég var
reyndar búinn að missa alla trú á
sovézkan marxisma í árslok 1961,
en hinn gagnrýni marxismi, sem var
að þróast í Tékkóslóvakíu á sjöunda
áratugnum, var af öðru tagi. Löngu
eftir að hann beið ósigur 1968 hélt
ég í hugmyndina um að hægt væri
að taka meira mark á Marx en öðr-
um hugsuðum. Það var fyrst seint
á áttunda áratugnum, sem afstaða
mín til Marx breyttist með þessum
hætti, þótt ég hafi ekki viljað kasta
hinu marxíska sjónarhorni algerlega
fyrir róða.“
Fordæmdur sem „borgara-
legur fræðimaður"
Eftir námsdvölina í Tékkóslóvak-
íu hélt Jóhann Páll til Þýzkalands,
þar sem hann lauk doktorsprófi í
félagsheimspeki undir handleiðslu
hins víðkunna fræðimanns Júrgen
Habermas. Hann tengdist þar meðal
annars hreyfingu nýmarxista, sem
kallaði sig Neue Linke, en segir
sambúð sína við hana hafa verið
erfiða. „Ég hafði lært hitt og þetta
í Tékkóslóvakíu, sem kom ekki heim
og saman við boðskap þeirra. Ég
stóð nokkuð nærri Frankfurt-skól-
anum og lærði hjá Habermas, sem
var langt frá því að vera kreddu-
kenndur marxisti. Mér kom hins
vegar illa saman við rétttrúaðri hópa
í nýju vinstrihreyfingunni í Þýzka-
landi.
Ég kenndi og skrifaði í þijú ár
við Heidelberg-háskóla og var illa
séður af maóistum. Ég á enn flug-
rit, þar sem ég er fordæmdur sem
borgaralegur fræðimaður.“
Þverstæður nútímans
Kenningar um nútímann eru aðal-
viðfangsefni Jóhanns Páls um þess-
ar mundir. Hann segir að áherzla á
eðli nútímans sé eins konar viðbót
eða leiðrétting á fyrri áherzlu félags-
fræðinga á ferli nútímavæðingar í
samfélaginu: „Hvaða skilning leggj-
um við í orðið nútímalegur? Hvaða
þýðingu hefur það fyrir menningu
eða þjóðfélag? Þegar leitað er svara
við þessum spurningum komast
menn fljótt að því að meira má læra
af klassíkerum félagsfræðinnar, til
dæmis Durkheim og Weber, en til
dæmis Talcott Parsons og lærisvein-
ar hans á árunum eftir stríð gerðu
sér grein fyrir.
Eitt af því, sem mér þykir athygl-
isvert í þessu sambandi, eru hlið-
stæður milli sovétmarxisma og þess,
sem kalla mætti opinbera ameríska
hugmyndafræði. Það er sambærileg
bjartsýni, sannfæring um að nútím-
inn sé í eðli sínu samstæður, sam-
stilltur og þróanlegur upp í hærra
veldi. Það, sem menn hafa síðar
veitt meiri athygli, eru
vandamál og þverstæður
í nútímanum. Fræðimenn
hafa skoðað einstaka eðl-
isþætti nútímans, þar á
meðal kapítalisma, lýð-
ræði, ríkismyndun og þjóðernis-
hyggju. Mikið af því, sem ég hef
skrifað um fræðilega greiningu á
nútímanum, fjallar um misvísandi
þróun þessara þátta.“
Það dæmi um misvísandi þróun
af þessu tagi er oft tekið að efna-
hagsþróun heimsins hafi farið fram
úr stjórnmálaþróuninni — efnahags-
lífið sé í auknum mæli hnattrænt,
en stjórnmálin miðist við þjóðríkið.
Jóhann Páll segir að ekki megi þó
ofureinfalda þessa mynd. „Oft er
látið sem svo að hnattræn þróun sé
nýtt fyrirbæri, hafi átt sér stað síð-
astliðin fimm til tíu ár. Hún er þá
oft talin fyrst og fremst efnahagsleg
og að hún marki einhvern lokasigur
hins efnahagslega yfir því pólitíska.
Mér finnst meira vit í að ræða um
hnattræna þróun sem einn þátt nú-
tímans, allt frá upphafi. Það mætti
jafnvel byija á árinu 1492, er
Kólumbus fann Ameríku, því að þá
varð heimurinn einn og óskiptur.
