Morgunblaðið - 09.09.1995, Page 20
20 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Jeltsín óvenjuharðorður um Vesturlönd á fréttamannafundi
Segir stækkun NATO
geta kveikt ófrið í Evrópu
Hótar beinum stuðningi við Serba
verði loftárásum á þá ekki hætt
Moskvu. Reuter.
JELTSÍN var í miklum ham á fréttamannafundinum í gær og virð-
ist vera búinn að jafna sig eftir hjartaáfallið fyrir tveim mánuðum.
Yfirvöld banna
fréttaþætti BBC
Asakanir
um hlut-
drægni
Búkarest. Reuter.
OPINBER, rúmensk eftirlits-
nefnd, CNA, sem fer með
málefni fjölmiðla, hefur bann-
að útsendingar á fréttaþátt-
um með rúmensku tali frá
BBC í Bretlandi. Útsending-
amar hófust fyrir viku og
önnuðust ríkissjónvarpið í
Búkarest þær auk nokkurra
smærri einkastöðva en nefnd-
in sagði að starfsemin bryti
gegn lögum landsins og al-
þjóðalögum.
Segjast fylgja reglunum
Málgagn ríkisstjómarinn-
ar, Vocea Romaniei, birti for-
ystugrein á fímmtudag, dag-
inn eftir ákvörðun CNA, og
sakaði þar BBC um hlut-
drægni í fréttum frá Rúmen-
íu. Skoðanir sem hampað
væri í útsendingunum væm
augljóslega mjög í andstöðu
við stefnu stjómvalda í Rúm-
eníu.
BBC birti yfírlýsingu þar
sem sagði að í umræddum
þáttum væri farið vandlega
eftir reglum stofnunarinnar
um fréttaflutning.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
herti í gær á gagnrýni sinni á loft-
árásir NATO-flugvéla á stöðvar
Serba í Bosníu og sagði jafnframt,
að áætlanir bandalagsins um út-
þenslu í austur myndu „kynda ófrið-
areld" um alla Evrópu. Krafðist tals-
maður hans þess, að hernaðurinn
gegn Serbum yrði stöðvaður þegar
í stað þar sem ekki væri víst, að
þeir hefðu borið ábyrgð á árásunum
á Sarajevo í síðustu viku.
Efast um
umboð NATO
Jeltsín fór mikinn á fréttamanna-
fundinum og virðist vera búinn að
ná sér vel eftir hjartaáfallið fyrir
tveimur mánuðum. „Hvers vegna er
ég andvígur stækkun NATO? Loft-
árásimar á Serba í Bosníu eru fyrsta
merkið um það, sem gæti gerst þeg-
ar NATO væri komið upp að landa-
mærum Rússneska sambandslýð-
veldisins," sagði Jeltsín. „Þeir, sem
krefjast stækkunar bandalagsins,
eru á alvarlegum villigötum. Öll
Evrópa gæti logað í ófriði."
Jeltsín lét að því liggja í fyrradag,
að Rússar kynnu að hætta friðar-
samstarfinu við NATO og í gær gaf
hann í skyn, að stuðningur Rússa
við Serba gæti brátt falist í öðru en
sendingu hjálpargagna ef loftárás-
imar héldu áfram.
I yfírlýsingu, sem Sergei
Medvedev, talsmaður Jeltsíns, gaf
út að loknum fréttamannafundinum,
sagði, að ástandið í Bosníu nú væri
farið að hafa alvarleg áhrif á alþjóð-
leg samskipti og dró í efa, að NATO
hefði umboð til hemaðarins. Kvað
hann nýjar upplýsingar um
sprengjuárásina á Sarajevo í síðustu
viku, sem varð 37 manns að bana,
benda til, að hugsanlega hefðu aðrir
en Serbar borið ábyrgð á henni.
250 flokkar í framboð
Það þykir sýna óánægju Jeltsíns
með áhrifaleysi Rússa í Bosníu, að
hann kvaðst vera ósáttur við
frammistöðu rússneska utanríkis-
ráðuneytisins. Munu þau ummæli
hans ekki bæta stöðu Andrei Koz-
yrevs utanríkisráðherra en búist er
við, að krafíst verði brottvikningar
hans á aukafundi þingsins í dag.
Jeltsín vék einnig að innanlands-
málunum og sagði það fagnaðar-
efni, að efnahagslífíð einkenndist af
auknum stöðugleika. Mesta
áhyggjuefnið sagði hann hins vegar
vera upplausnina í rússneskum
stjórnmálum; 250 pólitísk samtök
ætluðu að bjóða fram í kosningunum
í desember. Kvað hann enga sam-
stöðu með flokkum lýðræðissinna
og því myndi þessi staða gagnast
öfgaflokkunum best.
