Morgunblaðið - 20.09.1995, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 20.09.1995, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ JÖRNUB ÍC 551 6500 ★ ★★ STJÖRNUBÍÓLÍNAN Verðlaun: Bíómiðar. Sími Tónskáld, eigin- maður faðir... ...stríðið neyddi hann til að velja. Aðalhlutverk: Þröstur Leó Gunnarsson, Ruth Ólafsdóttir, Bergþóra Aradóttir, Sigrún Lilliendahl, KVIKMYND EFTIR HILMAR ODDSSON Jóhann Sigurðarson, Heinz Bennent. Sýnd kl.4.45, 6.55, 9 og 11.10. Miðasalan opnuð kl. 4.15. Miðaverð Kr. 750 TÁR úr Steini Gamanmynd um ást og afbrýðisemi, glæpi, hjónaskilnaði, lambasteik, eiturlyf, sólbekki, kvikmyndagerð, kynlíf og aðra venjulega og hversdagslega hluti. —y Reuter FOLK Díana læt- ur sitt ekki eftirliggja DÍANA prinsessa hefur löng- um þótt góðhjörtuð kona. Hún hefur í gegn um tíðina aðstoð- að ýmsar góðgerðastofnanir við að afla fjár og hefur bakað sér ófáa vini í leiðinni. Hérna mætir hún á samkomu til styrktar Rannsóknarmiðstöð Parkinson-sjúkdómsins í Lond- on. Hún hefur verið vernda- raðili „Parkinson’s Disease Society“ eða Parkinsons-sam- takanna síðan 1989. Laddería, laddera Bl-FACJL 30 mf Augnhreinsivökvi. ROUGE ABSOLU Rakagefandi varaiitur. INTENCILS - Augnháralitur HVDRATIVE 15 ml -Rakakrem LANCÖME SNYRTJTASKA LANCÖME Glœsilegur kaupaukil Þessi kaupauki fæst eingöngu í neðantöldum verslunum frá jniðvikudeginum 20. október til laugardagsins 23. október. Kaupaukinn fylgir þegar keyptir eru tveir hlutir frá LANCOME ,þar af 50 ml krukka af einhverju eftirtalinna krema: Primordiale, Rénergir, Nutriforce, Niosome + eða Hydrative. Hygea Snyrtivöruv. Glæsibæ Sigurboginn Kringlunni, sfmi 553 4533.Álfheimum 74, sími 568 3170.' Laugavegi 80, sími 561 1330. SKEMMTANIR Kvöldstund í Ö m m u n n i BRANDARAKARLINN LADDI (ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON) Höfundur: Laddi. Leikstjóri: Laddi. Söngvari: Laddi. Kynnin Laddi. Laugardagskvöld 15. september VEITINGAHÚSIÐ og skemmti- staðurinn Amman í Kringlunni býð- ur nú upp á dagskrá með Ladda. Á undan gefst gestum kostur á að snæða kvöldverð frá kl. 18.00 til 22.00 annað hvort samkvæmt tilboði fyrir hópa eða eftir fijálsu vali af matseðli. Dagskráin sem hefst kl. 22.00 er þá innifalin í verði máltíðarinnar. Einnig er boð- ið upp á sérstakt tilboð (leikhús- matseðil) fyrir fólk sem vill borða áður en farið er á leiksýningar. Matreiðslumeistari hússins er Robert Scobie og er óhætt að mæla með matnum. Matseðillinn er mjög skemmtilega samsettur og frísklegur og maturinn ljúffengur og vel fram borinn. Óneitanlega er verð á þríréttaðri máltíð töluvert hátt, en þess ber að gæta að dag- skrá Ladda er innifalin fyrir matar- gesti. Vínlistinn er takmarkaður en vínin vel valin. Kokteilar voru einstaklega góðir og vel útilátnir. Ladda var vel fagnað þegar hann gekk í salinn, enda hefur hann fyr- ir löngu unnið sér öruggan sess í hjörtum landsmanna. Hann er besti flytjandi skemmtiefnis af þessu tagi sem við eigum og flutningur hans einkennist af miklu hug- myndaflugi, öryggi og skemmti- lega leikrænni túlkun. Aðrir flytjendur slíks efnis kjósa oft að koma fram fleiri saman og bæta hver annan upp, sérstaklega ef fengist er við langa dagskrá. Laddi er einn af örfáum sem geta skemmt fólki einir sér í yfir klukku- stund og haldið áhorfendum föngn- um. Þess vegna olli það vonbrigðum á laugardagskvöldið að honum tókst það ekki í þetta skipti. Ein ástæða þessa er án efa lengd dagskrárinnar. Að flytja hálfrar annarrar klukkustundar langt skemmtiprógramm fyrir hóp áhorf- enda sem sitja við drykkju og bíða eftir að ballið byrji gengur varla nema að skemmtiefnið sé því betra. Og þar er einmitt hundurinn graf- inn. Brandararnir eru of langir og vilja renna út í sandinn. Þeir byggja oft á mjög skemmtilegum súrreal- ískum húmor sem er meinfyndinn, og það er gaman að fylgjast með hárfínum leiknum, en við þessar aðstæður ganga þeir ekki upp. Laddi hefur góða rödd, eins og sannaðist þegar hann flutti tónlist- ardagskrá á Feita dvergnum ekki alls fyrir löngu, en lögin sem hann syngur eru fæst sniðug eða áheyri- leg. í dagskránni er margt nýtt en Laddi fellur líka í þá gryfju að vekja upp nokkra af gömlu karakt- erunum sem hann er þekktastur fyrir. Ef áhorfendum er lofað nýju efni verða þeir að geta treyst því að það standist. Ef undirbúa á skemmti- dagskrá sem á að geta haldið at- hygli fólks í á annan tíma er ekki úr vegi að fá til liðs við sig nýja penna með ferskar hugmyndir og jafnvel utanaðkomandi leikstjóra sem dæmir þá um hvort dagskráin standi undir sér og hvar má stytta og taka út þætti sem hægja á henni. Það var enda augljóst að Ladda tókst best upp þegar brandaramir vom stuttir og svo átti hann að sjálf- sögðu salinn þegar hann söng lagið sitt um Austurstræti. Sveinn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.