Morgunblaðið - 20.09.1995, Page 38

Morgunblaðið - 20.09.1995, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Afmælisveisla á Café Óperu í TILEFNI 8 ÁRA AFMÆLIS CAFÉ ÓPERU, 5 MjMylS A la Carte fimmtud.-sunnud. Leikhús-matseðill kr. 1.990 fimmtud.-sunnud. Matreiðslumeistari Robert Scobie og þú til þrjú Fyri rrnyrula rs taður Föstudags- og laugardagskvöld I DAG ÞESSI duglegu börn héldu hlutaveltu á dögunum og söfnuðu 1640 krónum sem þau gáfu í söfnunina Konur og böm í neyð hjá Rauða krossi íslands. Börain eru frá vinstri: Arna, Dóra Björk, Björk og Anna María. A myndina vantar Björn Má, Birgi Má og Ólaf Hauk. HÖGNIHREKKVÍSI SKÁK Umsjón Margcir Pétursson HVÍTUR Ieikur og vinnur a b c d e ( Staðan kom upp í næst- síðustu umferð Friðriks- mótsins. Helgi Ólafsson (2.470) hafði hvítt og átti leik, en Þröstur Þórhalls- son (2.420) var með svart. Svartur lék síðast 32. — Re8-d6 í mjög þröngri stöðu. 33. Bxe6! (En ekki 33. Dxa5? — Kf8 og hvíti hrók- urinn á e7 er í klípu) 33. — fxe6 34. Hxg7+ - Kf8 35. De3! - Rf7 36. Df4 - Hc7 37. Df6! og svartur gafst upp því hann á enga vörn við máthótuninni 38. Hg8+ - Kxg8 39. Dg7 mát. Ein af flöl- mörgum bráð- skemmtilegum a h skákum sem voru tefldar á Friðriksmót- inu. Það er frí á PCA-HM í New York í kvöld. VELVAKANDI Svarar í síma 5691100 frá 9-5 frá mánudegi til föstudags Miðnæturgolf Hér á nýja stöðin leik í EINA tíð var golfíþrótt- in talin til íþrótta, sem eingöngu heldri menn stunduðu, sem jafnframt voru við góð efni. Fyrsti golfklúbburinn hérlendis var stofnaður árið 1934, Golfklúbbur Reykjavík- ur. Það er því mikið vatn runnið til sjávar síðan golfíð hélt innreið sína á Islandi. Golfið er ekki lengur séreign karla. Það er ’ í tímans rás orðin sameign karla og kvenna, á öllum aldri, frá unga aldri til hinna efri ára, enda er golfið þann- ig íþrótt að það skiptir ekki höfuðmáli á hvaða aldri fólk byijar á því að takast á við þessa góðu íþrótt. Þetta hefur fólk áttað sig á. Vinsældir golfsins eru orðnar slíkar að heita má að golfvelli sé að finna hvar sem er á landinu, og eru þeir nú um 50 klúbbarnir. Iðkendur golfs ræða það stundum í sínum hóp hve sjónvarpsstöðvamar gera golfinu lítil skil. Það virðist sem ráðamenn þar átti sig ekki á þess- um miklu og almennu vinsældum golfsins. En á þessu gæti orðið breyt- ing, ef hin nýja sjón- varpsstöð notar tækifær- ið og tekur til hendi, gerir þar að lútandi samninga, ef stöðin ætl- ar íþróttum rúm í sinni dagskrá. Þúsundir golf- áhugamanna myndu fagna því og án efa sýna þakklæti sitt í verki. Sverrir Þórðarson, Suðurgötu 13, Reykjavik. Tapað/fundið Veski fannst HVÍT, lítil kventaska fannst á bílastæðinu við Ráðhúsið sl. laugardags- kvöld. í veskinu voru peningar og fatamiði, en engin skilríki. Uppl. í síma 565-8678 eða 896-4435. Úlpa tapaðist SVÖRT, loðfóðruð Jack & Jones úlpa tapaðist úr fatageymslu Ingólfskaff- is fimmtudagskvöldið 14. september sl. Uppl. í síma 555-0053. Bíllyklar fundust BÍLLYKLAR fundust við Lyngmóa í Garðabæ í síðustu viku. Uppl. í síma 565-6320. Barnagleraugu týndust GYLLT gleraugu með munstri töpuðust' fyrir u.