Jeltsín ítrekaði, að ekki kæmi til
greina, að Tsjetsjníja segði sig úr
rússneska sambandslýðveldinu en
opnaði hins vegar dymar fyrir sátt-
um við Rúslan Khasbúlatov, fyrrver-
andi forseta rússneska þingsins og
annan helsta forsprakka uppreisnar-
innar fyrir tveimur árum. Sagði
hann, að Khasbúlatov, sem er
Tsjetsjeni, gæti haft hlutverki að
gegna í landi sínu og enginn ástæða
væri til að erfa gamlar syndir.
Grunur um galla í hliðar-
stýri Boeing 737-200
Ekki hefur tekist að upplýsa tvö flugslys
í Bandaríkjunum þar sem flugvélar sömu
gerðar komu við sögu. Þar sem ekki er
hægt að útiloka galla í stýrisbúnaði Boeing
737-véla fóru bandarísk sijómvöld
fram á breytingar á búnaðinum.
TVÖ óupplýst flugslys í Bandaríkj-
unum hafa vakið grunsemdir
manna um að galli geti leynst í
hliðarstýrisbúnaði Boeing 737-200
véla. Þetta kemur fram í nýjasta
hefti Newsweek. Á síðasta ári
beindi bandaríska loftferðaeftirlitið
þeim tilmælum til þarlendra flugfé-
laga að breyta stýrisbúnaðinum
vegna þessa gruns og bárust slík
tilmæli einnig til Flugleiða, sem
reka Boeing 737-400 vélar, að sögn
Kristins Halldórssonar, tæknistjóra
Flugleiða. Hafa þessar breytingar
verið gerðar.
Fyrra slysið varð í Colorado
Springs árið 1991 en þá fórust 25
manns er vélin tók skyndilega
krappa beygju og steyptist til jarð-
ar. Engin skýring hefur fundist á
slysinu. Hið síðara varð fyrir réttu
ári en þá steyptist 737-300 vél
USAir flugfélagsins til jarðar nærri
Pittsburgh. Allir sem um borð voru,
132 menn, fórust.
Það hefur valdið mörgum rann-
sóknarmönnum flugslysa áhyggjum
hversu margt er líkt með þessum
óupplýstu slysum. Óttast menn að
um galla geti verið að ræða í stýris-
búnaði 737-vélanna þó að engar
sannanir hafí fundist fyrir slíku.
Algengasta þota heims
Sé um það að ræða yrðu áhrifin
gríðarleg, því Boeing 737-vélin, er
algengasta þotan í farþegaflugi í
heiminum. Jafnan eru um 700 Bo-
eing-vélar á lofti i einu.
Boeing- verksmiðjurnar benda á
lága slysatíðni í 737-vélunum til
sönnunar því að þotan sé örugg.
„Ef um hönnunargalla væri að
ræða, þá er undarlegt að hann
stingi aðeins upp kollinum í eitt
skipti af 10 milljónum," segir Mike
Rioux fulltrúi samtaka flugfélaga
(ATA) í samtali við Newsweek og
yfírmaður bandaríska loftferðaeft-
irlitsins (FAA), David Hinson segir
engar sannanir fyrir því að Boeing
737-vélamar séu ekki fyllilega ör-
uggar.
Þeir eru þó margir sem telja að
fullsnemmt sé að senda frá sér slík-
ar yfírlýsingar. Áður en hægt er
að segja til um orsök slysanna með
vissu sé ekki hægt að bæta úr vand-
anum né fullvissa almenning um
að hann sé enginn.
200 sinnum í flughermi
Eitt af því sem gert hefur rann-
sóknina á síðara flugslysinu svo
erfíða, er að „svarti kassinn" svo-
kallaði reyndist stilltur þannig að
hann skráði aðeins grunnupplýs-
ingar. Nýir „svartir kassar" skrá
allt að 100 mælitæki í flugi en
kassinn í USAir skráði aðeins 11,
skv. lágmarkskröfu FAA. Á næstu
mánuðum tókst að útiloka margar
UNNIÐ að rannsókn slyssins í Colorado Springs árið 1991.
Slysatíðni nokkurra
flugvélategunda
f\ \JL
Slys á hverja milljón flugferða *
McDonnali Doualas DC-10 2.52
Airbus A320 og A321 1,73
McDonnall Douglas DC-9 1,21
Boeing 747-400 1,19
Boeing 737-100/200 1,15
Lockheed L1011 0,91
Boeing 737-300/400/500 0,62
McDonnali Douglas MD-80 0,51
*Slys þar sem flugvél ferst, þó ekki slys vegna skemmdarverka eða í hernaði. (Heimiid: Ðoeíng)
skýringar, svo sem . að sprengju
hefði verið komið fyrir, að fugl hefði
flogið inn í hreyfílinn eða að vélin
hefði lent í sviptivindi. Fljótlega
beindu menn sjónum sínum að
tveimur skýringum; bilun í hliðar-
stýri eða að vélin hefði lent í loft-
sveip í kjölfar annarrar flugvélar.