Það, sem síðan hefur gerzt, er rök-
rétt framhald. Hnattræn þróun er
einn af þeim eðlisþáttum nútímans,
sem setja svip á síðastliðnar íjórar
til fimm aldir, en þá hefur lýðræðis-
leg og kapítalísk þróun átt sér stað.
Hnattræn þróun er ekki aðeins efna-
hagslegt ferli, heldur þrívítt; efna-
hagslegt, pólitískt og menningar-
legt. Þau hnattrænu fyrirbæri, sem
verða til, hlýða ekki öll sömu lögum
og það er misræmi milli hnattræn-
unnar í efnahagsmálum og stjórn-
málum. Sumir partar efnahagslífs-
ins eru líka hnattrænni en aðrir, og
það er sennilega ýkt þegar sagt er
að það hafi endanlega slitið sig úr
böndum þjóðríkisins. Hins vegar
getur líka verið villandi að tala um
þjóðríkið, því að sum ríki eru bæði
þjóðlegri og ríkislegri en önnur. Það
fer til dæmis varla á milli mála að
japanskt hagkerfi er „þjóðlegra" en
flest önnur, en fæstum dettur í hug
að smáríkin í Kyrrahafi ráði nokkru
um eigin efnahagsmál."
Bjartsýnin ótímabær
Jóhann minnir á að á fyrsta ára-
tug þessarar aldar hafi verið rætt
um að efnahagsleg þróun væri orðin
svo alþjóðleg og þjóðríkin svo háð
hvert öðru, að stríð væri þar af leið-
andi óhugsandi. „Þessi bjartsýni er
ekki óskyld marxísk-lenínískri bjart-
sýni, því að í báðum tilfellum er um
efnahagslega nauðhyggju að ræða.
Menn treysta á að efnahagsleg lög-
mál tiyggi þróun í rétta átt.“
Bjartsýni fijálslyndra fræði-
manna í Evrópu í upphafi aldarinnar
hefur verið borin saman við þá bjart-
sýni, sem greip um sig við hrun
kommúnismans í austurhluta álf-
unnar árið 1989, en þá varð mönn-
um tíðrætt um lokasigur vestræns
lýðræðis og markaðshagkerfis og
nýja og friðvænlegri heimsskipan.
Jóhann Páll telur lítið vera eftir af
þeirri bjartsýni. „Ef litið er á fyrrver-
andi kommúnistaríki, hefur þróunin
þar verið í mjög mismunandi áttir.
Ég held að óhætt sé að segja að
menningarhefðir og sögulegur bak-
grunnur hvers lands ráði meiru um
það hvað gerist en sú hugmynda-
fræði, sem hefur verið ríkjandi, og
hvað menn hafa þótzt vera að gera
eða haldið að þeir væru að gera.“
Fræðasamfélag á bak við
tungumálamúr
Síðastliðin nítján ár hefur Jóhann
Páll verið prófessor við La Trobe-
háskóla í Melbourne í Ástralíu. Hann
segir það ekki hafa verið meðvitaða
ákvörðun að taka stefnuna svo langt
burt frá heimahögunum á íslandi,
heldur hafi málin æxlazt svona.
Hins vegar séu ýmsir kostir við að
vera fræðimaður í Ástralíu. „Ég er
langt í burtu frá helztu miðstöðvum
nútímasögunnar og það er að vissu
marki auðveldara að hugsa um þær
úr hæfilegri fjarlægð. Hvort ég hefði
haft sömu möguleika, ef ég hefði
verið á íslandi? Það er auðvitað
spurning um tungumálið, sem mað-
ur skrifar á. Ég fór að skrifa á þýzku
eftir að ég var í Þýzka-
landi og skrifaði lengi vel
á þýzku eftir að ég kom
tif Ástralíu. Nú skrifa ég
hins vegar meira á ensku.
Það er erfitt að skrifa að
staðaldri á öðru máli en því, sem
maður kennir á. Ef ég hefði verið
hér, hefði ég sennilega ekki skrifað
jafnmikið á erlendum málum og þar
með hefði tungumálamúrinn komið
* til sögunnar, sem ef til vill stendur
íslenzku fræðasamfélagi helzt fyrir
þrifum.“
Jóhann Páll bætir við að hann
beri mikla virðingu fyrir því starfi,
sem unnið hafi verið meðal félags-
vísindamanna á íslandi við að þýða
fræðilegan orðaforða. „Að miklu
leyti hefur þetta gerzt eftir 1970,
þannig að ég hef ekki kynnzt þýð-
ingarstarfinu mikið. Ég hef þó feng-
ið nasasjón af því eftir að ég fór
að koma hingað oftar, upp úr 1984
hef ég verið hér annað hvert ár.