þ.b. mánuði annað- hvort við Bíóhöllina í Breiðholti eða í Bústaða- hverfinu. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 553-3983. Gæludýr Kettlingar fást gefins ÞRÍR tveggja mánaða kassavanir kettlingar fást gefins. Uppl. í síma 564-2899. Köttur fæst gefins TVEGGJA ára læða fæst gefins. Hún er að hálfu leyti af síamskyni og svört og hvít. Uppl. í síma 552-9228. Víkverji skrifar... AR SEM Víkverji dagsins í dag er hjartanlega ósammála fé- laga sínum Víkverja sem ritaði pist- ilinn si. fimmtudag, getur sá er nú ritar ekki stillt sig um að leggja út í smáritdeilu við starfsbróður sinn. Hér, á þessum vettvangi, si. fimmtu- dag stóð m.a. þetta: „Víkverji verður að_ segja það, að oft hefur dagskrá RUV verið slök en síðustu vikur hefur keyrt um þverbak. Um fyrri helgi ætlaði Víkveiji að horfa á sjón- varpið á laugardagskvöldi. Dagskrá- in sem boðið var upp á var svohljóð- andi. Fyrst var 6. þáttur bandarí- skrar framhaldsmyndar, sem alls er 22 þættir. Næst kom seinni hluti ástralskrar sjónvarpsmyndar um ástandið í Ástralíu í kreppunni 1934. Og lestina rak frönsk/japönsk kvik- mynd frá 1985 gerð eftir sögu Shakespeare um Lé konung með japönskum leikurum!" XXX AÐ ÞVÍ er varðar fyrstu tvö gagnrýniatriði nafna Víkveija frá því á fimmtudag, getur Víkveiji dagsins verið félaga sínum hjartan- lega sammála. En heldur betur rak Víkveija í rogastans, þegar hann sá hvers konar meðferð snillingurinn japanski, Akira Kurosawa, mátti sæta þegar fjallað var um eitt mesta snilidarverk kvikmyndasögunnar, Ran, sem byggir á leikriti Sha- kespeare um Lé konung, en ekki sögu Shakespeares. Kurosawa er goðsögn í heimssögu kvikmynda- gerðarlistarinnar og hefur skapað ógleymanleg, áhrifarík, og óhemju fögur listaverk með kvikmyndagerð sinni. Víkveiji fimmtudagsins svipti jafnvel snillinginn nafni sínu, er hann gerði kvikmynd hans að um- talsefni og sagði Ran einungis vera fransk/japanska kvikmynd. Svo dugði ekkert minna til en upphróp- unarmerki, til þess að sýna fram á vanvirðingu Víkveija í lokin. Hugs- ið ykkur, Lér konungur, með jap- önskum leikurum! xxx AÐ ERU 45 ár liðin frá því að Kurosawa náði fyrst heimsathygli með kvikmynd sinni Rashomon. Hann hefur einnig gert kvikmynd eftir öðru leikriti Shake- speares, Makbeð, Kumonosu-jo (1957). Mynd hans, Sjö samúræjar, Shichinin no samurai (1954), þykir meðal meistaraverka Kurusowa og sömuleiðis Kagemusha (1980), sem er einstaklega áhrifarík kvikmynd, rík af mögnuðu myndmáli. Víkveiji hallast að því að Víkveiji fimmtu- dagsins ætti að verða sér úti um nokkur eintök af meistaraverkum Kurusowa, og endurskoða afstöðu sína, í kjölfar skoðunar á þeim, til eins mesta snillings kvikmyndasög- unnar. X x x ess misskilnings gætti í Vík- veija í gær, að dr. Victor Ur- bancic hefði verið af gyðingaættum. Það er ekki rétt. Hins vegar var eiginkona hans af gyðingaættum og þess vegna varð hann landflótta ásamt fjölskyldu sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.