Sérfræðingar NASA, bandarísku
geimvísindastofnunarinnar, sögðu
síðamefndu skýringuna afar ólík-
lega.
Þeir sem rannsakað hafa flug-
slysið hafa sett það á svið um 200
sinnum í flughermi. Komust þeir
að þeirri niðurstöðu að það eina sem
getur hafa orsakað það að vélin
skyldi fara inn í krappa beygju og
steypast niður sé að hliðarstýrið
hafí skyndilega snúist eins langt
og það komst í aðra hvora áttina.
Við rannsókn á slysstað kom hins
vegar í ljós að hliðarstýrið var í
eðlilegri stöðu.
Boeing-verksmiðjurnar fullyrða
að engin gögn bendi til þess að
hliðarstýrið hafí snúist svo skyndi-
lega í vélum fyrirtækisins en í
Newsweek segir að það sé ekkert
leyndarmál að vandkvæði hafí verið
með hliðarstýri í 737-vélunum, 30
slík dæmi hafi borist á borð banda-
ríska loftferðaeftirlitsins frá árinu
1986, og 250 tilkynningar til Bo-
eing-verksmiðjanna. Segir talsmað-
ur Boeing að oft hafi verið um
smávægileg atkvik að ræða og að
flugmenn séu gjamir á að ýkja.
Eitt dæmið er um flugstjóra hjá
Continental Airlines sem háði harða
baráttu í 18 mínútur við að rétta
af Boeing 737-vél í 30.000 feta hæð
eftir að hún beygði skyndilega.
Bilunin í stillibúnaði
Það sem talið er varpa einna
skýmstu ljósi á málið er bilun er
varð í 737-vél á O’Hare flugvelli í
Chicago árið 1992. Flugmaður
hennar gat ekki ýtt pedalanum fyr-
ir hliðarstýrið í botn, hætti við flug-
tak og bað um viðgerð. Við hana
kom í ljós að bilunin var í stillibún-
aði fyrir vökvakerfið. Væri búnað-
urinn illa settur saman gat röð at-
vika orðið til þess að hliðarstýrið
fór i þveröfuga átt við það sem flug-
maðurinn ætlaði.
Vegna þessa ákvað loftferðaeft-
irlitið bandaríska á síðasta ári að
skipa flugfélögum að gera breyting-
ar á stýrisbúnaðinum. Það hafði
ekki verið gert í vélinni sem fórst
við Pittsburgh en sérfræðingar Bo-
eing fullyrða að í því tilfelli, og slys-
inu 1991 hafi stillibúnaðurinn verið
rétt samsettur og útilokað að hann
hefði getað snúist við. Þeir hafa
hins vegar sett fram þá kenningu
að stillibúnaðurinn hafi getað fest
á tveimur stöðum og hliðarstýrið
hafí kastast til og farið í botn á
báða bóga. Þeir hafí hins vegar
aldrei séð þetta gerast. Starfsmenn
bandaríska öryggiseftirlitsins í
samgöngumálum segja að slíkt
myndi sjást á búnaðinum og hafa
útilokað þennan möguleika.
Þeir hafa hins vegar lagt allt
kapp á að fá bandaríska loftferða-
eftirlitið til að kreíjast þess að sett-
ir verði nákvæmari „svartir kassar"
í vélar í farþegaflugi. Slíkt muni
veita betri upplýsingar um orsakir
flugslysa og á þann hátt verða til
þess að bjarga fjölda mannslífa.
Breytingar á
vélum Flugleiða
Kristinn Halldórsson, tæknistjóri
hjá Flugleiðum, segir að framleið-
andi flugvéla félagsins sendi allar
upplýsingar er varði lofthæfi vél-
anna til þess og að fyrirmæli fylgi
frá bandarísku flugmálastjórninni,
þyki ástæða til. Stýrisbúnaður Bo-
eing 737 vélanna sé svipaður, þó
að endurbætur hafí verið gerðar á
nýrri gerðum, svo sem 737-400.
Borist hafí fyrirmæli um breytingar
á stýrisbúnaðinum þrátt fyrir að
skýringin um galla í stillibúnaðinum
þyki langsótt, þar sem að ekki sé
hægt að útiloka hana.