Mér finnst hafa náðst meiri árangur
á þessu sviði en mig hefði grunað
fyrir tuttugu og fimm árum.“
Alain Madelin, sem sagði
af sér sem fjármálaráð-
herra Frakklands fyrir
síðustu helgi, hefur verið
helsti hugmyndafræð-
ingur franskra markaðs-
sinna. Steingrímur Sig-
urgeirsson segir brott-
hvarf hans breyta ímynd
stjórnar Alain Juppés.
IMYND frönsku ríkisstjórnarinn-
ar breytist nokkuð með brott-
hvarfi Alains Madelin fjár-
málaráðherra úr stjórn Alains
Juppés forsætisráðherra. Madelin
hefur um árabil verið einn helsti
málsvari fijálslyndra viðhorfa 5 efna-
hagsmálum í frönskum stjórnmálum
og skipan hans í þetta valdamikla
embætti var á sínum tíma talin vera
tákn um að Jacques Chirac forseta
væri alvara er hann lofaði uppstokk-
un á efnahagslífi Frakklands.
Raunar má færa rök fyrir því að
þau markmið, sem Chirac leggur til
grundvallar stefnu sinni, séu um
margt mótsagnakennd. Hann heitir
uppstokkun á efnahagslífinu og
minni ríkisafskiptum á sama tíma
og hann leggur mikla áherslu á að
draga úr félagslegri mismunun og
félagslegri spennu í Frakklandi. Með
afsögn Madelins dregur stórlega úr
líkum þess að hin efnahagslega upp-
stokkun verði jafnróttæk og vonir
stóðu. til.
Madelin er sá franski stjórnmála-
maður á hægri vængnum sem mesta
áherslu hefur lagt á hugmyndavinnu
og má segja að hann hafi verið helsti
hugmyndafræðingur hægrimanna
um árabil eða allt frá því að hann
átti sæti í ríkisstjórn Chiracs á árun-
um 1986-88. Hann er forstöðumaður
hugmyndabankans Euro 92 Instit-
ute, sem reglulega heldur ráðstefnur
um efnahagsmál.
Ekki gaullisti
John Laughland, sem kennir við
Institute de Science Politique í París,
segir í grein í Wall Street Journal
að einmitt vegna þessarar sérstöðu
sinnar hafi Madelin ávallt verið nokk-
uð utangarðs í frönskum stjórnmál-
um. Hann tryggði hins vegar stöðu
sína með því að lýsa snemma yfir
stuðningi við forsetaframboð Chiracs
og studdi hann dyggilega þegar hann
átti sem mest undir högg að sækja.
Þessi stuðningur Madelins var Chirac
mjög mikilvægur. Madelin er ekki í
flokki nýgaullista (RPR) heldur vara-
formaður Repúblikanaflokksins sem
er hluti af flokkabandalaginu UDF,
sem Valéry Giscard
d’Estaing er. í forystu fyr-
ir. Þá stofnaði Madelin
samtökin Idées-Action sem
áttu stóran þátt í því að
afla Chirac fylgis í við-
skiptalífinu. Loks var Mad-
elin höfundur efnahagsstefnu
Chiracs þar sem mikil áhersla var
lögð á að skera niður ríkisútgjöld.
Markaðshyggjumaðurinn Madelin
studdi hinar félagslegu áherslur
Chiracs þar sem hann var sannfærð-
ur um að einungis væri hægt að
draga úr félagsíegri mismunun í
landinu með aukinni áherslu á fijáls-
an markað. Ríkisafskiptakerfið hefði
gengið sér til húðar.
Það ætti þvi kannski ekki að hafa
komið neinum á óvart þegar Madelin
viðraði skoðanir í þessum anda í út-
varpsviðtali á fimmtudagsmorgni í
síðustu viku. í viðtalinu var Madelin
spurður hvernig stæði á því að lífeyr-
iskerfi opinberra starfsmanna gerði
ráð fyrir örlátari greiðslum en lifeyr-
iskerfi hins almenna markaðar og
svaraði hann því að þetta væri ekki
réttlátt. Madelin sagði einnig í svari
sínu að hann vonaðist til að hægt
yrði að örva framleiðslu í Frakklandi
með því að stokka upp hið félagslega
kerfi og ríkisfjármálin og bætti því
við að vissulega væri það vandamál
að sumir gætu setið heima aðgerða-
lausir og fengið hærri bætur en þeir
sem væru í fullri vinnu á lágmarks-
launum.
Frönsk stéttarfélög urðu æf yfir
þessum ummælum fjármálaráðherr-
ans og varð það til að Alain Juppé
forsætisráðherra ákvað að láta Mad-
elin víkja úr ríkisstjórninni. Juppé
var búinn að skipuleggja fundi með
stéttarfélögum í næstu viku og óttað-
ist að yfirlýsingar Madelins gætu
stefnt þeim viðræðum í tvísýnu.
Yeikir stöðu stjórnarinnar
„Það er erfiðara að hugsa sér
betri leið fyrir ríkisstjórn til að veikja
stöðu sína en að fórna næstvalda-
mesta ráðherra sínum eftir dagslöng
mótmæli stéttarfélaga,"
segir Laughland og bætir
við að þetta sé þvi miður
sönnun þess að Fraklandi
sé enn stjórnað annars
vegar áf embættismönnum
og hins vegar af stjórn-
málamönnum sem séu aldir upp sem
embættismenn í hinum virta stjórn-
sýsluskóla ÉNA.
Annað dæmi um þetta sé að Mad-
elin hafi viljað fækka embættismönn-
um um 20 þúsund fyrir lok næsta
árs en Juppé krafist þess að fjöldi
þeirra yrði óbreyttur. Telur Laugh-
land að Madelin hafi látið blekkjast
af hinni fijálslyndu stefnuskrá
Chiracs því sannleikurinn sé sá að
jafnt Chirac sem Juppé séu dauð-
hræddir við að fá á sig of mikinn
„hægri“-stimpil. Nefnir Laughland
þessu til stuðnings að meðal fyrstu
aðgerða ríkisstjórnarinnar liafi verið
að hækka lágmarkslaun, en þau eru
að mati margra efnahagssérfræð-
inga ein helsta skýringin á miklu
atvinnuleysi meðal ungmenna,
hækka virðisaukaskatt um tvö pró-
sentustig og hækka táknrænan skatt
á „efnafólk".
Deilur hófust í sumar
Það sé því ekki rétt að Madelin
hafi verið látinn segja af sér sökum
þess að hann „ógnaði“ umbótastefnu
stjórnarinnar líkt og Juppé gaf í ,
skyn. Þvert á móti hafi deilur forsæt-
is- og fjármálaráðherrans hafist fyrr
í sumar er Juppé vildi samþykkja
aukin ijárlagahalla en Madelin reyna
að halda honum óbreyttum. Þá hafi
Juppé ekki fallist á tillögur Madelins
um að lækka hæsta stig tekjuskatts
í 50%.
Laughland segir Chirac hafa fallið
í sömu gryfju og Edouard Balladur
forsætisráðherra á síðasta kjörtíma-
bili er sá síðarnefndi notaði rökin
um „breytingar án kollsteypu“ til að
hylja hversu illa honum væri við
raunverulegar breytingar. Nú séu
aftur á móti líkur á að Madelin
muni ásamt Philippe Seguin þingfor-
seta, sem einnig var öflugur stuðn- '
ingsmaður Chiracs í kosningunum,
mynda óformlega andspyrnuhreyf-
ingu á hægri vængnum. Báðir hafa
þeir ákveðnar efasemdir um Evrópu-
samstarfið í núverandi mynd og
gæti það reynst Chirac erfitt þegar
fram í sækir að hafa þá báða á
móti sér.
Ekki eru þó allir sammála um
hversu mikil áhrif afsögn Madelins
muni hafa og benda sumir frétta-
skýrendur á að Juppé hafi í raun
verið sá er mótaði efnahagsstefnuna.
Arftaki Madelins í embætti, Jean -
Arthuis, sé einungis útvötnuð útgáfa
af Madelin. Hugsanlega verði stíll
hans frábrugðin en stefnan líklega
svipuð.
Raunar játaði Juppé í viðtali í gæi
að hann væri sammála Madelin varð-
andi lífeyri ríkisstarfsmanna en að
það væri samt hann sem mótaði
stefnuna.
Weber hefur
nú tekið sess
Marx
Langt frá mið-
stöðvum nú-
tímasögunnar
Gagnrýndi líf-
eyrisgreiðsl-
ur opinberra
starfsmanna